Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1999, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1999, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1999 5 Fréttir Karl Steinar um tannlækna: Yfirgnæfandi meirihluti strangheiðarlegt fólk Tryggingastofnun ríkisins mun ekki birta lista yfir tannlækna sem tryggingayfirtannlæknir telur að hafi misbeitt gjaldskrá. Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofn- unar, segir að það sé stofnuninni óheimilt samkvæmt 5. grein upplýs- ingalaga. Ekki sé heimilt að upplýsa um viðkvæm málefni einstaklinga nema sá samþykki sem í hlut á. Stofnunin telur sig ekki geta sent lista yfir tannlækna sem sætt hafa aðfinnslum að svo komnu máli. Tannlæknafélagið hafði gefið stofn- uninni frest til 18. febrúar að birta lista yfir brotlega tannlækna. í gögnum tannlæknadeildar Tryggingastofnunar eru mál ein- stakra tannlækna sem eru misalvar- legs eðlis, segir í bréfi TR til Tann- læknafélagsins. Málin eru allt frá ábendingum til uppsagna á samn- ingum TR við tannlækna. „Það er skiljanlegt að þeir tann- læknar sem ekki hafa fengið alvar- legar aðfinnslur frá Tryggingastofn- un séu óánægðir með að ekki skuli heimilt að birta nöfn þeirra sem eft- irlit TR hefur gert athugasemdir við,“ segir Karl Steinar Guðnason í hréfi til Tannlæknafélags tslands í síðustu viku. „Tryggingastofnun ríkisins ætlar ekki að gefa okkur þessar upplýs- ingar og segir að ummæli trygg- ingayfirtannlæknis um þessa meintu misbeitingu fyrirfinnist ekki þrátt fyrir ítarlega leit. Félagið getur þvi ekki litið öðruvísi á en að fyrrgreindur listi sé ekki til,“ segir Þórir Schiöth, formaður Tann- læknafélagsins. Hann segir að félagið taki því hins vegar fagnandi að forstjóri TR og tryggingayfirtannlæknir geri sér grein fyrir því að „yfirgnæfandi Sauðárkrókur: Góðæri í steinullinni DV, Sauðárkróki: Um það bil 97,7 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Steinullar- verksmiðjunnar hf. á síðasta ári, miðað við 82 milljóna króna hagnað árið áður. Helstu ástæður góðrar af- komu í fyrra, þrátt fyrir verulegar kostnaðarhækkamir, er aukin sala innanlands, auk þess sem afskriftir og íjármagnskostnaður hefur lækk- að verulega. Heildarsala fyrirtækisins varð um 161.000 rúmmetrar og nam sala á innanlandsmarkaði um 100.000 rúmmetrum sem er um 5% aukning frá fyrra ári. Út voru fluttir um 61.000 rúmmetrar sem er heldur minna en árið áður. Skýrt dæmi um bættan hag Stein- ullarverksmiðjunnar er að skuldir fyrirtækisins lækka verulega. Milli ára lækka langtímaskuldir úr 139 milljónum í 111 milljónir og skamm- tímaskuldir úr 350 milljónum í 123,6 milljónir. Þá eykst eigið fé fyrirtæk- isins. í árslok 1997 var það 357 millj- ónir en um síðustu áramót 459 millj- ónir. Handbært fé frá rekstri var 30 milljónum meira í lok síðasta árs en ársins á undan. -ÞÁ Hvíld á bryggjunni Þessi pattaralegi kampselur lét fara vel um sig á flotbryggjunni í Dalvíkur- höfn á dögunum þegar fréttamaður DV átti þar leið og lét fólk ekki koma sér úr jafnvægi. DV-myndir Halldór, Dalvík Karl Steinar Guðnason - birtir ekki lista yfir tannlækna sem sætt hafa aðfinnslum. Þórir Schiöth, formaður Tannlækna- félagsins - telur engan svartan lista um tannlækna til í Tryggingastofn- un. meirihluti tannlækna séu strang- heiðarlegt fólk“, eins og segi í bréf- inu frá Karli Steinari Guðnasyni. -JBP ésCHWAB Eldtraustir öryggisskápar ✓ Nýtísku hönnun ✓ Margargerðir ✓ Hagstæðverð Keflauík AfceMS » r •fostvtá*'* 0« 10 tít i+ . 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.