Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aöstoöarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11, 105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, simi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Verkefni nýrrar ríkisstjórnar
Ný ríkisstjórn tekur við völdum í dag, þriðja ráðu-
neyti Davíðs Oddssonar í röð og annað kjörtímabilið
þar sem Sjálfstæðisílokkurinn og Framsóknarflokkur-
inn starfa saman. Framhald stjórnarsamstarfsins er
eðlileg afleiðing niðurstaða nýliðinna kosninga. Þar
hélt ríkisstjórnin velli með ríflegum meirihluta þótt
Sjálfstæðisflokkurinn kæmi betur út úr kosningunum.
Liðið kjörtímabil var farsælt, samstarf stjórnarflokk-
anna var gott og góðæri ríkti. Við upphaf nýs kjörtíma-
bils er enn góðæri en blika á lofti. Nýrrar ríkisstjórnar
bíða ærin verkefni. Þensla er í atvinnulífi, einkum á
höfuðborgarsvæðinu. Þar er þrefalt meiri vöntun á
vinnuafli en á sama tíma í fyrra.
Innlendar og erlendar fjármálastofnanir hafa varað
við þróuninni. Seðlabankinn og Þjóðhagsstofnun benda
á þensluna og þá hættu að verðbólga þokist upp á við.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar líka við hættu á auk-
inni verðbólgu. Stofnunin telur að í fjárlagagerð verði að
hemja eftirspurn á fjármálamarkaði. Jafnframt bendir
hún á nauðsyn þess að draga úr ríkisútgjöldum og ekki
síst að draga úr launaskriði hjá ríkisstarfsmönnum.
Kjaramálin eru einmitt eitt hinna stóru verkefna sem
bíða nýju stjórnarinnar. Almennir kjarasamningar eru
lausir á næsta ári. Launafólk lagði í raun grunn að vel-
ferð undanfarinna ára með svokölluðum þjóðarsáttar-
samningum sem að mestu hafa verið endurnýjaðir á
liðnum áratug. Samningagerðin kann að reynast erfið-
ari á komandi ári, ekki síst vegna launahækkana sem
opinberir starfsmenn hafa fengið umfram aðra. Þá
gleymist heldur ekki nýleg 30 prósenta hækkun sem
Kjaradómur dæmdi þingmönnum, ráðherrum og æðstu
embættismönnum á nýliðnum kjördegi. Sú hækkun
hleypti Hlu blóði í verkalýðsforystuna og verður án efa
viðmið við kröfugerðina.
Kjaramál eldri borgara og öryrkja verða einnig ofar-
lega á baugi. Þessir hópar vísa líka tH fordæmis sem ný-
genginn úrskurður Kjaradóms gaf og benda um leið á
að samræma þurfi þróun launa og tryggingagreiðslna.
Að mati landsfundar Landsambands eldri borgara var
kaupmáttaraukning almennra launa mun meiri en
tryggingabóta á liðnu kjörtímabHdi.
MikH útlánaaukning bankanna hefur meðal annars
leitt tH þenslunnar. Fram hefur komið hjá bankastjóra
íslandsbanka að hann telji ábyrgð ríkisbankanna mikla
í þeim efnum. Ríkisbankarnir hafa gripið tH aðgerða og
hækka vexti um næstu mánaðamót. Vaxtahækkun slær
á eftirspurn. Ríkisstjórnin fór þá leið á liðnu kjörtíma-
bHi að lækka skatta sem um leið jók ráðstöfunarfé al-
mennings. Skattahækkun, líkt og vaxtahækkun, slær á
eftirspurn en Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra og
einn höfunda nýs stjórnarsáttmála hefur látið hafa eftir
sér í blaðaviðtali að skattar verði ekki hækkaðir. Ráð-
herrann benti þar á að aðeins væri um tvær leiðir að
ræða, annars vegar aðhald í ríkisfjármálum og hins
vegar að auka sparnað tH þess að draga úr þenslu á al-
mennum peningamarkaði. Þarna verði að vera samspH.
Ráðherrann segir að meðal annars megi auka sparnað
með því að selja ríkiseignir og bendir á Landssímann og
ríkisbankana.
Efnahagslegur stöðugleiki hefur ríkt hérlendis und-
anfarin ár samfara hagvexti. Almenningur veit að hag-
sæld fylgir því ástandi og kosningaúrslitin voru krafa
um viðhald þess. Það verður meginverkefni nýrrar rík-
isstjórnar.
Jónas Haraldsson
„Efasemdaraddir um að ekki væri allt sem sýndist, þorskur væri horaður og farinn að éta bræður sína, voru ekki
teknar alvarlega." - Þorskur sem étið hefur annan þorsk. Myndin er tekin í fiskvinnslunni Aðalbjörgu sf. í Reykja-
vík á síðasta ári.
Enn skal herða
sultarólina
vonarpening i loðnu, ■ ...............
og umhverfisskilyrði líiollorínii
væru hagstæð. „Við f\|dllcirillll
eigum nokkuð bragg-
legan loðnustofn,“
sagði forstjórinn.
Illa haldinn
vonarpeningur
Ég man ekki betur
en loðnan hafi komið
mönnum verulega á
óvart í vetur þegar
hún loks lét sjá sig.
Þá var hún smá og
horuð, og sú skýring
fylgdi með frá Hafró
að fjöldinn Væri svo
mikill að ekki væri
nóg fæða handa öllum
„Forstjórí Hafró sagði í viðtali að
þorskurinn væri langlíf skepna
og hann þyldi sult mjög lengi.
Ekki væri skynsamlegt að grisja
stofninn til að örva vöxtinn, því
þá fækkaði þeim einstaklingum
sem yrðu til að nýta sér batnandi
ætisskilyrði. - Bíðum við, var
ekki nýbúið að segja að ástand
sjávar væri þokkalegt?“
Jón Kristjánsson
fiskifræðingur
Veiðiráðgjöf Hafró núna er í
raun ekkert annað en áfellisdóm-
ur stofnunarinnar yfir ráðgjöf
sjálfrar sín undanfarin ár. Niður-
skurður eða jafnstaða í öllum teg-
undum, nema síld og loðnu. En
eins og menn vita er afli síldar og
loðnu sýnd veiði en ekki gefin.
Fyrir tveimur árum náðist ekki
síldarkvótinn og siðasta loðnuver-
tíð var hörmung.
Alvarlegast núna er að þorskur-
inn er farinn að horast og það get-
ur þýtt að stofninn sé á niðurleið.
Hafró spáði hins vegar í fyrra að
þorskstofninn myndi standa í stað
til 2001 svo það var ekki við því að
búast að aflinn yrði aukinn í ár þó
menn hefðu vissulega haft vænt-
ingar í þá átt.
Efasemdaraddir ekki
teknar alvarlega
Fyrir ári, þegar þorskkvótinn
var aukinn, var sagt að uppbygg-
ing þorskstofnsins hefði tekist og
nú væri allt á uppleið. Báðir ráð-
herramir sögðu að þetta væri ár-
angur fórna undanfarinna ára,
farið hefði verið nákvæmlega eft-
ir ráðgjöf vísindamanna og ætlun-
arverkið tekist. Efasemdaraddir
um að ekki væri allt sem sýndist,
þorskur væri horaður og farinn
að éta bræður sína, voru ekki
teknar alvarlega.
Segja má Þorsteini Pálssyni til
hróss að hann fór eftir ráðlegging-
um Hafró út í hörgul í góðri trú.
Hann vildi gefa Hafró tækifæri. Ég
er viss um það að hann lét af emb-
ætti í þeirri trú að hann hefði gert
rétt og uppbygging þorskstofnsins
hefði tekist. Nú er hann fjarri
góðu gamni, kominn í annað emb-
ætti og nýr maður verður að gera
upp reikningana.
Forstjóri Hafró var annars hinn
hressasti með þessa ráðgjöf, þrátt
fyrir niðurskurðinn, við hefðum
fjöldanum. Þá hentaði það að nota
vistfræðilegar skýringar (hungur
vegna offjölgunar) til að skýra fyrir
mönnum hvers vegna ekki væri
hægt að selja loðnu til Japans. Ekki
er óeðlilegt að spurt sé nú hvort
vonarpeningurinn, sem ekki gekk
til hrygningar sl. vetur, hafi ekki
einnig verið illa haldinn og verði
fyrir miklum affólium áður en hann
gengur á miðin í vetur.
Forstjóri Hafró sagði í viðtali að
þorskurinn væri lang-
líf skepna og hann
þyldi sult mjög lengi.
Ekki væri skynsamlegt
að grisja stofninn til að
örva vöxtinn, því þá
fækkaði þeim einstak-
lingum sem yrðu til að
nýta sér batnandi ætis-
skilyrði. - Bíðum við,
var ekki nýbúið að
segja að ástand sjávar
væri þokkalegt?
Beðið eftir Godot
Búið er að bíða eftir
sterkum árgangi í
þorskstofninn í ein 15
ár. Síðasti sterki ár-
gangurinn var ffá ár-
inu 1984, og 93-ár-
gangurinn var í
meðallagi. Mikil
ánægja var árið 1997
þegar met var sett í
seiðavísitölu. Minna
hefur þó orðið úr
seiðunum en vonast
var til þvi nú er von-
ast til að sá árgang-
ur verði í meðallagi.
Eins og ástandið
er núna, þorskurinn
að horast niður
vegna fæðuskorts,
er varla hægt að bú-
ast við að það sé
pláss fyrir meira
ungviði. Það myndi einungis bæta
gráu ofan á svart. Enda sér þorsk-
urinn fyrir því sjálfur, hann étur
undan sér. Og fæðuþörfm er mikil.
Sé rétt að stofninn sé um 1 millj-
ón tonn má áætla að fóðurþörfin
til viðhálds sé um eitt þúsund
tonn - á klukkutímann, allan árs-
ins hring. - Godot kemur ekki
meðan þorskurinn þarf að éta
bömin sín.
Jón Kristjánsson
Skoðanir annarra
Borgaraleg gremja
„Það er hlutskipti okkar sem höfum búið lengi við
frelsi og velmegun að allar umræður um ófrelsi, kúg-
un og fátækt í öðrum ríkjum eru okkur öðrum þræði
tækifæri til að agnúast út í ýmislegt sem okkur
finnst aflaga fara í okkar eigin litla verndaða heimi
og veita okkur útrás fyrir innibyrgða borgaralega
gremju. Svona lítil erum við í okkur og svo skiln-
ingslaus á þjáningar annarra. Og þess vegna virðast
margir ekki geta horfst í augu við óhugnað komm-
únismans án þess að skírskota sífellt til ýmissa mis-
fellna í heimi réttarríkisins. Sjónvarpsþættirnir um
kalda striðið bera þessu glöggt vitni.“
Jakob F. Ásgeirsson í Mbl. 27. maí.
Börnin i bílstólunum
„Því miður eru þess dæmi að barnabílstóll hafi
kastast út í heilu lagi, með barninu í, vegna þess að
stóllinn var ekki tryggilega festur. Þess eru líka allt
of mörg dæmi að börn séu laus í bílum - þrátt fyrir
að bamastóll sé til staðar. Slysin gera ekki boð á
undan sér og þau geta orðið jafnt á stuttum sem
löngum akstursleiðum. Það er því engin afsökun að
láta undir höfuð leggjast að spenna beltin eða koma
baminu fyrir í bamabílstólnum vegna þess hversu
stutt sé farið ... Elskum því bömin okkar undir öll-
um kringumstæðum - ekki síst í bílnum.“
Ragnheiður Davíðsdóttir í Degi 27. maí.
Trúverðugleiki stjórnenda
„Það sem skiptir liklega mestu máli við mat á fjár-
festingarkostum er hæfni og trúverðugleiki stjórn-
enda. Kostimir em svo margir að það er ástæðu-
laust að binda sitt fé í fyrirtækjum þar sem ómerk-
ingar halda um stjórnartaumana. Strax og trúnaðar-
brestur myndast er því rétt að íhuga sölu. Öll fyrir-
tæki lenda einhvern tímann í erfiðleikum, hæfur
stjómandi viðurkennir þau og tekur á málunum.
Sjaldnast eru þó til einhverjar skyndilausnir. Full-
yrðingum um viðsnúning, fljótlega eftir að fréttir
um taprekstur berast, ber því að taka með miklum
fyrirvara. Það tekur tíma að snúa skútu í ólgusjó.“
Margeir Pétursson í Viðskiptablaði Mbl. 27. maí.