Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1999, Blaðsíða 8
Höfuðstöðvar
Bellatrix og
Botnleðju:
Savn-
farir og
aðrar
Ester „Bíbí“ Ásgeirsdóttir,
bassaleikari Bellatrix, er hætt. Já,
meikgengi íslands stendur höllum
fæti þessa dagana. í síðustu viku
var það Hafdís Huld og nú er það
Ester. Hún hætti að vísu af sjálfs-
dáðum en engu að síður kemur
þetta sér illa fyrir Bellatrix þar
sem hinar stelpurnar (og strákur-
inn) fóru til Hollands í vikunni og
spiluðu á Bevrijdingsfestivalinu
í Hollandi á miðvikudaginn.
Hjörtur, sem spilaði á gítar með
Spoon í gamla daga, kom í staðinn
fyrir Bíbí á þessum tónleiku, en
verður ekki til frambúðar. Bella-
trix er að leita að bassaleikara,
helst stelpu.
Þær Trixur ætla annars að
flytja til London í lok maí og láta
sverfa til stáls í meikinu. Kannski
flnna þær bassastelpu þar. Mikil
tengsl eru milli Bellatrix og hijóm-
sveitarinnar Botnleðju. Heiðar og
Eliza eru saman eins og alþjóð
veit og þá er hljómborðsleikarinn
KJG með Sigrúnu gítarleikara í
Kolrössu. Þeir ætla að flytja út á
eftir stúlkunum en segja þó að
Botnleðja sé siður en svo hætt.
Halli, trommari Botnleðju, er orð-
inn pabbi, eignaðist nýlega strák,
og Raggi bassaleikari er í góðum
gír í Spútnik. Þeir tveir munu þó
eflaust flýta sér til London þegar
kallið kemur og Silt fær breik í
meikinu.
Þegar þú ferð út á skrallið - að skemmta þér, eins og það er kallað - er flokkur .
fólks í vinnu við það eitt að þjónusta þig í rallinu. Barþjónar og hljómlistarmenn
af ýmsum toga hafa fengið sinn skerf af sviðsljósinu en Fókusi fannst kominn
tími til að tala við hitt fólkið, fólkið sem sópar upp ruslinu eftir þig, hleypir þér inn
á skemmtistaðina, selur þér pylsur og blóm. Megum við kynna máttarstólpa
skemmtanalífsins. Þeir eru:
Þernur þambaranna
Þetta er stundum
alveg agalegt
• • • •
,or
lani
:opar
„Þetta er stundum alveg agalegt
og það kemur fyrir að byttumar
ráðast á bílana. Það stökk einn of-
urölvi upp á einn bílinn og ætlaði
að stela blikkljósunum, en löggan
náði honum.“
Það getur greinilega verið
hættulegt að vinna á „litlum sóp“,
eins og hreinsunarstarfsmenn
kalla litlu tíkurnar sem fara á stjá
kl. 4 á nóttunni til að hreinsa göt-
urnar. Konráð á ekki orð yfir
sóðaskap íslensks drykkjufólks.
„íslendingar er hrikalegir sóðar,
sérstaklega um helgar. Mér blöskr-
aði á fyrstu vaktinni minni. Það er
sparkaö í ruslatunnur svo draslið
fer út um allt. Og svo eru það gler-
brotin. Það eru hreinlega glerbrot
um allt.“
Stundum þarf Konráð að fara út
úr bílnum til að ná til hættulegra
glerbrota sem bíllinn nær ekki til.
En það er fleira en glerbrot sem
hann rekst á.
„Ég hef ryksugað upp sprautu-
nálar. Mér brá helvíti i fyrsta
skipti þegar ég þurfti þess.“
Hvaö er til ráöa gegn sóóaskap
landans?
„Það þarf bara rosalegt átak og
það þarf að koma innan frá, frá
fólkinu sjálfu. Þá myndi þetta lag-
ast.“
Elva Blumenstein blómasölustúlka:
Ertu búin aó vera í þessu lengi?
„Já, svona hálft ár,“ segir Elva
Blumenstein blómasölustúlka og
bætir því við að henni líki ágæt-
lega þetta starf.
En er eitthvað aó gera í þessu?
„Já, það er dálítið að gera. Að
Vlð erum
15-20
vísu voru janúar og febrúar róleg-
ir, en nú er þetta farið að aukast
aftur.“
Eruó þið margar í þessu?
„Ég held við séum örugglega
15-20 í þessu. Annars sagði dyra-
vörður við vinkonu mína um dag-
inn að hann hefði séð fimm nýjar í
þessu á einu kvöldi."
Og þetta er kannski ekki bransi
sem rekinn er á fastakúnnum, eöa
hvaö?
„Ef maður er með þjónustuna í
lagi þá man fólk auðvitað eftir
manni. Ég er með nokkra
fastakúnna. Þeir eru að visu bara
karlmenn og versla reglulega við
mig,“ segir Elva og talar einnig um
þá skemmtilegu stemningu sem
hefur myndast á milli margra af
blómastúlkunum og starfsfólks
skemmtistaðanna. Hún vonar samt
að stelpunum fjölgi ekki um of því
þá gæti Reykjavíkurborg tekið upp
á því að banna þessa sölumennsku.
Jón Benóní Reynisson, dyravörður á
Gauki á Stöng:
„Eg er búinn að vera í dyra-
vörslu í tólf ár,“ segir Jón Benóní
Reynisson dyravörður, betur
þekktur sem Benni á Gauknum.
Hefuröu þá ekki lent í öllu sem
hœgt er aó lenda í?
„Jú. Það hefur flestallt gerst.“
Myndiröu líta á þig sem meiri
þjón en vörö?
„Já,“ svarar Benni, án þess að
hugsa sig um. „Ég er náttúrlega
bara í þjónustustarfi."
Fólk leitar til þín?
„Já. Það er leitað til mín um allt
milli himins og jarðar. Fólk er líka
alltaf að týna bæði lyklum og
veskjum og jafnvel fotunum sín-
um. Þá er leitað til mín og ég reyni
að aðstoða þetta fólk.“
Og þetta fólk er iðulega drukkiö?
„Já. Margir eru verulega
drukknir oftast nær og stundum er
fólk meira en drukkið.“
Ertu ánœgöur meó hlutskipti þitt
sem dyravöröur?
„Jú,“ segir Benni, „þannig séð.
Ég tek starfið ekki inn á mig og
alls ekki með mér heim.“
tvífarar
Butthead.
Margrét Frimannsdóttlr.
„Eg vinn aðra hverja helgi frá
átta til átta en annars vinn ég alltaf
á næturvöktum," segir Óli sem af-
greiðir drykkjufólk og önnur næt-
urdýr í lúgunni á BSÍ.
Er ekki erfitt aö vinna allar nœt-
ur?
„Nei. Maður lærir að lifa með
þessu. Þetta er ekkert mál.“
Og hvaó er svona vinsœlast?
„Pylsa með öllu stendur alltaf
fyrir sínu en hinir réttimir sækja
náttúrlega alltaf á. Við bjóðum upp
á svið, samlokur, hamborgara og
bara allt sem gengur í þessum
bransa en pylsan er alltaf jafnvin-
sæl.“
Drykkjufólk kemur mikiö til aö
leita þjónustu hjá þér?
„Já. En það er nú bara aðallega
að kaupa sér mat eða tóbak.“
Verða menn fljótt svangir á nœt-
urgöltri?
„He, he, he, he, he,“ eru einkunnarorð Buttheads, besta vinar Beavisar.
„Félagslegt réttlæti, breytum rétt,“ er slagorð Margrétar Frimannsdóttur,
bestu vinkonu Jóhönnu Sigurðardóttur. Butthead og Margrét eiga ótrúlega
margt sameiginlegt og því eru þau tvífarar vikunnar. Þau eru bæði með
mikinn og sterklegan góm en frekar litlar tennur, þó þær séu eflaust mjög
beittar. Butthead er líka gáfaðri gæinn í þáttunum Beavis og Butthead en
þeir þykja annars báðir hræðilega vitlausir.
„Já. Þeir verða fljótt svangir.
Verður maður það ekki alltaf þegar
maður er á töltinu? Það fylgir því
að fara í bæinn um helgar."
Feró þú stundum í bœinn?
„Nei. Voðalega sjaldan," segir
Óli og augljóst að hann er dyggur
þjónn kúnnanna sinna.
f Ó k U S 7. maí 1999
8