Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999
Fréttir_______________________________pv
Skemmdir á timburhúsi á Höfn þegar kviknaöi í út frá kerti:
Reykskynjarinn bjarg-
aði fjölskyldunni
- segir Bára Baldvinsdóttir sem býr í húsinu ásamt manni og fimm börnum
Magga skorar á hólm
DV, Höfn:
Nokkrar skemmdir urðu á Mána-
braut 1 á Höfn í fyrrinótt þegar
kviknaði í út frá kerti í borðstofu á
Einar Smári Þorsteinsson ásamt tvíburabræðum sínum, Braga Fannari og Andra Snæ, í stofunni þar sem eldurinn
kviknaði. Á bak við þá má sjá sótugan vegginn og brunninn kertastjakann á skápnum. Á innfelldu myndinni sést hús
fjölskyldunnar, tvílyft timburhús. DV-mynd Júlía Imsland
neðri hæð hússins. Þegar slökkvilið-
ið kom á staðinn hafði húseiganda
tekist að slökkva eldinn.
„Við vöknuðum við hljóðið frá
reykskynjaranum kl. rúmlega þrjú
og fundum reykjarlyktina um leið
og ég opnaði svefnherbergisdymar
og mundi ég þá um leið eftir kertinu
á borðstofuskápnum," sagði Bára
Baldvinsdóttir sem þar býr ásamt
eiginmanni sínum, Þorsteini Guð-
mundssyni, og 5 bömum.
„Ég hringdi strax i neyöarlinuna
og viö drifum bömin út í bíl og þeg-
ar slökkviliðið kom eftir örfáar mín-
útur hafði manninum mínum tekist
að slökkva eldinn. Slökkviliðið
reykræsti svo húsið.“
Bára segir að enginn vafi sé á að
reykskynjarinn hafi bjargað þeim.
„Við sofum öll á efri hæðinni og
jjetta er timburhús og því mikill
eldsmatur," segir Bára. „Við eram
með 4 reykskynjara í húsinu en
ekki samtengda. Úr því veröur bætt
strax eftir þetta óhapp. Það hefur
kennt okkur og vonandi fleiram
hversu góð líftrygging reykskynjar-
ar era. Kertastjakann sem brann
hafði dóttirin á heimilinu smíðað úr
tré í handavinnu í skólanum og
munu margir slíkir vera til hér á
Höfn.“
Skemmdir urðu á borðstofuskáp
og vegg og reykur barst um allt
hús. -Júlia
Borgarfjöröur:
Banaslys
Banaslys varð á Vesturlands-
vegi í Borgarfirði þegar bifreiö
fór út af veginum sunnan Skarðs-
lækjar. Slysið átti sér stað á fostu-
dagskvöld og er talið að bílstjór-
inn, sem var einn í bílnum, hafi
látist samstundis. Maðurinn sem
lést hét Magnús Már Björnsson,
20 ára, til heimilis aö Birkihlíð 38
í Reykjavík. Hann lætur eftir sig
unnustu. -aþ
Hafnarfjörður:
Datt af baki
Tvítug stúlka féll af hestbaki í
Kaldárseli í Hafnarfirði um fimm-
leytiö í gær. Hún var flutt á slysa-
deild Sjúkrahúss ReyKjavíkur. Að
sögn læknis á vakt vora meiösl
stúlkunnar minni háttar; hún
reyndist óbrotin en talsvert marin.
Mosfellsdalur:
Bíll brennur
Eldur kom upp í biffeið sem
ekið var upp Mosfellsdalinn,
skammt fyrir ofan Gljúfrastein,
um kvöldmatarleytið á laugar-
dagskvöld. Þegar slökkvilið kom á
staðinn logaði glatt í bílnum.
Greiðlega gekk að slökkva í bíln-
um sem, að sögn lögreglu, er mik-
ið skemmdur. Ekki er vitaö um
orsakir eldsins en talið er líklegt
að bensínleiðsla hafi gefið sig. aþ
Bíllinn er illa farlnn eftir brunann.
DV-mynd Sveinn
Það er stuð á Möggu
Frímanns þessa dagana.
Hún er uppnumin yfir
því að fá að leiða Sam-
fylkinguna sem Sighvat-
m- leyfði henni að gera
eftir að í ljós kom að
kratamir voru alls staö-
ar kosnir í efstu sæti.
Minna mátti nú ekki
vera, eftir að Alþýðu-
bandalagið samþykkir að
leggja sjálft sig niður til
að flykkja sér um fram-
boð Alþýðuflokksins um
land allt.
Og Magga er í stuði.
Hún er í svo miklu stuði
að hún hefur skorað Dav-
íð á hólm - einvígi Dav-
íðs og Golíats - nema
hvað Davíð er ekki Golí-
at, Magga er Davíð. Dav-
íð er Golíat. Og Golíat
hefur enn ekki sést í
kosningabaráttunni. Hefur ekki talið hana þess
virði, ekki séð ástæðu til að birtast kjósendum
nema svona fyrir siðasakir rétt fyrir kosningar.
Magga verður þess vegna ein í hólmgöngunni til
að byrja með, ef Golíat nennir þá nokkuð að eiga
við þetta einvígi. Það kemur þá í ljós. Spennan i
sambandi við þessar kosningar í vor er einmitt
sú hvort Davíð Golíat nennir að sýna sig. Það tek-
ur því varla.
Já, Samfylkingin skorar Sjálfstæðisflokkinn á
hólm. Það gerðist á kosningahátíð á laugardaginn
í Háskólabíói þar sem fjöldanum öllum af fólki
var smalað saman til að klappa og syngja og
klappa meira og að lokum var svo gaman að eld-
vamarkerfið gaf sig og það þurfti að reka fólkið,
þetta glaða og sigurvissa hólmgöngulið, út úr
húsinu og inn í það aftur.
Sumir segja að Framsókn hafi eyðilagt bruna-
kerfið. Það er ekki rétt. Framsókn skiptir ekki
máli í þessum kosningum. Framsókn verður í
ríkisstjórn, hvemig sem kosningamar fara. Enda
er Össur búinn að gefa Halldóri syndakvittun og
segir að Halldór sé traustur maður og Halldór sé
góður maður, þótt Össur hafi aldrei talað við
hann nema úr ræðustól. Og Halldór hafi aldrei
talað við Össur, ekki einu sinni úr ræðustól.
Nei, það þarf ekki aö skora Halldór og Fram-
sókn á hólm. Framsókn er á vísum stað. Og á sín-
um stað eftir kosningar.
Nú er það bara hólmganga Möggu og Davíðs
sem málið snýst um og hvort Sjálfstæðisflokkur-
inn megi vera að því og nenni að leggja sig niður
við að mæta Möggu í hólmgöngunni, enda ekki
gott að vita meö hvað vopnum eigi að slást eftir
að búið er að eyða öllum ágreiningi í pólitíkinni
og Samfylkingin segir meira að segja að utanrík-
ismál séu ekki kosningamál og ekki heldur þjóð-
arsáttin um kvótann og ekki heldur einkavæðing-
in og ekki er stríöið í Júgóslavíu á dagskrá og
hvað er það þá sem Magga vill tala um og berjast
um?
Kannski það eina sem öllu varðar, aö ganga í
augun á Halldóri og Framsókn, til að ffamsókn-
armaddömunni þóknist að bjóða Möggu upp í!
Eða þá að koma brunvarnakerfmu í lag!
Dagfari
Oddi ekki skemmt
Oddi Helga Halldórssyni, bæjar-
fulltrúa L-listans á Akureyri, var
ekki skemmt þegar
hann sá að menningar-
málanefnd bæjarins
hafði veitt listamann-
inum Lárusi H. List
50 þúsund króna
styrk vegna mál-
verkasýningar hans
í höfuðborginni.
upplýsti á bæjar-
að listamaðurinn
hefði haldið til borgarinnar með eitt
málverk í farteskinu og hengt það
upp þar í einhverjar klukkusúmdir.
Málverkið mun listamaðurinn að
hluta til hafa málað með eigin blóði
sem hann fékk lækni til að taka úr
sér. Oddur segist í sjálfu sér nokkuð
hress með ffamtak listamannsins og
hugmyndaflug en undrast mjög gjaf-
mildi menningamálanefndarinnar
og skyldi engan undra...
Oddur
stjómarfundi
How do you like...
Flóttamennimir frá Kosovo mættu
her íslenskra fjölmiðla við komuna
til landsins fyrir helgi.
Skondið þótti að fylgj-
ast með beinum út-
sendingum sjónvarps-
stöðvanna þegar flug-
vél Landhelgisgæsl-
unnar lenti á
Reykjavíkurflug-
veÚi. Róbert Mars-
hall á Stöð 2 var einn þeirra frétta-
manna sem freistuðu þess að skúbba
í málinu. Þaö hrukku margir við þeg-
ar fréttamaðurinn viðkunnalegi
spurði í gegnum túlk einn hinna
hijáðu flóttamanna „hvernig honum
líkaði á Islandi". Flóttamaðurinn
varð í fyrstu kjaftstopp við „how do
you like Iceland" spurninguna en
mælti síðan á móðurmáli sínu sem í
lauslegri þýðingu túlksins gekk út á
það að það væri bara hálftími síðan
hann heföi komið til landsins ...
Bragðarefur
Sú ákvörðun hins umdeilda hér-
aðshöfðingja, Eggerts, að hætta við
að hætta í pólitík og
gerast frjálslyndur
hefur vakið blendin
og sums staðar ótta-
blendin viðbrögð. í
tilefni upprisu Egg-
erts orti ónefndur
hagyrðingur á Suð-
urlandi sem
skammstafar nafn sitt Bj. H. eftirfar-
andi:
Von um frama vaskan dreng
víða glapið hefur. -
Enn þá leggur ör á streng
Eggert bragðarefur.
L-S-D hann áður bar
upp og kaskur varði.
En nú blaktir F-iö þar
efst í kappans garði.
Barátta
Hin skelegga Ásdís Halla
Bragadóttir, formaður Sambands
ungra sjálfstæðis-
manna, lætur nú
senn af embætti sem
forystumaður ung-
liðahreyfingarinn-
ar. Mun hún ásamt
eiginmanni sínum
ætla í framhaldss- ________
nám I hinum virta Harvard-
háskóla í Bandaríkjunum. Ljóst er
að barátta mun verða um for-
mannsstólinn en talið er að bæði
Jónas Þór Guðmundsson, lög-
fræðingur í dómsmálaráðuneytinu
og varaformaður SUS, og Sigur-
jón Pálsson, formaður utanríkis-
málanefndar SUS, ætli sér i slag-
inn. Aldnir SUS-meðlimur eru
þess enn minnugir hinum mikla
slag sem fram fór fyrir nokkram
áram þegar Guðlaugur Þór Þórð-
arson lagði Jónas Fr. Jónsson að
velli. Talið er að stuðningur Guð-
laugs muni skipta miklu máli
enda er kosningavélin hans ein sú
best smurða í dag...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is