Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1999, Síða 36
Vinningstölur miðvikudaginn 02.06. ’99
4*8 14 19 <41 <47
æT ■ ' . H.. . >V
HeildarvinningAu;
150.975.060
Á ÍAlandi
4.832.500
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
v
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ1999
Eyrarbakki:
Tveir ungir
drengir
■ brenndust
Tveir ungir drengir á Eyrarbakka,
10 og 11 ára, brenndust nokkuð illa
þegar þeir voru að leik í gær um
kl.18. Drengimir voru inni í stóru
kapalkefli og er talið að þeir hafi
kveikt eld þar inni. Þeir hafa haft
bensín með í fór og slettist logandi
bensín á þá báða í hita leiksins sem
olli þó nokkrum brunasárum.
Drengimir komust með naumindum
út úr keflinu og gátu leitað eftir að-
stoð. Kallað var á sjúkrabíl og fluttu
tveir bílar þá félaga á slysamóttöku
Landspítalans þar sem þeir gengust
undir meðferð. Báðir drengimir voru
brenndir á höndum og annar einnig í
% andliti. Annars vegar er um að ræða
annars stigs bmna en hins vegar
djúpan annars stigs brana. Hvoragur
drengjanna er í lífshættu. -hvs
Kio Brix og
Islandssagan
I Fókusi sem fylgir DV á morgtm
er ítarlegt viðtal við Kio Alexander
* Brix en hann hefur setiö í íslensku
fangelsi í átta mánuði. Hann er í far-
banni og leyfir lesendum að kíkja að-
eins inn í höfuðið á sér. Stefán Karl
Stefánsson leikari skiptir síðan frá
karlpersónu yfir í kvenpersónu á ör-
fáum sekúndum og Laddi tekur tím-
ann. Þá eru brúðhjón sem giftu sig
‘79 fengin til að gefa ungum hjónum
ráð og segja frá því hvað fór úrskeið-
is og hvað heppnaðist. Haraldur veð-
urfræðingur ræðir um stríðsrekstur
og vindstig og stærsta kirkja lands-
ins, sjónvarpsstöðin Omega, er heim-
sótt. Fókusi fylgir einnig aukablað
um Vísi að íslandssögu en það blað
er nauðsynlegt öllum sönnum íslend-
ingum. Popp, bíó, gleði og glens á
s»sínum stað eins og vanalega. Lífið
eftir vinnu er nákvæmur leiðarvísir
um skemmtana- og menningcirlífið.
Herra Pétur Sigurgeirsson biskup héit upp á áttræðisafmæli sitt í gær á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Þar snæddu
þau Pétur og Sólveig Ásgeirsdóttir, eiginkona hans, venjulegan miðvikudagskvöldverð í heilsustofnuninni ásamt sín-
um allra nánustu - fjölskyldunni. Bjart var yfir þeim hjónum rétt fyrir kvöldverðinn. Á myndinni smellir Sólveig
afmæliskoss á bónda sinn. DV-mynd Eva
Miklar verðhækkanir hjá opinberum aðilum:
Vænti aðgerða
ríkisstjórnarinnar
- segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna
„Þetta kemur mér mjög á óvart
þegar ríkisstjórn stöðugleikans sem
mynduð var til að viðhalda stöðug-
leikanum er að
ragga bátnum eins
og þeir eru að gera
núna,“ segir Jó-
hannes Gunnars-
son, formaður
Neytendasamtak-
anna.
Miklar verð-
hækkanir hafa
dunið yfir lands-
menn undanfarið
og nú síðast hækk-
aði rafmagn um 3% og hiti um 5%.
Þar áður hafði áfengi og bensíns-
gjald verið hækkað auk þess sem
mjög miklar hækkanir á bifreiða-
tryggingum vora kynntar í vikunni.
Jóhannes
Gunnarsson.
„Eg vek athygli á því að hér er
um að ræða opinber fyrirtæki sem
eru að hækka rafmagn, hita, áfengi
og bensíngjald. Maður fyllist svart-
sýni þegar maður sér ráðamenn
þjóðarinnar ganga fram fyrir
skjöldu með þessum hætti þegar
verið er að tala um ofþenslu og vax-
anda verðbólgu og stjómendur opin-
bera fyrirtækja eru að taka svona
ákvarðanir. Ég segi fyrir mina
parta: hvað era menn að setja í gang
núna? Er þetta virkilega ríkisstjóm
stöðugleikans sem er þama að
verki? Ég vænti þess að forystu-
menn þessarar ríkisstjómar grípi
inn í þessa atburðarás," segir Jó-
hannes Gunnarsson. -BMG
Biða eftir Byggðastofnun
Ketill Helgason, framkvæmda-
stjóri fiskvinnslufélaganna Rauð-
síðu, Rauðfeldar og Bolfisks, sagði
við DV á fundi sem hann átti með
starfsfólki hraðfrystihúss Rauðsíðu
á Þingeyri í morgun að fyrirtækin
biðu eftir því að Byggðastofnun
efndi 100 milljóna króna lánsloforð.
Þegar það skýrðist yrði hægt að
greiða út laun sem ekki voru greidd
út sl. föstudag. Lánsloforðið hefði
verið háð ákveðnum skOyrðum sem
búið væri að uppfylla af hálfu fyrir-
tækjanna. Nánar á bls. 2. -SÁ
ER RAU9I HERINN
Á UNDANHALDI?.
Veöriö á morgun:
Léttir til
sunnan- og
vestanlands
Á morgun verður norðaustan
8-13 m/s suðaustan til á morgun
en annars hægari. Súld með
köflum austanlands og á annesj-
um norðanlands en léttir til
sunnan- og vestanlands. Hiti
verður á bilinu 6-13 stig að deg-
inum, hlýjast suðvestan tiL
Veðrið í dag er á bls. 37.
Tölur viö vindörvar sýna
vindhraða í metrum á sekúndu.
Skaðabótakrafa VSÍ:
Sérkennileg
viðbrögð
- segir forseti ASÍ
„það er ákaflega sérkennilegt að
bregðast við á þennan hátt og í ann-
an stað mjög merkilegt að þetta
skuli vera að koma
upp núna löngu
eftir þessa at-
burði,“ sagði Grét-
ar Þorsteinsson,
forseti Alþýðusam-
bands íslands, um
skaðabótakröfu
Vinnuveitenda-
sambands íslands
á tvö verkalýðsfélög og sjö einstak-
linga á Vestíjörðum.
Vinnuveitendasamband íslands
hefur kraflð tvö verkalýðsfélög á
Vestíjörðum og sjö einstaklinga inn-
an þeirra um 6 milljónir króna í
skaðabætur vegna verkfallsaðgerða
þeirra árið 1997. Um er að ræða
verkalýðsfélögin Baldur á ísafirði
og Sjómanna- og verkalýðsfélagið
Álftfirðing í Súðavík. VSÍ hótar
málssókn ef ekki verði farið að kröf-
unni um greiðslu á upphæðinni.
„Við munum heyra í félögum
okkar fyrir vestan og ráða síðan í
framhaldið," sagði Grétar. „Ég á
ekki von á að félagar mínir fyrir
vestan dragi upp budduna og greiði
þessar sex milljónir.“ -JSS
Þónokkur eldur kom upp í skipi í
slippnum í Hafnarfjarðarhöfn í gær. Ver-
ið er að búta skipið niður og ertalið að eld-
urinn hafi kviknað út frá logsuðu. Tók
það slökkviliðið rúma tvo tíma að slökkva
eldinn. DV-mynd S
Morðhótanir
„Málið er í rannsókn," sagði
Ómar Smári Ármannsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn um morðhótanir
Steingríms Njáls-
sonar á hendur
tveimur mönnum
um siðustu helgi.
Lögð var fram
kæra á Steingrím
vegna þessa og er
nú beðið niður-
stöðu rannsóknar.
Steingrímur hefur
látið af hótunum sínum, eftir að lög-
reglan handtók hann aðfaranótt síð-
astliðins sunnudags.
STÓRSÝNING
Bfla- og búvélasýningar
Ingvars Helgasonar og
Bflheima um landió
Á morgun föstud. 4. júní
Laugar..........................10-11.30
Mývatn............................ 13-15
Húsavík........................... 17-20
Iföuionht. Bílheimar ehf.
Saccrktfla 2 Satvarhöfða 2a ■ Súnl S2S 9000
uTLxí9000 www.bHbeimar.il
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
14
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4