Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 Spurningin Átt þú GSM-síma? Jónína Víglundsdóttir nemi: Nei, ekki enn þá. Atli Guðbjömsson nemi: Já, ég á þennan fína farsíma. Hafrún Sigurðardóttir nemi: Nei, ég á ekki farsíma. Erla Skagfjörð Jósefsdóttir hús- móðir: Nei, það hefur aldrei hvarfl- að að mér. Magnús Ó. Gunnarsson öryggis- vörður: Já, að sjálfsögðu. Kjersti Jörgensen nemi: Já. Lesendur Klifað á ofþenslu í efnahagslífi - hræðslan við kreppu ávallt til staðar Aukinn sparnaður í þjóðfélaginu er það eina sem getur haldið stöðugleikan- um og góðærinu. Vaxtastefnan getur stillt af eyðsluna, segir m.a. í bréfinu. Guðjón Sigurðsson skrifar: Þeir eru áberandi í hópi stjórnar- andstæðinganna hér sem ekki mega til þess hugsa að áfram verði stöð- ugleiki í efhahagslífmu og góðæri haldist til lands og sjávar. Þeir klifa á ofþenslu í efnahagslífmu hvenær sem þeir eru teknir tali í fjölmiðlun- um og grípa til ummæla banka- stjóra Seðlabankans og aðila á fjár- magnsmarkaðnum, en þeim síðar- nefndu er ekki rótt vegna hæga- gangs sem farið er að gæta I um- sýslu hlutabréfa. Auk þess sem að undanfórnu hafa riðað til falls fyrir- tæki sem áður þóttu bera sig allvel í atvinnulífmu. - Má þar nefna tvö stór fyrirtæki í sitt hvorum höfuða- tvinnuvegi þjóðarinnar, Vinnslu- stöðina í Vestmannaeyjum og Kaup- félag Þingeyinga. Nú er það svo að engin sérstök merki eru um að verðbólga sé slík hér að nokkur ástæða sé til að ör- vænta. En hræðslan við kreppu hér er sífellt til staðar, því sporin hræða frá árum vinstristjórna og eyðslu- stefnu þeirra. Gott gengi er hins vegar í útflutningi okkar íslendinga nú og viðskiptakjörin eru í sama horfi og undanfarin ár. Það er engu að síður rétt sem Seðlabankinn hefur ítrekað, að að- hald í peningastefnu landsmanna er nauðsynlegt, og raunar úrslitaatriði þegar áherslu skal leggja á að verð- bólga fari ekki af stað á ný. Hér blæsi ekki byrlega kæmust stjórnar- andstöðuflokkarnir með Samfylk- inguna í fararbroddi til valda í því góðæri sem enn ríkir í landinu. Framkvæmdir á vegum hins opin- bera hefðu farið fram úr öllu hófi með auknum lántökum hérlendis sem erlendis. Á næstu mánuðum og misserum verður það vaxtastefnan sem ræður úrslitum um hvemig til tekst að halda í horfinu. Hækkun vaxta er raunverulega eina ráðið sem stjóm- völd hafa til að stilla af eyðslu - og upphlaupsstefnu óábyrgra aðila sem vilja endilega klúðra efnahags- batanum og stöðugleikanum. Auk- inn og umtalsverður sparnaður í þjóðfélaginu er það eina sem getur haldið stöðugleikanum og góðærinu margnefnda. - Það er því nauðsyn- legt að endumýjun ríkisstjórnar- innar eigi sér stað sem allra fyrst svo að fólk ánetjist ekki slagorða- flaumi þeim sem t.d. samfylkingar- menn ausa yfir þjóðina þessa dag- ana um ofþenslu og krepputal sem dregur kjark úr almenningi. Islend- ingar hafa það gott, og hér er gósen- land tækifæra og uppbyggingar með sparnað að leiðarljósi. Hvar eru mannréttindin? 250853-2469 skrifar: Tilefni þessara lína em þær að fyrir nokkrum árum var kona í sambúð og átti með manninum tvö börn. Sambúðin gekk ekki og fór maðurinn á fund Félagsmálastofn- unar og sagði foreldrana ekki geta séð fyrir börnunum. Skipti þá eng- um togum; bæði bömin voru tekin umsvifalaust af móðurinni, án þess að við hana væri rætt orð eða systk- ini konunnar um ástand hennar. Henni var svo bannað að hafa sam- band við bömin, bæði símleiðis og bréfleiðis. Fékk þó að sjá þau einu sinni á ári í allt að klukkustund og þá undir eftirliti. Skyldi nokkum undra þótt kon- an brotnaði niður við slíkar trakt- eringar. Var henni þá komið fyrir í sambýli og þröngvað til að taka sprautur sem áttu að vera gegn þunglyndi, en höfðu síður en svo bætandi áhrif á líðan hennar. Loks kom þar að hún hætti tímabundið að taka við sprautunum og fór þá að rofa til, hún leit lifið bjart£u:i augum og orðin mun hressari. - En þá brjóta félagsmálayfirvöld kon- una niður aftur og neyða hana með valdi til að taka við sprautunum á ný. Fyrir skemmstu var haldinn fundur með konunni og öðrum manni í sambýlinu (ekki þó sam- býlismanni hennar) og sást þá rauðvínsflaska er einhver gestkom- andi hafði haft meðferðis og skilið eftir. Fyrir þetta er þeim vísað á götuna. Tekið skal fram að bæði stunda vinnu á vemduðum vinnu- stað, þar sem launin era það lítil að þau rétt hrökkva fyrir allra brýn- ustu lífsnauðsynjum. Er nú furða þótt maður spyrji sjálfan sig hver stefnan sé hjá fé- lagsmálayfirvöldum, hvort hún sé í því fólgin að brjóta fólk niður? Mér fyndist eðlilegra að hjálpa fólki til að takast á við lífið og vísast þá til ofangreinds dæmis. Ráðherrasýkin hamlar stjórnarmyndun Ólafur Ólafsson skrifar: Það er orðið almælt að ástæða þess að ríkisstjómarmyndun dregst á langinn sé að alltof margir flokks- menn stjórnarflokkanna séu að kalla eftir ráðherraembætti. Er nokkur ástæða til að sinna því kalli eða taka það alvarlega? Mér finnst það ekki og svo er um fjölda annarra að þvi sem mér heyrist á máli manna. Ef fjölga á ráðherrum í 12 verður mikið rask á Alþingi eina ferðina enn vegna of fárra stóla. - Auk þess verður ekki vinsælt að fjölga ráð- herram um tvo, enda engin ástæða [Ld^llíiQID^ þjónusta allan sólarhringinn Aðeins 39,90 mínútan - eða nringið i sima 5000 milli kl. 14 og 16 Ef fjölga á ráðherrum verður rask á Alþingi eina ferðina enn vegna stóla- skorts og piássleysis. til þess. Ef sinna á kalli nýrra karla og kvenna sem vilja í ráðherrastól er hægur vandi að skipta út ráðherram sem eru búnir að sitja i embættum tvö kjörtímabil eða lengur samtals. Ég á auövitað ekki við formenn nú- verandi stjórnarflokka. Þeir ráðherrar sem mesta gagn- rýni hafa fengið vegna mistaka eða vanhæfi að öðru leyti mega gjarnan vikja fyrir nýju og frískara fólki. - En aðalatriðið er að ekki verði ráð- herrasýkin til að hamla stjómar- myndun. I>v I Þakkir til IKEA Helga Bára Magnúsdóttir skrifar: Mig langar til að koma á fram- færi þakklæti til verslunarinnar IKEA fyrir þjónustu í versluninni. - Ég hafði samband þangað vegna skóskáps sem ég keypti og þarnað- ist lagfæringar. Það leið ekki á löngu þar til bílstjórinn sem flutti skápinn heim kom aftur með nýj- ar grindur í skápinn og allt var í besta lagi. Þetta kalla ég einfald- lega hundrað prósent þjónustu. - Kær kveðja til ykkar i IKEA. Dagfari utangátta Ingimundur Friðriksson, að- stoðarseðlabankastj. Seðla- banka íslands, skrifar; Ekki verður annað séð en að Dagfari DV hafi verið utangátta síðustu mánuði. í DV þriðjudag- inn 18. maí segir hann Seðla- banka íslands fyrst hafa varað við hættu á ofþenslu í islensku efna- hagslífi eftir kosningar. Stað- reyndin er hins vegar sú að und- anfarna mánuði hefur Seðlabank- inn ítrekað varað við hættu á of- þenslu. Benda má m.a. á haust- skýrslu bankans frá því í nóvem- ber sL, ■aðgerðir bankans í febrú- ar sL, þ.e. vaxtahækkun og lausa- fjárkvöð á lánastofnanir, ræðu formanns bankastjómar á árs- fundi bankans 30. mars sl., árs- skýrslu bankans sem gefin var út á ársfundinum, yfirlitsgreincir í Hagtölum mánaðarins og viðtöl við bankastjóra Seðlabankans og aðra yfirmenn í bankanum í fjöl- miðlum. Skilaboðin hafa verið skýr svo Dagfari hefur greinilega verið utangátta. Hagfræðin hjá ASÍ Friðrik Einarsson hringdi: í blaðinu Degi sl. miðvikudag voru nokkrir málsmetandi spurð- ir spurningarinnar Hvemig á að bregðast við vaxandi verðbólgu- hættu? - Hagfræðingur ASÍ er einn svarenda. Hagfræðingurinn hefur akkúrat engin svör á hendi eða ráðleggingar vegna vaxandi verðbólguhættu sem ýjað er að í spurningunni, en tekur til við að rekja aðdraganda umræðunnar um vaxandi verðbólgu. Segir það sérkennilegt að hið opinbera gangi fram með þessum hætti og komi fyrst nú og áminni launa- fólk um takmarkað svigrúm þeg- ar undirbúningur fyrir kjara- samninga er að hefjast. - Ég minnist þess hins vegar ekki að stjómvöld hafi áminnt launafólk um takmarkað svigrúm vegna launahækkunar. Ég tek fram að allir hinh' sem spurðir vora svör- uðu með ráðleggjandi hætti, hver fyrh’ sig. Öfund út í Bandaríkin Þorbjöm skrifar: Mér sýnist fara vaxandi sú ónáttúra íslendinga að öfundast út í hver annan. Þetta kemur fram í ýmsum pistlum, jafnvel út- varpsþáttum þar sem hlustendur geta talað út eins og það er kallað, og líka i greinaskrifum manna vegna hinna og þessara atriða í þjóðmálunum. Ég minnist í fljótu bragði t.d. gagnagrunnsmálsins, kvótans og fleiri mála sem menn hafa rætt um. Einnig er enn vera- lega áberandi öfundin út í Bandaríkin, sem við eigum mikið að þakka gegn- um áratugina. Sennilega er sú öf- und mest sprottin af ríkidæmi Bandaríkjanna, sem er auðvitað feiknmikið og fáum gefið að meta. Öfundin út í Bandaríkin er mest áberandi hjá mörgum sem telja sig í hópi hinna menntuðu og skýrist varla af öðu en því að þeir sjái mest eftir þvi að vera ekki að- njótandi alls þess sem býðst á sviði menntunnar og rannsókna hvers konar í hinu vestræna vel- sældarríki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.