Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 Fréttir__________________________dv DV fylgist með hjartaaðgerð á 16 ára pilti á skurðdeild Landspítalans: Hjartað stöðvað í 15 mínútur - ein af rúmlega 200 hjartaaðgerðum á ári - starfsfólk yfirvegað og ákveðið Bjarni vann af mikilli ákveðni á meðan aðgerðinni stóð. Höfuð Gunnars Jó- hanns í forgrunni. DV-myndir GVA 16 ára piltur úr Reykjavík, Gunnar Jóhann Gunnarsson, gekkst i fyrra- dag undir hjartaaðgerð á Landspítal- anum þar sem gati, sem hann fædd- ist með á milli hjartahólfa, var lokað. Hjarta piltsins var stöðvað í 15 mín- útur á meðan skurðlæknamir tóku flipa úr gollurshúsinu og græddu svo fyrir gatið. Tíu starfsmenn skurð- deildarinnar unnu við verkið sem tók á þriðju klukkustund. Þetta var ein af rúmlega 200 hjartaaðgerðum sem gerðar em hér á landi á ári. Hún var í raun alls ekkert óvenjulegri en aðrar hjartaaðgerðir nema hvað sjúk- lingurinn var yngri en í meðallagi, þó alls ekki með þeim yngstu. Mjög ung börn þurfa stundum að gangast undir hjartaaðgerðir. DV fékk að fylgjast með aðgerðinni sem gekk að óskum undir stjórn Bjarna Torfasonar yfirlæknis. Óhætt er að segja að andrúmsloftið á skurð- stofunni hafi verið ótrúlega yfirveg- að. Hver fagmaðurinn á fætur öðrum vann sitt starf ýmist í hljóði eða tal- aði ákveðið til samstarfsmanna sinna þegar á þurfti að halda. Allir áttu þó eitt sameiginlegt: „að vera á tánum“ - athyglin og einbeiting var til stað- ar, svo ekki sé meira sagt. Engin hjartaaðgerð er hættulaus. „Nú förum við inn“ Eftir að Bjarni læknir hafði látið blaðamann og ljósmyndara fara í „skurðstofugalla" í búningsherbergi var haldið út á skurðgang. Klukkuna vantaði tíu mínútur í níu að morgni. Það var búið að svæfa sjúklinginn. Hans beið nú holskurður og stórað- gerð. Andrúmsloftið frammi á skurð- ganginum, þar sem starfsfólkið setti á sig tilheyrandi höfuðbúnað og maska, einkenndist af samkennd en í senn gamni og alvöru. Maður sá bara í augu fólksins. Það var að þvo sér um hendurnar. Ýmist að koma eða fara á aðrar skurðstofur. „Jæja, nú komum við bara inn,“ sagði Bjami og gekk að hurð meö gleri. Fyrir innan sást í fjölda tækja og grænklæddra manna og kvenna. „Best er að þið verðið við höfðalagið hjá sjúklingnum, þar sem svæfinga- fólkið er,“ sagði einhver. Gunnar Jó- hann, 16 ára, var umkringdur fólki, sveipaður grænni ábreiðu. Aðeins sást í bringu hans. Það heyrðust píp- hljóð í öllum hjartatækjunum. Fjöldi skjáa sýndi allt sem vita þurfti um ástand piltsins. Þegar inn var komið sagði Hanna Þórunn Axelsdóttir svæfingahjúkr- unarfræðingur: „Ef það er að fara að líða yfir ykkur þá látið þið bara vita.“ Aðgerðin var að hefjast. Hanna og Hjörtur Sigurðsson svæfingalækn- ir sáu um að allt gengi rétt fyrir sig þar sem slöngur voru leiddar úr tækjum, m.a. í munn sjúklingsins. Viktor og vélin tóku við Fjórir stóðu yfir væntanlegum hol- skurði. Aðallæknir sjúklingsins, Bjarni, og Matthildur Guðmannsdótt- ir skurðhjúkrunarfræðingur öðrum megin en gegnt þeim til aðstoðar stóðu Þórarinn Arnarson hjarta- skurðlæknir og Kristín Huld Har- aldsdóttir deildarlæknir (komin 5 mánuði á leið). Allir klárir. Bjarni hóf að rista upp skurð. Það fannst Viktor Magnússon við hjarta- og lungnavélina sem tók við á meðan hjarta sjúklingsins var stöðvað. Vél- in dælir blóði og súrefni um líkama sjúklingsins. Opinn holskurður. Hjartað slær. Arnar Rafnsson, læknanemi á 2. ári, fylgist með aðgerðinni. brunalykt því skurðhnífurinn var heitur. Þeir sem ekki komust að gátu fylgst með af skjá, m.a. Arnar Rafns- son, læknanemi á 2. ári. Fljótlega var Bjarna réttur rafknúinn sagarhnífur Flipi var tekinn úr gollurshúsinu og hann síðan græddur á vegginn á milli hjartahólfanna þar sem gat hafði verið frá fæðingu. og bringubeinið var klofið og því þrýst í sundur. Nú sáust brátt lungu og hjarta. Menn tóku á öUu af mikiUi ákveðni og yfirvegun. Til hliðar sat Viktor Magnússon tæknimaður við hjarta- og lungnavél- ina sem átti að taka við þegar hjarta piltsins yrði stöðvað. Skammt undan voru Þórunn Kjartansdóttir og Rann- veig Þorvarðardóttir skurðhjúkrun- arfræðingar. Eftir drykklanga stund sýndi Viktor blaðamanni þegar leiðslur vélarinnar fóru að verða ljós- rauðleitar. Vélin var að byrja að taka við og dæla blóði og súrefni um lík- ama sjúklingsins á meðan hjartað var opnað til að loka gatinu. Hjartað stöðvast Klukkan tíu stöðvaðist hjartað. Vélin var tekin við. AUt var eðlilegt. Nú var brátt hægt að sjá gatið sjálft á hjartanu. Flipi var tekinn úr goUurs- húsinu og hann græddur á vegg- inn á miUi hjartahólfanna. AUt gekk að ósk- um. Einbeiting skein úr augum læknanna sem stóðu yflr skurð- inum. Eftir 15 mínútur var búið að græða flipann á og ganga frá þannig að hjartað gæti slegið aftur. Sumir þurfa „stuð“ til að fara í gang aftur. Ekki Gunnar Jóhann. Hjarta hans fór sjálft af stað og gekk reglulega á ný klukkan 10.15. Andrúmsloftið var farið að léttast. Nú var frágangsvinn- an eftir, að loka öUu, taka réttar leiðslur, sauma aUt saman - ekki síst bringubeinið sem var „hnýtf ‘ saman á fimm stöðum með vír og klemmum. Þetta mun ekki sjást á sjúklingnum. Hann stóð .sig vel, enda hraustur mjög. Pilturinn haíði ekki hlotið skaða af því að hafa haft gat á miUi hjartahólfanna. „En það mátti ekki bíða lengur með þessa aðgerð," sagði Bjami. „Hún þýðir að nú hefur pilturinn jafnmiklar lífslíkur og annað heU- brigt fólk.“ Hjartaaðgerð sem þessi kostar um eina miUjón króna. Bjarni segir það ekki mikið miðað við þann kostnað sem af hlýst ef viðkomandi fer ekki í aðgerðina. „Jafnvel þó um sé að ræða fólk um áttrætt þá kosta hjartaaðgerð- ir þjóðfélagið minna en sá kostnaður sem af hlýst, ég tala nú ekki um þján- ingar, ef aðgerðirnar eru ekki fram- kvæmdar," sagði Bjarni Torfason. DV þakkar starfsfólki Landspítal- ans hlýjar móttökur. -Ótt Bringubeinið „hnýtt“ með vír og klemmt saman. Bjarni Torfason hjartaskurðlæknir. sandkorn Sigurður í mál Sigurður Einarsson, forstjóri Ishúsfélagsins í Vestmannaeyj- um, ætlar í mál við sjávarútvegs- ráðuneytið á grundveUi kvóta- dómsins margfræga, nánar tiltek- ið vegna úrelding- arreglna sem eru í uppnámi vegna hans. Þama mun verða bitist um dágóðar upphæð- ir og hundruð miUjóna gjaman nefnd í því sam- bandi. Hið skondna í mál- inu þykir hins vegar að þessi sami Sigurður er formaður sjáv- arútvegsnefndar Sjálfstæðis- flokksins sem þykir eiga einn stærstan þátt í að úreldingarregl- urnar voru settar og síðan við- haldið. Svona vUja hlutimir snú- ast í argaþrasi hversdagsins... í ráðherraröð Innan Sjálfstæðisflokksins er vaxandi umræða á þeim nótum að röð kvenna tU ráðherradóms verði Arnbjörg Sveinsdóttir, Sigríður Anna Þórðardjóttir og Sólveig Péturs- dóttir, í þessari röð. Bent er á að Arndis leiði lista sem hafi bætt talsvert við sig á Austurlandi og hún sé einnig landsbyggðarþing- maður. Miðað við fylgi flokksins á Reykjanesi þá standi Sigríður Anna nær því að verða annar ráðherra flokksins frá Reykjanesi heldur en Sólveig fjórði ráðherr- ann frá Reykjavík... Nafnarnir Þeir sem sjá Gunnar I. Birgis- son, nýkjörinn þingmann sjálf- stæðismanna á Reykjanesi, og Gunnar Inga Gunnarsson, lækni og einn af talsmönnum Frjálslynda flokks- ins í kosningabar- áttunni, saman detttm vart í hug að þeir eigi neitt sameiginlegt. En glöggir menn sjá væntanlega fljótt að þeir em nafn- ar því að á bak við I-ið Birgisson- ar leynist nafnið Ingi. En þá er ekki öU sagan sögð. Sandkomi var tjáð það að Gunnar Ingi Kópavogsmaður hefði verið nefhdur eftir Gunnari Inga lækni sem er árinu eldri. Kemur það til af því að móðir Gunnars Kópa- vogsmanns á að hafa sagt við móður læknisins, en þær þekkt- ust, að ef hún eignaðist son mundi hann líka heita Gunnar Ingi... Skallaði stjórann Borgarkórinn í Reykjavík lagði land undir fót um kosningahelg- ina og skeUti sér tU Grímseyjar til þess að skemmta sér og eyjar- skeggjum. Eftir vel heppnaða tón- leika vom kórfélag- ar aUs ekki hættir að syngja, hófu upp raust sína í anddyri félags- heimilisins og sungu með því- líkum bravör að stjórnandi kórs- ins, Sigvaldi Kaldalóns, tók mikU bak- fóU af ánægju, eins og honum er einum lagið. Ekki vildi betur til en í þann mund sem Sigvaldi slengir höfðinu aftur á bak að hann skallaði hreppstjórann í Grímsey beint á ennið meö tölu- verðum dynk. Ekki urðu þó al- varleg slys á mönnum við þessa tilburði... Umsjón Haukur L. Hauksson Netfang: sandkom (ffiff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.