Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999 Spurningin Eru íslendingar fordóma fullir í garð útlenskra ferðamanna? Ólafur Ingi Pálsson nemi: Nei. Ferðamennirnir eru svo margir og þeim er alltaf að fjölga. Ármann Dan Ámason nemi: Nei. íslendingar eru svo fordómalausir. Erna ísaksen starfsstúlka: Nei. Ég hef til dæmis sjálf ekkert á móti þeim. Ragnhildur Guðmundsdóttir nemi: Nei. En mér finnst íslending- ar frekar fordómafullir i garð nýbúa. Erlingur Einarsson nemi: Já, ég myndi segja það, en þó frekar gagn- vart nýbúum. Ásdís Sveinsdóttir húsmóðir: Nei, mér finnst þaö alls ekki. Lesendur Athyglisþörf héraðslæknis Þór skrifar: Það voru margir sem nutu veður- blíðunnar um páskana. Gengu eða skíðuðu og áttu svo góðar stundir heima. Og af því bárust fréttir að kirkjusókn um páskana hefði verið með eindæmum góð. Þetta er ef til vill einn dýrmætasti tími sem fólkið hefur tO að hvOa sig frá amstri hvers- dagslífisins og njóta kyrrðarinnar. Eftir hátíðirnar mátti svo sjá frétt í DV þar sem sagt er frá flutningi „poppmessu" á Flateyri og þar er sagt að endurtaka þurfti „messu- flutninginn“ tvisvar vegna mikillar aðsóknar. Þarna var héraðslæknir bæjarins, einhver Lýður Árnason, mættur í sínu veldi. Sjálfur héraðs- læknirinn. Nutu lesendur m.a. flennistórrar myndar af honum með útbreiddar hendur og í greininni segir að hann hafi þrumað í hljóð- nemann í bland við flutning á rokktónlist. Nú er það flestum í sjálfsvald sett hversu mikla athygli þeir þrá. Sumir þrá enga, aðrir mikla og enn aörir óeðlOega mikla. Og húmor héraðslæknisins heldur áfram. Hann sótti nefnOega um prestsstöðu í bænum fyrir nokkru, af því prestur staðarins var að fara í leyfi. Honum var hafnað, því miður fyrir hann, þar sem hann hefði þá getað baöað sig í sviðsljósinu daginn inn og daginn út. Það er ekkert gam- an að vera læknir að íjarlægja vört- ur aOan liðlangan daginn. Og hér- aðslæknirinn bað þorpsbúa, sem komust ekki inn í kirkjuna á fyrri sýninguna, að fara og fá sér bjór og koma aftur. „Þetta er nokkuð traust," sagði læknirinn eftir sýning- una. Nokkuð traust, því að sjálfur héraðslæknirinn stóð fyrir guðlasti ársins en fékk athygli ársins. Lýður Árnason læknir horfir beint í myndavélina í „poppmessu" um páskana. Halldór Asgrímsson frábær ráðherra Skarphéðinn Einarsson hringdi: Nú eru kosningar að nálgast. Dæma kjósendur þá sem hafa stjórnað. Halldór Ásgrímsson er ráðherra sem ber af í þessari stjóm sem nú er að skOa af sér. Það virð- ist vera sama hvar hann kemur að, verk hans einkennast af gáfum og einbeitni. Ég er viss um aö er kom- andi kynslóðir fara yfir feril stjórn- málamanna á íslandi á þessari öld mun hann bera af ásamt Davíð Oddssyni. Það er skoðun margra að þeir utanríkisráðherrar sem best hafa staðið sig frá lýðveldisstofnun, séu dr. Kristinn Guðmundsson, sem var ráðherra um miðjan 6. áratug- inn, og nú HaUdór Ásgrímsson. Honum hefur tekist að bæta imynd íslands erlendis. T.d. taka íslending- ar nú meira þátt í samstarfi á vett- vangi mála hjá NATO, sem áður var ekki gert. Það var lýsandi fyrir það aukna samstarf er ríkisstjórnin sendi flugvél Landhelgissgæslunnar til hinna stríðshrjáðu svæða á Balkanskaga með hjálpargögn. Við erum lítil þjóð en okkar skerfur sýnir okkar hug í þessu máli. Við höfum ekki efni á að missa HaUdór úr utanríkisráðuneytinu. Þessi stjórn mun að öUum líkindum sitja áfram, ekkert betra er i boði. Næstu verkefni í samstarfi við erlend ríki eru innganga í ESB og upptaka evr- unnar hér á landi. ísland á mikla möguleika til framfara á nýrri öld. Við megum ekki einangrast í þeim efnum. Þess vegna mun HaUdór Ás- grímsson verða fuUtrúi íslands í er- lendum samskiptum er við stígum inn í 21. öldina. Kvótaraunir Vegna mistaka í vinnslu birtist eftirfarandi grein á ný: Halldór HaUdórsson skrifar: Misvitrir erum við íslendingar og hyggjuvitinu misskipt. Undarlegt er það ef bjóða á aflaheimildir upp. Af hverju ekki að bjóða upp á verslun- arleyfi og selja hæstbjóðanda? Nei, það gengur ekki. Það verður að vera [LÍÍítÍiGM þjónusta allan sólarhringinn Aðeins 39,90 mínútan Lesendur geta sent mynd af sér með bréfum sínum sem birt verða á lesendasíðu Staða fjögurra mikilvægustu botnfiskistofna - meðalafli í tonnum 1985-1995 1996 1997 1998 Þorskur 304.730 181.656 203.546 190.549 Ýsa 53.325 56.209 43.501 31.564 Ufsi 68.034 40.099 37.158 27.365 Skarkoli 11.975 11.066 10.552 7.479 oa frjáls verslun. Því þá að fjötra sjáv- arútveginn? Við stjórnuðum veið- unum mun betur áöur en kvótakerf- ið var sett á, enda var sátt um veið- arnar. Þeim var stjórnað með sókn- arstýringu, svæöaskiptingu og öðr- um takmörkunum. Ef setja ætti á auðlindagjald væri hægt að gera það með skatti á fisk við sölu á markaði. Þá myndum við losna við allt brottkast fisks og fiskurinn færi allur í gegnum markað. íslendingar eru eins og steinald- armenn í markaðssetningu á fersk- um sjávarafla og til athlægis ef skýrt væri satt og rétt frá stöðu sjávarútvegs á íslandi í erlendum fjölmiðlum. Það er kominn tími til að aörir fari með stöðu sjávarútvegs á íslandi I erlenda fjölmiðla en áróð- ursmeistarar LÍÚ og ríkisstjórnar- innar. Ekki hefur kvótinn verndað fiski- stofnana. Þeir eru í sögulegri lægð - kerfið takmarkar aðeins en vemdar ekki. DV Ábending til stjórnar RÚV Jóhann Páll Símonarson hringdi: í sl. viku var fluttur mjög fróð- legur þáttur um öryggismál sjó- manna í Ríkisútvarpinu. Stjórn- andi þáttarins var herra Arnþór Helgason og á hann þakkir skildar fyrir framlag sitt sem einkenndist af góðri og ljúfri framkomu. Það sem stakk mig þó var hvers vegna þessi þáttur var ekki kynntur hlustendum á viðeigandi hátt eins og dæmi er um, t.d. með þáttinn Sunnudagskaffi. Vonandi verður bætt úr þessu sem fyrst því RÚV og starfsmenn þess hafa staðið sig vel um ýmis mál að undanfömu. Flóttafólkið velkomið Halldóra hringdi: Lesandi Morgunblaðsins, sem kallar sig „ein óánægð", skrifaði bréf í blaðið á dögunum. Veltir þessi „óánægða“ því fyrir sér hvort það séu geymdar íbúðir á landinu handa flóttafólki og undrar sig á því að ríkisstjómin geti alltaf hjálp- að flóttafólki en ekki löndum sín- um. Leitt er það að íslendingar séu heimilislausir en okkar ber rík skylda til'að hjálpa fólki sem stend- ur snautt og heimilislaust hundrað- um þúsunda saman á flótta undan árásum NATÓ og Milosevics. Eng- inn á skilið að vera án heimilis en nauðin er meiri hjá flóttafólki í fyrrum Júgóslaviu. Margrét góð Þórður skrifar: Það stóð ekki á svari hjá for- manni stuttbuxnadeildar Sjálfstæð- isflokksins, Ásdísi Höllu Bragadótt- ur, þegar hún var spurð hver stjórnmálaleiðtoganna hefði staðið sig best í umræðum í Sjónvarpinu um daginn. „Geir H. Haarde var bestur," sagði Ásdís og bætti því að Margrét hefði ekki verið nógu vel undirbúin. Hið sanna er að mínu viti að Margrét fer vel af stað sem leiðtogi Samfylkingarinnar. Hún bæði svarar vel fyrir sig og kemur vel fram enda gömul í hettunni. Það er ekkert grín að taka við hlut- verki forystumanns í nýju og óslíp- uðu kosningabandalagi en henni ferst það betur heldur en margur vill vera láta. En Geir var sem sagt bestur. Veitingastaður í Hljómskála- garðinum Hannes Jónsson skrifar: Fátt er nauðsynlegra en að efla miðbæinn í Reykjavík og koma upp fallegum byggingum og bæta þær sem eldri eru. Þess vegna líst mér afar vel á tillögur sem fram hafa komið í skipulagsnefnd um að reisa veitingastað í Hljómskálagarðin- um. Það myndi fjölga komum í þennan fallega garð og skapa fjöi- breyttara umhverfí veitingastaða. Svæðið í Hljómskálagarðinum í dag er allt of opið og túnin nýtast ekki nógu vel fýrir fólkið þar sem þau eru ekki hólfuð niður með plöntum og bekkjum. Það er ástæða til að hlakka til verði veitingastað- ur í garðinum. Haukdal í slaginn íbúi í Gnúpverjahreppi skrifar: Makalaust er það ef Eggert Haukdal heldur því fram fyrir al- vöru aö hann nái að endurheimta þingsæti sitt. Ekki tókst honum það síðast einn síns liðs en náði þó að koma því til leiðar að kratar náðu manni inn í fyrsta skipti í einhver 30 ár. Nú stefnir aOt í að Samfylkingin haldi þeim tveimur mönnum sem hún hefur í kjördæm- inu og þá þýðir það að sáralitlar vonir eru um að Eggert komist inn. Hann hefur verið kærður til emb- ættis ríkislögreglustjóra fyrir fjár- drátt en einn frambjóðandi Sam- fylkingarinnar í Norðurlandskjör- dæmi eystra gaf sæti sitt eftir á dögunum þó að hann væri með hreinan skjöld. En viti menn, Egg- ert heldur að hann komist inn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.