Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999
Fréttir
Vandamál Vinnslustöövarinnar rædd á stjórnarfundi í dag:
Fyrirtækið einskis
virði í loforðum
- segir Geir Magnússon, forstjóri ESSO og stjórnarformaður
„Við gáfum þær yfirlýsingar þegar
fyrirtækin voru sameinuð, Vinnslu-
stöðin og Meitillinn, að fyrirtækið
yrði rekið áfram í Þorlákshöfn. Við
erum fulikomlega meðvitaðir um okk-
ar loforð. En við gerum okkur líka
fullkomlega grein fyrir því að fyrir-
tæki sem fer á hausinn er einskis
virði í loforðum. Það er okkar hlut-
verk að sjá til þess að fyrirtækið fari
ekki á hausinn," sagði Geir Magnús-
son, forstjóri Olíufélagsins hf. ESSO,
þegar DV ræddi við hann í gær. Hann
er formaður stjórnar Vinnslustöðvar-
innar, fyrirtækis sem „Smokkfiskur-
inn“ svokallaði, ýmis eftir-SÍS fyrir-
tæki eiga meirihluta í.
„Eitt er að loka í Þorlákshöfn og
annað að skera þetta ailt niður, allt er
þetta í skoðun og unnið að því að
leysa ýmis vandamál," sagði Geir.
„Það vilja margir kaupa bréfin af okk-
ur, en þau eru ekki
til sölu, við klárum
þetta,“ sagöi Geir.
Vandamál
V innslustöð varinn-
ar i Vestmannaeyj-
um verða rædd til
botns á stjórnar-
fundi fyrirtækisins
í dag. Fyrirtækið
tapaði 605 milljón-
um króna á sex
mánuðum, en er
engu að siður enn vel stætt fyrirtæki
og hlutabréf þess, sem skráð eru á
Verðbréfaþingi, hafa verið á uppleið
að nýju undanfarna daga. Eigið fé
Vinnslustöðvarinnar nú mun vera um
2 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall
30%. Fyrirtækið er því ekki á
flæðiskeri statt, en þarf vissulega að
grípa til aðhaldsaðgerða. Árið 1993
var Vinnslustöðin með neikvætt eigið
fé og komið að þrotum. En almenning-
ur hefur lagt mikið fé í Vinnslustöð-
ina, sem og sjóðir og stórfyrirtæki
eins og ESSO og VÍS og fleiri.
Margir uggandi um sinn hag
Vandamál Vinnslustöðvarinnar
í Vestmannaeyjum voru víða rædd
í gær. Verkafólk, sjómenn og aðrir
sem hjá fyrirtækinu starfa eru
eðlilega uggandi um sinn hag, á
fjóröa hundrað manns vinnur í
Vinnslustöðinni, þar af um 90 í
Þorlákshöfn. Tap fyrirtækisins á
síðasta rekstrarári var gífurlegt,
nam 605 milljónum króna á sex
mánuðum, þar af 474 milljónum af
reglulegri starfsemi.
„Það er ekkert sýnilegt í hendi ef
þessi rekstur hverfur frá okkur,
bæði hvað varðar landvinnsluna
og eins sjósókn. Þarna eru mörg
störf í húfi, trúlega um 90. Annars
vil ég ekki segja mikið um þetta,
við verðum að treysta því að
stjórnendur taki réttar ákvarðanir
þannig að fyrirtækið geti lifað,“
sagði Þórður Ólafsson, formaðm-
Verkalýðsfélagsins Boða i Þorláks-
höfn, í gær. Hann segir að vanda-
mál Vinnslustöðvarinnar hvíli
þungt á mörgum í bænum. Hann
segist ekki sjá að það sé gáfulegt að
flytja landvinnsluna út á sjó eins
og rætt er um.
Sesselja Jónsdóttir, bæjarstjóri í
Ölfusi, sagðist ekki geta sagt neitt
um stöðuna, en málin mundu von-
andi skýrast á komandi dögum.
Hún sagðist þó ekki trúa því að
landvinnsla Vinnslustöðvarinnar
hyrfi frá Þorlákshöfn. Slíkt væri
lítt ásættanlegt fyrir bæinn. -JBP
Heimsókn forseta íslands í Eyjafirði:
Forsetinn heiðursfé-
lagi í veðurklúbbnum
Skátar stóðu heiðursvörð við ráðhúsið á Dalvík og fögnuðu forsetanum í blíðviðri í gær. DV-myndír gk
DV, Akureyri:
Á öðrum degi opinberrar heim-
sóknar Ólafs Ragnars Grímssonar,
forseta Islands, í Eyjafirði í gær lá
leiðin um hreppana norðan Akureyr-
ar og til Dalvíkurbyggðar. Heimsókn-
inni lýkur í dag, en forsetinn hélt í
morgun til Hríseyjar og fer síðdegis
til Grímseyjar.
Leið forsetans og fylgdarliðs hans
lá um Glæsibæjarhrepp, Amarnes-
hrepp, Skriðuhrepp og Öxnadals-
hrepp, og síðdegis til Dalvíkurbyggð-
ar, nánar tiltekið til Dalvíkur. Var
móttökuathöfn við ráðhúsið þar sem
fjöldi bæjarbúa kom í blíðviðri til að
taka á móti forsetanum. Að lokinni
móttökuathöfn voru fyrirtæki skoðuð,
sjávarútvegssvið Verkmenntaskólans
var heimsótt, Dalbær, dvalarheimili
aldraðra, sundlaugin og fleira, og I
gærkvöld var boðið til kvöldverðar í
félagsheimilinu Rimum, og siðan til
almennrar kvöldsamkomu þar.
Ólafur Ragnar var greinilega í góðu
skapi, enda lék veðrið við hann og
fylgdarlið, og móttökumar sem hann
hlaut voru innilegar. Forsetinn
skemmti sér greinilega vel og sló m.a.
á létta strengi að lokinni ferð í hesta-
kerru á Dalvík þar sem Sveinn Jóns-
son, bóndi i Kálfsskinni, var í hlut-
verki „kúsksins" og bauð forsetanum
að „taka í“.
Ólafur Ragnar heimsótti veður-
klúbbinn í Dalbæ og var þar gerður
að heiðursfélaga og fékk einkennis-
búning klúbbfélaga að gjöf því til stað-
festingar. Þar hafði forsetinn á orði að
veðurklúbburinn væri klúbbur sér að
skapi, og hlaut að launum sæmilega
veðurspá fyrir daginn í dag, en þá
heimsækir hann m.a. Grímsey. Þar
verður m.a. fylgst með bjargsigi og
dagskránni lýkur með kvöldverði í fé-
lagsheimilinu Múla. -gk
Sveinn stórbóndi Jónsson í Kálfsskinni kom með hestakerru sína til Dalvík-
ur í gær og ók Ólafi Ragnari Grímssyni milli staða. Forsetinn kunni vel að
meta og tók sjálfur í taumana og lét Sveinn bóndi vel af þeim handtökum.
Aðalsteinn heiðraður
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðing-
ur, sem skrifað hefur í DV um ára-
bil, hefur verið útnefndur til svo-
nefndra Torstein og Wanja Söder-
berg verðlauna sem veitt eru árlega
þeim sem skarað hafa fram úr á
Norðurlöndum i málefnum tengd-
um iðn- og listhönnun. Að þessu
sinni voru fimm gagnrýnendur frá
íslandi, Noregi, Danmörku Svíþjóð
og Finnlandi heiðraðir fyrir framúr-
skarandi umfjöllun um listræna
hönnun.
„Þetta var mjög óvænt því þarna
er ég settur í hóp með fólki sem
skrifað hefur um hönnun í áratugi.
Þetta er ánægjulegt, ekki sist í því
ljósi að hönnun er á miklu hærra
stigi annars staðar á Norðurlöndun-
um en hér,“ sagði Aðalsteinn.
Aðalsteinn starfar um þessar
mundir á DV sem ritstjóri menning-
arefnis blaðsins.
Hann segir að
verðlaunaveit-
ingunni fylgi að
verðlaunahaf-
arnir setji sam-
an sýningu í
haust þegar
verðlaunin
verða afhent.
Hver verðlauna-
hafi um sig hefur
verið beðinn að velja fimm hluti frá
eigin landi sem honum finnst bera
sterkust einkenni síns heimalands.
Aðalsteinn kveðst ekki hafa ákveðið
hvaða hluti hann velji en hafi þegar
mótað hugmynd um það. -SÁ
Stuttar fréttir i>v
Ráðunautar á ferð
Fyrrverandi landsráðunautar,
Þorkell Bjarnason og Kristinn
Hugason, munu
kynna stóðhesta
á sérstakri 35
stóðhesta kynn-
ingu í reiðhöll-
inni í Ingólfs-
hvoli í kvöld kl.
20. Kynntir
verða topparnir
frá sýningunni í Gunnarsholti, svo
sem Dynur frá Hvammi og Garpur
frá Auðsholtshjáleigu.
Neskirkja friöuö
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra hefur friðað fimm 20.
aldar byggingar að tillögu Húsa-
friðunamefndar. Þeirra á meöal
em Búnaðarbankinn í Austur-
stræti, Neskirkja og Melaskólinn.
Hús frá þessu byggingarskeiði
hafa ekki fyrr verið friðuð.
20% hafa ekki heyrt
Samkvæmt könnun sem
Pricewaterhouse Coopers hefur
gert hafa 20,2% landsmanna ekki
heyrt íslenska lagið í Söngva-
keppni evrvópskra sjónvarps-
stöðva, 78,8% kváðust hafa heyrt
lagið, þar af 73,9% konur en 26,1%
karlar. 1200 voru spurðir og svar-
hlutfall var um 70%.
Treg síldveiði
Veiðar íslenskra skipa úr norsk-
íslenska sildarstofninum í Síld-
arsmugunni hafa verið fremur treg-
ar undanfarið. 15 skip eru að veið-
um og heildaraflinn er á áttunda
þúsund tonn. Kvótinn er 220 þús-
und tonn.
Ný verkalýðssamtök
Aðalsteinn Baldursson, verka-
lýðsleiðtogi á Húsavík, telur að upp-
lausn og óróleiki
innan ASÍ og
BSRB geti endað
með úrsögnum
úr þessum sam-
tökum og að ný
heildarsamtök
þeirra sem eftir
verða verði
stofnuð en fagfélög verði utan
þeirra. Dagur sagði frá.
Snjókoma í nótt
Snjókoma var suðvestanlands í
nótt og var snjór í byggð í höfuð-
borginni og víðar. Talsverður
snjór var á Hellisheiði og mikil
hálka í morgun.
Rafmagn hækkar
Stjóm Landsvirkjunar hefur
ákveðið að hækka heildsöluverð á
raforku um 3% frá og með 1. júlí.
Upplýsingafulltrúi fyrirtækisins
segir Morgunblaðinu að hækkun-
in sé minni en nemur kostnaðar-
hækkunum frá því síöast var
ákveðið að hækka gjaldskrána.
Strætó frá bílastæöi
SVR ætla í sumar að flytja fólk
ókeypis milli bílastæða við lóð
Háskólans og miðborgarinnar fyr-
ir þá sem vilja nýta sér stæði þar.
Þjónustan á að hefjast 1. júní og
standa sumarlangt að sögn Morg-
unblaðsins.
Samþykkja samruna
Aðalfundur Vinnumálasam-
bandsins hefur samþykkt að renna
saman við VSÍ og mynda Samtök at-
vinnulífsins. 60 fyrirtæki eru innan
VMS. Jón Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri VMS, segir þetta
tímabært og skynsamlegt skref.
Val Kilmer á íslandi
Morgunblaðið segir leikarann
Val Kilmer nálægt því að ganga
frá samningum
við bandaríska
kvikmyndafyr-
irtækið Wamer
Bros. um að
leika aðalhlut-
verkið í mynd-
inni Mars. Tök-
ur eiga að hefj-
ast seinni partinn í ágúst eða í
byrjun september á íslandi og
Ástralíu.
-SÁ