Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999
DV
Sviðsljós
Liz Hurley er söm við sig 1 Carmes:
Lét brjósta-
haldið falla
Liz Hurley sveik ekki í kvik-
myndaborginni Cannes á miðviku-
dag. Hún lét brjóstahaldið falla á
hótelsvölunum og lagðist í sólbað.
Alveg eins og i fyrra. Er nema von
að ljósmyndaraþúsundirnar á kvik-
myndahátíðinni líti nú svo á að
hefð sé komin á.
Liz hin snoppufríða hneykslaði
víst fina fólkið í Cannes með uppá-
tæki sínu í fyrra en ekki fer neinum
sögum af viðbrögðunum nú.
í viðtali við tímaritið Vogue segir
leikkonan og sýningarstúlkan,
kærasta hjartaknúsarans Hughs
Grants, frá því að í fyrra hafi hana
langað svo óskaplega mikið að leggj-
ast í sólbað. Hún hafi vitað af ljós-
myndurunum en ekki viljað láta þá
eyðileggja það fyrir sér.
„Það eina sem ég vildi gera var að
lesa þókina mína úti í stað þess að
gera það inni í hitasvækjunni í her-
berginu," segir Liz.
Sams konar lestrar- og sólbaðs-
þörf virðist hafa gripið stúlkuna nú.
Annars er Liz í Cannes til að
kynna tvær kvikmyndir sem hún
leikur í. Annars vegar mynd um
Hér er Liz Hurley alklædd í kvik-
myndaborginni Cannes.
furðufuglinn Austin Powers og hins
vegar myndinni EdTV.
í viðtali við norska blaðið VG seg-
ist Liz ekki ætla að giftast kærast-
anum fyrr en hún verði ófrísk.
Hvort og hvenær það verður veit
aftur á móti enginn.
Katarina Marx, barnabarn hins mikla þýska heimspekings og örlagavalds
Karls Marx, mætir brosandi tii frumsýningar kvikmyndarinnar La Balia á
kvikmyndahátíðinni í Cannes. Leikstjóri myndarinnar, sem er í aðalsam-
keppninni í Cannes, er hinn frábæri italski Marco Beilocchio.
Salma léttklædd á auglýsingaskiltum:
Óttast ekki árekstra
Salma Hayek, kynbomban frá
Mexíkó, er ekkert hrædd við að
ökumönnum verði svo um að sjá
hana léttklædda á auglýsingaskilt-
um meðfram evrópskum þjóðvegum
að þeir keyri hver á annan eða bara
út í skurð.
„Ég vona og trúi því að ökumenn
hafi meira vit í kollinum en svo.
Það ekur enginn út af vegna mín,“
segir hin 32 ára gamla leikkona við
sænska blaðið Expressen. Svíamir
hafa svona brennandi áhuga á mál-
inu af því að umrædd auglýsinga-
skilti eru frá fyrirtækinu Henn-
es&Mauritz.
Salma býr meö kærastanum sín-
um Edward Aterton og að eigin
sögn er hún ákaflega fylgjandi notk-
un smokka.