Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Side 22
26
FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999
V.
Afmæli__________________
Helgi Pétursson
Helgi Pétursson, borgarfulltrúi og
starfsmaður við markaðs- og kynn-
ingarmál hjá Samvinnuferðum-
Landsýn, Víðihlíð 13, Reykjavík, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Helgi fæddist í Reykjavík. Hann
lauk kennaraprófi 1970, stundaði
nám í stjórnmálafræði við háskól-
ann í Árósum 1973-74, stundaði
nám í fjölmiðlun og fréttamennsku
við American University í Was-
* hington DC og lauk þaðan BA-prófi
1983.
Helgi kenndi við Þinghólsskóla í
Kópavogi 1970-73, var blaðamaður
við DB 1975-79, ritstjóri Vikunnar
1979-80, fréttamaður við RÚV-hljóð-
varp 1980-85 og fréttaritari þess í
Bandaríkjunum um tveggja ára
skeið, var ritstjóri NT 1985-86,
blaðafulltrúi SÍS 1986-87, fréttamað-
ur og síðan dagskrárgerðarmaður á
Stöð 2 1987-90, útvarpsstjóri Aðal-
stöðvarinnar 1990-91, markaðsstjóri
Samvinnuferða-Landsýnar frá 1991
og starfar þar nú að markaðs- og
kynningarmálum. Þá er hann borg-
arfulltrúi frá 1998.
Frá 1964 hefur Helgi lengst af
sungið og leikið með Ríó-tríóinu,
einhverju vinsælasta sönglagatríói
hér á landi, en þeir félagar hafa
skemmt víðs vegar um landið og
spUað og sungið inn á fjölda hljóm-
platna.
Helgi sat í stjórn Félags frétta-
manna 1985, í útvarps-
réttamefnd 1986-87, í
neftid um endurskoðun á
fjarskiptalögum 1986, í ut-
anríkismálanefnd SUF
1985 og fjölmiðlanefnd
Framsóknarflokksins
1990, er fyrsti varaforseti
borgarstjómar, formaður
umhverfismálaráðs og
heUbrigðisnefhdar
Reykjavíkurborgar, sitm-
í stjórn Ferðamálaráðs ís-
lands og i markaðsráði
ferðaþjónustunnar.
Fjölskylda
Helgi kvæntist 28.5. 1977 Birnu
Pálsdóttur, f. 30.5. 1953, dóttur Páls
H. Pálssonar, stórkaupmanns i
Reykjavík, og Bryndisar Guð-
mundsdóttur húsmóður.
Böm Helga og Bimu em Bryndís,
f. 16.4. 1977, háskólanemi; Pétur, f.
26.9. 1978, menntaskólanemi; Heiða
Kristín, f. 20.4. 1983, menntaskóla-
nemi; Snorri, f. 1.6.1984, nemi.
Bræður Helga era ísleifur, f. 4.7.
1946, starfsmaður S.Þ. í Bosníu,
kvæntur Auði Albertsdóttur; Krist-
inn, f. 29.4. 1956, bóndi í Oloftorp í
Svíþjóð, en kona hans er UUa
Svanteson; Gissur, f. 2.4. 1958, for-
stjóri Vinnumálastofnunar,
kvæntur Amheiði Gígju Guð-
mundsdóttur.
Foreldrar Helga: Pétur Kristjóns-
son, f. 23.4. 1926, fulltrúi, og Kristín
ísleifsdóttir, f. 13.2. 1927,
d. 24.11. 1969, húsmóðir.
Ætt
Pétur er bróðir Guðbjarg-
ar, móður Kristjáns Ein-
arssonar, formanns bæj-
arráðs Selfoss. Pétur er
sonur Kristjóns, múrara
í Reykjavík, bróður Rósu,
ömmu Helga Hjörvar,
forseta Borgarstjórnar.
Kristjón var sonur Daða,
b. á Litla-Vatnshomi í
Dölum, Daðasonar, b. á Bólstað í
Dölum, Magnússonar. Móðir Daða
yngri var Sigríður, dóttir Erlendar,
b. á Fremra-Skógskoti, Þórðarson-
ar. Móðir Kristjóns var Guðbjörg
Sigríður, systir Jens, vaktara í
Stöðlakoti, afa Brynjólfs Jóhannes-
sonar leikara. Guðbjörg var dóttir
Jóhannesar i Kasthúsum í Reykja-
vík Magnússonar.
Móðir Péturs var Sigþrúður, syst-
ir Sigurðar, byggingafulltrúa
Reykjavíkurbæjar. Sigþrúður var
dóttir Péturs, verkstjóra í Reykja-
vík, bróður Ingibjargar Stephensen,
móður Þorsteins Ö. leikara, Einars,
formanns Þróttar, Stefáns, for-
manns Prentarafélagsins, og Guð-
rúnar, móður Ögmundar Jónasson-
ar, alþm. og formanns BSRB. Pétur
var sonur Þorsteins, b. á Högnastöð-
um, Péturssonar, bróður Hjálmars,
langafa Eyjólfs Konráðs Jónssonar
alþm. Móðir Þorsteins var Ingibjörg
Einarsdóttir, systir Sigvalda, afa
Sigvalda Kaldalóns.
Kristín var dóttir ísleifs, b. á Læk
í Ölfusi, Einarssonar, vinnumanns í
Bjólu í Holtum. Móðir ísleifs var
Soffia ísleifsdóttir, b. að Hlíð í Sel-
vogi, bróður Ragnhildar, langömmu
Halls, fóður Kristins ópemsöngv-
ara. Isleifur var einnig bróðir Ing-
veldar, langömmu Magnúsar Kjart-
anssonar, ritstjóra og ráðherra. ís-
leifur var sonur Ólafs, b. i Seli í
Holtum, Jónssonar. Móðir Ólafs var
Guðrún, systir Guðrúnar á Ægis-
síðu, langömmu Jóns í Skarði,
langafa Guðnýjar í Tryggvaskála,
móður Guðlaugs Tryggva Karlsson-
ar. Guðrún var dóttir Brands, b. á
Felli, Bjamasonar, ættföður Vík-
ingslækjarættar, Halldórssonar.
Móðir Kristínar var Kristín Jó-
hannsdóttir, formanns í Eyvakoti,
bróður Kristínar, langömmu Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur borg-
arstjóra. Önnur systir Jóhanns var
Guðný, amma Sigurjóns Ólafssonar
myndhöggvara. Jóhann var sonur
Hannesar, hreppstjóra í Kaldaðar-
nesi, bróður Þorkels, langafa Guðna
Jónssonar prófessors, fóður Bjama
prófessors og langafa Ragnars í
Smára. Hannes var sonur Einars,
spítalahaldara í Kaldaðamesi,
Hannessonar, ættföður Kaldaðar-
nesættar, Jónssonar. Móðir Kristín-
ar Jóhannsdóttur var Elín Magnús-
dóttir, af Bergsætt.
Helgi er í útlöndum.
Helgi Pétursson.
Ingvar Þorsteinsson
Ingvar Þorsteinsson hús-
gagnasmíðameistari, Mosa-
rimi 6, Reykjavík, er sjö-
tugur í dag.
Starfsferill
Ingvar fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp í Litla-
Skipholti á Bráðræðisholt-
inu. Hann stundaði nám
við Iðnskólann, lauk
sveinsprófi í húsgagna-
smiði 1949 og öðlaðist
meistararéttindi 1952.
Ingvar starfaði við eigin
rekstur á fyrirtækinu Ingvar og
Gylfi á árunum 1957-96 eða til sex-
tíu og sjö ára aldurs. Hann hefur
síðan starfrækt lítið húsgagnaverk-
stæði á Dalvegi 16 C.
Ingvar sérhæfði sig í framleiðslu
Ingvar
hjónarúma og svefnher-
bergishúsgagna auk
þess sem smíðaðar
vora innréttingar í hót-
el, s.s. Hótel Sögu, Hót-
el Esju, Grand Hótel og
Hótel ísland, svo nokk-
ur séu nefnd.
Ingvar var prófdómari í
húsgagnasmíði við Iðn-
skólann i Reykjavík 1 á
annan áratug. Þá var
Þorsteinsson. hann fonnaður Félags
húsgagna- og innrétt-
ingaframleiðenda um
skeið.
Fjölskylda
Ingvar kvæntist 20.1. 1951 Stein-
unni Guðrúnu Geirsdóttur, f. 31.1.
1930, húsmóður. Hún er dóttir Geirs
Magnússonar, f. 30.10. 1897, d. 2.8.
1954, sjómanns í Reykjavík, frá Þurá
i Ölfusi, og k.h., Rebekku Þorsteins-
dóttur, f. 15.9. 1899, d. 3.4. 1945, hús-
móður, frá Elliðaey.
Böm Ingvars og Steinunnar Guð-
rúnar em Rebekka Ingvarsdóttir, f.
24.3. 1951, starfsmannastjóri, gift
Einari Ágústi Kristinssyni hús-
gagnasmið og eiga þau tvö böm;
Bergljót E. Ingvarsdóttir, f. 8.2.1954,
myndmenntakennari, gift Bjarna
Eyvindssyni húsgagnasmið og eiga
þau tvær dætur og eitt bamabarn;
Ásta Ingvarsdóttir, f. 4.11. 1955,
skrifstofustjóri, gift Brynjólfi Ey-
vindssyni hdl. og eiga þau þrjú
böm; Þorsteinn Ingvarsson, f. 19.3.
1960, húsgagna- og húsasmiður,
kvæntur Rögnu Gústafsdóttur
hjúkrunarfræðingi; Geir Örn Ingv-
arsson, f. 9.4. 1967, húsgagnasmiður
en kona hans er Hallveig Gróa
Ragnarsdóttir bókari og eiga þau
tvö böm.
Systkini Ingvars era Viðar Þor-
steinsson, f. 3.4.1931, bókbindari hjá
prentsmiðjunni Odda; Kristinn
Björgvin Þorsteinsson, f. 25.6. 1937,
deildarstjóri við Landsbanka ís-
lands; Þorsteinn Helgi Þorsteinsson,
f. 22.12. 1944, skólameistari Fjöl-
brautaskóla Garðabæjar.
Foreldrar Ingvars voru Þorsteinn
Ingvarsson, f. 12.3.1908, d. 11.3.1974,
bakarameistari í Reykjavík, og k.h.,
Bergljót Helgadóttir, f. 17.7. 1906, d.
14.11. 1963, húsmóðir.
Ingvar og Steinunn Guðrún taka
á móti ættingjum og vinum á heim-
ili dóttur sinnar og tengdasonar í
Viðarrima 37, írá kl. 19.00 í kvöld.
Erla Guðmundsdóttir
Erla Guðmundsdóttir, löggiltur
þýðandi og dómtúlkur á ensku, Há-
túni 25, Keflavík, varð sjötug í gær.
Starfsferill
Erla fæddist við Frakkastíginn í
Reykjavík og ólst upp i Skerjafirðin-
um. Hún var í Austurbæjarskóla,
Skildinganesskóla, stundaði nám
við Kvennaskólann í Reykjavík,
sótti námskeið í enskri hraðritun og
stundaði síðar nám hjá Max Factor
í London 1963, og við
Yamaho Beauty College.
Erla starfaði hjá
GREGG, Fiskiðjuveri
ríkisins, var ritari hjá
fiskimálanefhd ífá 1946,
var búsett í Vancouver
BC í Kanada 1958-61,
starfaði hjá RARIK 1961,
var ritari hjá Skeljungi
1962, starfrækti Snyrti-
skólann í Reykjavík
1962- 64, var búsett í
London 1963 og búsett í
Kuala Lumpur í Malasíu
1963- 66, var gjaldkeri hjá VSÍ frá
1966 og fulltrúi hjá Vamarliðinu á
Keflavíkurflugvelli 1969-98.
Erla hefur starfað í ITC, er mál-
freyja, hefúr verið formaður mál-
freyjuráðs, landsviðs og var varafor-
seti 5. svæðis 1975-76. Þá hefur hún
starfað með Leikfélagi Keflavikur
frá 1979.
Fjölskylda
Erla giftist 1.10. 1949 Gunnari
Mekkinóssyni, f. 10.5. 1927, d. 4.1.
1991, bólstrara. Hann var sonur
Mekkinós Bjömssonar, kaupmanns
í Victor hf. við Laugaveginn í
Reykjavík, og Dagmarar
Þorláksdóttur húsmóður
en þau eru bæði látin.
Böm Erlu og Gunnars
em Vilborg Gunnarsdótt-
ir, f. 18.1. 1950, búsett í
Bandaríkjunum og á hún
sjö börn; Björk G. Huzell,
f. 25.7. 1951, búsett í Sví-
þjóð og á hún tvö böm;
Guðmundur Gunnarsson,
f. 22.4. 1956, d. 21.3. 1961;
Dagmar Gunnarsdóttir, f.
8.2. 1958, búsett í Svíþjóð
og á hún þrjú börn; Gunn-
ar Gunnarsson, f. 14.3. 1960, búsett-
ur í Reykjavík og á hann tvö böm;
Máría Kamal Gordonsdóttir, f. 14.8.
1966, í Danmörku og á hún fjögur
böm.
Systkini Erlu era Jóhanna, f. 15.7.
1927; Ásthildur, f. 2.11. 1930; Hörður
Albert, f. 17.7. 1936.
Foreldrar Erlu voru Guðmundur
Benjaminsson, f. 19.8. 1900, d. 10.8.
1966, klæðskeri í Reykjavík, og Vil-
borg Einarsdóttir, f. 1.3. 1904, d.
1950, húsmóðir.
Erla er að heiman.
Erla
Guðmundsdóttir.
Hl hamingju
með afmælið
28. mai
85 ára
Axel Magnússon,
Hringbraut 50, Reykjavík.
75 ára
Bjami Halldór Egilsson,
Hraunbæ 142, Reykjavík.
Guðbjörg Halldórsdóttir,
Mosgerði 21, Reykjavík.
70 ára
Ema
Sigurbjörg
Ragnarsdóttir,
hárgreiðslu-
meistari,
Löngufit 24,
- Garðabæ,
Eiginmaður hennar er Jón
Boði Bjömsson matreiðslu-
meistari.
Aðalheiður D.
Böðvarsdóttir,
Álfheimum 19, Reykjavík.
60 ára
Guðmundur F.
Jónmundsson
tæknifræðingur,
Norðurvangi 4,
Hafnarfirði.
Eiginkona hans
er Erna Einarsdóttir.
Þau taka á móti gestum í
Valsheimilinu við Hlíðarenda
í kvöld milli kl. 18.00 og 21.00.
Edda Sigurjónsdóttir,
Ásvegi 15, Breiðdalsvik.
Edda Þórarinsdóttir,
Laugarbökkum, Skagafirði.
Guðbjartur Bjömsson,
Fagragarði 2, Keflavík.
Indriði Björnsson,
Kjartansgötu 4, Borgamesi.
50 ára
Anna Metta
Stokvad-Kokholm,
Lindargötu 58, Reykjavík.
Elín Sigurborg
Ágústsdóttir,
Vesturhúsum 7, Reykjavík.
Helgi Hjaltason,
Kaplaskjólsvegi 45, Reykjavík.
40 ára
Einar
Þorsteinsson,
forstjóri
íslandspósts,
Fljótaseli 2,
Reykjavík.
Eiginkona hans er Edda
Elísabet Kjerúlf húsmóðir.
Bjami Svanur Bjamason,
Breiðvangi 44, Hafnarfirði.
Guðrún Ásgrímsdóttir,
Hellu, Grímsey.
Jón Ingi Gíslason,
Kjamholtum 2,
Biskupstungnahreppi.
Kristinn Bjömsson,
Víðimýri 5, Akureyri.
Marteinn Bjarnar
Þórðarson,
Skipholti 19, Reykjavík.
Matthildur Nielsdóttir,
Gerðavöllum 52, Grindavík.
Ólafur Aðalsteinn
Hannesson,
Bröttuhlíð 13, Mosfellsbæ.
Ragnar Hafstað,
Grenimel 23, Reykjavík.
Sigurður Bjarnason,
Hólagötu 10, Sandgerði.
Þór Hauksson,
Blönduhlíð 33, Reykjavík.
Þór Þorfmnsson,
Akurgerði, Austur-Héraði.