Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1999, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1999, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1999 Afmæli Hreinn Þórðarson Hreinn Þórðarson, bóndi á Auð- kúlu, ísafjarðarbæ, er sextugur í dag. Starfsferill Hreinn fæddist í Stapadal í Arn- arfirði og ólst upp við Arnarfjörð- inn. Hann var í Bamaskóla Auð- kúluhrepps og lauk þaðan fullnaðar- prófl. Hreinn starfaði heima við bú for- eldra sinna á Auðkúlu fyrstu árin, var til sjós á vertíðarbátum og tog- urum, oftast frá Bíldudal en auk þess frá Reykjavík og Patreksfirði. Þá stundaði hann byggingarvinnu og fleiri störf í Reykjavík, var póst- ur frá Bíldudal og um norðanverðan Arnarfjörð í nokkur ár. Hreinn tók við búi á Auðkúlu 1967 og hefur stundað þar búskap síðan. Hreinn var hreppsstjóri Auðkúlu- hrepps frá 1978 og þar til embættið var lagt niður við sameiningu Auð- kúluhrepps og Þingeyrarhrepps 1990. Hann var ásetningsmaður og baðstjóri fyrir Auðkúluhrepp í mörg ár, var gjalkeri Búnaðarfélags Auðkúluhrepps 1977-83, formaður þess félags frá 1983 og hefur verið fulltrúi þess á aðalfundi Búnaðar- sambands Vestfjarða, hefur setið flesta fundi þess frá 1971 og nokkrum sinnum ver- ið fulltrúi þess á aðal- fundi Landssamtaka sauðfjárbænda. Fjölskylda Hreinn kvæntist 8.12. 1968 Hildigunni Guð- mundsdóttur, f. 5.12.1947, bónda og húsfreyju. Hún er dóttir Guðmundar J. Einarssonar og k.h., Kristínar Theodóru Guð- mundsdóttur, bænda að Brjánslæk á Barðaströnd. Börn Hreins og Hildigunnar eru Kristín Theodóra, f. 18.8 1968, lækn- ir, búsett i Kópavogi en maður hennar er Jón Hilmar Indriðason vélstjóri; Jóna Guðmunda, f. 2.3 1970, búfræðingur og starfar viö leikskóla, búsett á Þingeyri en mað- ur hennar er Guðjón Ingólfsson vélavörður og eru börn þeirra Hreinn, f. 10.9. 1989 og Arney Þyrí, f. 26.3. 1994; Sigurður Jón, f. 15.5. 1971, vélstjóri, búsettur á ísafirði en kona hans er Bára Lind Hafsteins- dóttir sjúkraliði og er dóttir þeirra Telma Rut, f. 15.9. 1998; Guðrún ír- is, f. 2.5. 1973 húsfreyja að Ketils- eyri en sambýlismaður hennar er Ómar Dýri Sigurðsson, bóndi þar, og er dóttir þeirra Dýrleif Arna, f. 29.5. 1998, en son- ur Guðrúnar írisar er Há- kon Sturla Unnsteinsson, f. 23.8.1993; Daðína Rós, f. 23.9. 1980, nemi, búsett í Auðkúlu. Systkini Hreins em Ólaf- ur Jón, f. 24.9. 1930, skrif- stofumaður á Akranesi; Njáll, f. 11.6. 1932, frjó- tæknir á Blönduósi; Ólaf- ur Veturliði, f. 5.2. 1937, sjómaður á Þingeyri; Nanna Jóna Kristjana, f. 7.6. 1941, verkakona í Hafnarfirði; Sigurður Júlíus, f. 4.12. 1943, d. 22.3. 1971, bóndi í Auðkúlu; Rósamunda, f. 11.2. 1945, atvinnurekandi Reykja- vík; Bjarni Þorkell Sigurður, f. 8.12. 1946, fjárhirðir að Hvanneyri; Halla Ólöf, f. 31.8. 1950, kennari í Hafnar- firði. Uppeldisbróðir Hreins er Sigurð- ur Guðni Gunnarsson, f. 11.12. 1951, fiskverkandi í Hafnarfírði. Foreldrar Hreins: Þórður Guðni Njálsson, f. 10.1. 1902, d. 30.4. 1983, bóndi og hreppstjóri, búsettur á Hrafnseyri, í Stapadal og Auðkúlu, en síðast í Hafnarfirði, og k.h., Daðína Jónasdóttir, f. 3.1. 1904, d. 31.1. 1993, húsfreyja. Ætt Föðurforeldrar Hreins voru Njáll Sighvatsson og k.h., Jónína Guðrún Sigurðardóttir. Foreldrar Njáls voru Sighvatur Grímsson, fræðimaður á Höfða i Dýrafirði, og k.h., Ragnhild- ur Brynjólfsdóttir. Foreldrar Jónínu Guðrúnar vom Sigurður Pétursson, b. í Baulhúsum, Gljúfurá og Neðra- bæ í Selárdal í Arnarfirði, og f.k.h., Amalía Gísladóttir. Móðurforeldrar Hreins vora Jónas Ásmundsson og k.h., Jóna Ás- geirsdóttir. Þau bjuggu í Reykjar- firði í Amarfirði. Foreldrar Jónasar voru Ásmund- ur Jónasson, hreppstjóri á Borgum í Þistilfirði og Kollsvík, og k.h., Krist- jana Jónsdóttir. Foreldrar Jónu voru Ásgeir Jónsson, b. og skip- stjóri í Stapadal í Arnarfirði og pr. á Hrafnseyri og Álftamýri, og k.h., Jóhanna Bjarnadóttir. Hreinn mun verða heima hjá sér á afmælisdaginn og það mun verða hellt upp á könnuna þann dag. Hreinn Þórðarson. Eyjólfur S. Bjarnason Eyjólfur Sigurður Bjarnason sjómaður, Víðivangi 8, Hafnarfirði, varð sjötugur á sunnudaginn, 3.1. sl. Starfsferill Eyjólfur fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð og ólst upp á Galtarvita og á Suðureyri þar sem hann átti heima til 1970. Á Suðureyri stundaði Eyjólfur lengst af sjómennsku. Auk þess sat hann í stjórn Verkalýðsfélagsins Súganda í fjölda ára og var formaður þess í sjö ár. Eyjólfur flutti til Hafnarfjarðar 1970 og hefur átt þar heima síðan. Hann hefur starfað hjá íslenska álfélaginu í rúm tuttugu ár en hætti störfum sl. sumar fyrir aldurs sakir. Þá hefur hann átt trilluna Hafóm og stundað sjóinn frá Hafnarfirði í mcrg ár. Eyjólfur var trúnaðarmaður á vinnustað fyrir starfsmenn í kerskála um árabil. Hann hefur setið í hafnarstjórn í Hafnarfirði í fjölda ára. Fjölskylda Eyjólfur kvæntist 25.6. 1960 Guðfinnu Vigfúsdóttur, f. 12.5. 1941. Hún er dóttir Vigfúsar Sigurðssonar og Ástu Júníusdóttur. Börn Eyjólfs og Guðfinnu eru Ásta Eyjólfsdóttir, f. 20.6. 1961, starfsmaður við Setbergsskóla, og em synir hennar Atli, Tryggvi og ísak; Sigurborg, f. 7.7. 1963, hjúkrunarfræðingur en maður hennar er Sverrir K. Kristinsson og eru synir þeirra Ingimar Bjarni og Eyjólfur Árni; Vigfús, f. 11.5. 1967, jarðfræðingur. Systkini Eyjólfs: drengur, f. 1923, d. sama ár; Elísabet Friðrikka, f. 19.10. 1924, d. 27.2. 1958, var gift Vil- hjálmi Óskarssyni og eignuðust þau fimm börn; Bergþóra, f. 2.6. 1926, d. 6.8. 1932; Ása, f. 10.8. 1927 en hún eignaðist tvo syni; Frið- rik Þórður, f. 29.8.1930, d. 7.8. 1983, kvæntist Guð- rúnu Bjarnadóttur en þau eignuðust einn son; Þórhallur, f. 6.8. 1932; Andrés Helgi, f. 10.7.1934, kvæntist Hrafnhildi Guð- mundsdóttur en þau eignuðust fiögur börn; Anna, f. 27.4. 1936, giftist Magnúsi Hagalínssyni og eignuðust þau þrjár dætur; Páll, f. 22.9. 1937, kvæntist Sigríði Gissurardóttur, en þau eignuðust fiögur böm; Karl, f. 14.6. 1939, d. 6.12. 1939; Karl, f. 16.111 1940, kvæntist Hildi Þorsteinsdóttur og eignuðust þau fiögur böm; Sig- ríður Borghildur, f. 16.2. 1942, d. 3.6. 1946; Arnbjörg Jóna, f. 4.10. 1943, giftist Eðvarð Sturlusyni, en þau eignuðust fimm börn; Borghildur Fríða, f. 9.5. 1946, giftist Jóni Birni Jónssyni en þau eignuðust þrjá syni; Her- mann Alfreðs, f. 17.2. 1948, kvæntist Pricillu Joan Stockdale, en þau eignuðust tvö börn. Foreldrar Eyjólfs voru Bjarni G. Friðriksson, f. 31.7. 1896, d. 5.11. 1975, sjómaður á Suðureyri og síðar vitavörður á Galtarvita, og k.h., Sigm’borg Sumarlína Jónsdóttir, f. 23.4. 1903, d. 6.4. 1991, húsmóðir. Eyjólfur S. Vigfússon. Öllum sem glöddu mig með gjöfum, skeytum og viðtölum á áttræðisafmæli mínu 28. desember sendi ég innilegar þakkir og bið þeim blessunar á nýju ári. Bergsteinn í Kasthvammi Áskrífendur fó aukaafslátf af o\\t millí hirnl. Smaauglysingar smáauglýsingum DV DVI 5505000 www.visir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR r>v Til hamingju með afmælið 6. janúar 95 ára Dagbjört Kristjánsdóttir, Hrafnistu, Hafnarfirði. 90 ára Gunnþórunn Víglundsdóttir, Brandsbæ, Hafnarfirði. 85 ára Rannveig Margiét Gísladóttir, Norðurbrún 1, Reykjavík. 75 ára Ásmundur Magnússon, Hagaseli 19, Reykjavík. Ester Kratsch, Hjallaseli 55, Reykjavik. 70 ára Þórunn Matthíasdóttir, Strýtuseli 15, Reykjavík. 60 ára Björgvin Þorvaldsson, Greniteigi 2, Keflavík. Ríkarð Bjami Björnsson, Faxatúni 42, Garðabæ. Trausti Þorleifsson, Ásbúð 86, Garðabæ. 50 ára Bessi Gíslason, Barmahlíð 7, Reykjavík. Grétar O. Guðmundsson, Bakkavör 16, Seltjarnarnesi. Guðbjörg Haraldsdóttir, Kambaseli 41, Reykjavík. Sigurður Bemódusson, Fífumóa 2, Njarðvík. Þórunn M. Ingimarsdóttir, Stífluseli 4, Reykjavík. 40 ára Ágústína O. Sigurgeirsdóttir, Njarðvikurbraut 19, Njarðvík. Eiríkur Ágúst Ingvarsson, Tryggvagötu 5, Selfossi. Guðrún Guðbjartsdóttir, Baldursbrekku 2, Húsavík. Kristinn Kristinsson, Merkurgötu 2, Hafnarfirði. Ólafur Bjami Bjamason, Vesturbergi 122, Reykjavík. Ómar Jóhannsson, Miðleiti 12, Reykjavík. Unnur Steina Bjömsdóttir, Ægissíðu 96, Reykjavík. Þórhalla Arnljótsdóttir, Skeiðarvogi 131, Reykjavík. A jjrval - 960 síður á ári - fróðleikur og skemmtun sem lifir mánuðum og árumsaman

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.