Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Blaðsíða 25
X>v FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 29 k Spessi sýnir bensínstöövar á Ijós- myndum sínum. Hönnun, mál- verk og ljósmyndir Á Kjarvalsstöðum fer í hönd síðasta sýningarhelgi á þremur sýningum. Þetta er sýning á al- þjóðlegri hönnun eftir þá Jasper Morrison, Marc Newson og Mich- ael Young, sýning á verkum eftir Kjarval og ljósmyndsýning Spessa. Þeir Jasper Marc og Mich- ael eru nú á meðal hinna fremstu á alþjóðavettvangi á sviði hönn- unar. Verk þeirra eru kynnt í öll- um helstu hönnunarritum sam- tímans og listinn yflr þau fyrir- tæki sem þeir starfa fyrir er nær samhljóða skrá yfir virtustu hönnunarfyrirtæki heims. Sýningar Á sýningunni Af trönum meist- arans eru verk frá síðustu tuttugu árum langrar starfsævi Jóhannes- ar Kjarvals. Ljósmyndir Spessa (Sigurþórs Hallbjörnssonar) eru myndaröð sem hann nefnir Bensín en hún er myndræn afurð ferðalags ljós- myndarans og sýnir íslenskar bensínstöðvar frá ýmsum tímum. Myndirnar lýsa afstæðum og mót- sagnakenndum fegurðarsjónar- miðum sem endurspeglast í þess- um alþjóðlegu fyrirbærum og menningarlegri einangrun þeirra í íslensku landslagi jafnt í sveit sem borg. Tríó Reykjavíkur er meðal flytjenda í Hverageröiskirkju. Bjartar sumarnætur Tónlistarhátíðin Bjartar sumar- nætur verður haldin í Hveragerðis- kirkju næstu þrjá daga. Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin er haldin og hefur hún fengið góðar viðtökur. Sem fyrr verður gott úrval flytj- enda, innlendra sem erlendra. Fyrstu tónleikarnir eru í kvöld kl. 20.30, þeir næstu á morgun kl. 17 og þriðju tónleikamir eru svo á hvíta- sunnudag kl. 20.30. Listamennimir sem koma fram eru Rachel Barton, fiðlusnillingur frá Bandaríkjunum, Signý Sæmundsdóttir sópransöng- kona, Edda Erlendsdóttir píanóleik- ari, Ragnhildur Pétursdóttir fiðlu- leikari, Junah Chung víóuleikari og Tríó Reykjavíkur sem skipað er þeim Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara, Gunnari Kvaran selló- leikara og Peter Máté píanó. Tónleikar Efnisskráin er breytileg á öllum tónleikunum og afar íjölbreytt. Með- al annars verða flutt kammerverk eftir Beethoven, Brahms, Chausson, Schuman og Jón Nordal, sönglög eftir Lizt og Sveinbjöm Svein- bjömsson. Þá mun Rachel Burton flytja sérstaka dagskrá með verkum fyrir fiðlu. Hljómsveitir á faraldsfæti Veðrið í dag Slydduél og skúrir Við suðurströndina er 981 mb lægð sem hreyfist austur og verður milli íslands og Færeyja síðdegis. í dag verður norðan en síðar norðvestanátt, stinningskaldi vest- anlands seinna í dag og sums staðar allhvasst í kvöld og nótt en gola eða kaldi austan til. Skúrir eða slydduél á vestanverðu landinu en annars rigning eða súld með köflum. Dreg- ur smám saman úr vindi vestan- lands á morgun. Hiti 1 til 9 stig, svalast á Vestfjörðum. Á höfuðborgarsvæðinu verður norðangola eða kaldi í fyrstu, en norðvestankaldi eða stinningskaldi síðdegis. Dálitlar skúrir og hiti 2 til 6 stig. Sólarlag í Reykjavík: 22.56 Sólarupprás á morgun: 03.52 Síðdegisflóð í Reykjavík: 23.39 Árdegisflóð á morgun: 12.20 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri skýjaó 6 Bergsstaöir skýjaö 5 Bolungarvík rigning 3 Egilsstaóir 5 Kirkjubœjarkl. rigning 5 Keflavíkurflv. skúr 4 Raufarhöfn Reykjavík úrkoma í grennd 3 Stórhöföi ringing 3 Bergen alskýjaö 16 Helsinki léttskýjaö 14 Kaupmhöfn skýjaö 12 Ósló léttskýjaó 14 Stokkhólmur 15 Þórshöfn rigning 8 Þrándheimur léttskýjaö 19 Algarve léttskýjaó 18 Amsterdam þokumóöa 12 Barcelona léttskýjaö 14 Berlín skýjaö 16 Chicago hálfskýjaö 19 Dublin rigning á síð.kls. 13 Halifax skúr 12 Frankfurt skýjaö 15 Glasgow Hamborg léttskýjaö 14 Jan Mayen súld 3 London léttskýjaö 12 Lúxemborg þokumóöa 11 Mallorca léttskýjaó 18 Montreal heiöskírt 11 Narssarssuaq skýjaó 2 New York heióskírt 15 Orlando skýjaö 21 París þokumóóa 13 Róm þokumóða 17 Vín skýjaó 14 Washington léttskýjaö 8 Winnipeg alskýjaó 10 Það verður mikið um að vera hjá hljómsveitunum Sóldögg og 8-villt rnn hvítasunnuhelgina en þær leika báðar á landsbyggðinni. í kvöld leik- ur Sóldögg ásamt hljómsveitinni Súrefni á árlegum hvítasunnudans- leik í Logalandi í Borgarfirði. Verð- ur boðið upp á óvænt skemmtiatriði auk þess sem skífuþeytari verður á svæðinu. Sætaferðir eru frá BSÍ, Akranesi og Borgamesi. Á laugar- dagskvöld heldur Sóldögg norður og leikur á Siglufirði en þar hefur sveit- in leikið á hvítasunnunni undanfar- in þrjú ár. Loks leika strákamir í Inghóli á Selfossi á hvítasunnudag. Skemmtanir Hljómsveitin 8-villt er einnig að leika á landshyggðinni um helgina. í kvöld verður hin átta manna hljómsveit í Félagsheimilinu Klifi, Ólafsvík, annað kvöld verður 8-villt á Hlöðufelli á Húsavík og á hvíta- Sóldögg leikur í kvöld í Logalandi í Borgarfirði. sunnudag verður hún á Hótel Mæli- felli á Sauðárkróki. 8-villt hefur ver- ið á fullu að hljóðrita lög fyrir vænt- anlega plötu og hefur einu þeirra, Hver er ég, verið hleypt á öldur ljós- vakans. Hvftasunnuhátíð á Grand Rokk Grand Rokk stendur fyrir tónlist- arveislu þessa dagana. I kvöld treður upp hljómsveitin Álfar en hún er skipuð þaul- reyndum tón- listarmönnum, Magnúsi Þór Sigmundssyni, Hirti Howser, Jóhanni Hjör- leifssyni, Frið- riki Sturlusyni og Jens Hans- syni. Á hvíta- sunnukvöld er það svo Popp- ers sem skemmtir gest- um. Sú sveit hefur getið sér gott orð fyrir kraftmikið rokk og líflega sviðsframkomu. Víðast hvar ágæt færð Vegir á hálendi íslands eru lokaðir fyrst um sinn vegna aurbleytu. Aurbleyta hefur einnig gert það að verkum að öxulþungi er takmarkaður víða og er það tilkynnt með merkjum við viðkomandi vegi. Yf- irleitt er takmörkunin miðuð við sjö eða tíu tonn. Ástand vega . Tff te %' ' JÉS ^►Skafrenningur 0 Steinkast " / ' ' E2 Hálka 0 Vegavinna-aðgát 0 Öxulþungatakmarkanir (3^) ófært ® Þungfært © Fært fjallabílum Færð á vegum Vegavinnuflokkar eru að störfum á nokkrum stöð- um á landinu, meðal annars á Snæfellsnesi og á suðvesturhorninu. Að öðru leyti er víðast hvar ágæt færð á öllum aðalvegum landsins. 'jf' ' Sonur Unnar Hrefnu og Róberts Myndarlegi drengurinn 16. maí síðastliðinn kl. á myndinni fæddist á fæð- 19.09. Við fæðingu var ingardeild Landspítalans hann fjórtán merkur og 50 sentímetrar. Foreldrai- hans eru Unnur Hrefna Rarn rlaarcinc Jóhannsdóttir og Róbert Darn aagsins Róbertsson. Michelle Pfeiffer og Treat Williams leika foreldrana sem týna syni sínum. Týndi sonurinn Stjörnubíó sýnir um þessar mundir Deep End of the Ocean. í myndinni leikur Michelle Pfeiffer móður sem verður fyrir þeirri reynslu að ungt barn hennar hverfur dag einn þegar hún er að gleðjast með fyrrum skólafélögum sem hittast á fimmtán ára út- skriftarafmælinu. Allir taka þátt í leitinni að barninu en árangurs- laust. Dagar líða sem verða að mánuðum og ekkert kemur fram sem gefur til kynna hvað orðið hefur ///////// Kvikmyndir um barnið. í marga mánuði neitar móðir- in að gefast upp en ákveður um síðir að þessum kafla sé lokið í lifi hennar og neitar að heyra nafn barnsins nefnt. Þessi umskipti hafa mikil áhrif á tvö börn henn- ar og eiginmann og má segja að fjölskyldan sé í upplausn þegar dag einn, nokkrum árum síðar, ungur drengur ber að dyrum og býðst til að slá blettinn. Bíóhöllin: 8MM Saga-Bíó: Varsity Blues Bíóborgin: True Crime Háskólabíó: Forces of Nature Háskólabíó: Arlington Road Kringlubíó: Belly Laugarásbíó: Free Money Regnboginn: Taktu lagið, Lóa Stjörnubíó: Oeep End of the Ocean Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 B 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 Lárétt: 1 bjúga, 7 ófríð, 9 geisla- baugur, 10 fé, 11 uppistöðu, 13 lán- aði, 15 gabba, 16 tvíhljóði, 17 fjölga, 19 eyri, 21 fljótur. Lóðrétt: 1 leiftur, 2 barn, 3 kostnað- ur, 4 viðurnefni, 5 karlmannsnafn, 6 glöggi, 8 bátar, 12 vitlausar, 14 rum, 16 málmur, 18 til, 20 öðlast. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 megn, 5 ský, 7 öðrum, 8 ró, 10 kjá, 11 ráin, 12 kaflann, 14 um, 16 landi, 18 róar 19 öln, 20 arkir, 21 an. Lóðrétt: 1 mökkur, 2 eðja, 3 grá, 4 nurlari, 5 smán, 6 kringla, 9 ónn, 13 flak, 15 mór, 17 inn, 19 ör. Gengið Almennt gengi LÍ 21 . 05. 1999 kl. 9.15 Eininn Kaup Sala Tollnenqi Dollar 73,740 74,120 73,460 Pund 118,510 119,120 118,960 Kan. dollar 50,300 50,610 49,800 Dönsk kr. 10,5080 10,5660 10,5380 Norsk kr 9,4830 9,5350 9,4420 Sænsk kr. 8,7090 8,7560 8,8000 Fi. mark 13,1358 13,2147 13,1780 Fra. franki 11,9066 11,9781 11,9448 Belg.franki 1,9361 1,9477 1,9423 Sviss. franki 48,7500 49,0200 48,7200 Holl. gyllini 35,4411 35,6541 35,5548 Þýskt mark 39,9329 40,1728 40,0610 (t. líra 0,040340 0,04058 0,040470 Aust. sch. 5,6759 5,7100 5,6941 Port. escudo 0,3896 0,3919 0,3908 Spá. peseti 0,4694 0,4722 0,4710 Jap. yen 0,595300 0,59890 0,615700 Irskt pund 99,169 99,764 99,487 SDR 99,020000 99,62000 99,580000 ECU 78,1000 78,5700 78,3500 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 ■c * r € K

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.