Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1999, Blaðsíða 17
7. maí - 13. maí
Lífid eftir vinnu
mynd 1 i st
popp
1 e i k h ú s
fyrir bö^n
k 1 ass ík
b i ó
veitingahús
einmg a visir.is
Föstudagur
mai
•Klúbbar
Skemmtistaöurinn Spotlight gerir út á þá sem
heiöra eigið kyn. Þemakvöld í kvöld.
Plötusnúðar Skuggabarsins eru þeir Nökkvi
og Áki. Húsið opnar klukkan 23.
iKr á r
Rokk-pönk-diskðtríóið Úlrik heldur uppi góðu
geimi á Café Amsterdam. Þetta eru Orri-söng-
ur/trommur, Bjarni-gítar og Halli-bassi. Takk
fyrir.
Gestir á Café Romance ættu að vera farnir að
kannast við Joshua Ell, en hann er kallinn
sem situr við flygilinn og glamrar og gaular. Ef
hann læsi íslensku stæði eitthvað annað hér.
I Ásgarði, Glæsibæ veröur ferðakynning frá
Suðurlandi undir heitinu Vorkvöld í Reykjavík.
en svo tekur HÍjómsveit Birgis Gunnlaugsson-
ar við.
Blái fiöringurinn hippast fyrir gesti Fógetans.
Allt hæfileikamenn.
Geirmundarsveiflan rekur ættir sínar til
Bobbysocks og La det swinga eða hvað það
nú hét. Það var síðan eftiröþun á Waterloo
Abba-flokksins. Spurningin er hvað inspíreraði
Björn og Benny á sínum tíma. Kannski Geir-
mundur fræði ykkur á því ef þið mætið á
Naustkjallarann í kvöld.
Gunnar Páll leikur og syngur dægurlagaperlur
fyrir gesti Grand Hótels
Geirfuglarnir
Grandrokks.
sígóðu verða á efri hæð
Hey Joe er á Gauknum.
Á Kringlukránni má sjá marka fyrir léttum
sprettum, bæði meðal gesta og eins upþi á
sviði. Guðmundur Rúnar verður á íþróttasokk-
um inni í leikherberginu. Rahgaragharagharar-
ara-húhú-húhú!
Hálft í hvoru ætlar að tvístíga á Kaffi Reykja-
vík.
Ragnar Bjarnason verður
f stórsöngvarastuði á
Mímlsbar. Hugljúft.
Rúnar Þór er á Rauða
Ijóninu sem aldrei fyrr.
Níels Ragnarsson úr
Svefngölsum myndar
ásamt Hermannl Arasyni
Sælusveitina en hún
verður í sveitasælu og
svitabrælu á Gullöldinni í Reykjavík.
Hljómsveit með nafn sem ekki má nefna í fjöl-
miðlum án þess að brjóta lög skemmtir á
Catalinu í Kópavogi.
Englakór laglausra
Hvað er það við Kristján Jó-
hannsson og Diddú sem hrífur
fólk? Að öllum líkindum er það
færni þeirra og þjálfun sem hittir
okkur fyrir, rétt eins og með sirk-
usdýr og loftfimleikamenn. Krist-
ján er öðrum íslendingum færari í
því að gefa frá sér baul á ótrúlegu
„blasti" og í hárréttri tónhæð í
þokkabót. Hann hefur þjálfað tal-
færi sín upp í að virka sem fin-
stillt hljóðfæri og þiggur að laun-
um lófaklapp og aðdáun okkar
hinna.
En maðurinn er skrítin skepna.
Það má líka skemmta okkur upp
úr skónum með því að skipta
færninni út fyrir algert talent-
leysi, eins og raunin er með óp-
erusöngkonuna Mrs. MiHer. Hér
á árum áður troðfyllti hún alla
hljómleikasali og naut gríðarlegra
vinsælda fyrir það eitt að geta
ekki sungið en gera það þó.
í kvöld klukkan 20.30 verða
nemendatónleikar í Fríkirkj-
unni. Þar troða upp þeir sem sótt
hafa söngnámskeið fyrir lag-
lausa, en slíkum námskeiðum
hefur Esther Helga Guðmunds-
dóttir staðið fyrir um árabil.
Voru margir laglausir á nám-
skeiöinu?
„Það eru mjög fáir alveg lag-
lausir. Margir sem koma á
námskeiðin mín halda þó að
þeir séu það, en eru einfald-
lega það sem kalla má lag-
villtir. Þetta fólk hefur því
ekki treyst sér fyrr til að taka
þátt í kórum og slíku. Á nám-
skeiðinu lærir fólk svo tónheyrn
og að beita sér rétt. Til mín
kemur fólk af öllum stigum,
hljómlistarmenn úr Sinfóníunni
jafnt sem aðrir.“
Þetta veröur þá ekki svona frík-
sjóv, grautfalskt gigg og salurinn í
hláturskasti?
„Alls ekki. Þetta eru allt saman
þokkalegustu söngvarar. Það voru
um 50 manns á námskeiðinu og
saman myndar hópurinn fagran
englakór. Við syngjum létt og
skemmtileg lög. Tveir nemendur
munu syngja dúett og sjálf ætla ég
að hefja upp raust mína líka.“
Hvernig er hljóöiö í nemendun-
um, eru ekki allir í stresskasti fyr-
ir þessa uppákomu?
„Jú, eflaust eru sumir með að-
eins í maganum."
Er þá ekki hugsanlegt aö þaó
taki sig upp gömul felskja, ef fólk
er stressaö?
„Nei, ég er búin að vera með
þessi nám-
skeið í 10 ár og
reynslan hefur
ekki verið sú. En
þetta eru náttúrlega
nemendatónleikar,
stundum þarf að
stoppa og byrja aftur ef
fólk ruglast eins og
gengur og gerist. Við
erum ekkert að reyna
að vera Mótettukórinn.
Hjá okkur ríkir söng-
gleðin fyrst og fremst.
Bryndís Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Stuttmyndadaga.
Bö 1 1
Dægurdrottninginn Anna Vilhjálms og grúfgjaf-
inn Hilmar Sverrisson ætla að vera svo al-
mennilega að leyfa okkur að njóta listar sinna
á dansleik í Næturgalanum við Smiðjuveg í
Kópavogi. Við mætum að sjálfsögðu öll og
dönsum eins og vitleysingar.
D jass
Mikið um dýrðir á Kakóbar Geysishússsins.
Big Band ténlistarskóla FÍH spilar á Síðdegis-
tónleikum Hins Hússins og Rásar 2 klukkan
fimm. Big Bandið er skipað 18 hljóðfæraleik-
urum á aldrinum 16 og eldri. Leikin verða stór-
sveitarlög. Stjórnandi bandsins er Edward
Frederiksen.
IKlassík
Nemendur á söngnámskeiði Estherear Helgu
Guðmundsdóttur flytja létt lög I Frikirkjunni
klukkan 20.30. Námskeið þetta var haldið fyr-
ir unga, jafnt sem aldna, lagvissa jafnt sem
laglausa. Á tónleikunum kemur fram 50
manna englakór, tveir nemar syngia dúó og
Esther sjálf syngur llka.
Sinföníuhljómsvelt íslands heldur tónleika í
Hallgrímskirkju klukkan 20 til að minnast
100 ára afmælis Jóns Leifs. Hljómsveitarstjóri
er Anne Manson, einsöngvarar eru þau Ing-
veldur Ýr Jónsdóttir, Gunnar Guðbjörnsson og
Loftur Erlingsson. Schola Cantorum-kórinn
kemur einnig fram.
um helgina
„Ég er að fara í giftingu á kosn-
ingadaginn hjá vinkonu minni og það
verður djammað fram eftir öllu. Ætli
maður geri ekki fullt af sköndulum
eins og vanalega og vonandi týni ég
engu, því ég er alltaf að týna ein-
hverju á fylliríum. Ætli maður fari
nokkuð á Skuggabarinn núna því þar
er alltaf svo troðið, en Thomsen kem-
ur til greina. AIls ekki Astró þó því
dyraverðirnir þar eru einstaklega
óliðlegir. Á sunnudaginn ligg ég í
rúminu og horfi á ræmur, kannski
eitthvað af þessum stuttmyndum sem
hafa borist. Það er líka séns að mað-
ur taki sundsprett til að þykjast vera
heilbrigður.
•Sveitin
Á Dalvík er staður sem kallast Kaffi Mennlng.
Það bendir tit þess að kaffimenning hafi hald-
ið innreið sína í plássið og leyst af gamla
molasopann og gunnukaffið. Krlstján Krist-
jánsson trúbador verður á Menningunni í kvöld
með landsfræg lög sln.
Sóldögg er á Sjallanum, Akureyri þessa helgi.
Geng í hringi er orðið svakavinsælt svo þeir
ættu að fá mætingu og sæmilegt í kassann.
Buttercup er ein vinsælasta hljómsveit lands-
ins og ætlar þvl að skemmta I Ólafsvík enda
ekki vanþörf á.
©Leikhús
Abel Snorko býr einn, eftir Eric Emmanuel
Schmitt hinn franska, verður flutt á Litla sviði
Þjóðleikhússins kl. 20. Slmi 551 1200.
Hellisbúinn býr I helli sinum I fslensku óper-
unnl. Sýning kl. 20. Bjarni Haukur Þórsson er
hellisbúinn. Síminn er 551 1475.
Spunaverkið Hnetan veröur sýnt I Iðnó, kl.
20.30. Spuninn spinnst að mestu úti I geimn-
um og fjallar um leit fimm íslendinga að
plánetunni Hnetunni sem er byggileg mönn-
um. Árið er 2099 um borð I geimflaug og
áhorfendur ráða því nokkuð hvert hún fer og I
■ hverju áhöfnin lendir. Leikstjóri er hinn sænski
Martin Geijer. Leikarar eru Gunnar Helgason
og Hansson, Ingrid Jónsdóttir, Friðrik Frið-
riksson og Linda Ásgeirsdóttir.
Hádegisleikhús Iðnó sýnir Leitum að ungri
stúlku eftir Kristján Þórð Hrafnsson kl. 12.
Leikritið er hálftími að lengd og á eftir fá gest-
ir hádegismat og ættu að vera aftur komnir til
vinnu á slaginu eitt. Magnús Geir Þórðarson
leikhússtjóri leikstýrir en Linda Ásgelrsdóttir
og Gunnar Hansson leika. Síminn er 530
3030.
Maður í mislitum sokk-
um eftir Arnmund Back-
man er á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússlns
kl. 20.30. Þessi farsi
gengur og gengur. Enn
eitt gangstykkið með
„gömlu leikurunum" - að
þessu sinni Þóru Frið-
riksdóttur, Bessa
Bjarnasyni og Guðrúnu
Þ. Stephensen. Síminn er 551 1200 fyrir þá
sem vilja panta miða á sýningu einhvern tíma
í framtíðinni.
Sex í sveit er vinsælasta stykki Borgarleik-
hússins þetta árið. Leikarar: Edda Björgvlns-
dóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Ellert A. Ingl-
mundarson, Gísli Rúnar Jónsson, Rósa Guðný
Þórsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttlr. Sími
568 8000.
Tveir tvöfaldir á Stóra sviði Þjóöleikhússlns
kl. 20. Uþþselt. Upplýsingar um lausa miöa á
næstu sýningar I síma 5511200.
Lelkfélag Akureyrar sýnir kl. 20 Systur í synd-
Inni eftir þær löunni og Kristínu Steinsdætur.
Verkið byggja þær á þjóðlegum fróðleik frá
Jóni Helgasyni ritstjóra, frásögn af atburöum
sem gerðust í Reykjavík veturinn 1874 til
1875. Meðal leikara eru Katrín Þorkelsdóttir,
Margrót Ákadóttir, Helga Vala Helgadóttir,
Anio Freyja Járvelá, Guðmundur Haraldsson,
Þráinn Karlsson, Sunna Borg og Aðalsteinn
Bergdal. Leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir
frambjóðandi.
•Kabarett
Nú skemmta Vestmannaeyingar sér á Broad-
way. Krækja saman höndum og syngja Odd-
geirs Kristjánssonarkatalóginn. island er
stærsta eyjan I Vestmannaeyjaklasanum.
Sjiþþ og hoj!
Fyrir börnin
Fellahelllr heitir framvegis Miðberg og verður
staðsettur í Gerðubergi 1. Lokaball sitt á
gamla staðnum (og undirgamla nafninu) held-
ur félagsmiöstöðin í kvöld. Fram koma Moö-
haus, breakdansarar og Land & synir.
Skemmtunin stendur til miðnættis.
•Opnanir
í tilefni þess að þjóðin hefur verið kristin í
1000 ár verður opnuð sýning í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar klukkan hálftvö. Halldór Ásgríms-
son og biskupinn flytja ávörp. Sýndir verða
ýmsir munir, þar á meöal frá Þjóðminjasafni ís-
lands, mósaíkmynd Nínu Tryggvadóttur úr
Skálholtskirkju.ljósmyndir teknar af Ragnari
Th. Sigurðssyni og Rafnl Hafnfjörð og eftir-
prentun af mynd Collingwoods frá Þingvöllum.
Hönnuður sýningarinnar er Árni Páll Jóhanns-
son í samráði viö Þóru Kristjánsdóttur list-
fræðing á Þjóðminjasafni Islands.
Ljósmyndasýning á verkum áhugaljósmynd-
ara á árunum 1950 - 1970 verður opnuð i
anddyri Þjóðarbókhlöðunnar. Allmargir klúbb-
ar áhugaljósmyndara voru stofnaðir á þessum
árum enda mikið hlýskeið í þessari listgrein á
þessum árum. Það má líta bæði æfingar í
myndskurði og myndbyggingu á þessari sýn-
ingu en hún gefur einstaklega góða mynd af
því félagar þessara klúbba voru að sýsla. Sýn-
ingin stendur til 28. maí.
IFundir
Hitt Húslð og Félag Framhaldsskólanema
standa fyrir framboðsfundi fyrirungt fólk með
ungum frambjóðendum strax á eftir Síðdegis-
tónleikum áGeysi-Kakóbar í Hinu Húslnu. Flutt
verður stutt framsaga frá öllum flokkum og
síðan verða spurningar úr sal frá ungu fólki.
Ungt fólk er kvatt tii að mæta og láta í sér
heyra. ,
Stendur þú
fyrir einhverju?
Sendu upplýsingar í
e-mail fokus@-1okus.is / fax 550 5020
staðir
d
landinu
•subuuay-
Reykjavík: Austurstræti 3, Suðurlandsbr. 46,
Esso-stöðin Ártúnshöíða & Kringlan.
Hafnarfjörður: Esso-stöðin, Lækjargata 46,
Keflavík: Vatnsvegur 12.
Akureyri: Kaupvangsstræti 1.
7. maí 1999 f ÓkUS
17
w