Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1999, Qupperneq 28
V I K I N <
iMTtm
FRETTASKOTID
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
:
’SVinna.i
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
'Vtv.. ^
sólarhringinn.
. jY-t
550 5555
Félag sjálfstæðiskvenna:
Vilja ekki
Vilhjálm í
9. sætið
Ingveldur Fjeldsted, varaformaður
Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík, segir félagið gjaman vilja
sjá konu í 9. sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavik. Hún ítrekar þó
að henni vitanlega
sé ekki búið að
ganga frá því hver
skipi 9. sæti list-
ans. Eins og kunn-
ugt er logaði allt í
kjömefhd Sjálf-
stæðisflokksins
eftir að fram fór at-
kvæðagreiðsla um
hver ætti að skipa 9. sæti á listanum.
Kosið var miili Vilhjálms Þ. Viihjálms-
sonar borgarfulltrúa og Hönnu Bimu
Kristjánsdóttur, starfsmanns þing-
flokksins.
„Hvöt hefúr alltaf stutt við konur
sem vilja fara í efstu sæti framboðs-
lista og á því er engin undantekning í
ár. Það fer ekki milli mála að við vild-
um gjaman sjá konu í þessu sæti og
listinn yrði sterkari ef það yrði kona í
9. sætinu," segir Ingveldur. Hún segir
enn fremur að félagið styðji það að
kona verði kjörin varaformaður
flokksins. Guðrún Beck, formaður
Hvatar, er stödd í útlöndum um þessar
mundir en hún mun vera einn fimmtán
fulltrúa í kjömefndinni en sem kunnugt
er féllu atkvæði jafnt milli Hönnu Bimu
og Vilhjálms Þ. á fundi á sunnudaginn,
sjö atkvæði gegn sjö. Formaður Hvatar
hafði því úrslitavald i kosningunni en
var sem áður segir erlendis.
Fundur kjömefndar flokksins í
Reykjavik verður haldinn í kvöld. -hb
Fulltrúar á Búnaðarþingi:
Hundrað þúsund
setuna
fyrir
, Hundraðasta Búnaðarþingið var
sett síðasta fostudag. Kostnaður vegna
þingsins er greiddur af Bændasamtök-
unum en fjárveiting frá íslenska rík-
inu rennur til Bændasamtakanna á
hveiju ári. Auk þess er þingið fjár-
magnað með sk. búnaðargjaldi sem er
lagt á bændur. Skv. upplýsingum frá
Bændasamtökunum fær hver þingfúll-
trúi greiddar ferðir til og frá þing-
staðnum auk dagpeninga og 7.000
króna launa fyrir hvem dag á þinginu.
Talið er að þinginu verði slitið á fóstu-
daginn og hefur það þá staðið í viku.
Hver fulltrúi fær því greiddar 49.000
kr. fyrir þingið auk dagpeninga fyrir
sjö daga með gistingu og fæði að upp-
hæð kr. 7.500 á dag sem gera 52.500 kr.
fyrir vikuna. Samtals að ferðakostnaði
1 undanskildum fær þá hver fúlltrúi frá
ríkinu og bændum 101.500 krónur fyr-
ir setu á búnaðarþingi í sjö daga. -hb
A A€>
HRYGGBRJÓTA
VILLA?
Góöa veðrið í höfuðborginni vekur fólk til lífsins. Fjölmargir stunda
útiveruna og skemmtun og hollusta felst f sundferð. Það hafa ungir jafnt
sem aldnir nýtt sér. Myndin var tekin í Árbæjarlauginni. Þar var fjöldi fólks
og skemmti sér vei í rennibrautinni og sleikti sólina um leið.
DV-mynd Hilmar Þór
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1999
Yfirbyggður íþróttaleikvangur:
Blæs a
ásakanir um *
sviksemi
- segir Ellert Eiríksson bæjarstjóri í Reykjanesbæ
Minnihluti
bæjarstjómar
Reykjanesbæjar
mun kæra £if-
greiðslu bæjar-
stjómarinnar í
gærkvöldi á ein-
hverri stærstu
framkvæmd sem
fram hefur farið í
bænum. Reisa á
eins milljarðs yf-
irbyggðan
íþróttaleikvang á
Ellert Eirfksson
bæjarstjóri.
Jóhann Geirdal
bæjarfulltrúi.
fóðurhúsanna
sem slúðri,“
sagði Ellert Ei-
ríksson bæjar-
stjóri í morgun.
Hann segir að
bærinn hafi kost-
að til hálfri
annarri milljón
vegna verksins á
þessu stigi, en ef
bærinn hefði
sjálfur látið
einu ári. Hann
verður reistur af Verkafli hf. sem er
í eigu íslenskra aðalverktaka, þar
sem Ellert Eiríksson bæjarstjóri á
hlutabréf sem hann fékk í arf eftir
foreldra sína. Bæjarstjórinn er ekki
sakaður um hagsmunatengsl þar
sem hann kom ekki að málinu eða
afgreiðslu þess. Formaður skipu-
lagsnefndar er fremur nefndur til
sögu í því efni.
“Við leigjum á 27 milljónir á ári
næstu 35 ár. Allir, meira að segja
Jóhann Geirdal, eru sammála um
að þetta er sanngjörn og hagstæð
leiga. Ég blæs á allar ásakanir um
sviksemi og að þetta hafi verið
málamyndatilboð. Þessu er vísað til
teikna mannvirkið og kostað undir-
búning hlypi upphæðin á tugum
milljóna ef hann þekkti það rétt.
“Formaður skipulagsnefndar,
Ámi Stefánsson, sem úthlutar lóð-
inni á óskipulögðu svæði, sem fyrir
liggur að fyrirtæki hans sem hann
er meðeigandi í kemur til með að
vera einn af bjóðendum í lokuðu út-
boði. Við gerum hins vegar ekkert
úr hagsmunatengslum bæjarstjór-
ans,“ sagði Jóhann Geirdal bæjar-
fulltrúi í morgun. Hann segir útboð-
ið algjört málamyndarútboð, og bæj-
arbúar séu I raun að borga þrjár
krónur fyrir hverjar tvær sem þeir
þurfi að borga.
-JBP.
Eggert Haukdal kærður til Ríkislögreglustjóra:
Segi ekki orð
- sagði Eggert í morgun
Níu hreppsbúar í V
Landeyjahreppi hafa undir-
ritað kæru til Ríkislög-
reglustjóra um meðferð
Eggerts Haukdals, fyrrver-
andi oddvita, á fjármunum
hreppsins og beðið um op-
inbera rannsókn á þætti
hreppsnefndar í málinu. Þá
er óskað rannsóknar á
störfúm löggilts endurskoð-
anda hreppsreikninga á
oddvitatímabili Eggerts Haukdals
og hvort hann hafi staðið viö sínar
skyldur.
Samkvæmt endurskoðuðum
reikningum hreppsins og skýrslu
nýs löggilts endurskoðanda, sem
kynnt var á hreppsnefndarfundi fyr-
Eggert Haukdal
ir nokkrum vikum, hefur
oddvitinn ráðstafaö milljón-
um króna af fé sveitarsjóðs
án þess að hafa til þess
heimild hreppsnefndar
hverju sinni.
Svanborg E. Óskarsdóttir
framkvæmdastjóri, sem býr
í sveitarfélaginu, sagði að
kæran hefði verið send Rík-
islögreglustjóra í gær og
hún hefði ekki orðið vör
viðbragða við henni enn, nema þá
frá fréttamönnum.
Eggert Haukdal vildi í morgun
ekkert um kæruna segja að sinni
enda ekki séð hana. „Ég segi ekki
orð,“ sagði Eggert við DV.
-SÁ
Veðrið á morgun:
Allhvasst á
Austurlandi
Á morgun verður norðlæg átt,
stinningskaldi eða allhvasst á
Austurlandi en annars yflrleitt
gola eða kaldi. Dálítil él verða á
Norðurlandi en víða léttskýjað í
öðrum landshlutum. Frost verður
á bilinu 0 tfl 7 stig.
Veðrið í dag er á bls. 69.
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-550 ný vél
tengjanleg viö tölvu
8 leturgeröir,
8 stæröir, 15 leturútlit
úrval strikamerkja
6 til 36 mm borðar
prentar í 7 línur
Nýbýlavegi 28 Simi 554 4443
Veffanq: www.if.is/ratoort
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/