Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999
jÍL ,a
Netið er miðill Kosovostríðsins
- heimasíða NATO stífluð með árásum frá Belgrad
Sagt hefur verið að útvarpið hafi
verið miðill seinni heimsstyrjaldar-
innar og sjónvarpið miðill Víetnam-
stríðsins. Margir vilja i dag meina
að Netið sé miðill stríðsástandsins í
Júgóslavíu. Netið hefur orðið vett-
vangur stríðsreksturs bæði NATO
og serbneskra yfirvalda á síðustu
dögum.
í fyrri styrjöldum hefur yfirvöld-
um að mestu tekist að stjóma flæði
upplýsinga frá stríðssvæðum en
Netið hefur breytt þessu vemlega.
Allir geta sett upp heimasíðu og
komið þar fyrir sögum sjónarvotta
jafnharðan og atburðir gerast. Jafn-
framt geta allir komist í samband
við umheiminn með tölvupósti og
hafa margar fréttastofur utan
Júgóslavíu fengið fjölda póstsend-
inga frá Serbum sem lýsa skoðun-
um sínum á loftárásum NATO á
heimili þeirra.
Atvinnuskapandi
En jafnframt hefur það verið at-
vinnuskapandi fyrir netfyrirtæki,
sem í kjölfarið hafa fengið verkefni
við allt frá verndun persónuupplýs-
inga einstakra notenda, til baráttu
við skæruhernað á Netinu.
Fyrirtækið Internet Security Sy-
stems (ISS) frá Atlanta er gott dæmi
um hið síöarnefnda, en starfsfólk
þess vinnur um þessar mundir
hörðum höndum með Bandaríkja-
her og öðrum stofnunum í Banda-
ríkjunum við að halda heimasíðum
þeirra öruggum fyrir árásum raf-
barbara af ýmsu tagi.
Og ekki er vanþörf á. í síðustu
viku réðust t.d. tölvuþrjótar frá
Belgrad á heimasíðu NATO og stífl-
uðu hana með þvi að senda gríðar-
legt magn af tölvupósti og fyrir-
spurnum í gegnum síðuna. Þetta
varð þess valdandi að almenningur
gat ekki nýtt sér hana í töluverðan
tíma. Rússneskir tölvuþrjótar gerðu
slíkt hið sama við eina af heimasíð-
um sjóhers Bandaríkjanna fyrir
skömmu.
Kostnaðurinn við að vemda
heimasíðu fyrir slikum árásum er á
bilinu frá 2.000 dollurum (um
140.000 krónur) til milljón dollara
(um 70 milljónir króna), allt eftir
umfangi heimasíðunnar. Næg verk-
efni eru fyrir hendi ef marka má
velgengni ISS, því fjöldi starfs-
manna fyrirtækisins hefur fjórfald-
ast síðan það var stofnað árið 1994.
Fyrirtækið hefur jafnframt bætt við
skrifstofum í Brussel, Tokyo og
Sydney.
Starfsemi af öðrum toga hefur
einnig hlotið mikinn hljómgrunn
meðal striðshrjáðra. Hún gengur út
á að gera fólki kleift að skoða Netið
og senda tölvupóst, án þess að hægt
sé að rekja athæfið til þess. Það er
fyrirtækið Anonymizer Inc. sem
stendur fyrir þjónustunni og hafa
þúsundir Serba og Kosovo-Albana
nýtt sér hana að sögn forseta fyrir-
tækisins.
Heimabóksala býður Amazon.com birginn:
Veltir milljónum á mánuði
Þau Linda og Lyle
Bowlin hafa byggt
upp örlitla sam-
keppni við bók-
sölurisann
Amazon.com með
heimafyrirtæki sínu,
Positively You.
Margir vilja meina
að saga þeirra sé
merki um það hve
einstaklingar geta
náð langt í barátt-
unni við risafyrir-
tækin með því að
nýta sér Netið á rétt-
an hátt.
„Ég tel alveg ljóst
að hver sem er geti
hafið viðskipi á Net-
inu og hagnast af
því,“ segir Lyle Bowl-
in. Hann sjálfur hóf
bóksöluna sem áhugamál með starfí
sínu sem prófessor við háskólann í
Norður-Iowa. Fyrst seldi hann einung-
is sjálfshjálparbækur en nú er hann
farinn að selja flestar tegundir bóka,
þó aðallega metsölubækur.
Ævintýrið byrjaði í raun fyrir al-
vöru þegar hann uppgötvaði að hægt
væri að kaupa bækur af sömu heild-
sölu og Amazon.com verslar við á
nokkum veginn sama verði ef keypt
eru fimm eintök af hverri bók. Með því
að virkja fjölskyldu sína, 18 ára dóttir
hans sér um bókhaldið, eiginkonan
hefur umsjón með að senda bækumar
og hann sjálfúr sér um að viðhalda
heimasíðunni, getur hann selt bæk-
umar ódýrar en Amazon vegna minni
kostnaðar við yfirbyggingu.
Bóksölu-
bransinn
getur verið
arðvænlegur
á Netinu.
Gnðarleg velta
Bowlin telur að kostnaður sinn í
byijun hafi verið um 2.500 dollarar
(um 180.000 kr.). En viðskiptin hafa
aukist gríðarlega síðan þá. í byijun
var velta heimilisfyrirtækisins um 400
dollarar (um 28.000 kr.) á mánuði en
nú er hún um það bil 4.000 dollarar
(280.000 kr.) á degi hveijum.
Margir vilja meina að velgengni
Bowlins og annarra smárra netbóksala
muni að lokum leiða til hruns stór-
verslana á borð við Amazon.com. Verð
hlutabréfa slikra verslana hafa rokið
upp úr öllu valdi á hlutabréfamörkuð-
um þrátt fyrir að þær hafi verið rekn-
ar með bullandi tapi frá upphafi. Menn
hafa hins vegar haft trú á því að hagn-
aður muni verða af rekstrinum að lok-
um þegar vaxtarverkir Netsins era yf-
irstaðnir. En þegar margar litlar versl-
anir geta boðið lægra verð en risamir
er hættan orðin talsverð á að hinn
væntanlegi hagnaður muni aldrei
verða að ráunveruleika hjá stórversl-
ununum.Slóð bókaverslunar Bowlin-
fjölskyldunnar er http://www.positi-
vely-you.com/
ORFRETTIR
Gore með ólöglega
heimasíðu
Al Gore lenti heldur
betur í vandræðum
í síðustu viku þegar
hann neyddist til aö
t a k a ú t
spurningalista fyrir
börn af heimasíðu
sinni vegna þess að
hann samræmdist
að öllum líkindum
ekki nýjum lögum
um persónuleynd.
Hiö meinta ólöglega
athæfi átti sér staö
á þeim hluta
heimasíðunnar sem
er eingöngu ætlaður
börnum og fólst í að
biðja börn um að
veita upplýsingar
um fullt nafn,
netfang og póstnúmer. Ný lög banna
hins vegar umsjónarmönnum
heimasíöna að biðja börn um slíkar
upplýsingar nema fullt samþykki
foreldra hafi veriö veitt.
einstaklingsnota,
og Windows NT,
sem frekar er
notað innan
fyrirtækja, hefur
verið frestað um
óákveðinn tíma.
Þetta sagði Steve
Ballmer, einn
forráöamanna
Microsoft í ræðu
á WinHEC-
ráðstefnunni í
síöustu viku.
Fyrirhugað haföi
verið aö byggja
næstu kynslóð
stýrikerfa til
einstaklingsnota
á Windows NT
stýrikerfinu. Nú
hefur því hins
vegar verið
frestaö að samtvinna stýrikerfin og
Ijóst oröið aö næsta stýrikerfi fyrir
almenning veröur byggt á Windows
95 og 98. Ekki er Ijóst enn hvaö þaö
mun heita.
Sameinast um stórverslun
Tveir af stærstu tónlistarútgefendum
í heimi, Universal Music og BMG,
tilkynntu í síðustu viku að þeir myndu
sameinast um rekstur netverslunar
þar sem seld veröur tónlist og
ýmislegt henni tengt. Verslunin ætti
að geta veitt stærstu verslunum með
tónlist á Netinu, eins og CDNow og
Amazon, talsveröa samkeppni þar
sem þessi tvö fyrirtæki gefa út um
40% af allri þeirri tónlist sem seld
er í Bandaríkjunum. Verslunin er á
slóöinni http://www.getmusic.com
Samruna Windows frestað
Samruna stýrikerfanna Windows
95/98, sem einkum eru ætluð til
Yahoo græðir
Yahoo.com, sem rekur
næstvinsælustu heimasíðuna á
Netinu, græddi meira á fyrsta
fjóröungi ársins en sérfræöingar á
Wall Street höföu reiknaö meö.
Yahoo, sem er eitt fárra netfyrirtækja
sem getur stært sig af hagnaði,
tilkynnti í síðustu viku aö hagnaöurinn
á fjórðungnum væri um 16 milljónir
dollara (um 1100 milljarðar króna).
Þetta er mikil aukning miöað viö
sama tímabil í fyrra en þá var
hagnaðurinn um 3,3 milljónir dollara.
Þjónusta Yahoo við almenning hefur
aukist mikið á síöasta ári og segja
stjórnendur fyrirtækisins það vera
fyrst og fremst ástæöuna fyrir
velgengni fyrirtækisins.
Nokkrar sérsíður tileinkaðar
ástandinu í Kosovo:
Heimasíða um hermál:
http://defence.janes.com/
NATO:
http://www.nato.int/
Umfjöllun BBC:
http://news.bbc.co.uk/hi/eng-
lish/special-report/1998/kosovo/
Opinber heimasíða júgóslavnesku
ríkisstjórnarinn-
ar: http://www.gov.yu/kosovo/
Heimasíða Kosovo-Serba:
http://www.kosovo.com/
Hernaður er nú ekki einungis rekinn með flugvélum og skriðdrekum, því
Netið er farið að skipta sífellt meira máli á ófriðartímum.
yyiar vomr
JL */
Stuttkápur
illegar úlpur
Microkápur
Hattar
Mörkinni 6, sími 588 5518,
bílasiæöi við búöarvegginn
Auglýsing frá yfirkjörstjórn
Reykjavíkurkjördæmis um móttöku
framboðslista og fleira
Framboðsfrestur til alþingiskosninga 8. maí 1999 rennur út föstudaginn
23. apríl nk., kl. 12 á hádegi.
Yfirkjörstjóm Reykjavíkurkjördæmis tekur á móti framboðslistum
þann dag, kl. 10-12, í fundarsal borgarráðs í Ráðhúsi Reykjavíkur,
Tjamargötu 11.
Á framboðslista skulu vera að lágmarki 19 nöfn frambjóðenda en
þó ekki fleiri en 38. Framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra
þeirra sem á listanum eru að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann.
Þá skal hverjum framboðslista fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning
við listann frá kjósendum í Reykjavíkurkjördæmi. Fjöldi meðmælenda
skal vera 380 hið fæsta en 370 hið flesta. Enginn kjósandi getur mælt
með fleiri en einum framboðslista. Komi það fyrir strikast nafn
kjósandans út í báðum (öllum) tilvikum. Loks skal fylgja framboðslista
skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um hverjir tveir menn
séu umboðsmenn listans.
Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega fullt nafn
frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu og heimili, til þess að enginn
vafi geti leikið á því hverjir í kjöri eru. Við nöfn meðmælenda skal
greina kennitölu og heimili.
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis mun koma saman til fundar á
sama stað mánudaginn 26. apríl 1999, kl. 17, til að ganga frá
framboðslistunum, sbr. 38. gr. laga nr. 80/1987 um kosningar til
Alþingis.
Meðan kosning fer fram laugardaginn 8. maí 1999 verður aðsetur
yfirkjörstjómar í Ráðhúsi Reykjavikur. Talning atkvæða að kjörfundi
loknum mun fara fram í Hagaskóla, Fomhaga 1, Reykjavík.
Reykjavík, 6. apríl 1999
Yfirkjörstjóm Reykjavíkurkjördæmis
Jón Steinar Gunnlaugsson Ástráður Haraldsson
Gautur Gunnarsson Hjörleifur B. Kvaran Sigurbjörg Ásgeirsdóttir
4.
4