Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1999, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999
Viðskipti
Þetta helst: .. .Viðskipti á Verðbréfaþingi 1.301 m.kr. ... Úrvalsvísitala hækkar um 0,33%
...Viðskipti á húsnæðisbréfum var 135 m.kr. ... Viðskipti með bankavíxla var 580 m. kr. ... Viðskipti
með bréf í Samherja var 19 m. kr. í Granda 14 m. kr. og í Marel 11 m. kr. ... Gengi dollara fór í 73,49...
Miklir erfiðleikar hjá Kaupfélagi Þingeyinga:
Landsbankinn og KEA til bjargar
Miklir rekstrarerfiðleikar eru hjá
Kaupfélagi Þingeyinga um þessar
mundir. Til að verja stöðu félagsins
munu KEA og Landsbankinn koma
til aðstoðar og reyna koma rekstrin-
um i viðeigandi horf. Það mun fel-
ast í sameiningu af ýmsum toga.
Kaupfélag Eyfirðinga og Kaupfélag
Þingeyinga hafa gengið til sam-
starfs um að stofna tvö einkahluta-
félög, Kjötiðjuna ehf. og MSKÞ ehf.
Fyrnefnda félagið mun yfirtaka
eignir og skuldbindingar Kaupfé-
lags Þingeyinga á sviði slátrunar og
kjötvinnslu en það síðamefnda mun
taka við mjólkursviðinu. Stofnun
þessara fyrirtækja er liður í samein-
ingarferli ofangreindra rekstrarein-
inga hjá kaupfélögunum báðum.
Kaupfélag Eyfirðinga á meirihluta í
hinu nýstofnaða MSKÞ ehf. en KÞ
og Landsbankinn munu eiga meiri-
hluta í Kjötiðjunni. Engin breyting
verður á rekstrinum fyrst um sinn
þrátt fyrir yflrtöku nýju félaganna
tveggja á rekstrareiningum KÞ.
Forráðamenn kaupfélaganna
beggja binda miklar vonir við að
þessi sameining muni hafa mikla
hagræðingu í fór með sér og skapa
Kaupfélag Þingeyinga á Húsavík
ný sóknarfæri. í því sambandi má
geta þess að þegar eru uppi hug-
myndir um að efla slátrun og kjöt-
vinnslu á Húsavík. Þess má geta að
Kaupfélag Þingeyinga á stóran hlut
í Kjötumboðinu hf. i Reykjavík og
Bautabúrinu á Akureyri en engar
breytingar verða á eignarhaldi
þeirra fyrirtækja.
Rökrétt framhald
„Ég minni á að KEA, KÞ og Sölu-
félag Austur-Húnvetninga hafa látið
kanna hagkvæmni í sameiningu
ákveðinna rekstrarþátta hjá þessum
félögum, ekki síst í mjólkur- og kjöt-
framleiðslu. Stofnun einkahlutafé-
laganna tveggja kemur að mínu
mati í rökréttu framhaldi af þeirri
athugun. Þó má ljóst vera að at-
burðarás síðustu daga er ekki sú
sem KEA hefði kosið til þess að
þessi sameining næði fram að
ganga,“ segir Eirikur S. Jóhanns-
son, kaupfélagsstjóri KEA.
Nýtum sóknarfærin
„1 ljósi þeirra rekstrarörðugleika
sem KÞ á við að etja lít ég svo á að
með stofnun þessara tveggja einka-
hlutafélaga séum við að verja það
sem við höfum og hins vegar nýta
þau sóknartækifæri sem þrátt fyrir
allt eru til staðar," segir Halldóra
Jónsdóttir, stjórnarformaður KÞ.
Hún segir það mikilvægast af öllu
að verja hagsmuni starfsfólks, við-
skiptavina og félagsmanna KÞ og
þessar aðgerðir miði ekki síst að
því.
Stefnir í taprekstur hjá
Krossanesi hf.
Þrátt fyrir að Krossanes hf.
hafl tekið á móti meira hrá-
efni á nýliðinni vetrarvertíð
en á sama tíma í fyrra er
rekstrarafkoma fyrirtækisins
á tímabilinu mun verri en
árið áður. Endurskoðaðar
áætlanir Krossaness hf. gera
ráð fyrir að árið í heild verði
gert upp með tapi ef ekki
verða verulegar breytingar til
batnaðar á rekstrarumhverf-
inu á næstunni.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur rekstrarum-
hverfi fiskimjölsverksmiðja
versnað mjög síðustu mánuði.
Verð á flskimjöli hefur t.d.
lækkað um 45-50% frá því sem
það var hæst og verð á lýsi
hefur lækkað um 60%. Hráefn-
isverð hefur hins vegar ekki
lækkað neitt i líkingu við
þetta og aðrir kostnaðarliðir
hafa staðið í stað.
Krossanes hf. hefur lagt fyr-
ir Hollustuvernd tillögur til
úrbóta í mengunarvörnum
verksmiðjunnar. í tillöguniun
er gert ráð fyrir að verksmiðj-
an festi kaup á búnaði sem
ráðgjafar fyrirtækisins telja
að muni skila mestum árangri
í því að draga úr lyktarmeng-
un frá verksmiðjunni. Um er
að ræða eina bestu fáanlegu
tækni sem í boði er í heimin-
um en þessi tækni hefur skil-
að viðunandi árangri í meng-
unarvörnum þar sem henni
hefur verið beitt, m.a. annars
staðar á Norðurlöndunum.
Um hálfs árs afgreiðslu-
frestur er frá framleiðanda á
þeim búnaði sem Krossanes
hf. leggur til að verði keyptur.
Ef Hollustuvernd fellst á fram-
komnar tillögur má gera ráð
fyrir að hægt verði að ljúka
uppsetningu búnaðarins í
kringum næstu áramót. Fyrir-
tækið áætlar að kostnaður við
þessar framkvæmdir verði á
bilinu 50-60 milljónir króna.
Miklar hækkanir
á flugvélaeldsneyti
- hefur ekki teljandi áhrif á rekstur Flugleiða
Miklar hækk-
anir hafa orðið á
olíu á heims-
mörkuðum und-
anfarið. Það sama
á við um flugvéla-
eldsneyti og hef-
ur það hækkað
um 50% frá ára-
mótum. Slíkar
hækkanir hafa
eðlilega mikil
áhrif á stóra
kaupendur og
sem dæmi þá tapaði SAS-flugfélagið um
194 milljónum íslenskra króna á fyrsta
fjórðungi þessa árs. Þetta tap var að stór-
um hluta rakið til olíuverðshækkana. í
morgunkorni FBA í gær velta sérfræðing-
ar í markaðsviðskiptum því upp þeirri
spurningu hvort fjárfestar hérlendis eigi
að óttast um afkomu Flugleiða vegna
þessa. Talsmaður Flugleiða, Einar Sig-
urðsson, var fljótur að
bregðast við þessum
vangaveltum og sagði
að þessar hækkanir
hefðu ekki teljandi
áhrif á rekstur félags-
ins. Þetta kemur fram
á viðskiptavef Vísis.
Árið 1998 var kostnað-
ur félagsins vegna
eldsneytis um 7% af
heildarrekstrarkostn-
aði. Einar sagði að
áætlanir félagsins
gerðu ráð fyrir því að þetta hlutfall yrði
hærra á þessu ári. Flugleiðir leita allra
leiða til að verjast verðsveiflum af þessu
tagi og beita til þess ýmsum gerðum fram-
virkra samninga. Einar sagði að i árs-
skýrslu félagsins væri að flnna mjög ítar-
legar upplýsingar um stefnu Flugleiða og
fjárfestar þyrftu ekki að óttast áhrif þess-
ara hækkana á afkomu Flugleiða.
viðskipta-
molar
Nýr framkvæmdastjóri
Nýsköpunarsjóðs
Stjórn Nýsköpunarsjóðs at-
vinnulífsins réð um helgina Úlf-
ar Steindórsson viðskiptafræð-
ing í starf framkvæmdastjóra
sjóðsins í stað Páls Kr. Pálssonar
sem nýlega sagði upp starfi sínu.
Úlfar hefur undanfarin þrjú ár
verið framkvæmdastjóri Únion
Islandia, dótturfyrirtækis SÍF í
Barcelona á Spáni. Úlfar er 42
ára.
Pundið of sterkt
Eddie George, bankastjóri
Englandsbanka, sagði fyrir helgi
að breska pundið væri of sterkt
til að huga að inngöngu í EMU.
Eftir þessi ummæli hefur pundið
lækkað í verði. Á miðvikudag er
búist við að birt verði skýrsla
um verðbólgu og búist er við því
að sú skýrsla gefi líka til kynna
að pundið sé of sterkt. í kjölfar
þessa hafa verið leiddar að því
líkur að frekari vaxtalækkanir
verði á næstunni.
Hlutafjárútboði
Nýherja lokið
Hlutafjárútboði
Nýherja er lokið.
Hluthafar skráðu
sig fyrir 14,3 millj-
ónum króna að
nafnvirði en til
boða stóðu 16,9
milljónir. Fjár-
festingarbanki at-
vinnulífsins leysir til sín af-
ganginn en hann hafði umsjón
með útboðinu. Tilgangur útboðs-
ins er meðal annars að fjár-
magna nýtt húsnæði Nýherja.
Samherji kaupir
í Snæfelli
Kaldbakur, fjárfestingarfélag í
eigu Samherja hf. og KEA, hefur
keypt 23,5% hlut í Snæfelli hf. af
KEA. Nú á KEA um 70% hlutafé
í Snæfelli hf. en hefur átt 87%.
Þessi sala er í samræmi við
stefnu KEA, að selja eignir til að
minnka skuldir.
Norska krónan styrkist
Norska krónan heldur áfram að
styrkjast. Hækkandi olíuverð hef-
ur meðal annars haft þau áhrif.
Sænska krónan hefur hins vegar
veikst nokkuð undanfarið eftir að
íjármálaráðherra Svíþjóðar, Ring-
holm, lét neikvæð ummæli falla
um aðild Svía að EMU.
S3.Samskipti er heildarlausn í skjalastjórnun og verkefna-
stýringu fyrir fyrirtæki eg stefnanir. S3.Samskipti gefur
víötækt yfirlit yfir alla viðskiptavini, tengiliöi Dg samskipta-
ferli. I einum gagnagrunni er haldiö utan um öll mál, verkefni
og samskipti sem fyrirtækið á viö viðskiptavini sína. Skráö
Premium Partner
eru samtöl, mál eg verkefni með ákveðnum lDkadagsetningum og
ábyrgðaraöilum eg öll samskipti s.s. bréf, ______
sfmhréf og tölvupóstur eru send í
gegnum S3.Samskipti sem vistar þessi
gögn og tryggir starfsfólki aðgang að m
nýjustu upplýsingum á hverjum tíma. NYHERJI
Skaftahlíð 24 • Sími 569 7709
http://www.nyherji.is
Dreifingaraðili Lotus Notes á íslandi