Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1999, Blaðsíða 36
VÍT
47 8
lur miðvikudaginn
14 ^19 ^41
02.06. '99
^47
\£ Vtnninqar rJÍWi vinninqa Vinninq&upphœð
- 1. 6o{6 2 73.071.280
| 2.5nt6.t. ".' 1 2.842.690
#3-5 "(6 7 87.090
fi 4.^0(6 381 2.540
& 5-3 «>$.*...• 982 420 ííeíidanjinninííáupphœd 150.975.060 Á /aiandi 4.832.500
--af'í^frfa
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR3.JUNI 1999
Eyrarbakki:
Tveir ungir
drengir
brenndust
Tveir ungir drengir á Eyrarbakka,
10 og 11 ára, brenndust nokkuð illa
þegar þeir voru að leik í gær um
kl.18. Drengirnir voru inni í stóru
kapalkefli og er talið að þeir hafi
kveikt eld þar inni. Þeir hafa haft
bensín með í för og slettist logandi
bensin á þá báða í hita leiksins sem
olli þó nokkrum brunasárum.
Drengirnir komust með naumindum
út úr keflinu og gátu leitað eftir að-
stoð. Kallað var á sjúkrabil og fluttu
tveir bilar þá félaga á slysamóttöku
Landspítalans þar sem þeir gengust
undir meðferð. Báðir drengirnir voru
brenndir á höndum og annar einnig í
(andliti. Annars vegar er um að ræða
annars stigs bruna en hins vegar
djúpan annars stigs bruna. Hvorugur
drengjanna er í lifshættu. -hvs
V*
Kio Brix og
Islandssagan
í Fókusi sem fylgir DV á morgun
er itarlegt viðtal við Kio Alexander
' '"'Brix en hann hefur setið í íslensku
fangelsi í átta mánuði. Hann er í far-
banni og leyfir lesendum að kíkja að-
eins inn í höfuðið á sér. Stefán Karl
Stefánsson leikari skiptir síðan frá
karlpersónu yfir í kvenpersónu á ör-
fáum sekúndum og Laddi tekur tim-
ann. Þá eru brúðhjón sem giftu sig
'79 fengin til að gefa ungum hjónum
ráð og segja frá því hvað fór úrskeið-
is og hvað heppnaðist. Haraldur veð-
urfræðingur ræðir um stríðsrekstur
og vindstig og stærsta kirkja lands-
ins, sjónvarpsstöðin Omega, er heim-
sótt. Fókusi fylgir einnig aukablað
um Vísi að íslandssögu en það blað
er nauðsynlegt öllum sönnum íslend-
ingum. Popp, bíó, gleði og glens á
s^sínum stað eins og vanalega. Lifið
eftir vinnu er nákvæmur leiðarvísir
um skemmtana- og menningarlífið.
ER RAU0I HERINN
Á UNDANHALDtf
Herra Pétur Sigurgeirsson biskup hélt upp á áttræðisafmæli sitt í gær á Heilsustofnun NLFI í HveragerðL Þar snæddu
þau Pétur og Sólveig Ásgeirsdóttir, eiginkona hans, venjulegan miðvikudagskvöldverð íheilsustofnuninni ásamt sín-
um allra nánustu - fjölskyldunni. Bjart var yfir þeim hjónurn rétt fyrir kvöldverðlnn. Á myndlnni smellir Sólveig
afmæliskoss á bónda sinn. DV-mynd Eva
Miklar veröhækkanir hjá opinberum aðilum:
Vænti aðgerða
ríkisstjórnarinnar
- segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna
„Þetta kemur mér mjög á óvart
þegar ríkisstjórn stöðugleikans sem
mynduð var til að viðhalda stöðug-
leikanum er að
rugga bátnum eins
og þeir eru að gera
núna," segir Jó-
hannes Gunnars-
son, formaður
Neytendasamtak-
anna.
Miklar v'erð-
hækkanir hafa
dunið yfir lands-
menn undanfarið
og nú síðast hækk-
aði rafmagn um 3% og hiti um 5%.
Þar áður hafði áfengi og bensíns-
gjald verið hækkað auk þess sem
mjög miklar hækkanir á bifreiða-
tryggingum voru kynntar í vikunni.
„Ég vek athygli á því að hér er
um að ræða opinber fyrirtæki sem
eru að hækka rafmagn, hita, áfengi
og bensíngjald. Maður fyllist svart-
sýni þegar maður sér ráðamenn
þjóðarinnar ganga fram fyrir
skjöldu með þessum hætti þegar
verið er að tala um ofþenslu og vax-
anda verðbólgu og stjórnendur opin-
bera fyrirtækja eru að taka svona
ákvarðanir. Ég segi fyrir mina
parta: hvað eru menn að setja í gang
núna? Er þetta virkilega ríkisstjórn
stöðugleikans sem er þarna að
verki? Ég vænti þess að forystu-
menn þessarar ríkisstjórnar grípi
inn i þessa atburðarás," segir Jó-
hannes Gunnarsson. -BMG
Jóhannes
Gunnarsson.
Bíða eftir Byggðastofnun
Ketill Helgason, framkvæmda-
stjóri fiskvinnslufélaganna Rauð-
siðu, Rauðfeldar og Bolfisks, sagði
við DV á fundi sem hann átti með
starfsfólki hraðfrystihúss Rauðsíðu
á Þingeyri í morgun að fyrirtækin
biðu eftir því að. Byggðastofnun
efndi 100 milljóna króna lánsloforð.
Þegar það skýrðist yrði hægt að
greiða út laun sem ekki voru greidd
út sl. föstudag. Lánsloforðið hefði
verið háð ákveðnum skilyrðum sem
búið væri að uppfylla af hálfu fyrir-
tækjanna. Nánar á bls. 2. -SÁ
Veðrið á morgun:
Léttir til
sunnan- og
vestanlands
Á morgun verður norðaustan
8-13 m/s suðaustan til á morgun
en annars hægari. Súld með
köflum austanlands og á annesj-
um norðanlands en léttir til
sunnan- og vestanlands. Hiti
verður á bilinu 6-13 stig að deg-
inum, hlýjast suðvestan til.
Veðrið í dag er á bls. 37.
Tölur vlð vlndörvar sýna
vindhraða í metrum á sekúndu.
0, ^ ¦j . -¦ fc"—^* / n ' í 6°A
V J 9V^ ii i
VP13^ --''' ',' ii i
Skaðabótakrafa VSÍ:
Sérkennileg
viðbrögð
- segir forseti ASÍ
„það er ákaflega sérkennilegt að
bregðast við á þennan hátt og í ann-
an stað mjög merkilegt að þetta
skuli vera að koma
upp núna löngu
eftir þessa at-
burði," sagði Grét-
ar Þorsteinsson,
forseti Alþýðusam-
bands íslands, um
skaðabótakröfu
Vinnuveitenda-
sambands íslands
á tvö verkalýðsfélög og sjö einstak-
linga á Vestfjörðum.
Vinnuveitendasamband íslands
hefur krafið tvö verkalýðsfélög á
Vestfjörðum og sjö einstaklinga inn-
an þeirra um 6 milljónir króna í
skaðabætur vegna verkfallsaðgerða
þeirra árið 1997. Um er að ræða
verkalýðsfélögin Baldur á ísafirði
og Sjómanna- og verkalýðsfélagið
Álftfirðing í Súðavík. VSÍ hótar
málssókn ef ekki verði farið að kröf-
unni um greiðslu á upphæðinni.
„Við munum heyra í félögum
okkar fyrir vestan og ráða síðan í
framhaldið," sagði Grétar. „Ég á
ekki von á að félagar mínir fyrir
vestan dragi upp budduna og greiði
þessar sex milljónir." -JSS
Þónokkur eldur kom upp í skipi í
slippnum í Hafnarfjarðarhöfn ígær.Ver-
ið er að búta skipiö niður og er talið að eld-
urinn hafi kviknað út frá logsuðu. Tók
það slökkviliðið rúma tvo tíma að slökkva
eldinn. DV-mynd S
Morðhótanir
„Málið er í rannsókn," sagði
Ómar Smári Ármannsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn um morðhótanir
Steingríms Njáls-
sonar á hendur
tveimur mönnum
um síðustu helgi.
Lögð var fram
kæra á Steingrím
vegna þessa og er
nú beðið niður-
stöðu rannsóknar.
Steingrimur hefur
látið af hótunum sinum, eftir að lög-
reglan handtók hann aðfaranótt síð-
astliðins sunnudags.
STÓRSÝNING
Bíla- og búvélasýningar
Ingvars Helgasonar og
Bílheima um landið
A morgun föstud. 4. júní
Laugar.........................10-11.30
Mývatn........................ 13-15
Húsavík....................... 17-20
d^MKMM Bílheimar ehf.
\^^^J S*fa'k#b*2 Sxwrholöa 2a Íími525 9000
^^^ SimiSSSaaoo www.bilbtimar.is