Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 Utlönd Rússar reyna enn aö binda enda á átökin í Kosovo: Sænski sendiherrann í sprengjuregni á ný Sprengjur flugvéla Atlantshafs- bandalagsins (NATO) viröast hund- elta sendiherra Svíþjóðar í Belgrad á röndum. Sendiherrann var í veislu hjá svissneskum starfsbróður sínum í gærkvöld þegar bústaður- inn var fyrir skemmdum af völdum sprengju NATO sem sprakk í nær- liggjandi eldisneytisbirgðastöð. Sænski sendiherrabústaðurinn skemmdist í loftárásum NATO á Belgrad í fyrrakvöld. Bretar og Bandaríkjamenn sögðu að loftárásunum yrði haldið áfram þar til Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti hefði gengið að öllum skilyrðum Vesturveldanna um Kosovo. Rússar hafa forystuna í að reyna að finna pólitíska lausn á átökunum í Kosovo. Sendimaður þeirra, Vikt- or Tsjemomyrdín, ræddi við full- trúa vesturveldanna langt fram á nótt en ekki urðu nein tímamót á þeim fundum. „Við munum halda áfram,“ sagði Berezovskí aftur kominn á kreik í Moskvu Skipan Sergeis Stepasjíns í embætti forsætisráðherra Rúss- lands kann að hafa opnað dymar að nýju fyrir hinum umdeilda kaupsýslumanni Borís Berezov- skí, að því er rússneskir fjölmiðl- ar greina frá. Þar tii í síðustu viku var Berezovskí enn í ónáð eftir að hafa áður haft mikil áhrif. Rússneskir fjölmiðlar fullyrða hins vegar að kaupsýslumaður- inn hafi nú tækifæri til að koma að bandamönnum sínum í stjóm Stepasjíns. Sumir fjölmiðla telja víst að Berezovskí sé aftur kom- inn í náð hjá Jeltsín Rússlands- forseta og að hann hafi átt þátt í brottrekstri Jevgenís Prímakovs. Hætta við út- gáfu bókar um Gianni Versace Bandaríska útgáfufyrirtækið Little, Brown and Co. hætti skyndilega í gær við útgáfu opin- skárrar bókar um tískukónginn Gianni Versace sem myrtur var fyrir utan heimili sitt í júlí 1997. Hætt var við útgáfuna þó að þeg- ar væri búið að senda gagn- rýnendum eintök af bókinni. Engin skýring var gefin á því hvers vegna höfundur bókarinn- ar, Bretinn Christopher Mason, hefði dregið handrit sitt til baka. Dagblöð í New York telja að Mason hafi óttast málsókn af hálfu Versacefjölskyldunnar. Þúsunda sakn- að eftir fellibyl í Pakistan Þúsunda er saknað eftir fellibyl í suðurhluta Pakistans í gær. Veðurhamurinn olli því að hús á ströndinni, þar sem er fjöldi lít- illa fiskibæja, brotnuðu í flóð- bylgjum. Björgunarmenn sögðu að enn væri óljóst hvort þeir sem saknað er hefðu getað leitað skjóls uppi í hæðum eða skolast burt með flóð- bylgjunni. Óveðrið gekk yfir um fjörutíu kilómetra austan við Karachi og hélt áfram í átt til Indlands. Að sögn íbúa í Gharo era eyði- leggingin gífurleg. Irena Dinic særöist þegar flugskeyti frá orrustuvélum NATO hæföi sjúkrahús í Belgrad þar sem hún var aö fæöa dóttur sína sem sést hér meö henni. Irena og nýfædd dóttir hennar voru fluttar á annaö sjúkrahús. Tsjernomyrdín að loknum fundum með Stobe Talbott, aðstoðarutanrík- isráðherra Bandaríkjanna, og Martti Ahtisaari Finnlandsforseta. Breska blaðið Daily Telegraph sagði í morgun að hershöfðingjar NATO íhuguðu að stöðva loftárás- imar áður en stjómvöld í Belgrad hefðu fallist á öll skilyrðin. Blaðið sagði að leiðtogar NATO ríkjanna væru að íhuga alvarlega áætlun sem Massimo D’Alema, for- sætisráðherra Ítalíu, lagði fram. Þar er gert ráð fyrir að loftárásirnar verði stöðvaðar um leið og Öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna hefði gert uppkast að samkomulagi um lausn deilunnar. Stjórnarerindrekar á fundi i Bonn í Þýskalandi eru einmitt að vinna að slíkum drögum. Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði að Bandaríkin stæðu enn heils hugar að baki NATO og að ekki væri hægt að semja um grand- vallarskilyrðin fyrir því að loftárás- unum verði hætt. Cristina Sanchez, fremsti kvennautabani Spánar, fær huggunarkoss frá fööur sínum á fundi meö fréttamönnum í Madríd í gær. Þar tilkynnti Cristina aö hún ætlaöi aö leggja sveröiö og slána á hilluna vegna karlrembunnar sem mætti henni í starfinu. Stúlkan var gráti nær. Nelson Mandela lofar hvíta í kveðjuviðtali Nelson Mandela, forseti Suður-Afr- Iku, lofaði í gær í kveðjuviðtali í sjónvarpi hvíta minnihlutann sem hélt honum fóngnum í 27 ár. í beinni útsendingu frá sveitasetri Mandela í Qunu, sagði Mandela að hvítir hefðu rétt fram sáttahönd og aðstoðað hann við að leggja niður kynþáttaaðskilnaðarstefnuna. Sam- starfið hefði verið miklu betra en hann hefði gert sér vonir um. Það hefðu ekki bara verið stofnanir heldur einnig einstaklingar sem hefðu sýnt jákvæð viðbrögð. Mandela, sem kvæntist ekkju Mó- sambíkforseta á áttræðisafmæli sínu í ágúst í fyrra, ætlar að setjast að í Qunu þegar hann lætur af for- setaembættinu 16. júní næstkom- andi. Ætlar Mandela að skrifa bók um fimm ára forsetatíð sína. Hann kveðst þó munu gegna störfum fyrir Mandela fær sér tesopa á fundi meö fréttamönnum í Pretoríu. Símamynd Reuter Afríska þjóðarráðið verði leitað til hans. Mandela ítrekaði að hann vildi að Thabo Mbeki varaforseti yrði eftir- maður sinn. „Velji þjóðin Thabo Mbeki sem næsta forseta tekur hún mjög góða ákvörðun.“ Mbeki, sem er sonur samfanga Mandela, Govans Mbeki á Robben- eyju, er lærði hagfræði í London. Hann var kjörinn leiðtogi Afríska þjóðarráðsins í desember 1997 og hefur síðan í raun stjómað. Afríska þjóðarráðinu er spáð ör- uggum sigri í kosningunum 2. júní næstkomandi. Samkvæmt könnun meðal stjórnmálaskýrenda hlýtur Afríska þjóðarráðið 61,8 prósent at- kvæða. Fýrrverandi Þjóðarflokkur- inn, sem nú heitir Nýi Þjóðarflokk- urinn, verður næststærstur með 9,9 prósent atkvæða. Stuttar fréttir dv Menningarvitar rífast Franski menntamaðurinn og byltingarsinninn fyrrverandi Ré- gis Debray hefur gert allt vitlaust í París með því að draga i efa þján- ingar Albana i Kosovo. Menning- arvitar skrifa hverja greinina á fætur annarri gegn honum. Hætta á klofningi Hætta er talin á að Kongress- flokkurinn á Indlandi klofni í kjölfar brott- vikningar þriggja hátt- settra flokks- manna. Þeir höfðu lýst því yfir að Sonia Ghandi, ekkja Rajivs Ghandis, fyrram forsætisráðherra, væri ekki hæf til að stjóma flokkinum vegna erlends uppruna síns. Fransmenn ánægðir Franski sendiherrann í Kaup- mannahöfn hefur lýst ánægju sinni með að lausn skuli fundin á miðlínudeilu Færeyinga og Breta. Sendiherrann heimsótti Þórshöfn i vikunni. Námsmenn mótmæla Indónesískir námsmenn minn- ast þess í dag að ár er liðið frá því Suharto forseta var bolað frá og verður það gert með mótmælaað- gerðum í helstu borgum og bæj- um landsins. Á móti byggingum Fulltrúi Palestínumanna hjá Sameinuðu þjóðunum hefur hvatt Öryggisráðið til að stöðva fram- kvæmdir á tveimur nýbygginga- svæðum gyðinga á arabísku landi í Jerúsalem. Varnarskjal Öcalans Abdullah Öcalan, leiðtogi skæruliðahreyfmgar Kúrda sem nú dúsir í tyrk- nesku fangelsi, hefur skrifað 110 síðna varn- arskjal með eig- in hendi, að því er Anatolian fréttastofan greindi frá. Þar tekur Öcalan fyrir ákærumar sem gætu leitt til dauðadóms yfir honum. Norska ríkið dæmt Mannréttindadómstóll Evrópu hefur dæmt norska ríkið til að greiða dagblaði í Tromsö um 7 milljónir íslenskra króna i bætur. Norskur dómstóll hafði dæmt blaðið til að greiða selveiðimönn- um bætur fyrir að birta skýrslu eftirlitsmannsins Odds Lindbergs um veiðiaðferðir þeirra. Lélegt viðhald Saksóknarar í Þýskalandi álykta að lélegt viðhald hafi valdið lestarslysinu í fyrra sem 101 lést í. Havel á sjúkrahús Vaclav Havel, forseti Tékklands, var í gær fluttur á sjúkrahús. For- setinn varð í fyrradag að af- lýsa ýmsiun er- indum í þessari viku vegna veirusýkingar í brjósti. Tals- maður forsetans sagði síðar að hann væri með bronkítis. Heilsa Havels hefur verið slæm undanfar- in ár. Hann gekkst undir aðgerð vegna krabbameins í lungum 1996. Dæmdur til dauða Tyrkneskur dómstóll dæmdi í gær kúrdíska PKK-leiðtogann Semdin Sakik til dauða. Sakik er nánasti samstarfsmaður Abdullahs Öcalans, leiðtoga PKK. Arabísk á ísraelsþing í fyrsta sinn í sögu fsraels hefur arabísk kona, Husania Jabara, hlotið sæti á ísraelsþingi. Hún er yflrmaður námsstofnunar um Miðausturlönd í Beit Berl- háskólanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.