Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1999, Side 10
10
ennmg
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1999 JjV
Menningarverðlaunin orðin myndug
Veitt í
21. sinn
Menningarverölaun DV eru elstu verð-
laun af sínu tagi á þessu landi og engin
menningarverðlaun hafa nokkru sinni lif-
að eins lengi. Sjáifsagt mætti tína til marg-
ar skýringar á því en ein þeirra er eflaust
sú hve breiður hópurinn er sem velur
verðlaunahafana um leið og gagnrýnendur
blaðsins veita klassískt aðhald.
Menningarverðlaunin urðu tvítug í
fyrra og var ekki haldið upp á afmælið
með því að gera sér meiri dagamun í mat
og drykk, þar er allt á hefðbundnum nót-
um, heldur voru veitt sérstök heiðursverð-
laun sem Jónas Ingimundarson píanóleik-
ari og tónlistarfrömuður hlaut. Hann hefur
nú fagnað fullkomnum konsertsal sem
reistur var að hans frumkvæði í nýrri
menningarmiðstöð í Kópavogi; þegar hann
tók við heiðursviðurkenningu DV fyrir
tæpu ári var hann einmitt að bíða eftir að
mælisárinu í fyrra hannaði Guðný Magn-
úsdóttir gripina sem sjást með eigendum
sínum á myndinni með þessari grein. Þeir
þóttu með afbrigðum glæsilegir: stöpull
sem í var greypt nafn verðlaunahafans og
tilefnið og ofan á honum sjálft fjöregg list-
arinnar. Hver gripur var sérstaklega mót-
aður til að hæfa greininni.
I ár er það Gunnar Ámason myndhöggv-
ari sem gerir verðlaunagripina. Hann hef-
ur mestmegnis unnið í málma og vakti at-
hygli fyrir skemmtilegt módel af jeppa í
Nýlistasafninu 1997. Síðar í mánuðinum
kemur í ljós hvað honum dettur í hug.
Hér til hliðar er skrá yflr verðlaunahafa
DV frá upphafí. Þar eru margir helstu
listamenn þjóðarinnar taldir; við biðum
spennt eftir að sjá hverjir bætast í hópinn
í ár.
Núverandi handhafar Menningarverðlauna DV sem þeir tóku við 19. febrúar 1998. Þeir
halda á leirlistaverkum Guðnýjar Magnúsdóttur sem sérhönnuð voru fyrir hverja list-
grein. DV-mynd ÞÖK
Menningarverðlaunahafar
Heiðursverðlaun
1998: Jónas Ingimundarson.
Leiklist
1979: Stefán Baldursson.
1980: Kjartan Ragnarsson.
1981: Oddur Björnsson.
1982: Hjalti Rögnvaldsson.
1983: Briet Héðinsdóttir.
1984: Stúdentaleikhúsið.
1985: Alþýðuleikhúsið.
1986: Guörún Gísladóttir.
1987: íslenski dansflokkurinn.
1988: Arnar Jónsson.
1989: Róbert Arnfinnsson.
1990: Gretar Reynisson.
1991: Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir.
1992: Guðjón Pedersen/
Hafliöi Arngrímsson/Gretar Reynisson.
1993: Ólafur Haukur Símonarson.
1994: Þjóöleikhúsiö.
1995: Viðar Eggertsson.
1996: Kristbjörg Kjeld.
1997: Hermóöur og Háövör.
1998: Hilmir Snær Guðnason.
Tónlist
1979: Þorgeröur Ingólfsdóttir.
1980: Helga Ingólfsdóttir/
Manpela Wiesler.
1981: Jón Ásgeirsson.
1982: Árni Kristjánsson.
1983: Guðmundur Jónsson.
1984: Jón Nordal.
1985: Einar Jóhannesson.
1986: Hafliði Hallgrímsson.
1987: Sinfónluhljómsveit æskunnar.
1988: Paul Zukofsky.
1989: Rut Ingólfsdóttir.
1990: Hörður Áskelsson.
1991: Guðný Guömundsdóttir.
1992: Blásarakvintett Reykjavíkur.
1993: Petri Sakari.
1994: Helga Ingólfsdóttir.
1995: Caput-hópurinn.
1996: Osmo Vánská.
1997: Jón Ásgeirsson.
1998: Haukur Tómasson.
Bókmenntir
1979: Ása Sólveig.
1980: Sigurður A. Magnússon.
1981: Þorsteinn frá Hamri..
1982: Vilborg Dagbjartsdóttir.
1983: Guöbergur Bergsson.
1984: Thor Vilhjálmsson.
1985: Álfrún Gunnlaugsdóttir.
1986: Einar Kárason.
1987: Thor Vilhjálmsson.
1988: Ingibjörg Haraldsdóttir.
1989: Björn Th. Björnsson.
1990: Vigdís,Grímsdóttir.
1991: Fríða Á. Siguröardóttir.
1992: Guðmundur Andri Thorsson.
1993: Linda Vilhjálmsdóttir.
1994: Einar Már Guðmundsson.
1995: Sjón.
1996: Pétur Gunnarsson.
1997: Gyrðir Elíasson.
1998: Kristín Ómarsdóttir.
Listhönnun
1988: Sigrún Einarsdóttir/
Sören Larsen.
1989: Valgeröur Torfadóttir.
1990: Kristín ísleifsdóttir.
1991: Guörún Gunnarsdóttir.
1992: Þröstur Magnússon.
1993: Kolbrún Björgólfsdóttir.
1994: Leifur Þorsteinsson.
1995: Jan Davidsson.
1996: Eva Vilhelmsdóttir.
1997: George Hollanders.
1998: Erla Sólveig Óskarsdóttir.
Myndlist
1979: Gallerí Suöurgata 7.
1980: Ríkharöur Valtingojer.
1981: Sigurjón Ólafsson.
1982: Ásgerður Búadóttir.
1983: Helgi Þorgils Friðjónsson.
1984: Jóhann Briern.
1985: Jón Gunnar Árnason.
1986: Magnús Kjartansson.
1987: Gunnar Örn Gunnarsson.
1988: Georg Guðni Hauksson.
1989: Sigurður Örlygsson.
1990: Kristján Guðmundsson.
1991: Kristinn E. Hrafnsson.
1992: Kristinn G. Harðarson.
1993: Pétur Arason.
1994: Finnbogi Pétursson.
1995: Ragnheiður Jónsdóttir.
1996: Páll Guðmundsson.
1997: Steina Vasulka.
1998: Kristján Davíðsson.
Byggingarlist
1979: Gunnar Hansson.
1980: Manfreð Vilhjálmsson/
Þorvaldur S. Þorvaldsson.
1981: Gunnar Guönason/Hákon Hertervig.
1982: Birna Björnsdóttir.
1983: Pétur Ingólfsson.
1984: Valdimar Haröarson.
1985: Stefán Örn Stefánsson/
Grétar Markússon/
Einar Sæmundsson.
1986: Finnur Birgisson/
Hjörleifur Stefánsson.
1987: Hróbjartur Hróbjartsson/
Siguröur Björgúlfsson.
1988: Manfreö Vilhjálmsson.
1989: Leifur Blumenstein/
Þorsteinn Gunnarsson.
1990: Ingimundur Sveinsson.
1991: Guömundur Jónsson.
1992: Ingimundur Sveinsson.
1993: Margrét Harðardóttir/
Steve Christer.
1994: Högna Sigurðardóttir.
1995: Dr. Maggi Jónsson.
1996: Hróbjartur Hróbjartsson/
Sigriður Sigþórsdóttir/
Richard Ó. Briem/
Sigurður Björgúlfsson.
1997: Studio Granda.
1998: Gláma/Kím.
Kvikmyndir
1981: Sigurður Sverrir Pálsson.
1982: Útlaginn.
1983: Erlendur Sveinsson.
1984: Egill Eövarðsson.
1985: Hrafn Gunnlaugsson.
1986: Karl Óskarsson.
1987: Óskar Gíslason.
1988: Friðrik Þór Friðriksson.
1989: Viðar Víkingsson.
1990: Þráinn Bertelsson.
1991: Lárus Ýmir Óskarsson.
1992: Börn náttúrunnar.
1993: Snorri Þórisson.
1994: Þorfinnur Guðnason.
1995: Ari Kristinsson.
1996: Hilmar Oddsson.
1997: Isl. kvikmyndasamsteypan.
sú heita ósk sín rættist.
Menningarverðlaun DV verða veitt í 21.
sinn þann 25. febrúar næstkomandi við há-
tíðlega athöfn í veitingasalnum Þingholti á
Hótel Holti. Þar verður að fornum sið
snætt nýstárlegt sjófang sem valið er af
meistarakokkum hússins í samráði við
Jónas Kristjánsson, ritstjóra DV og helsta
matgæðing. í fyrra fengu menn í forrétt
skötuselslifur með anískrydduðum smá-
gulrótum en í aðalrétt gufusoðinn snarp-
hala með steiktum endífum og maltsósu.
Árið áður voru á borðum sandhverfa tart-
ar í forrétt og barri i aðalrétt, enn fyrr hafa
menn í þessari veislu lagt sér til munns
rauð sæeyru í skel, berhaus, geirnyt eða
rottufisk, skötukjaft, hámeri og ótalmarga
aðra framandi fiska.
Menningarverðlaunin voru fyrst veitt
1979 fyrir listræn afrek í fimm greinum og
hétu þá Menningarverðlaun Dagblaðsins.
Þau héldu velli við sameiningu síðdegis-
blaðanna 1981 og það ár bættust kvikmynd-
ir í hóp hinna upprunalegu listgreina, leik-
listar, bókmennta, tónlistar, myndlistar og
byggingarlistar. Enn síðar bættist svo list-
hönnun í hópinn en í rauninni hefur hún
verið með allan tímann því á hverju ári
hefur listamaður hannað verðlaunagripinn
sem alltaf hefur verið sérstæður og stund-
um sérlega frumlegur gripur. Á merkisaf-
Þjóðlíf og þjóðtrú
Nýlega kom út myndarlegt
afmælisrit til heiðurs Jóni
Hnefli Aðalsteinssyni, prófess-
or í þjóðfræði viö félagsvís-
indadeild Háskóla íslands,
sem varð sjötugur 1997. Ritið
ber nafnið Þjóðlíf og þjóðtrú
og í því eru 27 greinar eftir
vini Jóns, samstarfsmenn og
útskrifaða nemendur hans úr
Háskóla íslands, einnig eftir
starfsfélaga hans í nágranna-
löndunum, heimskunna menn
á sviði þjóðfræða eins og
Lauri Honko, Ása Ljung-
ström, Rory McTurk, Juha
Pentikáinen og Önnu Birgittu
Rooth.
I greinunum er íjallað um
vitt svið þjóðfræða. Meðal
annars skrifar Haraldur
Ólafsson um hestafórnir, Jón
Jónsson skrifar greinina
„Komdu aftur ef þú villist",
um fórumenn og gestrisni í
Jón Hnefill Aðalsteinsson.
DV-mynd Hilmar
Þór
gamla samfélaginu, Ólína Þor-
varðardóttir gerir tilraun til
að rýna í heimildir Jóns Árna-
sonar þjóðsagnasafnara og
Valdimar Tr. Hafstein skrifar
greinina „Komdu í handar-
krika minn“, um hlut sjáenda
í huldufólkstrú og sögnum.
Einnig er fjallað um flökku-
sagnir í samtímanum, sögurn-
ar af Sæmundi fróða, lífshætti
og afdrif geirfuglsins og
stjórnmál á öðrum áratug ald-
arinnar svo nokkuð sé nefnt.
Jón Hnefill Aöalsteinsson
byggði einhendis upp þjóð-
fræðanámið við Háskóla Is-
lands en áður en hann hóf
störf þar 1967 kom hann víða
við. Hann gegndi me^al ann-
ars prestsembætti á Eskifirði
og Reyðarfirði, hann var
blaðamaður á Morgunblaðinu
og í mörg ár kenndi hann við
Menntaskólann við Hamra-
hlíð. Hann hefur
skrifað
bóka og
og er
hans í afmælis-
ritinu. Eigin-
kona hans
Svava Jak-
obsdóttir rit-
höfundur.
Jón
er heiðursfélagi í
þjóðfræðinga ásamt
inum Bo Almqvist sem einmitt á fyrstu grein-
ina í afmælisritinu - um írsk áhrif í íslenskum
fornsögum. í ritnefnd bókarinncU' sátu Jón Jóns-
son, Terry Gunnell, Valdimar Tr. Hafstein og
Ögmundur Helgason. Þjóðsaga ehf. gefur ritið
út.
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir