Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1998, Side 63
X>V LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
Leikstjórinn Clint Eastwood ásamt John Cusack við tökur á Midnight in the
Garden of Good and Evil.
leika Dirty Harry í fjórum fram-
haldsmyndum.
Sama ár og Clint Eastwood lék í
Dirty Harry leikstýröi hann sinni
fyrstu mynd, Play Misty for Me.
Hann hefur leikstýrt reglulega síö-
an og leikur í flestum tilvikum í
myndum sínum. Snemma á níunda
áratugnum fór hann einnig að
skipta sér af framleiðslunni og nú
er svo komið að hann hefur meiri
völd yfir kvikmyndum sínum en
flestir aðrir kvikmyndagerðar-
menn og er með þeim valdamestu í
bransanum.
Vaxandi viröing
Lengi vel höfðu gagnrýnendur
litlar mætur á Clint Eastwood sem
leikara. Talað var um hann í niðr-
andi tón sem svipbrigðalausan tré-
drumb, hvers leikhæfileikar fælust
í að gretta sig örlítið endrum og
eins. Sem leikstjóri vakti hann
lengi vel ekki mikla athygli og
áhorfendur þekktu hann fyrst og
fremst sem leikara, en hann ávann
sér smám saman virðingu fyrir
fumlaus og örugg vinnubrögð.
Hann er þekktur fyrir að halda sig
við kostnaðaráætlanir og að eyða
ekki tima í óþarfa og lauk t.d.
Absolute Power nokkrum dögum á
undan áætlun, sem í Hollywood er
nánast einsdæmi.
Almenn viðurkenning á hæfi-
leikum Clint Eastwood lét þó á sér
standa og það var ekki fyrr en með
djassmyndinni Bird (1988) að farið
var að taka hann alvarlega sem
leikstjóra. Hann þaggaði síðan end-
anlega niður í efasemdaröddunum
með vestranum Unforgiven (1992),
vann óskarsverðlaun fyrir bestu
mynd og bestu leikstjórn og var til-
nefndur fyrir besta leik í aðalhlut-
verki. Virðing hans hefur vaxið,
bæði sem leikstjóri og leikari.
Hann er orðinn 68 ára gamall og
passar því varla lengur í gömlu
hasarhlutverkin en hann lifir í
hugum aðdáenda sem hinn þögli
einfari og harðjaxl. Myndir eins og
Unforgiven og Bridges of Madison
County sýna að hann eldist vel og
kann ýmislegt fyrir sér í leiklist-
inni, en hann hefur mjög látlausan
leikstíl og er ekki mikið fyrir
dramatíska tilburði.
-PJ
Nokkrar mynda Clints Eastwoods
Spagettívestrarnir
(1964-1966)
★ ★★^, Stjömugiöfin á að túlka
meðaltalið en þessi sería fer öfúga
leið við flestar og verður betri eft-
ir því sem á líður. Lokamyndin í
bálknum er kvikmyndasögulegt
meistaraverk sem ailir kvik-
myndaáhugamenn verða að sjá
nokkmm sinnum. Sergio Leone
skapaði með þessum myndum ein-
stakan stil sem margsinnis hefur
verið reynt að herma eftir, með
misjöfnum árangri.
Kelly s Heroes (1970)
★★★★ Nokkrir hermenn í inn-
rásarher bandamanna reyna að
verða á undan hinum að taka bæ
nokkurn, svo þeir geti stolið gulli
sem falið er þar i yfirgefnum
banka. Létt yfir myndinni og góð-
ir leikarar (Donald Sutherland og
Telly Savalas, ásamt Clint
Eastwood).
Dirty Harry (1971)
★ ★★ll Clint Eastwood í essinu
sínu sem einhver ýktasti harðjaxl
kvikmyndasögunnar. Harðsoðin
mynd sem gaf tóninn fyrir
spennumyndir áratugarins. Gat af
sér hríðversnandi framhaldsmynd-
ir og hreint átakanlegt að sjá tæp-
lega sextugan kallinn á hlaupum í
flmmtu og síðustu myndinni árið
1988.
Spaghetti Clint.
The Outlaw
Josey Wales (1976)
★★★ Episkur hefndarvestri,
um margt likur meistaraverkinu
Unforgiven. Hefur á sér nokkum
raunsæisblæ, en er helst til lang-
dreginn.
Unforgiven (1992)
★★★★ Frábær vestri um gaml-
an byssubófa sem sestur er í helg-
an stein, en tekm- upp gamla siði
og slæst í för með ungum eldhuga
og gömlum félaga í drápsför.
Gamli naglinn vinnur leiksigur og
atriðið, þar sem hann endanlega
umbreytist í sitt gamla, hrottalega
sjálf, er ógleymanlegt.
The Bridaes of
Madison uounty
(1995)
★★★ Vel heppnuð og lát-
laus ástarsaga, hér um bil
laus við klisjur og væmni,
hrjúf en hugljúf. Góður
samleikur hjá Clint
Eastwood og Meryl Streep.
-PJ
Dirty Harry.
myndbönd
Myndband vikunnar Midnight in the Garden of Good and Evil
SÆTI ; J FYRRI ! VIKUR J VIKA jÁLISTAi i j TITILL j ÚTGEF. j J TEG. j
i ; ný ! i ! U.S. Marshals j Wamer Myndir j Spenna
J 2 1 J « í2 í Annageddon J SAM Myndbönd J i J Spenna i
3 ! Ný ! 1 ! Wild Things ! Skífan j Spenna
J 4 ' ’ j j j 3 J 6 j The Wedding Singer j j Myndform J J Gaman
j 5 j 4 ! 3 7 Martha, MáÉgKynna.... J j Háskólabíó j j Gaman
j 6 i j J 1 2 í 4 ! 1 J Deep Impact J j CIC Myndbönd j Spenna j
7 ! 5 ! 4 1 U-Turn J Skífan J j Spenna
8 ! mmm 7 ! 2 ! j i Blues Brothers 2000 j CIC Myndbönd j ) j Gaman J
9 ! 13 ! 2 j The Newton Boys { Skrfan j Spenna
i°; 6 ! 5 ! ) J Sphere J ) WamerMyndir j j J Spenna j
ii 7 9 ! 3 ! Mimic ! Skífan ! Spenna
12 | ■ . . : » J J 8 ! 3 ! The Patriot j J Myndform 1 j J Spenna | ■ ■ ■
13 J J - 10 j 4 j Hoodlum J J WamerMyndir J j Spenna
» i U ! s 1 1 i OutToSea | Skífan J J . \rJ, J Gaman j J Spenna
15 ! 12 ; 5 ; 14 ! 6 ! 1 i Gingerbread Man J Háskólabíó
i.; 1 Flubber J ! SAM Myndbönd ) itoiMP J j Gaman J
17 ! 18 ! 8 ! Hard Rain Skrfan 1 Spenna
J 18 i j 16 ! 8 j J J The Big Lebowski J J Háskólabíó j j J Gaman j
19 ! 1516 ; Scream2 ! Skrfan j Spenna
J 20 ,J 19 ! 13 ! AsGoodAsltGets j ... ! Skífan ) ! Gaman
Litríkar persónur
★★★
Bók John Berendt um bæjarlífið í
Savannah í Georgíu, byggð á sönn-
um atburðum, var búin að vera á
metsölulistum í fjögur ár þegar
Clint Eastwood gerði myndina. Til
að halda þræðinum saman býr hann
til nýja persónu, blaðamanninn
Jack Kelso (sem trúlega er byggður
á John Berendt) sem verður nokk-
urs konar leiðsögumaður áhorfand-
ans um bæinn og litríkar persónur
hans, í gegnum eigin rannsóknir.
Upphaflega kemur hann til að fjalla
um eitt af frægum jólaboðum hins
forríka Jim Wiiliams, sem gerði upp
fjölda gamalla húsa í bænum. Eftir
boðið skýtur Jim Williams elskhuga
sinn til bana og segir það hafa verið
í sjálfsvörn. Jack Kelso ákveður þá
að dvelja í bænum um stund, fylgj-
ast með réttarhöldunum og athuga
hvort þar sé efni í bók.
Þetta herbragð, að láta rannsókn-
arblaðamann teyma áhorfendur í
gegnum mannflóruna í
Savannah, heppnast
nokkuð vel og frásögn-
in er furðu laus við að
vera sundurlaus þrátt
fyrir að ekki sé mikl-
um söguþræði fyrir að
fara. Leyndardómur-
inn í kringum dauðs-
fall elskhugans fær í
rauninni ekki mikið
pláss og Clint
Eastwood einbeitir sér
að því að koma vinalega úrkynjaðri
suðurríkjastemningunni til skila,
með góðum árangri. Morðmálið
sjálft er ekkert sérstaklega spenn-
andi en fjöldi litríkra persóna gerir
myndina skemmtilega á að horfa og
hún verður aldrei leiðinleg þótt lop-
John Cusack leikur ungan blaðamann sem lendir í miðju dramatiskra at-
burða í Savannah.
inn sé svolítið teygður
á köflum.
Clint Eastwood nær
að virkja leikhópinn
vel, og það er ekki sist
þess vegna sem persón-
umar verða jafnlifandi
og raun ber vitni.
Reyndar leikur ein
þeirra sjálfa sig,
dragdrottningin Lady
Chablis, og hreinlega
stelur senunni með frá-
bærum og atorkumiklum leik. Þá er
ástralski leikarinn Jack Thompson
sérlega skemmtilegur í hlutverki
sveitalubbalegs lögfræðings sem
leynir á sér. Kevin Spacey er sterk-
ur í hlutverki Jim Williams og geisl-
ar af sér fágun og sjálfsöryggi. í
samanburði við allar þessar persón-
ur virkar persóna Jack Kelso frem-
ur litlaus, þannig að John Cusack,
sem mér hefur alltaf fundist vera
mjög skemmtilegur leikari, nær
ekki að láta Ijós sitt skína.
Skortur á veigamiklum sögu-
þræði gerir það að verkum að
myndin verður seint talin til meist-
araverka, en hún er engu að síður
vel gerð og á köflum skemmtileg
innsýn í litskrúðugt mannlíf *
Savannah, einkum fyrir sakir góðra
leikara.
Útgefandi: Warner-myndir. Leik-
stjóri: Clint Eastwood. Aðalhlut-
verk: John Cusack og Kevin
Spacey. Bandarísk, 1997. Lengd:
149 mín. Bönnuð innan 12 ára.
Pétur Jónasson