Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Síða 7
FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999
7
:r«f?U*StWII
Græni herínn er sjálfboðaliðaher stofnaður með það að leiðarljósi að
taka ærlega til hendi um gjörvallt ísland og að hafa gaman af þvi um
teið. Markmiðið er að sameina krafta áhugasamra sjálfboðaliða til að
rækta og fegra byggðir og ból með samstilltu átaki. Hvert byggðarlag
tekur sinn „Gestasprett", þar sem liðsmenn Græna hersins einbeita
sér að gróðursetningu, hreinsun, málun og fjarlægingu hættulegra
efna en verkefnin, sem ráðist verður í á hverjum stað, verða valin í
samráði við viðkomandi bæjar- og sveitarfélög.
SJONVARPJÐ
Sjónvarpið og Rás 2 munu jylgja Græna
hernum um landið ogflytja vikulega
fréttir af kærleiksríkum afreksverkum
hans og annarra sem láta gott afsér
leiða í byggðum landsins.
n@rkwaðning
Herínn er opinn öllum einstaklingum 16 ára og eldri, félögum og samtökum sem
áhuga hafa á ræktun og fegrun landsins og vilja Ijá góðu málefni lið. Skilyrði fyrir
þátttöku er að viðkomandi treysti sér til u.þ.b. 6 klst. vinnu eftir hádegi tiltekinn
föstudag, laugardag eða sunnudag á tímabilinu 4. júní til 4. september 1999. Fjöldi
liðsmanna verður takmarkaður við 50 á hverjum stað. Þeir sem fyrstir skrá sig ganga
fyrir. Best er að skrá sig á heimasíðu Græna hersins: www.graeniherinn.is. Einnig er
hægt að nálgast skráningarblað hjá helstu styrktaraðilum.
S'imjy !«!mI
Við skráningu í Græna herinn undirgangast nýliðar eftirfarandi skyldur:
Að taka þátt i bráðskemmtilegu 6 klst. átaki á ákveðnum stað og tíma. Að koma fram
af hæversku í hvívetna. Að ganga vel um gróna jörð. Að ástunda náttúruvænt líferni.
w irni!»MSi
Stuðmannaball!
Umbun til hermanna er m.a. fólgin i: Fríum aðgangi að skemmtun Stuðmanna i þvi
byggðarlagi sem vinnan er innt af hendi; einkennisbúningi Græna hersins; líkamlega
og andlega hressingu á undan og við skyldustörf og grillveisla að verki loknu;
fullnægju og gleði sem fylgir vel unnum störfum.
TOYOTA
SAMSKIP
BB
*
HIvar »g hivenær
Áættað er að heimsækja eftirfarandi
staði á umræddu tímabili:
Suðumes 4. og 5. júni
Akureyri 11. og 12. júní
Hrísey 13. júní
Patreksfjörður 18. júní
Hnífsdalur 19. júni
Ólafsvik 25. júni
Hofsós 26. júni
Blönduós 2. júli
Borgarnes 3. júlí
Kópavogur 4. júlí
Selfoss 9. og 10. júli
Seyðisfjörður 15. júlí
Húsavík 16. júli
Ólafsfjörður 17. júli
Vík i Mýrdal 22. júli
Höfn 23. júlí
Egilsstaðir 24. júlí
Siglufjörður 25. júli
Mosfellsbær 6. ágúst
Seltjarnarnes 7. ágúst
Sauðárkrókur 13. ágúst
Hafnarfjörður 14. ágúst
Vopnafjörður 20. ágúst
Neskaupsstaður 21. ágúst
Hveragerði 27. ágúst
Aðaldalur 28. ágúst
Reykjavik 3. og 4. september
UMHVERFISRAÐUNEYTIÐ
SPARISJOÐIRNIR
&
-M ÍSLANDSFLUG
ÁFÖRM
Vistvænt ísland
Allar nánari upplýsingar fást á heimasíðu Græna hersins • www.graeniherinn.is • graeniherinn@simnet.is • sími: 561 3800