Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Page 8
8
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
Útlönd
Stuttar fréttir :dv
Hollenskar konur neita að fara frá Galttir:
Misstu eigin-
menn og börn
Thule-mál í rétt
Eystri-landsréttur í Kaup-
mannahöfh tekur skaðabótakröf-
ur íbúa 1 Thule á Grænlandi gegn
danska ríkinu fyrir á mánudag.
Áttatíu fyrrum íbúar í Thule
krefjast hundruð milijóna króna í
bætur fyrir að vera fluttir nauð-
ugir frá heimilum sínum árið
1953 þegar reist var herstöð fyrir
bandaríska flugherinn í Thule.
Málflutningi lýkur í apríl.
Uppboö
munu byrja á skrifstofu embætt-
isins, Austurvegi 4, Hvolsvelli,
þriöjudaginn 2. mars 1999, kl.
15.00 á eftirfarandi eignum:
Hraunalda 1, Hellu. Þingl. eig. Hermann
Ingason. Gerðarbeiðandi er Byggingar-
sjóður rfkisins.
Strandarhöfuð, V-Landeyjahreppi. Þingl.
eig. Albert Jónsson. Gerðarbeiðandi er
sýslumaðurinn á Selfossi.
SÝSLUMAÐUR RANGÁRVALLA-
SÝSLU
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Baldursgata 28, 25% ehl., þingl. eig.
Björg Stefánsdóttir, gerðarbeiðandi Sam-
einaði lífeyrissjóðurinn, þriðjudaginn 2.
mars 1999 kl. 14.00.
Miklabraut 46, 50% ehl. í íbúð á 2. hæð
m.m., ásamt hlutdeild í sameign og bíl-
skúr í matshluta 02, þingl. eig. Hjalti Sig-
urjón Hauksson, gerðarbeiðendur íbúða-
lánasjóður, Kristrún M. Þórðardóttir, Líf-
eyrissjóður verslunarmanna og Toll-
stjóraskrifstofa, þriðjudaginn 2. mars
1999 kl. 15.00.
Rauðalækur 35, 50% ehl. í 5 herb. íbúð á
3. hæð (þakhæð), þingl. eig. Þröstur Sig-
urðsson, gerðarbeiðendur Ibúðalánasjóð-
ur og Tollstjóraskrifstofa, þriðjudaginn 2.
mars 1999 kl. 15.30._______________
Unnarbraut 12, 50% ehl. í kjallara, Sel-
tjamamesi, þingl. eig. Sigurþór Sigur-
þórsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraskrif-
stofa, þriðjudaginn 2. mars 1999 kl.
16.00._____________________________
Öldugrandi 3, 3ja herb. íbúð, merkt 0102,
þingl. eig. Aðalheiður G. Hauksdóttir,
gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður og Toll-
stjóraskrifstofa, þriðjudaginn 2. mars
1999 kl. 16.30.___________________
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Tvær hollenskar konur, sem báðar
misstu eiginmenn og tvö böm í snjó-
flóðinu í Galtúr í Austurríki, neita að
yfirgefa bæinn með þyrlu þar sem
eitt barnanna, fimm ára gamalt, er
enn ófundið. Mæðumar vilja heldur
ekki þiggja boð yfirvalda um að flog-
ið verði til Hollands með hina látnu
strax.
Hollensku fjölskyldurnar ætluðu
að halda veislu í húsinu sem þær
gistu í og höfðu konumar farið út til
að gera innkaup saman. Nokkrum
mínútum síðar var gististaðurinn
rústir einar og eiginmenn þeirra og
börn látin.
í gærkvöld höfðu fundist lík 33
fómarlamba snjóflóðanna í Galtúr og
Valzur. Björgunarmenn segja að 64
hafi grafíst i snjóinn. Hægt var að
bjarga 17 nærri þvi strax.
Níu liggja slasaðir á sjúkrahúsi.
Meðal þeirra er Alois sem er fjögurra
ára. Björgunarhundur fann Álois er
hann hafði legið næstum því tvær
klukkustundir undir snjónum. Var
drengurinn nær dauða en lífi.
ÍLeukerbad í Sviss eyðilögðust í
gær sex fjölbýlishús er björgunar-
mönnum mistókst að framkalla snjó-
flóð. Þrjátíu manns komust heilir á
húfi út úr húsinu sem varð verst úti.
Bæði í Austurríki og Sviss hafa nú
biðraðir í þyrlur tekið við af biðröð-
um í skíðalyftur. Ferðamenn eru
reiðubúnir að greiða hátt verð til að
komast frá hættusvæðunum. Talið er
að um 100 þúsund manns séu inn-
lyksa í Ölpunum.
Sums staðar varð að setja verði við
lendingarstaði þyrlnanna til að koma
á röð og reglu þar sem slegist var um
sætin í þeim. Talsmaður eins þyrlu-
fyrirtækisins kvaðst hafa yfir 16 til
18 þyrlum að ráða sem gætu farið 40
ferðir á dag. Hafði fyrirtæki hans
flutt 12 þúsund manns frá
Grindelwald og Adelboden í Sviss.
Sex mínútna ferð kostar um 5 þús-
und íslenskar krónur. Verða ferða-
menn að taka miða með númerum til
að tryggja sér sæti.
Þeim sem bera ábyrgð á öryggis-
málum gremst þrýstingur frá ferða-
þjónustunni. „Mannslífm eru í fyrir-
rúmi,“ sagði talsmaður lögreglunnar,
Markus Rieder.
í gær tókst að bjarga þremur
frönskum skíðamönnum sem hafst
höfðu við í níu daga í snjóhúsi í þrjú
þúsund metra hæð í frönsku Ölpun-
um. Tvö ný snjóflóð féllu í frönsku
Ölpunum í gær. Einn lést og þrír
slösuðust í snjóflóðunum.
Ferðamenn frá Galtúr viö komuna til Landeck í gær. Tugir þúsunda ferðamanna eru enn innlyksa á hættusvæöunum
í Ölpunum. Símamynd Reuter
Sl AN^
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 10.000,00
1982- l.fl. 1983- l.fl. 01.03.99-01.03.00 01.03.99-01.03.00 kr. 203.297,40 kr. 118.116,00
* Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
| Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 25. febrúar 1999.
SEÐLABANKIÍSLANDS
Vitni í hættu
vegna nafnabirt-
ingar í skýrslu
Lögreglan i London hefur nú
boðið lykilvitnum, sem gáfu upp-
lýsingar um meinta morðingja
blökkupiltsins Stephens
Lawrences, vemd þar sem nöfn
þeirra vora óvart birt í opinberri
skýrslu sem gagnrýndi störf lög-
reglunnar. Jack Straw, innanrík-
isráðherra Bretlands, sagði í gær
að lögreglan teldi að sum vitn-
anna gætu nú verið í hættu.
Hundrað eintaka af skýrslunni
höfðu verið send út áður en það
uppgötvaðist að nöfn og heimilis-
föng lykilvitna vora í henni.
Grikkir sækja
fylgdarkonur
Ocalans
Þrjár kúrdískar fylgdarkonur
Kúrdaleiðtogans Abdullahs Öcal-
ans fóra í gær frá Keníu til Aþenu
í fylgd griska sendiherrans. Yfir-
völd í Keníu höfðu krafðist þess
að sendiherrann yrði kallaður
heim.
Tveir tyrkneskir lögmenn
fengu í gær að heimsækja Öcalan
á fangaeyjuna í Marmarahafi.
Skjálfti í Japan
Öflugur jarðskjálfti, sem mæld-
ist fimm stig á japanskan kvarða
sem mælir hæst sjö stig, skók
norðurhluta Japans í morgun.
Svo virðist sem litlar skemmdir
hafi orðið.
Clinton í afmæli
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hélt I sex daga ferðalag um vest-
urríkin í gær.
Hann ætlar að
ræða pólitík en
ekki síður að
fagna nitján ára
afmæli dóttur-
innar Chelsea
sem er við nám
í Kalifomíu.
Forsetafjölskyldan mun ætla að
renna sér á skíðum í Utah um
helgina.
Kveikti í 50 kirkjum
Bandarískur karlmaður á fer-
tugsaldri hefur viðurkennt að
hafa lagt eld að 50 kirkjum í ellefu
ríkjum. Maðurinn hafði tvo sér til
aðstoðar og voru íkveikjumar
hluti djöfladýrkunarathafnar.
Búist við ESB-deilum
Búist er við að leiðtogar ríkja
Evrópusambandsins muni deila
hart á fundi sínum í Bonn í dag.
Það era nauðsynlegar umbætur á
fjárlögum ESB sem deilt er um.
Olivetti hafnað enn
ítalska símafyrirtækið Telecom
Italia setti sig í gær enn upp á
móti því að tölvurisinn Olivetti
tæki það yfir.
Flugvél út af
Að minnsta kosti þrír fórast
þegar lítil farþegavél fór út af
braut á flugvellinum í Genúa á
Ítalíu og út í sjó.
Síðasti geirfuglinn?
Rándýr rannsókn Kenneths
Starrs, sérstaks saksóknara, á
hneyklismálum
tengdum Bill
Clinton Banda-
ríkjaforseta
verður að öllum
líkindum tU
þess að embætti
þetta verður
lagt niður. í öld-
ungadeUd Bandaríkjaþings er nú
meirihluti fyrir því að leggja emb-
ættið niöur. Þvi var komið á lagg-
imar fyrir 21 ári, í kjölfar Wa-
tergate-hneykslis Nixons forseta.
Kapphlaup upp stiga
Tveir Ástralir sigruðu i árlegu
kapphlaupi upp stiga Empire
State byggingarinnar í New York.
Paul Crake varð fyrstur í karla-
flokki og fór þrepin 1576 á 10 mín-
útum og 15 sekúndum.
Með blóðugar hendur
Sannleiksnefnd í Gvatemala
sagði í gær að her landsins bæri
ábyrgð á flestum voðaverkunum í
borgarastyrjöldinni, einhverri
þeirri lengstu og grimmUegustu í
Rómönsku Ameriku. Bandarísku
leyniþjónustunni CIA var einnig
kennt um mannréttindabrot.
Heilbrigðiskreppa
Ný heimastjóm Jonathans
Motzfeldts á Grænlandi stendur
frammi fyrir al-
varlegri kreppu
í heUbrigðis-
kerfi landsins. í
skýrslu ráðgjaf-
arfyrirtækis í
Kaupmanna-
höfn er heima-
stjórnin harð-
lega gagnrýnd fyrir meðhöndlun
sína á heUbrigðismálunum.
Fljúgandi belja
Ökumaður í Kaliforníu lét lífiö
á miðvikudagskvöld þegar 340
kUóa kvíga kom fljúgandi inn um
framrúðuna á bU hans. BUl nokk-
ur hafði ekið á skepnuna sem við
það hófst á loft og lenti á bU hins
ólánsama manns sem kom úr
gagnstæðri átt, með fyrrgreindum
afleiðingum.