Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Blaðsíða 20
32 MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999 K I/J£JJÍJ VS \ <JJJ ‘ Merkileg vinna í eyðimörkinni í Patagóníu: Nákvœm kortlagning á legu mörg þúsund risaeðlueggja Tölvukubbur á slóð krabba- meinsfrumna Danskir vlsindamenn hafa þróað nýja tækni sem þeir gera sér vonir um að geti uppgötvað krabbameinsfrumur miklu fyrr í sjúkdómsferlinu en nú er % mögulegt. Hér, eins og svo víðar, er' það kisilflögukubbur sem gerir gæfumuninn. Áætlað er að tæknin verði komin í notkun innan fárra ára, að því er segir í danska blaðinu Politiken. Það eru vísindamenn við danska tækniháskólann sem hafa þró- að tölvukubbinn. Nýja aðferðin þýðir að hægt verður að ráðast gegn krabba- meininu fyrr en ella. Með nú- verandi greiningaraðferðum eru krabbameinsfrumurnar orðnar svo margar þegar þær uppgötvast að sjúklingurinn hefur það fjári skítt. Vonandi verður hér breyting á. Hjartanu líkar hneturnar Nú eru það hnetur sem mað- ur verður að fara að gleypa í stórum stíl. Þeir sem vilja draga allverulega úr líkunum á því að fá blóðtappa í hjartað ættu að borða hnetur að minnsta kosti fimm sinnum í viku. * Þannig hljóða niðurstöður rannsóknar sem vísindamenn við lýðheilsuskóla hins virta háskóla Harvard gerðu á 86 þúsund konum. Rannsóknin stóð í fjórtán ár. Sagt er frá henni í Breska læknablaðinu. Þegar konurnar borðuðu hnetur að minnsta kosti fimm sinnum á viku voru 35 prósent minni líkur á að þær fengju blóðtappa í hjartað en þegar þær létu aldrei eða sjaldan ofan í sig hnetur. í hnetum eru bæði einómettaðar og fjölómettaðar fitusýrur sem geta komið jafn- vægi á kólesterólmagnið í blóð- inu. Þá eru fleiri góð efni í * hnetunum. Geitur til að upp- rœta illgresið Nýjasta tækni og visindi eru ekki alltaf hentugasta lausnin við sérhverjum vanda. Borgar- yfirvöld í Denver í Bandaríkj- unum eru ekkert feimin við að grípa til lágtæknilausnar í bar- áttu sinni við illgresi sem hef- ur vaxið stjórnlaust innan borgarmarkanna. Litlar kasm- írgeitur eru það sem dugar. Geitunum er ætlað að éta ill- gresi sem hefur skotið rótum við ár og læki og á opnum svæðum innan borgarmarka > Denver og hrakið innfæddar plöntur á brott. Það er líklegast óþarfi að taka fram að geitun- um finnst illgresið á við besta súkkulaði. Umræddar geitur eru smá- vaxnar, svona á stærð við hund. Hornin á þeim eru lítil og þær eru hændar að mann- ' fólkinu. Vísindamenn sem hafa verið að störfum í eyðimörkinni í sunnan- verðri Patagóníu eru nú langt komnir með fyrsta hluta umfangs- mikillar kortlagningar á svæði þar sem þúsundir risaeðlueggja hafa fundist. Kortlagning svæðisins mun auð- velda vísindamönnum að átta sig á æxlunarmynstri risaeðlanna, að sögn sérfræðinga. „Þetta verður stærsta kortlagn- ingin sem gerð hefur verið af risa- eðlueggjum," segir Rodolfo Coria, forstjóri Carmen Funes safnsins í Neuquen-héraði í Argentínu. „Við ætlum að gefa út kort sem sýnir hvar öll eggin eru. Slíkt kort hefur aldrei verið gert áður.“ Kortlagningin er síðasti áfangi í uppgreftri sem hófst fyrir tveimur árum. Þá greindu vísindamenn frá þvi að fósturvísar risaeðlna hefðu fundist í fyrsta skipti á suðurhveli jarðar. Uppgötvun vísindamann- anna vakti mikla athygli um heim allan. Coria segir að eggin tilheyri dæmigerðri títanseðlu frá Rómönsku Ameríku. Þau eru um það bil áttatíu milljón ára gömul. Eðlur þessar voru af graseðluætt, með langan hala og háls, lítinn haus og fjóra fótleggi svipaða og eru á fíl- um. Fyrst í stað er kortlagt svæði sem hefur að geyma um tvö hundruð risaeðluegg. í flestum þeirra eru fósturvísar. Svæðið er um átján kílómetrar að lengd og fimm til sjö kílómetrar á breiddina. Að kort- lagningunni lokinni munu vísinda- mennirnir reyna að gera sér grein fyrir því sem þeir eru með í hönd- unum. „Þetta var greinilega staður sem risaeðlur völdu til að verpa eggjum sínum,“ segir Coria. Hann segir þó pf snemmt að fara að kalla þetta hreiður. Svæðið þar sem eggin fundust er nú hrjóstrug eyðimörk. Fyrir átta- tíu milljónum ára var þar öðruvísi um að litast, frjósamt graslendi, ekki ósvipað gresjunum í kringum Buenos Aires. Coria og staifsbræður hans við bandaríska náttúrusögusafnið í New York greindu fyrst frá uppgötv- un sinni í nóvember síðastliðnum. Coria segir að tiltölulega lítið af risaeðluleifum hafi fundist í Pata- góníu en þeim hafí þó farið fjölg- andi að undanfornu. Þar á meðal hafa fundist leifar af fjórum eða fímm stórum kjötæturisaeðlum á \ svipuðum slóðum. Vorið á Úranusi ekkert til að öf- undast út í Vorið góða grænt og hlýtt á svo sannarlega ekki við á reiki- stjömunni Úranusi. Þvert á móti. Þar geisar hið mesta óveð- ur, marglit ský æða um himin- hvolfið og frostið er hvorki meira né minna en þrjú hundr- uð gráður, eða þar um bil. Stjarnvísindamenn geta nú í fyrsta sinn af einhverju viti séð hvernig vorið á Úranusi er með því að beina geimsjónaukanum Hubble að reikistjörnunni. Ástæðan er sú að árið á Úranusi er svo langt, eða sem svarar 84 árum á jörðinni, að sögn Heidi Hammel sem starfar við tækni- háskólann í Massachusetts, eða MIT. Árstíðaskipti verða á jörðinni vegna þess að hún hallar eilítið á sporbaug sínum umhverfis sólina. Norðurhvel jarðar hallar nú í átt að sólu og því er lang- þráð vor farið að láta á sér kræla þar. Sama er upp á teningnum á norðurhveli Úranusar sem er sett saman úr ýmsum loftteg- undum, svo sem helíum og vetni. Sólin er nú farin að verma yfirborð þess eftir margra áratuga vetur. Sumar kemur ekki til Úranusar fyrr en árið 2007 þegar sólin verður yfír miðbaug reikistjörnunnar. í yfirlýsingu sem bandaríska geimvísindastofnunin NASA sendi frá sér í tilefni vorsins á Úranusi segir að skýin þar séu hin björtustu í utanverðu sól- kerfinu og þau séu að öllum lík- indum úr meþankristöllum sem þéttist þegar heitar loftbólur vella upp úr lofthjúp reikistjörn- unnar. Steingervingafræðingurinn Luis Chiappe frá bandaríska náttúrusögusafninu leitar að eggjum og fósturvísum risa- eðlna í Patagóníu í Argentínu. Þúsundir eggja fundust á þessum slóðum og eru vísindamenn nú byrjaðir að kort- leggja staðsetningu þeirra til að auðvelda frekari rannsóknir. Gleðitíðindi úr heimi efnafræðinnar: Súkkulaðiátið dregur úr lík- unum á að fá hjartasjúkdóma Góðar fréttir fyrir þá sem átu yfir sig af páska- eggjum á nýliðnum pásk- um: Súkkulaðiát dregur hugsanlega úr líkunum á hjartasjúkdómum með því að koma í veg fyrir að æðamar til hjartans stíflist. Samkvæmt niðurstöð- um rannsókna vísinda- manna súkkulaðifram- leiðandans Mars og Kali- forníuháskóla í Davis inniheldur kókó efnið ffa- vonóíða sem verka eins og andoxunarefni og get- ur valdið því að óhrein- indi og drulla festist ekki við æðaveggina. Niður- stöðurnr voru kynntar á ráðstefnu bandaríska efnafræðifélagsins í Ana- heim í Kaliforníu í síð- asta mánuði. Vísindamenn súkkulaðiframleiðandans og háskólans i Davis ganga lengra í skýrslu sinni en gert hefur verið til þessa með því að benda á ákveðin fla- vonóíð i súkkulaði sem hindra oxun svokallaðs slæms kólesteróls. Talið er að sú oxun sé lykilþáttur í því að æðar þrengist og stíflist hugs- anlega áður en yfir lýk- ur og valdi þar með hjartasjúkdómum. Á ráðstefnu kókósér- fræðinga í Madríd á Spáni í fyrra kom fram i máli vísindamanna að í kókói væru meira en sex hundruð efnasambönd sem kynnu að gagnast i baráttunni við krabba- mein og hjartasjúkdóma og sem gætu einnig verndað ónæmiskerfi mannsins og barist gegn gigt og streitu. í desember síðastliðn- um sendu vísindamenn við lýðheilsudeild Harvardháskóla frá sér skýrslu þar sem líkur eru að því leiddar að sælgætisát kunni að lengja lífið. Þá má geta þess að fla- vonóíða er einnig að finna í víni. Og rann- sóknir hafa einmitt bent til þess að hófleg vín- drykkja dragi úr hætt- unni á hjartasjúkdómum og heilablóðfalli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.