Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1999, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1999
Fréttir
Skólarnir að gefast
upp fyrir lúsinni
- börn farin að geyma yfirhafnir í plastpokum
Skólahjúkruarfræðingar eru farn-
ir að örvænta í baráttunni gegn
lúsinni sem herjað hefur á skóla á
höfuðborgarsvæðinu í haust og vet-
ur. Svo rammt kveður að lúsinni að
Haraldur Briem:
Lúsin er
ráðgáta
„Lúsin er ráðgáta sem við vitum
lítið um. Það er í raun brýnt að
kanna faraldsfræði hennar og ég
verð bara að viðurkenna að ég veit
ósköp lítið um hana,“ segir Harald-
ur Briem smitsjúkdómalæknir og
hann er ekki einn um það. Að sögn
Haralds hefur lúsin verið hálfgert
bannorð í læknisfræði og fáir sýnt
henni áhuga en nú verið að spyma
við fótum:
„Ég mun strax í dag leggja drög
að þvi að Landlæknisembættið hefji
könnun á lúsafaraldrinum í Reykja-
vík og fá með því svör við þeim
spumingum sem við getum ekki
svarað í dag. Þótt lúsin sé ekki í
sjálfu sér hættuleg þá leggst hún á
sálina á fólki og það er slæmt," seg-
ir Haraldur Briem. -EIR
Haraldur Briem: - Brýnt að kanna
lúsina.
Lusin er vandfundin
vopnið.
harsverðinum: Lusakamburinn er besta
börn eru farin
að geyma húfur,
trefla og úlpur í
plastpokum und-
ir skólaborðum
til að forðast
smit.
„Þetta virðist
vera harður
stofn sem ekkert
bítur á,“ segir
Theódóra Reyn-
isdóttir, skóla-
hjúkrunarfræð-
ingur í Granda-
skóla, en þar
voru foreldrar
kallaðir út til að
leita að lús á
nemendum í
vikunni. „Ég er
með stöðugar
bréfasending-
ar til foreldra
en það er
eins og
kæruleysi
sumra
þeirra valdi
því að lúsin
skýtur upp koll-
inum aftur og
aftur.“
Það er feikna-
vinna sem fylgir því að fá
lús á heimilið. Fyrst þarf að
kemba hár alls heimilisfólks, þá
tekur við hárþvottur upp úr
lúsasjampói og loks verður að þvo
öll rúmfót og þrifa allt hátt
og lágt.
„Þessu fylgir bæði fyrir-
höfn og fjárútlát. Foreldri
tjáði mér á dögunum að búið
væri að eyða 20 þúsund krón-
um á sínu heimili í lúsameð-
ferð í vetur,“ segir Theódóra
hjúkrunarfræðingur. „Mitt
ráð er að kemba og aftur
kemba hárið. Þó svo búið sé að
þvo upp úr lúsasjampói ætti fólk að
halda áfram að kemba hárið í þrjár
til fjórar vikur þar á eftir. Þá ættu
böm og unglingar alls ekki að vera
að skipta á húfum, hárböndum og
yfirhöfnum."
Theódóra segir að lúsafaraldur-
inn einskorðist alls ekki við skóla á
höfuðborgarsvæðinu. Fréttir frá
Danmörku og Bretlandi herma að
þar standi skólayfirvöld ráðþrota
gagnvart lúsinni og fái við lítið ráð-
ið. -EIR
Lúsalyfin hætt að verka?
Læknar og húkrunarfólk velta
því nú fyrir sér hvort lúsalyfin séu
hætt að verka; hvort lúsin sé orðin
ónæm fyrir þeim.
„Sá möguleiki er fyrir hendi,“
segir Haraldur Briem smitsjúk-
dómalæknir og undir það tekur El-
ín Bima Hjörleifsdóttir, skólahjúkr-
unarfræðingur í Austurbæjarskóla:
„Ég er farin að hallast að því að
lyfin séu ekki nógu sterk og þetta
þurfi að kanna,“ segir Elín Birna
en bætir því við að kamburinn sé
í raun besta vörnin gegn lúsinni.
„Ef fólk kembir sér ótt og títt þá
fær það ekki lús.“
Margar gerðir lúsameðala eru
fáanlegar í lyfjabúðum hérlendis
og verðið frá 608 krónum fyrir ein-
staklingsmeðferð upp í 1288 krón-
ur fyrir fjölskyldumeðferö. Ókeyp-
is lúsakambur fylgir yfirleitt.
Tryggingastofnun ríkisins tekur
ekki þátt í kostnaði vegna lúsa-
lyfjakaupa.
-EIR
, .
Við viljum Svavar sem sendiherra
Vandinn við að
hætta þingmennsku
er sá að enginn veit
hvað við tekur. Úr sér
gengnir alþingismenn
era ekki hátt skrifaðir
á vinnumarkaðinum.
Þetta hefur orðið til
þess að þingmenn
sitja lengur á þingi en
hollt er og stundum
gegnum tíðina hefur
meirihluti Alþingis
verið samansettur af
fólki sem ekki þorir
að hætta af ótta við at-
vinnuleysi.
Úr þessu hefur að
nokkru ræst að und-
anfömu. Þannig fékk
Friörik Sophusson
starf hjá Landsvirkj-
un, Guðmundur
Bjamason var ráðinn
sem forstjóri Húsnæðislánasjóðs og Þorsteinn
Pálsson fékk sendiherrastöðu í London. Ekki má
heldur gleyma Jóni Baldvin sem var svo heppinn
að komast í vinnu í Washington. Meira að segja
Ólafur G. Einarsson fékk starf uppi í Seðlabanka,
sem verður að teljast gott miðað við að Ólafur er
búinn að sitja á þingi í nær þrjátíu ár og er nátt-
úrlega algjörlega búinn að tapa öllum hæfileikum
til að taka að sér önnur störf.
Við sjáum það líka af Sverri Hermannssyni,
sem þurfti að segja upp í Landsbankanum, að
hann getur ekkert aðhafst og fær enga vinnu og
á ekki annars úrkosti en fara í framboð aftur til
að komast á þing!
Raunar verður að hrósa þessum mönnum öll-
um, sem nú em að hætta á þingi og fyrr eru
nefndir, fyrir að þeir vissu fæstir hvað við tæki.
Þeir helltu sér út í óvissuna og höfðu ekki hug-
mynd um hvað biði þeirra. En fyrir slembilukku
reyndust forstjórastöðurnar og sendiherrastöð-
umar lausar og þeir duttu í lukkupottinn fyrir al-
gjöra tilvOjun.
En aumingja Svavar fær ekkert. Þó er hann bú-
inn að vera á þingi í tuttugu ár. Hvers á hann að
gjalda? Það er sagt að Svavari standi til boða ein-
hver skrifstofuvinna hjá Norrænu samstarfs-
nefndinni. Eins og það sé einhver framtíð fyrir
mann með reynslu!
Nei, Svavar á annað og betra skilið. Hann hef-
ur reynst stjórnarflokkunum drjúgur við að fæla
kjósendur til fylgis við þá flokka og hann hefur
tekið þátt í því að leggja Alþýðubandalagið niður
og hann hefur ákveðið að leggja Samfylkingunni
ekki lið og svona menn á að verðlauna með
bankastjórastöðu eða sendiherrastarfi, enda er
Svavar ekki gjaldgengur í annað, eftir að hafa
varið tuttugu árum af ævi sinni við að rífast við
andstæðinga sina.
Hann á að fá þá stöðu sem hann ræður við. í
sendiráðunum eru þeir menn einir sem geta far-
ið frjálsir ferða sinna, eins og Jón Baldvin segir,
og það er kominn tími til að Svavar fái frelsi til
að vera annað heldur en leiðinlegur og úr sér
genginn kommi. Þjóðin heimtar sendiherrastarf
fyrir Svavar. Það á að umbuna mönnum eins og
Svavari þegar þeir loksins ákveða að hætta að
vera til ama á þingi.
Dagfari
Stuttar fréttir i>v
Hafa sameinast
Samtök kvikmyndaleikstjóra og
kvikmyndhandritahöfúnda á fslandi
hafa sameinast og samþykktu leik-
stjórar sameininguna á aðalfundi
sínum í síðustu viku. Fundurinn
lýsti jdir mikilli ánægju með sam-
komulag ríkisvaldsins og kvik-
myndagerðarmanna um að efla is-
lenska kvikmyndagerð. Ríkisútvarp-
ið greindi frá.
Las það
Þegar Svavar
Gestsson var
spurður hvort
eitthvað væri til í
því að hann væri
búinn að tryggja
sér starf á vett-
vangi norræns
samstarfs sagðist
hann hafa lesið það í Vísi. Hann
bætti við að það væri góð hugmynd
hjá þeim en að ekkert meira hafi
gerst í því. Dagur greindi frá.
Breytt í hlutafélag
1. janúar varð sú breyting á
rekstri Kaupfélags Suðumesja að
verslanir og kjötvinnsla félagsins
verða frá þeim tima rekin í sérstöku
félagi, hlutafélaginu SAMKAUPUM.
Kaupfélagið verður fýrst um sinn
eini eigandi þess félags og mun
leggja rekstur, innréttingar og tæki
inn í nýja félagið sem hlutafé. Fyrir-
hugað er svo að bjóða út aukið
hlutafé síðar á þessu ári.
Vilja ódýrt rafmagn
Garðyrkjubændur hafa óskað eft-
ir því við Landsvirkjun að þeir fái
ódýrt rafmagn til að raflýsa hjá sér
gróðurhúsin allt árið. Garðyrkju-
bændur telja að verðlækkun á raf-
magni geti skapað hundrað nýrra
starfa i greininni á næstu árum og
sjá jafhvel fyrir sér útflutning á ís-
lensku grænmeti. Sjónvarpið
greindi frá.
Forsætisráðherra spurður
Gísli S. Einars-
son alþingismað-
ur hefur sent for-
sætisráðherra
fyrirspum um
vanskil hjá
Byggðastofhun. í
fyrirspum sinni
spyr Gísli m.a.
um hver vanskil lántakenda hjá
Byggðastofnun hefðu verið 1. júli
1998. Einnig spyr hann um hver séu
vanskil lántakenda hjá Byggðastofn-
un sem tengjast útflutningi hrossa
til Evrópu.
Slasaðist alvarlega
Læknir slasaðist alvarlega þegar
hann var að sinna sjúkraflutningum
i uppsveitum Ámessýslu i gærmorg-
un. Hann var í sjúkrabíl sem var að
flytja mann á Heilsugæslustöðina á
Selfossi. Fyrir misskilning steig
læknirinn út úr sjúkrabílnum á ferð
og slasaðist á höfði. Ríkisútvarpið
greindi frá.
GSM í Taílandi og Singapúr
Frá og með mánudeginum 18. jan-
úar geta viðskiptavinir Landssím-
ans notfært sér þjónustu GSM-kerfis
Advanced Info Service í Taílandi.
Kerfisnúmer er 520-01. Þá hafa not-
endur GSM-kerfis Landssimans get-
að notfært sér GSM-þjónustu Mobile
One í Singapúr siðan 18. desember.
Kerfisnúmerið er 525-03.
hættan
Aðalhagfræð-
ingur Seölabank-
ans, Már Guð-
mundsson, segir
að stóra hættan í
innlendum efna-
hagsmálum í
augnablikinu
tengist mjög mikl-
um vexti innlendrar eftirspumar,
mikilli einkaneyslu og miklum fjár-
festingum. Dagur greindi frá.
Landssímanum bannað
Samkeppnisstofnun hefur birt
bráðabirgðaákvörðun vegna erindis
Islandia Intemet hf. þar sem þess
var krafist að Landssíma íslands hf.
og Skímu hf., dótturfyrirtækis
Landssímans, yrði bannað aó „aug-
lýsa, bjóða og veita endurgjaldslausa
intemetþjónustu um lengri eða
skemmri tíma“. -SJ
Stora
í Vísi