Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Síða 9
FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1999
9
3DV
Útlönd
Bruninn í ferjunni Ragnhildi prinsessu:
Farþegar dóluðu um
sjóinn í sumarhitunum
DV, Ósló:
Veðurblíða og sléttur sjór réðu
mestu um að hjá manntjóni varð
komist þegar 1167 farþegar voru flutt-
ir frá borði norsku ferjunnar Ragn-
hildar prinsessu eftir að eldur kom
upp í vélarrúminu í fyrrinótt.
Odd Halvarsen skipstjóri viður-
kenndi þegar alit var afstaðið að hon-
um hefði fyrst verið hugsað til stór-
slysa á borð við brunann í Skandinav-
ian Star fyrir níu árum og skipbrots
ferjunnar Estoníu fyrir fimm árum
þegar hann gaf skipun um að ailir far-
þegar færu frá borði. Á annað þúsund
manna fórust í þeim slysum báðum.
Nú er andlát fullorðinnar konu
rakið til álagsins sem hún varð fyrir
við að yfirgefa skipið og alls varð að
flytja tíu farþega á sjúkrahús vegna
gnms um reykeitrun. Þrír þurftu
læknishjálp.
Farþegar frá ferjunni Ragnhildi prinsessu, sem er í baksýn, bíða eftir að
komast um borð f björgunarskip. Símamynd Reuter
Nú hugsa menn með hryflingi til
þess sem hefði getað gerst í slæmu
veðri og kulda þarna úti fyrir höfn-
inni í Gautaborg. Farþegarnir voru
léttklæddir í björgunarbátunum og
dóluðu um sjóinn meðan beðið var
björgunar. Engum varð meint af í
hita sumarnæturinnar.
Orsök brunans er ókunn en þó
rakin til einhverrar bilunar í vélar-
rúminu. Skipið hafði fyrir skömmu
fengið einkunnina „viðunandi" í
brunavottorð sitt og athygli vekur að
ekki tókst að hemja eldinn fyrr en
eftir flóra tíma. Ekkert úðakerfi er í
vélarrúminu.
í gær voru uppi vangaveltur í
norskum fjölmiðlum um að ferjuna
hefði orðið að keyra af öllu afli til að
halda áætlun milli Óslóar og Kiel í
Þýskalandi. Ferjan var stækkuð fyrir
fáum árum en gömlu vélarnar
notaðar áfram. -GK
Ritt Bjerregaard
vonsvikin en til
í slaginn á ný
Poul Nyrup Rasmussen, forsæt-
isráðherra Danmerkur, hringdi í
Ritt Bjerregaard klukkan hálf-
fimm síðdegis í gær og tilkynnti
henni að hún yrði ekki endurkjör-
in í framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins. Tveimur klukku-
stundum seinna hélt Bjerregaard
fund með fréttamönnum og boð-
aði þátttöku sína i dönskum
stjórnmálum á ný. Hún viður-
kenndi að hún væri vonsvikin.
Hún ætlar þó ekki að hætta í
pólitíkinni. Á fréttamannafundin-
um lýsti hún yfir áhyggjum yfir
vaxandi fátækt í Danmörku.
Hópur súdanskra þræla bíður þess að fá frelsi. Svissnesk mannréttindasamtök sögðust í gær hafa frelsað um tvö
þúsund þræla á sjö daga ferð samtakanna um suðurhluta Súdans. Alls kveðast samtökin hafa frelsað 11 þúsund
manns frá árinu 1995. Símamynd Reuter
Tóbaksfyrirtæki tapa
Sígarettuframleiðendur búa til
gallaða vöru sem veldur sjúkdóm-
um á borð við lungnakrabba og
lungnaþembu. Svo hljóðaði niður-
staða kviðdóms í Miami í Banda-
ríkjunum og kann að hafa í fór með
sér mesta tap tóbaksframleiðenda
til þessa. Málið var höfðað árið 1994
fyrir hönd um 500 þúsund reykinga-
manna í Flórída og farið fram á 200
milljarða i skaðabætur. Tóbaks-
framleiðendur voru m.a. fundnir
sekir um að blekkja neytendur og
halda rannsóknarniðurstöðum
leyndum. Hversu miklar skaðabæt-
ur tóbaksframleiðendum verður
gert að greiða mun kviðdómur
ákveða á næstunni en formlega
stóðu níu ákærendur að málinu.
Þegar þeim hafa verið dæmdar bæt-
ur geta hinir í hópnum lagt fram
kröfur sínar.
Skofvopnanámskeið
Fyrirhugað er að halda skotvopnanámskeið á vegum
embættis lögreglustjórans í Reykjavík
dagana 22. til 25. júlí nk. í Árnagarði.
Námskeiðsgjald er kr. 11.000.
Áhugasamir vinsamlega skrái sig í almennri afgreiðslu
á lögreglustöðinni, Hverfisgötu 113-115.
Frekari upplýsingar eru í síma 569 9032.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
Sameiginlegur
aðgöngumiði
að söfnunum
Blés fersku lofti í göngin
Starfsmaður i göngunum undir
Mont Blanc hleypti fersku lofti inn í
göngin undir Mont Blanc þegar hann
sá bíla snúa við og fólk stiga út úr bíl-
um sínum. Þetta kemur fram í rann-
sóknarskýrslu um eldsvoðann í göng-
unum. Taldi starfsmaðurinn betra að
hleypa fersku lofti inn í göngin til að
bjarga mannslífum í stað þess að sjúga
reykinn út. Þessi aðgerð starfsmanns-
ins er þveröfug við það sem mælt er
með í öryggisreglum. Óvist er þó hvort
hægt hefði verið að bjarga mannslífum
hefði verið farið eftir reglunum vegna
þess hversu eldhafið var mikið. 39 lét-
ust í brunanum.
Ráðherra í stríði við póstinn
Norski samgönguráðherrann á í
deilu við póstyfirvöld í Noregi vegna
þess að hann neitar að færa póstkassa
við heimili sitt.
Pósturinn hefur farið fram á að
póstkassi Josteins Fjaervolls, ráðherra
samgöngumála og æðsta yfirmanns
póstþjónustunnar, verði færður frá
húsi hans og út að götuhliði. Það
myndi stytta gönguleið póstburðar-
mannsins um 100 metra og félli vel að
niðurskurði sem nú á sér stað innan
norsku póstþjónustunnar.
„Öryggisins vegna get ég ekki orðið
við þessu. Ég verð að geta fylgst með
póstkassanum,"' sagði ráðherrann í
samtali við fréttablaðið Nordlands
Framtid.
með fortíð og framtíð
Eyrarbakki var um langt skeið helsti þéttbýlisstaður á Suðurlandi og Eyrarbakkaverslun ein stærsta verelun landsins.
Á Eyrarbakka eru varðveitt mörg gömul hús sem setja fallegan svip á staðinn. Komast má í snertingu við fortíðina
með því að rölta um þorpið, skoða húsin, fjömna og brimið. í Húsinu og á Sjóminjasafninu er hægt að fræðast Ryggðasafn Ámesinga og Húsið á Eyrar-
um söguna. Kaffi Lefolii í Gunnarshúsi býður upp á veitingar í notalegu umhverfi. bakka - eitt elsta hús landsins, byggt 1765.
Munir sem tengjast
sögu sýslunnar
og sögu Hússins
á Eyrarbakka.
Opið kl. 10-18
alla daga í júní,
júlíog ágúst. Húsið á Eyrarbakka
Stmi 483 1504. Byggðasafn Árnesinga
SJÓMINJASAFNIÐ
ÁEYRARBAKKA
Sjómunir og saga Eyrarbakka. Opið kl.
13-18 alla daga í sumar. Sími 483 1165.
Veitingastaður og krá. Opið kl. 10-23:30 og
kl. 11-02 um belgar. St'mi 483 1600.