Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 9 I>V Utlönd Sex særöust í skotárás í bandarískum framhaldsskóla: Árásarmanninum lýst sem skáta í ástarsorg Fimmtán ára gamafl piltur sem lýst hefur verið sem skáta í ástar- sorg særði sex nemendur i fram- - haldsskóla sínum í Georgíu í gær. Hann var handtekinn þegar eftir verknaðinn. Arásin í Heritage framhaldsskól- anum í Conyers, 40 kílómetra aust- ur af borginni Atlanta, var gerð þegar nákvæmlega einn mánuður var liðinn frá fjöldamorðunum í Columbine framhaldsskólanum í Littleton í Kólóradó. Þar drápu tveir unglingar tólf nemendur og einn kennara áður en þeir sviptu sig lífi. Ein stúlka var flutt með þyrlu á sjúkrahús í Atlanta þar sem hún gekkst undir skiu'ðaðgerð. Líðan hennar er sögð vera góð eftir atvik- um. Fimm aðrir nemendur fengu aðhlynningu á sjúkrahúsi í Conyers. Þeir voru með sár á fótum og afturendanum. Tveir fengu að fara heim en þremur var haldið eft- Lögregla rannsakar verksummerki við framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkj- unum í gær þar sem nemandi særði sex aðra með byssum. ^ ',.i-----■z-mám-'PH-. ..-V..WI8 SSHSV -SS 5 ’2%K watwtrawr-ntwa’Br1 a»*Bijtr>nnnR« mmmum&í mm» r —r%........' ’ .- > * tT-TT-rrraK._ • ciKuiiiimniunnn . u l Einn farþeganna, Donald Miller frá Glasgow í Skotlandi, tók þessa mynd af brennandi skemmtiferðaskipinu úr björgunarbát sínum. Símamynd Reuter Skemmtiferðaskip sökk undan strönd Malasíu: Ellefu hundruð bjargað Rúmlega ellefu hundruð farþegum og skipverjum af skemmtiferðaskip- inu Sun Vista var bjargað úr björg- unarbátum í morgun undan vestur- strönd Malasíu. Kviknað hafði í skipinu sem sökk í lygnum sjó í um 45 kílómetra fjarlægð frá fylkinu Perak. Eldurinn virðist hafa komið upp í vélarrúmi skipsins í gær. Ekk- ert varð við hann ráðið og neyddust þeir sem um borð voru til að fara í björgunarbáta og skilja allar eigur sínar eftir. Ferð skipsins hófst í Singapore og ir á sjúkrahúsinu í nótt. Allir sex munu ná fullum bata. Bekkjarfélagi piltsins sagði að hann hefði verið mjög miður sín þar sem sambandi hans og kærust- unnar hafði lokið fyrir skömmu. Lögreglan sagði að tvær byssur hefðu verið notaðar í árásinni, 22 kalí- bera rifflll og 357 Magnum skamm- byssa. Að sögn sjónvarpsstöðvar í Ge- orgíu átti stjúpi piltsins byssumar. Pilturinn kom með byssurnar í skól- ann með skólavagninum. Hann streittist ekki á móti þegar aðstoðar- skólastjórinn tók hann í sína vörslu.. „Hann lagði byssuna bara frá sér og skólastjórinn rak höfuðið út úr skrifstofunni og sagði að aflt yrði í lagi,“ sagði nemandinn Joe Watts. „Pilturinn fór að hágráta og sagði: Guð minn almáttugur, ég er svo hræddur, ég er svo hræddur." Ekki hefur verið greint frá nafni piltsins, sem var á öðru ári í skól- anum, vegna aldurs hans. Verkfall danskra hjúkrunarfræð- inga stöðvað Yfirvöld í Danmörku hafa þvingað hjúkrunarfræðinga til að samþykkja 7,5 prósenta launa- hækkun sem greiða á á næstu þremur árum. Þar með var bund- inn endi á vikulangt verkfall hjúkrunarfræðinga. Frá því að 7 þúsund af 50 þúsundum danskra hjúkrunarfræðinga fóru í verk- fafl hefur orðið að aflýsa þúsund- um aðgerða og senda heim sjúk- linga sem ekki eru lífshættulega veikir. Italskir hryðju- verkamenn drepa ráðgjafa Staðfest hefur verið að hryðju- verkamenn hafi skotið Massimo D’Antona, háttsettan ráðgjafa at- vinnumálaráðherra Ítalíu, til bana í Róm í gær. Skjal sem sagt er vera frá Rauðu herdeildunum, hryðju- verkasveit sem talið var að hefði verið upprætt, barst til dagblaðs í Róm aðeins nokkrum klukku- stundum eftir morðið. Þar lýsti hópurinn ábyrgð á morðinu á hendur sér. Rauðu herdeildirnar báru ábyrgð á fjölmörgum árás- um á áttunda og níunda áratugn- um, þar á meðal á ráninu og morðinu á Aldo Moro, fyrrum for- sætisráðherra. Tveir ungir menn, sem höfðu falið sig í sendibíl, skutu D’Ant- ona fyrir utan heimili hans. D’Antona lést á leið á sjúkrahús. Morðið bar öll einkenni árása hryðjuverkamanna frá því á ár- um áður. Massimo D’Alema forsætisráð- herra lýsti yflr þungum áhyggjum sínum af morðinu. Talið er að víg D’Antona sé fyrsta pólitíska morðið á ítalíu frá árinu 1988 þegar vinstrisinnaðir skæruliðar drápu Roberto Ruffllli, ráðgjafa þáverandi for- sætisráðherra úr Kristilega demókrataflokknum. Segist hafa pissað í skál Forráðamenn nútímalistasafns- ins í Stokkhólmi standa gjörsam- lega ráðþrota frammi fyrir fullyrð- ingum myndlistarskólanema nokkurs sem segist hafa pissað i eina af pissuskálum franska lista- mannsins Marcels Duchamps. Safnmenn segja ekki neinar vis- bendingar um verknaðinn en námsmaðurinn segist hafa mynd- ir máli sínu til sönnunar. Safn- stjórinn telur myndirnar vera falsaðar. Duchamp setti nafn sitt fyrst á pissuskál 1917 og sagði vera list. Stúdentagjafir Fallegir skartgripir til stúdentagjafa. Verð á hringum á mynd, 7.800 og 8.900. hafði verið lagt að bryggju í Malacca í Malasíu til þess að ná í fleiri far- þega. Var áætlað að sigla með farþeg- ana til ferðamannaeyjunnar Phuket. Farþegarnir voru af um tuttugu þjóð- um, þar á meðal Bretar, Bandaríkja- menn og Japanir. Gullhringar. Gullháismen. Stúdentastjarna, verð 3.700. Útskriftarmen með perlu, verð 5.900. Laugavegi 49, sími 561 7740. / / SHARP ER-A150 Sjóövél SHARR 1 AR-280/335 28/33 eintök á mínútu Stafræn VilNilSí ISiSLA SHARP AL-1000 10 eintök á mínútu Stafrœn VilSílSiSLA Skrifstofutæki Ljóspitunanuélar, faxtæki og sjóðvelar Betri lækl eru vandfundin! Leitið nánari upplýsinga hjá sölurnönnum okkar \ BRÆÐURNIR^ ^QRMSSON Lágmúla 8 • Sími 533 2800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.