Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1999, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 1999 Útlönd Barak og Arafat ánægöir meö fund sinn í gær: Ætla að vinna saman að friði Arafat kyssir kóraninn sem hann fékk að gjöf frá Barak í gær. Símamynd Reuter Lögregluforingj- ar í Teheran látnir fjúka Þjóðaröryggisráð írans til- kynnti í gær að tveir háttsettir lögregluforingjar hefðu verið reknir fyrir að fyrirskipa lög- regluofbeldi gegn mótmælum stúdenta. Námsmennirnir hafa undanfarna daga efnt til mótmæla vegna lokunar frjálslynds dag- blaðs. Einn námsmaður var drep- inn og þrír særðir er lögreglan reyndi á föstudaginn að stöðva mótmælin. Stjómendur háskólans í Teher- an sögöu af sér í gær til að mót- mæla aðgerðum lögreglunnar. Áð- ur hafði menntamálaráðherra landsins sagt af sér vegna atburð- anna. Sagt er að forseti írans, Mo- hammad Khatami, sem harmað hefur lögregluofbeldið, hafi ekki samþykkt afsögn ráðherrans. Pakistanskir uppreisnarmenn yfirgefa Kasmír Indversk yfirvöld tilkynntu í gær að þau hefðu sannanir fyrir því að uppreisnarmenn frá Pakistans væra á leið frá ind- verska svæðinu í Kasmír. Brottförin hófst í kjölfar fundar indverskra og pakistanskra her- foringja í Punjabhéraði. Utanrík- isráðherra Pakistans, Sartaj Aziz, sagði á fundi með fréttamönnum að náðst hefði samkomulag um vopnahlé í áfóngum. Talsmaður indverska forsætisráðherrans, Atals Beharis Vajpayees, sagði að orðið vopnahlé kæmi ekki fyrir í samkomulaginu. Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, hét því í gær aö loknum fyrsta fundi sínum með Yassir Ara- fat, leiðtoga Palestínumanna, að þeir myndu vinna saman að friði. „Báðir aðilar hafa þjáðst nægi- lega mikið. Bæði Palestínumenn og ísraelar vænta þess að við veitum þeim betri og tryggari framtíð," sagði Barak á fundi með frétta- mönnum og Arafat kinkaði kolli til samþykkis. „Það er kominn tími til að stöðva vítahring ofbeldis og deilna," sagði Arafat. Fundur Baraks og Arafats í gær var fyrsti leiðtogafundur ísraela og Palestínumanna í sjö mánuði. Frið- arferlið stöðvaðist nær alveg í stjórnartíð Benjamins Netanyahus, fyrrverandi forsætisráðherra isra- els. Enn ríkir ágreiningur um stækk- un byggða ísraelskra landnema á herteknu svæðunum. Barak hefur lofað að reisa ekki nýjar byggðir fyrir gyðinga. Palestínumenn hafa hins vegar áhyggjur af því að þær byggðir sem fyrir era stækki. Barak sagði í gær að hann og Arafat væru ákveðnir i að finna leið til að leysa öll vandamál. Barak hét því að hrinda í fram- kvæmd Wye-friðarsamkomulaginu. Hann ítrekaði að hann vildi að það yrði gert samtímis því sem samið yrði um endanlegan frið. Þessi orð Baraks, sem hann lét einnig falla síðastliðinn fóstudag, fóru þá i taugamar á Palestínu- mönnum. Þeir höfðu einnig mót- mælt þegar Netanyahu lét sams konar orð falla. En í gær sagði Ara- fat að ekki væri mótsetning í að hrinda Wye-samkomulaginu í fram- kvæmd og að semja um endanlegan frið. Áður en Barak fundaði i gær með Arafat hélt hann ríkisstjómarfund. Hann greindi ráðherrum sínum frá viðræðum sínum við Hosni Mubarak Egyptalandsforseta. isra- elski forsætisráðherrann mun næstu daga heimsækja Abdullah Jórdaníukonung, Jacques Chirac Frakklandsforseta, Bill Clinton Bandaríkjaforseta og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Svefnlyfið Rohypnol litað í kjölfar nauð- gana í Ástralíu Þeir sem kaupa svefnlyfið Rohypnol í Ástralíu fá framvegis heiðbláar töflur þegar þeir fram- vísa lyfseðli sínum. Þetta til- kynnti svissneska lyijafyrirtækið Hoffmann-La Roche í gær. Ákveðið var að hafa svefntöfl- urnar litaðar eftir að þær höfðu verið notaðar í tengslum við nauðganir í Ástralíu. Konum höfðu verið gefnar svefntöflumar, sem eru lyktar- og bragðlausar. Konunum var síðan nauðgað á meðan þær voru undir áhrifum svefhlyfsins. Tveir menn í Queensland í Ástralíu hafa nýlega verið dæmd- ir fyrir nauðganir eftir að hafa laumað svefhlyfinu Rohypnol í konur. Slíkt hefur oftast komið fyrir á næturklúbbum í Ástralíu. Stuttar fréttir i>v Serbar hætta samvinnu Serbar í Kosovo hafa ákveðið að hætta samvinnu við friðar- gæsluliða og Sameinuðu þjóðim- ar vegna árása Albana. Barnaníðingur 62 ára barnaniðingur beitti 6 ára norskan dreng kynferðislegu ofbeldi á tjaldstæði í Svíþjóð síð- astliðinn fóstudag. 8 ára bróðir fómarlambsins slapp frá mannin- um sem sleppt hafði verið úr fangelsi sama dag. Luzhkov vill Primakov Föðurlandsflokkur Júrís Luzhkovs, borgarstjóra Moskvu, ætlar að biðja Jevgení Prima- kov, fyrrver- andi forsætis- ráðherra Rúss- lands, um að leiða flokkinn í þingkosningun- um sem haldn- ar verða í desember næstkom- andi. Primakov, sem nýhu' mikill- ar virðingar kjósenda, hefur enn ekki ákveðið sig. Öflugur jarðskjálfti Öflugur jarðskjálfti, 6,6 á Richt- er, reið yfir strandríki Mið-Amer- íku við Karíbahaf í gær. Hrói höttur var hommi Útlaginn Hrói höttur var hommi samkvæmt breska bók- menntaprófessomum Stephen Knight. Prófessorinn segist hafa komist að þessari niðurstöðu eftir að hafa skoðað ballöður um afrek Hróa frá 15. öld. Læstar inni í mörg ár 46 ára Kaliforníubúi hélt tveimur fyrrverandi eiginkonum sínum og 4 bömum þeirra læstum inni í hita- lausum bílskúr í mörg ár. Þau voru öll beitt ofbeldi. Ellefu eldri börn, sem einnig sættu ofbeldi, bjuggu með manninum og núverandi konu hans í einbýlishúsi mannsins. Létust í óveðri Að minnsta kosti átta hafa lát- ist í óveðri i Júgóslavíu og Ung- verjalandi undanfama daga. Hundruð hafa orðið að yfirgefa heimili sín í þessum löndum og Austurríki vegna veðurhamsins. Spenna í Belfast Mikil spenna ríkti í Belfast á N- írlandi í gær vegna göngu Óran- íureglunnar um borgina í dag. Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, sagði í gær að hann gæti nú ekki gert meira til að koma á friði. Á fimmtudag verða stjórn- málamenn á N-írlandi að taka af- stöðu til friðaráætlunar Blairs og Aherns, forsætisráðherra N-ír- lands. Gouda 28% í kíl óap a k k n í n g u m á tilbodi f næstu verslun. Kostaði áður JZStðKr. pr. kg. Kostar nú 636 kr. pr. kg. V______________________________________________

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.