Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1999, Blaðsíða 3
m e ö m æ 1 i e f n i Það er sama hvað snyrti- vöruframleiðendur reyr þeir skáka aldrei Old Spice. Þetta er einfald- lega einl rakspírinn á markaðnum. Þú hendir framan í þig smáslettu og hún dugir í viku, jafnvel þó þú baðir þig nokkrum sinnum. Það segir sig bara sjálft að ? __ allir alvöru karlmenn ^ nota Old Spice. Þetta „Spice“ hef- ur kannski fengið á sig vont orð þegar Kryddstelpurnar voru, en nú eru þær ekki lengur og því er Spice-ið í Old Spice aftur orðið að sannri karlmennsku. Franska pönnukakan á Kaffi París er sjúklega góð. Þessi með skinku, grænmeti og pasta er vægast sagt froðufellandi geggjuð og betri mat færðu varla í hádeg- inu ofan í miðbæ. Taktu svo t.d. gamlan Bond- ara um helgina. Bara ekki taka Sean Connery. Hann er of artí og bara einum of orginal fyrir plebbatrend- ið sem er í gangi þessa dagana. Plebbarnir fila Roger Moore og hata alla hina Bondana. Þeir taka að vísu pínu mark á Pierce Brosnan en um helgina virkar bara að horfa á Roger Moore í hlutverki einka- spæjarans knáa. Takkaskór eru sniðugir í partíið. Láttu bara sem þú hafir verið að koma af æfingu og hafir verið læstur úti. Það mun virka á alla gesti og sá sem mætir í takkaskóm á djammið og er í ofanálag læstur úti, sefur ekki einn. Það er hægt að bóka það. Það er að sjálfsögðu álitamál hvaða partí eru best og lík- lega misjafnt eftir fólki hvaða partí það fílar. En Fókus ákvað samt að gera smákönnun á bestu kosningapartíum bæjarins. Já, við verðum öll að vera í stuði annað kvöld og þá getur verið gott að hafa smaleiðarvísi um skemmtanalíf kosninganæturinnar. HvsLöa flokk besta jJbiJjJJU ÍjJjjLIJjJlJ JJlJf Frjálslyndir bjóða upp á heimatilbúin skemmtiatriði í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6. Sverrir Hermannsson lætur líklega sjá sig ásamt öðrum frambjóðendum ffokksins. Þarna verð- ur leikið og sungið á píanó og tilboðum lofað á heimatilbúnum bar. Húsið opnað kl. 20. Framsóknarflokkurinn lofar engu stuði en þó við að halda úti einhverjum heimatil- búnum skemmtiatriðum á Grand Hótel. Það er sorglegt fyrir þá sem hafa séð þingmenn Framsóknar i Reykja- neskjördæmi rappa. Það verða engin tilboð á barnum en húsið opnað kl. 21. Vinstri-grænir eru méð frumlegasta partíið og hittast í Risinu, Hverflsgötu. Þar verður auðvitað sjónvarp eins og á öllum öðrum stöðum og listamenn á borð við Bjartmar Guðlaugsson, Her- dísi Jónsdóttur píanóleikara og Guðmund Magn- ússon búktalara. Auk þess verður allt á fátæklinga- verði á barnum og frambjóðendur 1 feiknastuði. X-H j'jJijjji1 jjJjíjujfj Húmanistar hittast á Punktinum, Laugavegi. Það er lítil og sæt suddabúlla, sem er í sama húsi og gamli Blúsbarinn var. Húmanistar lofa miklu stuði og þar fær fólk frjálsan aðgang að frambjóðendum og talsmenn flokksins gáfu í skyn að eitthvað af stjörnustuðningsfólki húmanista kynni að mæta. Þar erum við líklega að ræða um fólk eins og Hörð Torfa, Bergþóru og jafnvel meistara Megas. Bjórinn á húmanísku verði. i'JíJíBfJ JjJJjdl) íj Jjtifjjwjj , i «3 Samfylkingin hittist á Naustinu og lofar i eneum sérstökum skemmtiatriðum fyrir ^81 * 9 utan að mesta stuðgrúppa landsins mætir - Sýrupolkasveitin Hringir ásamt Möggu Stínu. Það ætti því að verða fjör en leiðinlegt að ekki er fyrirhug- að neitt frambjóðendaspreli sem er yfirleitt talið nauð- synlegt fyrir svona skemmtun. Ekkert tilboð á barnum og þessi fimm hundruð hausa staður verður opnaður MU Kóngarnir í bransanum eru að sjálfsögðu stuðningsmenn Dabba kóngs. Sjálfstæðis- flokkurinn heldur sitt partí á Broadway og býður upp á sveiflukónginn Geirmund Valtýsson. Fólk þarf að vísu að vera með boðsmiða sem hægt er að nálgast á næstu kosningaskrifstofu og það er ekkert tilboð á barnum. Bjórinn verður sem sagt á góð- ærisprís en því er lofað að frambjóðendurnir sprelli. Húsið opnað kl. 22. kl. 21. Þvottaklemmur í eyrum Litlu stjórnleysingjarnir í Anarkistaflokknum hittast á Grand Rokki án þess að það sé gefið í skyn að þeir taki allan staðinn og því eru allir velkomnir svo lengi sem þeir eru annað hvort með þvottáklemmu í barminum eða i eyrunum eins og formaðurinn, Þórarinn Haki. Geirfuglarnir leika fyrir dansi og frambjóðendur sprella. Heiða úr Unun (19. sæti listans) ætlar að flytja frumsamdar hækur og Elvar Geir (7. sæti listans) les ljóð. Bjórinn kostar 300 kall. Sandra Guðmundsdóttir er hörkukvendi. Einstæö móðir 16 mánaða drengs og starfmaður hjá Nýbarða í Garðabæ. „Eg hringdi á öll dekkjaverk- stæðin í Reykjavík og nágrenni," segir Sandra Guðmundsdóttir, en hún vinnur við að skipta um dekk á Hjólbarðaverkstæðinu Ný- barða í Garðabæ. Og hvernig líkar þér vinnan? „Þetta er flnt. Svolítið erfitt, en það er samt ekkert mál að skipta um dekk,“ segir þessi ein- stæða móðir úr Breiðholtinu. Eigandi Nýbarða segir þetta yera mjög sjaldgæft og að þeir hafi ver- ið svolítið smeykir við að ráða Söndru í fyrstu. En það voru bara fordómar af því að hún er stelpa, enda hefur það komið á daginn að hún er starfi sínu fullkomlega vax- in. Allavega hafa margir strákar staðið sig verr og ef eitthvað er hef- „Hvað er svona merkilegt við það, að vera karlmaður?" Ekkert, sé litið til þeirrar staðreyndar að á dekkjarverkstæði í Garðabæ vinnur 21 árs stúlka. Hún hellir ekki upp á kaffí og skúrar, heldur skiptir bara um dekk eins og aðrir sem vinna þarna. Fókus athugaði af hverju Sandra Buðmundsdóttir fékk vinnu hjá Nýbarða. ur Sandra staðið sig betur. Það má því fullyrða að síðasta vígi karl- anna sé endanlega fallið. Erfiðis- vinna tengist ekki bara kröftum og karlhormónum heldur er meiri nauðsyn á að vera áhugasamur og duglegur. En ertu í föstu starfi hjá Ný- baröa? „Nei. Þetta er bara sumartörnin, en ég kem vonandi aftur í vetrar- törnina," segir Sandra og skellir sér undir næsta bíl. Seinnipartinn er hún svo komin heim til sín og sinnir 16 mánaða gömlum syni sín- um. Nóg að gera á stóru heimili og Sandra hefur yflr engu að kvarta hvað starfsfélaga og umhverfi á vinnustað varðar. Alda Björk: Það er búið að rakka mig nið: ur í fjölmiðlum 4 Hafdís Huld: Eg ætla að fá mér góðan lögfræð- ing Lifid eftir vmnu Engir meikd 3isund spilar fyrir hve Kór laglausra syi Hangir á MÆ? ÆÆm 1». Kafiipari^n Fókus á vefnum: Páll Óskar svarar bréfum I f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíöumyndina tók Teitur af Hafdísi Huld Þrastardóttur. 7. maí 1999 f ÓkllS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.