Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1999, Blaðsíða 6
í
-
I
fá rríér góðan
lögfræðing
Eins og ailir vita þá var Hafdís Huid .
í GusGus rekin í síðustu viku. Þessi
nítján ára fyrrum Gussari og sunnudaga-
skólastúlka er svona að ná lendingu eftir
erilsama viku og ákvað að útskýra
sína hlið málsins fyrir Fókus.
„Ég byrjaði í GusGus þegar ég var
fimmtán ára,“ segir Hafdís Huld
sem var eina söngkonan i þessu níu
manna tríói frá því þau gerðu stóra
samninginn við 4AD þar til hún var
rekin í síðustu viku. „Þá var ég bara
að lesa Gauragang fyrir samræmdu
prófin, vann sem aðstoðarkennari í
sunnudagaskóla og var nýbúin að
vinna söngvakeppni grunnskóla og
vann líka einhver verðlaun í sam-
kvæmisdönsum. Jú, og ég var með
þátt á RÚV og fannst ég bara vera
þokkaleg pæja. Þá var ég svo mikið
bam og svo full af sjálfstrausti að
mér fannst ekkert óeðlilegt við það
að þessir fullorðnu menn vildu vinna
með mér,“ segir Hafdís og augljóst að
hún er að koma niður eftir limbóið
síðustu daga.
En hvernig samningur var þaö sem
þió skrifuöuö þá undir?
„Þá vissi ég lítið meira um hann
en að hann var upp á tugi blaðsíðna
á ensku lagamáli og við skildum ekki
neitt í honum,“ segir Hafdís og bætir
þvi við að hver og einn í GusGus sé
þó samkvæmt honum persónulega
skuldbundinn 4AD, hvort sem þeir
séu í eða utan við GusGus. Hafdís er
þessa dagana að lesa aftur yfir samn-
inginn og það er ljóst að hún hefur
skrifað undir fimm plötu samning
sem rennur út á tíu árum. Hún ætti
því að vera laus frá honum 26 ára en
þangað til veit hún ekki alveg hvað
hún á að gera.
„En sem betur fer er ísland undan-
skilið í samningnum svo ég get gefið
út tónlist héma heima en í millitíð-
inni gæti ég alltaf orðið prestur," seg-
ir Hafdís og hlær.
Sunnudagaskólastúlka
með sukkuðum poppbolt-
um
Til fróðleiks má geta þess að þegar
hér var komið sögu höfðu þrjár
stúlkur hrakist úr GusGus með ein-
um eða öðmm hætti. Þetta vora
drottningar á borð við Emilíönu
Torrini, Heiðrúnu Önnu og Ragn-
heiði Axel. Hafdís er því í raun
fjórða stúlkan sem poppboltamir í
GusGus berja frá sér.
Hvernig var samstarflö í
hljómsveitinni fyrir ári?
„GusGus er náttúrlega ekki
hefðbundin hljómsveit.
Við höldum fundi en
ekki æfingar og þetta var
bara vinna. Frá mínum
sjónarhóli var þetta ekki
vinahópur heldur vinnu-
félagar, og oft ágætir sem
slíkir. Ég á hins vegar eng-
an trúnaðarvin í GusGus og
passa á margan hátt engan veginn
inn í þetta dæmi því ég reyki hvorki
né drekk og er miklu yngri en strák-
arnir,“ segir Hafdís. „En það er ekki
eins og það hafi breyst nýlega," bæt-
ir hún við.
Varst þú þá bara uppi á hótelher-
bergi á tónleikaferöum á meóan þeir
fóru á djammiö?
„í rauninni. Það var bara Cartoon
Network fyrir mig og klúbbar fyrir
þá.“
Fór þá ekki í taugarnar á þeim að
þú fékkst miklu meiri athygli en þeir
og þá Daníel?
„Það veit ég ekki.
Ég fékk bara upp-
sagnarbréf og
þar áður
hafði ég
e k k i
verið
send í;
mörg
við-
New Music Monthly í Bandaríkjunum
þótti ekki ástæöa til að kynna um-
fjöllun sína um GusGus á forsíðu
sinni nema þá út frá Hafdísi Huid.
töl.“
En ef maöur skoöar þau erlendu
blöó sem hafa fjallaö um GusGus þá
viröist þú fá mesta athyglina. Það
hlýtur nú að hafa fariö fyrir brjóstiö
á þessum gœjum sem eru búnir aö
vera í bransanum í vel tíu ár?
„Ég veit það ekki en vissulega hef-
ur hvarflað að mér að brottrekstur-
inn stafi af afbrýðisemi," segir Haf-
dís. „Til dæmis hafa frásagnir af mér
verið hvort tveggja fyrirferðarmeiri
og lofsamlegri en ég átti von á. Þá
hefur það líka gerst undanfarið að
mikið hefur verið beðið um mig í
viðtöl. En ég veit til þess að þegar er-
lendir blaðamenn hafa beðið um mig
hafa þeir fengið Daníel
og Sigga og það án
þess að neinn
hafi látið mig
Með forsíðu þessa erlenda tímarits
fyrir framan sig er erfitt að þykjast
ekki vita hvert erlendir fjölmiðlar
beina athygli sinni. En það er sömu
sögu að segja þegar blöðunum er flett
og það á líka við um blöð sem ekki
hafa GusGus á forsíðu. Þar er Hafdís
iðulega miðpunktur athygtinnar.
vita,“ heldur Hafdís áfram og minn-
ist þess einmitt að MTv í Miami hafi
beðið um hana fyrir nokkra en hún
hafi ekki verið látin vita og Daníel og
Siggi farið.
Bað um upplýsingar um
fjármál
GusGus hefur gefið út tvær plötur
af þessum fimm plötu samningi við
útgáfufyrirtækið 4AD. Á fyrri plöt-
unni, Polidistortion, var Hafdís ekki
mjög áberandi en á þess-
ari sem kom út nú
ný verið ,
This Is
GusGus er það stórt dæmi að á Netinu er
starfræktur spjaliklúbbur fyrir aðdáendur. Fók-
us greip niður í það sem sannir GusGusaðdá-
endur hafa um málið að segja:
Eric Oehler, Boston: „This Hafdis thing is sorta odd.“
Peter Madden, San Fransisco: „If this is true I have serious doupts for the future of
GusGus."
Gelmer Puiclon, New Vork: „Can GusGus really be GusGus without Hafdis? It sounds like
Hafdis has been really mistreated by the band and management."
Shane Henson, Boston: This is completely awful. Let’s hope she „pulls á Bjork" and shows
these boys."
David Futato, Boston: „I really hope Daniel Agust isn't trying to make GusGus a vehicle for
him and him alone."
Normal, er hún aftur á móti mjög
áberandi og hefði þriðja smáskífa
plötunnar líklegast orðið Teenage
Sensation en það lag syngur Hafdís
ein. Það er því ljóst að missir Hafdís-
ar er sár fyrir aðdáendur og aðstand-
endur hljómsveitarinnar, sérstaklega
ef tekið er með í reikninginn að
fyrsta smáskífan, Ladyshave, hefur
ekki gengið neitt úti og var langt frá
því að vera sá smellur sem hún átti
að vera.
En af hverju varstu rekin?
„Ég hef ekki hugmynd um það,“
segir Hafdís. „Fyrir tveimur mánuð-
um benti ekkert til þess og ég var
meira að segja fullvissuð um það
skriflega að ég væri ómissandi."
Hafdís lenti að vísu í veseni vegna
þess að hún hafði tekið að sér eitt af
aðalhlutverkunum í söngleiknum
Rent sem Þjóðleikhúsið er að setja
upp í Loftkastalanum. Umboðsmaður
hennar gagnvart Þjóðleikhúsinu var
Baldur Stefánsson, framkvæmda-
stjóri GusGus, og hafði hann lofað að
sjá til þess að sýningar söngleiksins
myndu ekki stangast á við tónleika
GusGus. Hann stóð ekki við þetta og
svarið sem Hafdís fékk frá honum
var: „Hvað er Þjóðleikhúsið mið-
að við heimsyfirráð?“ Þetta
svar verður að teljast nokkuð
fyndið í ljósi þess að Baldur er
sonur þjóðleikhússtjóra.
„Strax nokkrum dögum seinna,
eftir að ég hafði hætt við Rent og
strákarnir sent mér skriflega yfir-
lýsingu um að þeir myndu koma
betur fram við mig, kom þó upp um-
ræða innan GusGus um að breyta
launakerfinu fyrir unnin verk, þar á
meðal plötuna sem við vorum nýbú-
in að ljúka vinnu við, This Is
Normal, sem og eldri plötuna okkar,
Polydistortion. Mér fannst fáránlegt
að slíkt ætti að gilda aftur í tímann.
Sérstaklega þegar allar helstu
ákvarðanimar höfðu verið teknar
miða við það kerfi sem gilt hafði. Svo
ég bað um upplýsingar um fjármál
hljómsveitarinnar og fékk þau svör
að enginn vissi neitt um þau þannig
_að ég hlyti að geta sætt
mig við að vita
ekki neitt held-
ur,“ heldur
H a f d í s
áfram og
útskýrir
að frá
upp-
hafi
Hafdís Huld: „Ég get gefið út tónlist hérna heima
en í millitíðinni gæti ég alitaf orðið prestur."
I tónleikaferð GusGus um Bandarík-
in, sem nú stendur yfir, láta strákarn-
ir lítið á því bera að Hafdís sé ekki
lengur í hljómsveitinni og varast að
tjá sig um málið. Að vísu sagði Daní-
el Ágúst, á miðjum tónleikum í
Boston: „We are a boys band now.“
hafi öllu verið skipt jafnt í GusGus
rétt eins og það er í flestum öðrum
hljómsveitum.
En niðurstaðan varð að Hafdís gaf
eftir Rent til að geta verið í Gus gus
en var samt rekin tveimur mánuðum
seinna.
Ætlar að leita réttar síns
„Það er bara fáránlegt að hafa ver-
ið að vinna með fólki sem sendir mér
bréf í febrúar um hvað ég sé meiri-
háttar og ómissandi. Og svo allt í
einu er ekki hægt að vinna með mér
í apríl vegna „listræns ágreinings“,“
segir Hafdís Huld, „sérstaklega í ljósi
þess að við erum ekki búin að vinna
neitt að listrænni sköpun í þessa tvo
mánuði og engin listræn ágreinings-
mál verið til umræðu. Við höfum
bara verið í viðtölum, haldið nokkra
vel heppnaða tónleika og látið taka af
okkur myndir."
Ætlarðu í mál viö þá?
„Að sjálfsögðu fæ ég mér góðan
lögfræðing og leita réttar míns. Ég er
enginn hálfviti."
En myndirðu ganga aftur í hljóm-
sveitina ef karlarnir í GusGus bœöu
þig um þaö?
„Þarf maður ekki að hafa einhvem
snefil af sjálfsvirðingu?"
Hvaö um framhaldið?
„Ég veit það ekki, er ekkert farin
að hugsa út í það en það kemur plata
út í Frakklandi á næstu mánuðum
með hljómsveit sem heitir Zend
Avesta og þar syng ég eitt lag sem ég
samdi. Svo hefur mér verið boðið að
syngja með Deep Red sem starfrækt
er í Kalifomíu. Þeir eru með góðan
samning og ég á alveg eins von á því
að vinna með þeim en hér heima er
ég að vinna með Bigga Bix og Ölla í
Þeramín." -MT
6
f Ó k U S 7. maí 1999