Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999
13
Fréttir
Bændur snjallir
að nýta tölvur
- standa aö mörgu leyti framar bændum erlendis
„Ég vil meina að íslenskir bænd-
ur standi að mörgu leyti framar sín-
um starfsbræðrum í öðrum löndum
í því að tileinka sér hagnýtt gildi
tölvukunnáttu og notkun tölvu við
bústörf. Þátttaka í námskeiðum sem
haldin hafa verið að undanförnu
sýnir glögglega að bændur eru í
vaxandi mæli að færa sér í nyt
margþætt notagildi þeirrar fræðslu
sem í boði hefur verið og kemur til
með að verða þeim mikils virði. Er
þegar orðin það,“ segir Ketiil A.
Hannesson, ráðunautur í búnaðar-
hagfræði hjá Bændasamtökum ís-
lands.
Hann var aðalleiðbeinandi á nám-
skeiði sem nýverið lauk á Café Riis
á Hólmavík og haldið var í sam-
vinnu við Bændasamtökin, Bænda-
skólann á Hólum og Búnaðarsam-
band Strandamanna lagði því gott
lið. Þátttakendur sem bæði voru að
feta fyrstu skrefin og aðrir sem
lengra voru komnir í fræðunum
fengu numið undirstöðuatriðin í
sambandi við gerð og frágang land-
búnaðarframtals. Var unnið með til-
búið verkefni fyrir hefðbundin býli.
Bókhaldsforritið, Búbót 3,9 var sett
upp í tölvum þeirra sem voru að
byrja og farið yfir grunnatriði viö
bókhaldsskráningu með forritinu
auk margs annars.
Ketill A. Hannesson segir bændur
vera fremri öðrum þeim sem at-
vinnurekstur stunda hér á landi við
að ganga frá sínum skattaframtöl-
um. Þeir, sem betur fer, treysti sjálf-
um sér fullt eins vel og öðrum í
þeim efnum enda reyni þeir að lesa
sér til um flest það sem máli skipt-
ir. Tileinka sér reglur og fyrirmæli
það varðandi og sýni þar með meiri
ábyrgðartilfinningu og sjálfstæði
um eigin atvinnurekstur en al-
mennt gerist og sé það vel. -GF
Þátttakendur og Ketill A. Hannesson sem var aðalleiðbeinandi á námskeið-
inu á Hólmavík. DV-mynd Guðfinnur
Lagarfljót:
Flestir ætla að
sigla með bátnum
DV; Egilsstðum:
Samkvæmt könnun Gallups
munu allt að tveir þriðju ferða-
manna taka sér far með skemmti-
ferðaskipinu á Lagarfljóti ef þeir
verða á ferð á Héraði.
„Þetta er betri útkoma en við
höfðum reiknað með,“ sagði Bjarni
Björgvinsson, formaður stjórnar
Lagarfljótsormsins, sem er hlutafé-
lag um rekstur ferju á Fljótinu,
„einkum þegar tekið er tillit til þess
að á þeim tíma sem könnunin var
gerð var ekki víst hvort skipið
kæmi í sumar."
1200 manns voru spurð. í fyrsta
lagi hvort þeir hefðu áhuga á að
ferðast um ísland, sem 80% svöruöu
játandi, og í öðru lagi hvort þeir
myndu sigla með ferjunni frá Egils-
stöðum til Hallormsstað. Tveir
þriðju sögðu já.
Nú er víst að ferjan kemur í sum-
ar og það er búið að stofna hafnar-
samlag Fella og Egilsstaða og koma
tveir staðir til greina fyrir höfn.
Annars vegar við Egilsstaðavíkina,
rétt hjá gamla gistihúsinu á Egils-
stöðum, og hins vegar norðan (vest-
an) Fljóts við Skipavík, rétt sunnan
Fellabæjar. Gert er ráð fyrir að
höfnin verði ekki einungis fyrir
ferjuna heldur verði þar framtíðar-
staður fyrir almennar siglingar lít-
illa skemmtibáta um Lagarfljót.
Gestir skoða söluvarning sem í boði var á vinnuvökunni. DV-mynd MGG
Kvenfélagasamband Skagafjarðar:
Safnar fé fýrir
endurhæfingarstöð
DV, Skagafiröi:
Árleg vinnuvaka Kvenfélagasam-
bands Skagafjarðar var haldin fyrir
skömmu og varð ágóði af vökunni
um 200 þúsund krónur. Honum
verður varið til uppbyggingar end-
urhæfingarstöðvarinnar við sjúkra-
húsið á Sauðárkróki, sem nú er í
byggingu.
Kvenfélög í Skagafirði hafa allt
frá árinu 1993 haft samkomu einu
sinni á vetri. Þar koma saman kon-
ur víðs vegar að úr héraðinu með
vaming sem kvenfélög eða einstak-
ar félagskonur gefa. Hefð er fyrir
því að samkoman, sem konurnar
kalla vinnuvöku, sé haldin í húsa-
kynnum gamla kvennaskólans að
Löngumýri. Undirbúningur hefst
nokkrum vikum áður, en síðan er
komið er saman á laugardegi til
lokafrágangs og daginn eftir eru svo
seldir þeir munir sem borist hafa
eða búnir hafa verið til á staðnum,
auk þess er selt kaffi og meðlæti.
Ágóðanum er jafnan varið til að
styrkja eitthvert málefni í héraðinu.
Oftast til ýmiss konar tækjakaupa,
bæði til Sjúkrahúss Skagfirðinga og
í grunnskóla héraðsins. Þá hafa ein-
staklingar sem áttu í erfiðleikum
verið styrktir. Einnig hafa björgun-
arsveitimar í Skagafirði notið góðs
af þessu, svo nokkur dæmi séu
nefnd. -ÖÞ
TRIM/\FORM
Grensásvegi 50,
sími 553 3818.
tl ft Æ
Þjáist þú af vöðvabólgu, þvagleka,
brjósklosi eða viltu bara grenna
þig og losna við cellolite eða
styrkja þig?
Þá ertu
velkomin
í ókeypis
kynningartíma
hjá okkur.
Vatnsnuddbekkur
sem gefur nudd
og góða slökun.
Opið frá kl. 8.00.
LIFEYRISSJOÐUR VERZLUNARMANNA
Ársfundur 1999
Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
verður haldinn mánudaginn 12. apríl 1999
kl. 17 í Gullteigi á Grand Hótel.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Onnur mál.
Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt
til setu á ársfundinum.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík 14. mars 1999
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
LÍFEYRISSJOÐUR VERZLUNARMANNA
Sfmi: 580 4000, Myndsendir: 580 4099
Netfang: skrifstofa@lifver.is