Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1999, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999
33
Myndasögur
Veiðivon
Það var fjör við Fiskilækjarvatn þegar það var opnað og töluvert kom af sil-
ungi þennan fyrsta dag.
Fiskilækjarvatn í Leirársveit:
II
veiði
fýrsta daginn
Eitt af þeim vötnum sem oft hefur
gefið vel í byrjun er Fiskilækjarvatn
í Leirársveit. I því vatni veiðist
bæði urriði og bleikja. Veiðin hófst
á þriðjudaginn um leið og laxveiðin
byrjaði í Norðurá í Borgafirði.
„Það gengur hálfilla að rota fisk-
inn en þetta kemur," sagði Aðal-
steinn Árnason af Skaganum en
hann var að veiða með föður sinum.
Þeir voru búnir að veiða nokkra
fiska þegar okkur bar að en þó
nokkir veiðimenn voru þar við veið-
ar í vatninu þennan fyrsta dag sem
mátti veiða.
Umsjón
Gunnar Bender
Á öðrum stað í vatninu voru þeir
frændurnir Guðjón Smári Guð-
mundsson og Sverrir Þ. Guðmunds-
son. Þeir voru að landa fiski þegar
við komum, pimds urriða sem tók
makríl og þeir urðu töluvert varir
við fisk.
Veiðileyfið í vatninu kostar 1000
krónur stöngin og júnímánuður
þykir góður til veiða.
Það er erfitt að segja til um hve
mikið af fiski veiddist þennan fyrsta
Guðjón Smári Guðmundsson, 11 ára,
með urriða úr Fiskilæjarvatni.
DV-myndir G. Bender
dag, líklega hafa þeir verið um 100
og sá stærsti var víst urriði.
Fiskilækjarvatn er vatn sem fáir
vita af, falið rétt undir Hafnarfjalli.
Skagamenn stunda mikið veiöar í
því og þeir sem búa í nágrenni við
vatnið.
Veiðimenn eru líka farnir að
veiða í fjörunni í nágrenni Borgar-
ness og þar voru nokkir að veiða í
fyrradag. Veiðin er oft góð þar á
þessum tíma árs.
' öðkoupsveislur—útisamkomur—skemmtanir—tónieikar—sýningar—kynningar og fl. og fl. og fi.
Hssiífpd - wtyiafipiaL
»®
..og ýmsir fylgihlutir
a'FT' r Ekki treysta á veðrið þegar
•jLVj *^ skipuleggja á eflirminnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á
staðinn - það marg borgar sig.
Tjöld af öllum stœrðum
fró 20 - 700 m2.
Leigjum einnig borð
ogstólaítjöldin.
áaDtsflgai sDcátta
..rneð skótum á heimavelli
sími 5621390 • fox 552 6377 • bis@scout.is
www.scout.is