Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Blaðsíða 24
28 FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 TWT ;onn Ummæli Töluverður ágreiningur? „Ég tel þetta vísbendingu um að samstaðan milli flokkana sé , ekki eins mikil . , og af er látið og mér kæmi ekki á ðvart að tölu- ; ! verður ágrein- ingur sé milli flokkanna um . aðgerðir í efna- s hagsmálum í ljósi frétta um aukna þenslu." Margrét Frímannsdóttir, um myndun ríkisstjórnar, í DV. Útför ASÍ „Þessi hótun jafnast á viö s útfor ASÍ. sem að óbreyttu I mun fara fram á þingi sam- bandsins eftir rúmt ár.“ Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsam- bands íslands. Vonandi fær hún eitt- hvað líflegra næst „Menn eru farnir að ganga dálítið langt þeg- ar þeir eru fam- f ir að nota Niss- an-bifreið til kynörvunar. Vonandi fær vinningshaf- inn í þessari | keppni eitt- hvað líflegra að fást við næst þegar löngunin grípur. Birna Þórðardóttir, í DV. Hefði orðið góður sjálfstæðismaður „Ég held að Ragnar hefði getað orðið mjög góður sjálf- J stæðismaður." Eyþór Arnalds borgarfull- trúi, um frænda sinn Ragn- ar Arnalds, í Morgunblað- inu. Maður hrekkur við „Maður hrekk- E ur sannarlega \ við þegar mað- ur heyrir þetta nefnt." Guðni Ágústs- son, um hug- myndir um að selja Lands- símann, í Degi. Verkfallsstéttirnar „Pistilhöfundi koma jafh- j an tvær stéttir í hug þegar hann heyrir verkfalla getið; Mjólkurfræðingar og kennar- ar. Ástæðan er sú að tíð verk- foll þessara hópa beinast ein- göngu að litlum börnum." Ásgeir Hannes Eiríksson, í Degi. Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari: Ekkert slakað á í sumar DV, Akranesi: „Þetta leggst alveg rosalega vel í mig, ég iða allur í skinninu að fara að byrja. Það er viss ögrun að takast á við þetta verkefni. Ég hef ekki áður þjálfað í úrvalsdeild og ég set það ekki fyrir mig að vera ungur að árum, ég hef heyrt ýmsar efasemdaraddir en það eru miklu fleiri sem hafa trú á þessu,“ segir Brynjar Karl Sigurðsson, nýráð- inn þjálfari úrvalsdeildarliðs Körfuknattleiksfélags Akraness. Brynj- ar tekur við starfinu af Alexander Ermonlinski sem náði þokkalegum ár- angri með liðið og kom því í úr- slitakeppni fyrir einu ári með dyggri aðstoð Damons Johnsons. Brynjar er aðeins 25 ára gamall og verður örugglega yngsti þjálfarinn í úrvalsdeildinni á komandi vetri. Brynjar byrjaði að æfa körfubolta hjá ÍR 9 ára gamall og lék sinn fyrsta úrvalsdeildarleik með ÍR aðeins 16 ára gamall. Þá fór hann tii Bandaríkj- anna og lék í High School, eftir það lék hann með Val, þá Breiðabliki og síðan hefur hann verið að leika til skiptis með ÍA og Val þar til í vetur að hann lék með háskólaliði í Bandaríkj- unum. Brynjar þekkir mjög vel til ungu leikmannanna á Skaganum því að síðast þegar hann var þar þjálfaði hann þá ungu stráka sem eru að koma upp i meistaraflokk núna. „Það eru mikil áform í gangi með sumarið, við byrjuðum að æfa 3. maí og vonandi erum við fyrstir. Nú verður keyrt á fullu allt sumarið og ekkert gefið eftir. Sumarið er Brynjar Karl Sigurösson. DV-mynd Daníel þaulplanað.“ Brynjar segir að Skaginn sé að fá unga stráka til liðs við sig en það eru ekki nein stór nöfn og svo er spurning um hvað gerist í framhaldinu en það er vel inni í myndinni að liðið verði eitthvað styrkt. „Það er alveg á hreinu að það verður enginn leikmað- ur keyptur, þetta eru leikmenn sem hafa trú á þvi að Akranes sé staður þar sem menn geti náð árangri og náð að þroska sína körfuboltahæflleika, það er nú fyrir það sem við ætlum að kaupa menn.“ Þó að Skagamenn tefli ekki fram erlendum leikmanni að minnsta kosti fram að áramótum þá er Brynjar hvergi banginn: „Okkar styrkur liggur í því að við ætlum að nýta sumarið betur en allir aðrir, við ætlum ekki bara að æfa meira en aðrir heldur að æfa betur. Ég er að fá mér til aðstoðar mjög færan styrktarþjálfara, Jón Sævar Þórðarson. Við ætlum að brúa það bil sem skapast með þvi að vera án erlends leikmanns með hörku i æflngum og skynsemi. Mark- mið mitt sem þjáifara er að gera Skag- ann að veldi í körfubolta og við stefn- um á að vinna titil. Hvort það gerist í vetur eða næsta vetur verður að koma í ljós. Ég get ekki lofað sigri en ég get lofað von um sigur ef við gerum allt sem í okkar valdi stendur og þá veit enginn hvað gerist. Ég hef mikla trú á þessum strákum, þeir eru allir ungir og allt sem við komum til með að gera getur bara orðið til þess að þeir verði betri. Þó að við fórum inn í veturinn útlend- ingslausir verð- ru stefnan ekki að halda okkur uppi í deildinni heldur stefnum við á að vinna titil. | Aðaláhugamál Brynjars Karls er öll afreks- mennska í iþrótt- um. Brynjar Karl er í sambúð með Hel- enu Óskarsdóttur sem vinnur hjá Europay. DVÓ Maður dagsins Mannsambandet frá Noregi syngur á íslandi yfir hvíta- sunnuna. Víðförull kór Karlakór Hjálpræðishers- ins í Noregi, Mannsam- bandet, er í heimsókn á Is- landi og mun halda tónleika fram yfir hvíta- sunnu. Kórinn, sem stofnaður var 1995, hef- ur vakið mikla athygli frá upphafi og farið víða. Margir listamenn hafa unnið með honum við ýmis tækifæri. Má þar nefna Leningrad Cow- boys og norsku söngv- arana Hanne Krogh, Jan Werner, Wenche Myhre, Hans Inge Fagervik og fleiri. Kór- inn hefur tekið þátt í mörgum hátíðum, með- al annars jasshátiðinni í Molde, komið fram á þrenn- um jólatónleikum í Tónlist- arhúsi Óslóborgar, mörgum sjónvarpsþáttum og ferðast til fjarlægra landa á borð við Ástralíu og Singapúr. Nokkrar geislaplötur hafa komið út með kórnum. Tónlist kórsins spannar allt frá gospel til tónlistar með hröðum reggie-hljómum. Tónleikar Myndgátan Andapollur Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnorði. Tveir tvöfaldir í kvöld verður sýndur á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu gaman- leikmTnn Tveir tvöfaldir eftir Ray Coonay. Þessi bráðfjörugi farsi hefur nú verið sýndur rúmlega þrjátíu sinnum við miklar vin- sældir. Tveir tvöfaldir segja frá kvensömum þingmanni og dygg- um aðstoðarmanni hans sem reynir að leysa hvem vanda yfir- mannsins en tekst ekki betur til en svo að heilt hótel rambar á barmi taugaáfalls. Tveir tvöfaldir er farsi af bestu gerð þar sem mis- skilningur á misskilning ofan, kvennaklandur " “ “ og flóknir ást- L6lKlllJS arþríhyrningar ______________ fléttast saman í skrautlega at- burðarás og hláturtaugar áhorf- enda eru kitlaðar. Nýverið urðu þær breytingar á hlutverkaskipan að Sigurður Sig- urjónsson tók við hlutverki hins kostulega útlenda þjóns sem Berg- ur Þór Ingólfsson lék. Þjónustu- stúlkan sem Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir lék er nú leikin af Halldóm Bjömsdóttur. í öðrum hlutverkum era Öm Árnason, Hilmir Snær Guðnason, Edda Heiðrún Backman, Margrét Vil- hjálmsdóttir, Kjartan Guðjónsson, Randver Þorláksson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir. Leikstjóri er Þór H. Tulinius. Bridge Argentínumenn og ítalir léku til úrslita um HM-titilinn í sveita- keppni árið 1959. Eins og flestum er kunnugt höfðu ítalir betur í þeirri viðureign en Argentínumenn vom reyndar lengi með forystuna í leikn- um. En svo kom að þessu spili sem lítur út fyrir að vera sakleysislegt. í opnum sal hafði ítalinn Rocchi spil- að eitt grand á suðurhöndina og var ekki í vandræðum með að vinna þann samning. Stórtíðindi gerðust hins vegar í lokaða salnum. Vestur gjafari og allir utan hættu: 4 K973 44 84 ♦ Á104 * D873 4 1083 «4 KG73 ♦ D52 4 G62 4 ÁG5 44 1062 4 KG86 4 Á105 Vestur Norður Austur Suður Castro Chiarad. Dibar DíAlelio pass pass 1 4 dobl pass 1 4 pass pass 1 grand pass pass dobl p/h Argentínumaðurinn Castro, sem þótti einn besti spilari heims um þessar mundir, átti ekki sjö dagana sæla í þessu spili. Grandsögn hans eftir þriðju handar opnun austurs var illa ígrunduð en refsingin var með ólíkindum. Útspil norðurs var spaðaþristur og DíAlelio átti fyrsta slaginn á gosa. Næst kom tígull á tíu norðurs og vörnin tók næstu 6 slagi á spaða og tígul. Norður var inni og Castro ákvað að halda eftir 4 hjörtum heima og laufgosa. í blindum voru þrjú hjörtu og laufkóngur annar. Chiaradia átti ekki í erfiðleikum með að leggja niður laufdrottningu og tryggja þannig vörninni fjóra slagi til við- bótar. Aumingja Castro fékk aðeins 1 slag í ehiu grandi og var 1100 nið- ur samkvæmt þeim reiknireglum sem þá voru í gildi. Miðað við nú- verandi reglur hefði hann verið 1400 niður. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.