Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1998, Page 47
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
-**-.*>C
ferðir
Gjugg í bæ með Flugfélagi Islands:
Ovissuferðir vinsælar
Loksins flugvöllur
Palestínumenn hafe opnað sinn
fyrsta alþjóðlega flugvöll. Flug-
völlurinn sem ber heitið Gasa-
flugvöllur er rekinn í skjóli ný-
gerðra friðarsamninga Palestínu-
manna við ísraela. Arafat, leiðtogi
Palestínumanna, var víst yfir sig
ánægður með nýja völlinn enda
þarf hann ekki lengur að ferðast
landleiðina til Egyptalands þegar
hann fer í utanferðir sínar. Starf-
semi flugvallarins mun fara hægt
af stað og enn er engin dagsetning
komin á hvenær áætlunarflug
palestínska flugfélagsins hefst.
Nikótínplástrar
og takmarkað vín
Samtök þýskra flugmanna hafa
sent þarlendum flugfélögum
áskorun um að grípa tii aðgerða
sem komi í veg fyrir árásir far-
þega á áhafnir flugvéla. Það er
mat samtakanna að reykingabann
og óhófleg drykkja séu meginor-
sakir óláta um borð í flugvélum.
Þeir mælast til þess að dregið
verði úr sölu áfengis og að flugfé-
lögin útvegi farþegum nikótín-
plástra eftir þörftim. Flugmenn-
imir hafa sjálfsagt eitthvað fyrir
sér því á fyrstu sex mánuðum árs-
ins voru 1252 atvik um órólega og
erfiða farþega skráð hjá þýskum
flugfélögum.
Disneyhaf íTokyo
Þrátt fyrir efnahagserfiðleika
undanfarið ríkir bjartsýni meðal
þeirra Japana sem ætla að reisa
einn glæsfiegasta Disneygarð sög-
unnar. Garðurinn, eða öllu heldur
Disneyhafið, mun rísa í Tokyo og
er áætlað að hann verði opnaður
árið 2001. Disney-menn segjast
: vanir því að reisa stóra skemmti-
garða í slæmu árferði á efnahags-
, sviðinu og sé skemmst að minnast
Euro-Disneygarðsins i París. Þeir
trúa því að eftir þijú ár verði öld-
in önnur í Japan og að þá muni
jafht innfæddir sem ferðamenn
hafa mikla þörf fyrir góða afþrey-
: ingu.
í nýja garðinum verður að
I finna gríðarstóra höfn í anda mið-
| alda, ævintýraeyju, lón tU heiðurs
litlu hafmeynni, ógurlegt frum-
skógarsvæði, höfh 21. aldarinnar
og loks bandarisku höfnina sem
| verður nákvæm eftirlíking New
York-hafnar i byrjun þessarar ald-
ar.
Helgarferðir eru ferðamáti sem
nýtur sívaxandi vinsælda. En það
fara ekki allir til útlanda því helg-
arferðir tU hinna ýmsu staða á
landsbyggðinni njóta mikiUa vin-
sælda. Að sögn Þóreyjar Ólafsdótt-
ur, sölustjóra hjá Flugfélagi ís-
lands, hafa ferðimar þróast nokk-
uð síðustu ár og nú er gríðarlega
mikið um vinnustaða- og árshátíð-
arferðir. Flugfélagið kýs að kaUa
þær ferðir Árshátíðargjugg en
gamla Gjuggið í bæ er ætlað ein-
staklingum.
„Gjugg í bæ á við helgarferðir tU
allra áfangastaða okkar. Árshátiðar-
ferðir hafa sótt gifurlega á og era að
verða okkar vinsælustu ferðir. Þær
eru skipulagðar að þörfum hvers
hóps þannig að engar tvær ferðir
eru eins. Við bjóðum ýmsa þægilega
kosti eins og að sækja farþega og
farangur heim og aka fólki á við-
komandi flugvöU þar sem það losn-
ar við biðraðir og innritun á veUin-
um. FerðatUhögun er öU frágengin
fyrirfram. Það eina sem fólk þarf að
gera er að taka góða skapið með og
njóta ferðarinnar," segir Þórey.
Höfuðstaður Norðlendinga, Akureyri, er tvímælalaust vinsælasti áfangastaður Flugfélags Islands utan Reykjavíkur,
Áramótin 1999-2000 valda titríngi meðal ferðamanna:
Nýtt árþúsund
- tvö kvöld í röð
Einnig til Reykjavíkur
Akureyri er vinsælasti áfangastað-
urinn utan Reykjavikur en EgUsstað-
ir, Höfn og ísafjörður njóta einnig vin-
sælda. Flugfélag íslands er í samstarfi
við ferðaþjónustuaðila víðs vegar um
landið sem gerir mögulegt að bjóða
vélsleðaferðir, skipulagða ratleiki,
siglingar og margt fleira í tengslum
við helgarferðirnar. „Óvissuferðir
hafa verið í tísku undanfarið og við
tökum að okkur skipulagningu slikra
ferða. Viö leggjum mikið upp úr því
að fólk njóti góðrar afþreyingar á
laugardeginum en helgarferðirnar
era frá fóstudegi tíl sunnudags."
Eins og fyrr segir era Gjugg í bæ-
ferðimar helst ætlaðar fjölskyldum og
einstaklingum. Að sögn Þóreyjar fara
flestfr tU Akureyrar en sumir kjósa
rólegri staði eins og Egjlsstaði og
Höfn. Þá má ekki gleyma að Flugfélag
íslands býður að sjálfsögðu „Gjugg-
ferðir" tU Reykjavíkur. -aþ
Áramótaæði hefur gripið um sig í
útlöndum og hefur ferðaþjónustan
sjaldan átt eins sæla daga. Það gUdir
einu hvort um er að ræða skipafélög,
hótel eða flugfélög, alls staðar er að
verða uppbókað.
Þrátt fyrir þá stað-
reynd að ýmsir haldi
því fram að næstu
aldamót hefiist ekki
fyrr en árið 2001
gengur í garð þá
hafa menn fyrir
löngu áttað sig á því
að áramótin
1999-2000 koma tU
með að skipta meg-
inmáli. í Bandaríkj-
unum eru í kringum
80% ferðaskrifstofa
komnar á fufit að
bóka ferðir og gistingu umrædda
daga. „Fyrirhyggjusamir ferðamenn
era löngu búnir að skipuleggja sina
ferð. Nýtt árþúsund er náttúrlega
stórviðburður og eðlUegt að fólk vUji
fagna slíkum viðburði með stæl,“
segir James Ashurst hjá sambandi-
ferðaskrifstofa í Bandaríkjunum.
í sömu andrá og fólk lætur sig
dreyma um eftirminnUeg áramót á
framandi slóðum hækka fargjöldin
jafnt og þétt. Fréttir herma að mörg
skipafélög hyggist þrefalda og jafn-
vel fiórfalda fargjöldin frá því sem
venja er á þessum árstíma.
„Þetta er löngu komið út fyrir öU
eðlUeg mörk. Siglingar virðast verða
vinsælasti ferðamátinn þessa daga
en það verður aðeins á valdi þeirra
efnuðu að kaupa slikar ferðir. Svo
virðist sem skipafélögin komist hæg-
lega upp með að sprengja upp verðið
enda að verða yfirbókað hjá mörgum
þeirra," segir Bill Knaus hjá Amer-
íska siglingafélaginu.
Eins og áður segir virðast
skemmtisiglingar faUa best í kramið
og því spáð að færri komist að en
vUji. Mýmörg dæmi era um að fólk
hafi pantað slíkar ferðir fyrir mörg-
um árum og sé nú að vakna upp við
vondan draum þar sem fargjöldin
eru mun hærri en reiknað var með.
Skipafélögin heyja nú harðvítuga
baráttu og berjast um að auglýsa
flugeldasýningar og annað í þeim
dúr. Eitt skipafélag sló þó öðrum við
þegar það auglýsti að áramótafagn-
aðurinn yrði tvö kvöld í röð. Jú,
mikið rétt, skipið veröur staðsett á
Kyrrahafi og ætlar aö sigla yfir daga-
línuna. Þannig ná farþegar að upp-
lifa komu nýs árþúsunds tvisvar
sinnum. ÖUu má nú ofgera! -cnn/aþ
Skemmtisiglingar njóta mestra vinsælda meðal þeirra fjöl-
mörgu sem ætla að vera að heiman þegar árið 2000 geng-
ur í garð.
Qæðarum
á góðy verði
á RB-rúmi
Ragnar Björnsson
Dalshrauni 6, Hafnarflrði • Sími 555 0397