Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999
5
Fréttir
Granada
Granada
Óánægja fangavarða á Litla-Hrauni:
Fangelsisstjórinn með
bílastæði innan giröingar
Stjórn Fangavarðafélags íslands
hefur sent fangelsismálastjóra og
dómsmálaráðuneytinu bréf þar sem
kvartað er yfir stjómleysi og hroka
yfirmanna í fangelsinu á Litla-
Hrauni. í bréfinu segir að áherslur í
stjómun fangelsisins hafi breyst og
stjómendur séu orðnir fjarlægari
föngum og starfsmönnum en verið
hafi.
„Ég ræði ekki innihald þessa
bréfs fyrr en ég hef rætt það við
fangelsismálastjóra," sagði Ari B.
Thorarensen, formaður Fanga-
varðafélagsins, en hann undirritar
bréfið fyrir hönd stjómar. í niður-
lagi bréfsins eru bílastæðamál
Kristjáns Stefánssonar fangelsis-
stjóra tekin sem dæmi um stjómun-
arstíl hans og samskipti við starfs-
menn og fanga: „Fangaverðir sjá
framkvæmdastjórann leggja bíl sín-
um við skrifstofudymar innan girð-
ingar á hverjum degi sem öllum
starfsmönnum er þó meinað. Það er
það eina sem fangaverðir sjá til
þessa æðsta manns á staðnum. Ef
framkvæmdastjórinn notaði sama
bílastæði og fangaverðirnir þá gæf-
ist honum kannski færi á að kynn-
ast einhverjum þeirra á stuttri
göngu inn fyrir hlið,“ eins og segir í
bréfi fangvarðanna sem bíða nú við-
bragða yfirvalda. -EIR
Litla-Hraun - fangaverðir kvarta.
Lögreglan:
Ráðþrota gagnvart
listaverkaþjófnaði
„Við erum engu
nær. Þama var ekki
einvörðungu verið að
stela tækjum heldur
listaverkum sem vora
innbyggð í tækin,“
sagði Gunnleifur
Kjartansson rannsókn-
arlögreglumaður um
þjófnaðinn sem fram-
inn var á útskriftar-
sýningu nemenda í
Myndlista- og handíða-
skóla íslands í nýjum
húsakynnum Lista-
skóla íslands i Laugar-
nesi um síðustu helgi.
Stolið var tölvum,
myndbandstækjum og
geislaspilurum sem
allt var hluti af lista-
verkum nemenda.
Útskriftarsýning
nemendanna var í SS-húsinu svo-
kallaða sem mun hýsa Listaskóla ís-
lands í framtíðinni. Lögreglan
stendur ráðþrota gagnvart þeirri
spurningu hvernig þjófurinn eða
þjóíárnir komust inn í bygginguna
en helst hallast menn að því að við-
komandi hafi falið sig í sýningarsöl-
Stílhreinn og þægilegur
Granada sófi, klæddur míkróvelúr. Sessur bólstraðar með kaldsteyptum svampi.
Fæst í mörgum litum og gerðum áklæða. 3ja sæta sófi, L220 sm. kr. 73.240,-.
2ja sæta sófi, L160 sm, kr. 57.490,-. StólL, L96 sm, kr. 39.980,-
ÚUb ,
Thakat sófaborð úr fornfáðumLbýflugnaVaxbornum see
Frá útskriftarsýningu myndlistarnemenda. Tölvan
sem drengurinn situr við er hluti þess sem stolið
DV-mynd Hari.
var.
unum þar til allir voru farnir og þá
látið til skarar skríða.
Tjónið vegna þessa er ekki aðeins
fjárhagslegt fyrir nýútskrifaða nem-
endur heldur einnig tilfinningalegt
þar sem með tækjunum hurfu
einnig listaverkin sjálf. Rannsókn
málsins heldur áfram. -EIR
sm
57.490
HUSGAGNAHÖLUN
Bildshöfdi 20-112 Reykjavík Sími 510 8000
Vítvi v\m eYV\ ^öH- geVt*.
SM<wcölltwn SíWfölL\vvi\tA\ sh\1\ia\
\ó i\v sé eVV\
Með símtalsflutningi Símans er hægt að vísa öflum hringingum
í þinn síma, í annað númer hvar sem er á landinu. Hægt er að
vísa símtölunum í venjulegan síma, farsíma, talhólf, svarhólf
eða boðtæki og sá sem hringir verður ekki var við flutninginn.
Sækja þarf um símtalsflutning hjá Símanum.
Símtal flutt: □ 21 □. Númerið sem á að flytja hringinguna
í er valið og síðan ýtt á □.
Þjónusta gerð óvirk: □ 210.
www.simi.is
LEIÐBEININGAR UM NOTKUN SIMTALSFLUTNINGS
ÞÚ GETUR PANTAÐ SÉRÞJÓNUSTU Á ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVUM SÍMANS OG í GJALDFRJÁLSU NÚMERI