Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1999, Blaðsíða 22
í f ó k u s Helmiltsmatur. Þetta nýaldarkjaftæði er komið út í algerar öfgar. i sumar verða heitustu vör- urnar bjúgu og grjónagrautur á virkum dög- um. Lambalæri og hryggur um helgar. Bara eldhús mamma og allt annað en nýrnabaunir á Grænum kosti eða hvað þetta gras heitir allt saman sem fæst í Heilsuhúsinu og víöar. Við erum íslendingar og eigum hvorki að láta bjóða okkur upp á gras né heimilismat frá framandi þjóðum. Því allt þetta súrsæta og núðludrasl er hvort eð er bara eitthvað sem er borðað í gettóum þriðja heimsins. Leyfum út- lendingunum að éta það og veljum rammís- lenskan mat. Lopahúfuliöið og allt þetta “Damon Albarn wannabe“-hyski er úr fókus og þá gildir auðvitað það sama um artl-fartí- fæðið sem þessu fólki finnst ofsalega fint að borða. Mjólk, saltkjöt og baunir, túkall. ú r f ó k u s Hefurðu pælt I þvi að langamma þín og afi áttu ekki sjónvarp? Og hvað þá videótæki? Hvað ætli þetta fólk hafi eiginlega verið að gera um helgar þegar það vaknaði grúttimbrað eftir svallið kvöldið áður? Örugglega bara brugðið sér I útreiöartúr á honum Grána sín- um og riðið um móana þar til þynnkan var flog- in út I veður og vind. Það eru engar sögur til um ungmennavanda- mál fyrr á öldinni svo það þarf engan stórsnill- ing til að sjá að hér er beint samband á milli. Sjónvörp og myndbönd eru rót alls hins illa. En hvað er samt betra en aö vakna þunnur, fá sér góða spólu (sérstaklega eins og spáin er um helgina) og liggja með kók og kalda pítsu við höndina? Ekki margt. Það sem gengur bara alls ekki er hvernig sumar leigur okra á þessum spólum sínum. Okurvideóleigur eru úr fókus. Stöndum því þétt saman og leigjum ekki dýrari spólu en á 300 kall og fáum helst eina gamla með. Viö getum þetta alveg ef við stöndum þétt saman og þegar okrararnir missa viðskiptin lækka þeir verðið. Lifid eftir vmnu í farteskinu. Ef þið sjáiö hana þá endilega tak- ið hana upp í, annars getur hún ekki spilað á Hóteiinu á Klrkjubæjarklaustri klukkan 20.30. Nú er KK kominn langleiðina með hringinn. Hann mun I kvöld leika fyrir Hvammstangafólk og nærsveitamenn á Hótel Seli. Tónleikarnir hefjast klukkan 21. Radíusbræóur verða með skemmtun á Hlöðu- feili, Húsavík. Gáfulegt grín eins og þeim ein- um er lagið. Steinn Ármann: „Þaö er alltaf sama sólin." Davíð: „Já, alltaf sama sólin, reikistjarnan Jörð ferðast ekki á milli sól- kerfa.“ tLeikhús Borgarleikhúslð sýnir í kvöld farsa eftir eina fyndna Nóbelshafann undanfarna áratugi, Dario Fo. Þetta er gamall kunningi íslenskra leikhúsgesta - Stjórnleysingi ferst af slysför- um. Borgarleikhúsiö hefur sótt Hilmar Jóns- son leikstjóra til Hafnarfjarðar til að setja þetta upp og með honum fýlgir lunginn úr sam- starfsfólki hans frá Hermóðl og Háðvöru. Egg- ert Þorleifsson leikur hlutverk brjálæðingsins, það sama og Arnar Jónsson lék I síðustu upp- færslu. Helllsbúinn býr í helli sínum í íslensku óper- unnl. Sýning kl. 20. BJarni Haukur Þórsson er hellisbúinn. Síminn er 551 1475. Nemendaleik- húsið sýnir Krákuhöllina eftir Einar Örn Guðmundsson. Þetta er slð- asta verkið sem sýnt verð- ur I Lindarbæ en nú á að taka húsnæðið und- ir skjalageymslur. Hllmlr Snær er leikstjóri en leikarar eru Egill Heiðar Anton Pálsson, Hin- rlk Hoe Haraldsson, Jóhanna Vigdís Arnar- dóttir, Laufey Brá Jónsdóttlr, Maria Pálsdótt- ir, Nanna Krlstín Magnúsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason og Stefán Karl Stefánsson. Sviðs- mynd og búningar eru I höndum Jórunnar Ragnarsdóttur lýsingu hannar Egill Ingibergs- son og um hljóðið sér meistari Sigurður Bjóla. Þjóðlelkhúslð. Sjálfstætt fólk, seinni hluti: Ásta Sóllilja - Lífsblómið, verður sýndur kl. 20. Þeir sem sáu Bjart fyrr um daginn geta skellt sér á aöra þrjá tíma af Laxness eftir kvöldmat. Steinunn Ólina Þorstelnsdóttir er Ásta Sóllilja og Arnar Jónsson er Bjartur seinni hlutans. Leikstjóri er Kjartan Ragnarsson og hann samdi hann leikgeröina ásamt eiginkonu sinni. •Kabarett Enn eru það Cellne Dion, Diana Ross og Gloria Estefan sem standa á sviöinu í Broad- way. Sóldögg leikur á eftir. •Fundir Klukkan 20.30 fer I gang fyrirlestur um stöðu Frakklands I alþjóðastjómmálum aö loknu kalda stríöinu. Hann er haldinn I húsnæöi Alll- ance Franpes við Ingólfstorg. Fyrirlesarar eru Tómas Ingl Olrlch sem menntaður er I Frakk- landi og Frlðrlk Páll Jónsson yfirmaður er- lendra frétta á fréttastofu Ríkisútvarpsins. Árnl Snævarr yfirmaður erlendra frétta á Stöð 2 stýrir umræöum sem fara fram bæði á frönsku og íslensku. Fimmtudágur 13. mai • Krár Á Romance hangir Ell og hamrar pianóið. Bjuggust þið við öðru? Á Krlnglukrána mætir goðið Rúnar Júlíusson viö annan mann. Eldra viskí, meiri pening! •Klassík Barnakór biskupstungna treöur upp ásamt hljómsveitir Á morgun kl. 14 hefst hin ár- lega útskriftarsýning MHÍ í SS- húsinu. Sýningin bindur enda á 60 ára sögu skólans því á næsta ári heitir MHÍ Listaháskólinn. í ár sýna 56 útskriftarnemar, 12 fleiri en í fyrra. Einn þeirra er Unnar Örn Auðarson sem verður með stærsta verk sýning- arinnar og e.t.v. stærsta verk sem sett hefur verið upp á ís- landi. Hann er þögull sem gröfin um verkið og lofar bara að það sé „svaka skemmtilegt". Unnar útskrifast úr fjöltækni- deild og hefur eitthvað verið að sýna, verk eftir hann var t.d. ný- lega rifið úr glugga Búnaðar- bankans. En er það ekki eintóm geðveiki að jafn lítil þjóð og ís- land sé að útskrifa 56 myndlista- menn á ári? „Jú, það er rugl“, samþykkir Unnar. „En þetta er líka fyrsta og síðasta sýning flestra sem eru að sýna þarna. Og af hverju ekki að halda upp á það? Fólk fer bara að vinna eins og gengur, en þegar maður er orðinn það sem maður er þá fer maður að gera það sem maður gerir.“ En hvaö bíóur listamannanna útskrifuöu - œtlar þú t.d. á spena ríkisins? „Já, og vinna svart með. Svo hangir maður á kaffihúsum og hugsar. Hugsar um myndlist.“ Ertu ekki á leiöinni út í heim? „Jú, er það ekki við hæfi? Þarf maður ekki að ná sér í gráðurnar? En ég hangi allavega í eitt ár á Kaffibarnum áður, til að komast í klíkuna og fá styrk.“ Ein „heví“ í lokin: Er mynd ' listarheimurinn búinn að blóðmjólka sjálfan sig? „Nei. Myndlistin er eins og amaba. Hún breytir sér og yfir- tekur allt annað. Hún stjórnar t.d. heiminum núna.“ Ú- h ú ! Unnar og hinir 55 verða í góðu stuði á morgun. Það er vel þess virði að tékka á þessari stóru samsýn- ingu því það má alltaf rekast á eitthvað snið- ugt innan um. Ætla að hanga eitt ár á Kaffibarnum Diddú i Skálholtsklrkju klukkan 15. Á efnis- skránni er t.d. Ave Maria Sjúberts. Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson. •S v eitin Nú ætti Bergþóra að vera komin á Höfn I Hornafiröi. það er Veltingahúsið Víkin sem tekur á móti henni með glans. Jóhann I Hlekkj- um mætir eflaust á giggið. Þegar minnst er á Boröeyri kemur þá Mike Tyson upp I hugann? —já —nei. KK er með tónleika I barnaskólanum I kvöld klukkan 21. Þaðan liggur svo leiðin niörá Akranes til að spila fyrir Sunnu sem reyndar er I prófum. Le i khús Þjóðleikhúslð. Sjálfstætt fólk, fyrri hluti: Bjartur - Landnámsmaöur íslands veröur sýndur I kl. 20. fyrir þá sem vilja sjá báða hluta verksins á sama degi. Ingvar E. Slgurðs- son leikur Bjart en Margrét Vilhjálmsdóttir er Rósa kona hans. Leikstjóri er Kjartan sjálfur Ragnarsson og samdi hann leikgerðina ásamt Sigríði Margréti Guðmundsdóttur. Helllsbúlnn býr I helli sínum I íslensku óper- unni. Sýning kl. 20. Bjarni Haukur Þórsson er hellisbúinn. Síminn er 551 1475. Spunaverkið Hnetan verður sýnt I Iðnó, kl. 20.30. Spuninn spinnst að mestu úti I geimn- um og fjallar um leit fimm fslendinga að plánetunni Hnetunni sem er byggileg mönn- um. Árið er 2099 um borð I geimflaug og áhorfendur ráða þvl nokkuö hvert hún fer og I hverju áhöfnin lendir. Leikstjóri er hinn sænski Martin Geijer. Leikarar eru Gunnar Helgason og Hansson, Ingrld Jónsdóttir, Friðrik Friö- riksson og Linda Ásgeirsdóttir. Nemendaleikhúsiö sýnir Krákuhöllina eftir Einar Örn Guðmundsson. Þetta er síðasta verkið sem sýnt verður I Lindarbæ en nú á að taka húsnæðið undir skjalageymslur. Hilmir Snær er leikstjóri en leikarar eru Egill Heiðar Anton Pálsson, Hlnrik Hoe Haraldsson, Jó- hanna Vigdís Arnardóttir, Laufey Brá Jóns- dóttir, María Pálsdóttlr, Nanna Kristín Magn- úsdóttir, Rúnar Freyr Gislason og Stefán Karl Stefánsson. Sviðsmynd og búningar eru I höndum Jórunnar Ragnarsdóttur lýsingu hannar Eglll Ingibergsson og um hljóðið sér meistari Sigurður Bjóla. Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman er á Smíðaverkstæði Þjóðlelkhúss- Ins kl. 20.30. Þessi farsi gengur og gengur. Enn eitt gangstykkið með „gömlu leikurunum" - að þessu sinni Þóru Friðriksdóttur, Bessa Bjarnasynl og Guörúnu Þ. Stephensen. Sim- inn er 5511200 fyrir þá sem vilja panta miða á sýningu einhvern tlma I framtíðinni. •Kabarett Stebbi Hilmars og Eyjólfur Kristjáns ætla að vera Simon og Garfunkel öðru sinni, en nú á Hótel Loft- leiðum. Með þeim er sem fyrr sægur af góðum hljóðfæra- leikurum og söngkonurnar Guðrún Gunnars- dóttir og Berglind Björk en hún mun leika á teskeiðar I nokkrum lögum. •Síöustu forvöö Form skynjana er að renna skeið sitt á enda. Þessi sýning, sem staðið hefur yfir I Ásmund- arsafnl við Sigtún er samsett af verkum Ás- mundar og Ragnhildar Stefánsdóttur. Ragn- hildur hefur undanfarin ár vakið athygli fyrir túlkun sína á upplifunum mannsins af sinni innri og ytri tilvist. Hún notar mannslíkamann sem grundvöll verka sinna, hvort sem hún er að vísa til skynjana eöa líkamlegra þátta. Margir kannast við verk hennar Skynjun sem er nokkurra metra hár Konulíkami sem stend- ur á strandlengjunni við Skerjafjörð. Það er opið til klukkan 16 I Ásmundarsafni. •Feröir Ferðafélagið skundar að skoða gamlan af- tökustað á Kjalarnesi klukkan 13. Lagt verður upp frá Umferðarmlðstöð og Mörkinni 6. Farið verður I fylgd Páls Slgurössonar prófessors sem veit allt um þennan stað. Klukkan 10.30 leggur Ferðafélag íslands upp I sklðagöngu/gönguferð á Esjuna. Safnast saman austan megin við Umferöarmiðstöðina rétt áður. Stuð. Nú er það aðalgöngudagur Póstgöngunnar. Gengið verður frá Bessastöðum suður I Kúa- gerði með viðkomu I pósthúsinu I Hafnarfirði. Boðið upp á grillaðar pylsur I lok göngunnar. Rútuferðir frá BSÍ klukkan 9.15, pósthúsinu í Kópavogl klukkan 9.30 og pósthúsinu í Garðabæ klukkan 9.45. Góða skemmtun Stendur þú fyrir einhverju? Sendu upplýsingar í e-mail fokus@fokus.is / fax 550 5020 hverjir voru hvar m©xara. a. www.visir.is „framleiðandi" og forslðu- [“ stúlka Heimdallar inn nef- ið og hélt uppi áróðri. Föstudagurinn var þaulsetinn á Vega- mótum. Poppelítan ræddi poppið yfir glösum, þ.á m. Palli I Maus, Barði I Bang Gang og Stebbl Hllmars, sem voru næst- um búnir að stofna nýtt band, þegar sjálfur kóngur- inn, Jakob Frí- mann, mætti og fræddi þá um réttindabaráttu. Ekki langt undan voru Hjaltl Rögnvaldsson leik- ari og Steinunn Ólína leikkona. Þá léku Siggi Hall poppkokkur og Ingvi Stelnar kaffibrennslu- , stjóri lausum hala. Daginn eftir stóðu nýir popparar á Vegamótum. Söngleikkonan Esther Talía, Sölvi Quarashi, Þröstur Súrefni og Úlfur og Bogi Stjörnukisar kinkuðu eflaust kumpánlega kolli hver til ann- ars á meðan Jón Sæmundur, Páll Banine, Snorrabros, Þorsteinn Bachman og llmur leik- listarskólapía nutu veitinga. Alls ekki minni menn voru Magnús Geir, Ólafur Egill og Bjarni Ben. Meistari Jón Gnarr lét svo nokkur gullkorn fjúka. Fjölmiölaspírur voru fjöl- mennar á Astró á föstudag- inn enda áttu þrjár þeirra af- mæli: Svala á FM957, Er- ling af Rnum miðli og Ragn- ar Páll af Bylgjunni. Jáfn kátir voru fréttamennirnir Sigur- steinn Másson og Þór Jónsson þó þeir ættu ekki afmæll. Sæti gæinn úr Titringi (Jíorsteinn?) mætti lika, svo og Þór Bæringur (hvern djöfulinn gerir hann?), Eyvi - örugglega meö gítarnögl tilbúna I vasanum ef ske kynni að hann kæmist I eftirparti með kassagítar - Viddi af Glaumbarnum og Björn Blöndal, Ijósmyndari fræga og fina fólksins. Á sínum stað voru svo Stebbi Hllmars og aðrir Sálarmeðlim- ir (nema Gummi náttúrlega, sem er I London), meölimir úr Skítamóral, sem hjálpuðu grínaranum Sveini Waage yfir erfiða þröskulda og Svava og gengið úr Sautján. Allir skemmtu sér vel og vakti það mikla kátínu þegar Guðmundur Börkur, helsti steggurinn hjá BSR, mætti Á föstudaginn var stappað á Kaffi Thomsen. Innan um beibin og bóndadurgana sáust Herb Legowitz, konungur lopahúfnanna, báðir Skýj- um ofar-gaurarnir og Diana Ómel, kynæsandi að vanda með nýjum vini. Kvöldið eftir voru ný andlit mætt á djammið, þ.á m. smettin á Mána af X-inu, strákunum I Botn- leðju og Óskari Guðjóns, saxófón- leikara. Þá sáust Emilía og Odd- laug, sem áður studdu Kvennalist- ann, styðja við frambjóðendurnaVII- hjálm Vilhjálmsson og Mörð Árna- • son. Við grammófóninn voru Mar- 1 geir og Klute og skiptu um plötur af snilld. Á Sólon voru m.a. nokkrir spútnikkar af Rton, þ.á m. BJössl Jóns, Anna Karen, Ingó og Örn Úlfar ásamt Elb Eibelsháuser Ijósmyndaragúrú og Magne Kvam galdrakalli á Oz. Á laugardaginn mátti sjá myndlistarsnillingana Jón Sæmund, Húbert Nóa og Pál Banine á Kaffibarnum. Einnig rak Árnl Þór Vlgfússon klæddur rauöum kjól og dansaöi á sig gat. Margt af sama liðinu var mætt aftur á laugar- dagskvöldið og sumt m.a.s. með nesti. Þó bættist nýtt kjöt við, m.a. grímubúningaklæddir meðlimir úr Older félagshópnum: Kata Lýsis- módel, sem var með bleyju og snuð (enda kannski ekki vanþörf á?), Sigga Halla sem var slökkviliðskona, Pétur úr Löndun var I viðeig- andi veiðigalla, Klddi stórfætti mætti I górillu- búningi (sá einhver mun?), einhver GIsli mætti sem stór böllur (var hann I grímubúningi?) og Valli Sport, sem mætti sem hermaður. Valli þessi er með hausverk um helgar og lét taka sig úr sambandi um daginn. Hann var þó nógu mikið I sambandi til að horfa löngunaraugum á allar Piayboy-gellurnar sem stigu erótískan dans á blikkandi dansgólfinu. 22 f Ó k U S 7. maí 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.