Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Síða 28
28 FOSTUDAGUR 12. MARS 1999 nn Ummæli ( Síðbúin jóla~ gjöf rétt fyrir kosningar „Þetta er bara ein af síðbún- um jólagjöfum : ríkisstjómarinn- ar rétt fyrir kosningar og \ ættu flestir að sjá í gegnum \ það hvaða hug- ur býr að baki.“ Ásta Ragnheiður Jóhann- esdóttir alþingismaður, um hækkun námslána, í Degi. Engu að tapa „Það er engu að tapa lengur og betra að falla með reisn en bíða þess sem verður með tærnar upp í loft.“ Erlingur Haraldsson skip- stjóri, einn bátaeigenda sem ætia að loka Reykjavíkur- höfn, í DV. Hefði ekki fengið að koma í jólaboð „Ég treysti frænda mínum fullkomlega þarna í lokin. Hann skilaði þessu glæsilega í markið, enda j eins gott fyrir hann. Hann hefði ekki = fengið að koma i jólaboð í fjölskyld- unni á næstunni hefði hann klikkað." Sigurður Sveinsson hand- boltakappi, í DV. Hit-listinn „Þetta er ein af þeim fleyt- um sem hafa verið ofarlega á „hit-listanum“ hjá okkur að undanfömu." Sveinbjörn Guðmundsson, deildarstjóri hjá Tollgæsl- unni, um Goðafoss, í DV. Eiga þakkir skilið „Um þessar mundir malar raforkuverið á Nesjavöllum Reykvíkingum gull nótt sem f nýtan dag. Þökk sé # Reykjavíkur- listanum, Ingu Jónu Þórðar- \ dóttur og Mitsubishi." Alfreð Þorsteinsson borgar- fulltrúi, í Morgunblaðinu. Stefni á að verða heimsfrægur „Ég hef sagt það áður að ég stefni að því að verða heims- frægur söngvari. Hins vegar verður tíminn bara að leiða það í ljós hvort það tekst.“ Geir Ólafsson söngvari, í Morgunblaðinu. Kaffileikhúsið: Suðræn sveifla með Six-Pack Latino Vegna fjölda áskorana mun hljómsveitin Six-Pack Latino, ásamt Jóhönnu Þórhallsdóttur söngkonu, laða gesti Kaffileikhússins fram á dansgólfíð með heitri og ástleitinni suðrænni tónlist: salsa, rúmbu, sömbu, tangó, jive og cha-cha í kvöld. Six-Pack Latino steig fyrst á svið í KafFileikhúsinu í október á liðnu ári og komust þá færri að en vildu. Skemmtanir Hljómsveitina skipa þau Aðalheið- ur Þorsteinsdóttir píanóleikari, Páll Torfi Önundarson gítarleikari, Tómas R. Einarsson bassaleikari, Þorbjöm Magnússon kongaslagleikari og Þór- dís Claessen slagverksleikari. Þetta er eina ballið sem hljóm- sveitin heldur í Kaffileikhúsinu fram á vor og hvetjum við því fólk til að nota tækifærið og taka fram rúmbuskóna og koma að dansa! Dansleikurinn hefst kl. 23.00 og verður dansað til kl. 2.00. Six-Pack Latino skemmtir í Kaffileikhúsinu í kvöld. Hjálmar Stefánsson, útibússtjóri Landsbankans í Sandgerði: Stutt á miðin og markaðinn DV, Suðurnesjum: Það eru orðin 35 ár síðan Lands- banki íslands hf. opnaði útibú í Sandgerði árið 1964 og var haldið upp á það nú í febrúar. Hjálmar Stefánsson hefur verið útibússtjóri bankans síðastliðin sex ár. Það var 31. janúar árið 1964 sem opnuð var afgreiðsla í Sandgerði en það var þá útibú frá Grindavík. Árið 1983 var síðan Sandgerðisaf- greiðslan færð undir útibú Lands- bankans á Keflavíkurflugvelli en tveimur árum síðar stofnað sjálf- stætt útibú í Sandgerði og ráðinn útibússtjóri: „Þegar bankaútibúið var opnaö hér í Sandgerði var mik- ill uppgangur í atvinnulífi hér og þar sem sjávarútvegur er aðalat- vinnuvegurinn var mikil eftirspurn eftir lánsfé. Auk Sandgerðissvæðis þjónar útibúið að hluta til atvinnu- rekstri og einstaklingum í Garðin- um. Með stækkun skipa og fjölgun smábáta hefur höfnin og hafnar- svæðið tekið miklum breytingum til þess að þjóna þessum nýju aðstæð- um og höfnin er sannkölluð lífæð staðarins, enda stutt á miðin og markaðinn. Þó að aðeins séu um 10 km á milli Reykjanesbæjar og Sand- gerðis er mikill munur á högum og háttum fólks. Tekjur fólks í Sand- gerði eru afar sveiflukenndar og háðar árstíðum og jafnvel veðurfari. Reykjanesbær er orðinn það stór að hann ber heimaversl- un og ýmsa aðra þjón- DV-mynd ustu sem minni bæir í nálægð þess stóra geta ekki. Á síðustu árum hefur mikið verið hugað að öðru og heppilegra hús- næði fyrir bankann því hlutverk Maður dagsins hans er og verður mikilvægt í bæj- arfélagi sem Sandgerði. Einnig er nauðsynlegt að hraðbanki verði opnaður hér og er stefnt að því síðar á þessu afmælisári.“ Hjálmar er Siglfirð- ingur en flutti til Kefla- víkur fyrir 27 árum. Á Sigluflrði hafði hann m.a. verið skrifstofu- stjóri hjá kaupfélaginu, auk þess að stunda eigin rekstur um tíma. Hann starfaði síðan í tvö ár hjá Esso í Danmörku við akstur olíubifreiðar um þvert og endi- langt Sjáland og telur þann tíma hafa veriö á við besta sumarfrí. Áhugamál Hjálmars utan vinnu eru marg- vísleg: „Á yngri árum voru það Arnheiður íþróttir og félagsmál. Þá var ekki sama val um íþróttagreinar og nú er. Á æskustöðvum mínum var nán- ast ekki annað á boðstólum en skíði og knattspyma, enda þær greinar mikið stundaðar. Á síðari árum hef ég enn haldið mig við félagsmálin en í stað íþrótta hafa komið ferða- lög, bæði innanlands og utan.“ Eiginkona Hjálmars er Halla Har- aldsdóttir gler- og myndlistar- maður, sem einnig er Siglfirðingur, en þau era jafnaldr- ar og voru skóla- systkin alla skólagönguna. Synir þeirra eru Haraldur Gunnar tónlist- armaður, búsettur í Kaupmannahöfn, Þórarinn, flugstjóri hjá Flugleiðum hf., og Stefán, sem er læknir og nú búsett- ur í Noregi. -AG Hópurinn sem tekur þátt í Margt býr í þokunni. Margt býr í þokunni Leikfélag Hveragerðis frumsýnir sakamálagaman- leikinn Margt býr í þokunni eftir William Dinn- er og William Morum i þýð- ingu Ásgerðar Ingimars- dóttm- annað kvöld, í gamla hótelinu í Hveragerði. Leik- stjóri er Anna Jórunn Stef- ánsdóttir. Níu leikarar koma fram í sýning- unni en alls koma þrjátíu manns á einn eða annan hátt nálægt upp- setningu á gamanleiknum leikritinu. í að- alhlutverkum eru Svala Karlsdóttir, Sigríður Val- geirsdóttir og Dagbjört Fjóla Almarsdóttir. Næstu Leikhús sýningar verða sunnudag- inn, 14. mars, fóstudaginn 19. mars og laugardaginn 20. mars. Sýningar hefiast kl. 20.30. Myndgátan þó SA(,t>/'A (ADcc. /trr/' 84AA At> \SAr*/>4 B/WA rn/NO c/. þdábólddi hVörki ð bólunum i bóiinu t Bóíivi'u né öera Sjálfkrafa Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn. I Avaxtakörfunni eru margar skrautlegar persónur. Ávaxtakarfan Á morgun og sunnudag eru síð- ustu sýningar á fiölskylduleikrit- inu Ávaxtakarfan sem sýnt er í ís- lensku óperunni. Nú þegar hafa yfir tíu þúsund áhorfendur séð verkið sem búið er að sýna 35 sinnum og hefur verið uppselt á flestar sýningar. Megininntak leikritsins er ein- elti og fordómar en leikritið gerist í ávaxtakörfu þar sem allir eru kúgaðir af Imma ananas. Maja jarðarber er minnst og verður því fóraarlamb eineltis. En þegar gul- rót kemur í ávaxtakörfuna tekur hún við hlutverki Maju og verðm- fyrir barðinu á fordómum þar sem hún er grænmeti og því ann- arrar ættar en ávextirnir. Smám saman opnast augu ávaxtanna þó fyrir því að það er ekki útlitið sem skiptir máli heldur innrætið og allt fer vel að lokum. Leikhús Söngvar og dans skipa veglegan sess i sýningunni og geisladiskur með söngvunum hefur verið gef- inn út. Höfundur handrits er Kristlaug María Siguröardóttir og leikstjóri er Gunnar Gunnsteins- son. Fjöldi þekktra leikara og söngvara tekur þátt í sýningunni og má þar nefna Andreu Gylfa- dóttur, Lindu Ásgeirsdóttur, Hin- rik Ólafsson, Selmu Björnsdóttur og Kjartan Guðjónsson. Bridge Sveit Strengs vann mjög öruggan sigur í C-riðli undankeppni Mastercard-sveitakeppninnar. Sveitin gerði aðeins eitt jafntefli en vann alla aðra leiki, þar á meðal 25- 4 gegn sterkri sveit Þriggja Frakka. Sveit Strengs spilaði mjög fiörugan leik gegn ÍR-sveitinni í sjöttu um- ferð mótsins þar sem mikil skipting- arspil einkenndu sagnir. í þessu spili í síðari hálfleik sátu Ragnar Magnússon og Sigurður Vilhjálms- son í AV. Sagnir gengu þannig, vest- ur gjafari og allir á hættu: f G84 *»ÁG3 ♦ ÁD762 4 D1092 * 53 4 Á N D10987 V A * 6 ♦ G5 4 K984 * 72 S * ÁKDG1096 4 K7653 * K542 * 103 * 84 Vestur Noröur Austur Suður pass 1 tígull 2 lauf pass pass dobl 3 grönd p/h Ragnar Magnússon ákvað að segja aðeins 2 lauf í upphafi en varð skelfmgu lostinn þegar þau voru pössuð yfir til norðurs. Norðri var vorkunn að gefa úttektardobl, enda bentu sagnir alveg eins til þess að suður sæti með lauflengd og refs- ingu. Ragnar lét tækifærið ekki fram hjá sér fara og stökk í þrjú grönd. Suður byrj- aði ágætlega fyrir vömina með því að spila út spaða. Ragnar setti lítið spil í blindum og norður áttuna. Ragnar á nú 8 slagi beint en óskyn- samlegt að taka þá. Möguleikarnir voru góðir ef hjartagosinn lá fyrir svíningu og því kom næst hjarta á sjöuna í blindum. Norður drap á gosa og þurfti nú að finna rétta framhaldið. Norður áttaði sig ekki fyllilega á stöðunni, spilaði lágum tígli og Ragnar var ekki seinn á sér að stinga upp kónginum og taka 9 slagi. ísak Örn Sigurðsson Ragnar Magnússon.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.