Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1999, Side 17
MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 1999
Fréttir
17
Þróunarsetur
á ísafirði
- sameiginleg aöstaöa ýmissa stofnana
Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.
DV-mynd Hörður
DV, Vestfj örðum:
Nýtt þróunarsetur var tekið í notk-
un á ísafirði 18. júní. Það er í svoköO-
uðu Vestrahúsi við ísafiarðarhöfn
sem upphaflega var byggt sem frysti-
hús á sjötta áratugnum og fleiri
þekkja trúlega sem ísfirðingshúsið.
Hafist var handa við breytingar nú í
ársbyrjun og alls hefur setrið yfir að
ráða 940 fermetrum. Framkvæmdir
voru fjármagnaðar af Vestra hf. sem
er eigandi hússins og framleigir félag-
ið aðstöðuna síðan með langtíma-
samningum. Verktaki var Ágúst og
Flosi hf.
Stofnanir sem þama eru til húsa
eru Hafrannsóknastofnun, Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins, At-
vinnuþróunarfélag Vestfjarða, Svæð-
isvinnumiðlun Vestfiarða og Fjórð-
ungssamband Vestfirðinga. Auk rann-
sóknar- og vinnuaðstöðu er fundarsal-
ur með fiarfundabúnaði sem gefur
möguleika á nánum samskiptum við
t.d. háskóla á Akureyri og í Reykja-
vík.
Aðalsteinn Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags
Vestfiarða, segir að upphaflega hug-
myndin hafi verið að safna saman á
einn stað þeim opinberu fámennis-
stofnunum sem hafa útibú á ísafirði í
dag.
„Það er augljóst hvaða vandkvæð-
um það er bundið að starfa einn eða
með fáum í rannsóknarstofnun sem
líka á að sinna einhverri þjónustu.
Hugmyndin var því að reyna _ að
tengja þær stofnanir sem starfa á ísa-
firði undir eitt þak. Það hefur nú tek-
ist með stofnun Þróunarseturs sem nú
er með 18 starfsmenn. Auk þess eru 4
starfsmenn Skipaafgreiðslu Gunnars
Jónssonar hér líka undir sama þaki.
Hugmyndin er síðan að i Þróunarsetr-
inu geti kviknað hugmyndir og hér
verði þá eins konar hugmyndabanki.
Þannig ættu að fæðast hugmyndir að
nýsköpun í atvinnulífinu á Vestfiörð-
um sem ekki virðist veita af nú.
Við erum nú að stækka þetta með
þvi að tengjast Náttúrustofu Vest-
fiarpa í Bolungarvík. Þar gæti t.d. ver-
ið um að ræða sameiginlega síma-
vörslu sem tengdi þá beint við þessa
starfsemi. Þá er svona stór vinnustað-
ur líka áhugaverður fyrir þá rann-
sóknaraðila sem hingað til hafa fram-
kvæmt sína vinnu í Reykjavík. Við
höfum íhugað að hér ætti auðvitað að
vera aðsetur fyrir ofanflóðarannsókn-
ir í samvinnu við Veðurstofu íslands.
Háskóli íslands hefur svo lýst því yfir
að þeir ætli að reyna að koma upp
rannsóknarstöðu á svæðinu og vilja fá
að vera í þessu setri á ísafirði," sagði
Aðalsteinn. -HKr.
Björgunarbíllinn nýi og sjúkrabíllinn.
DV-mynd Hanna
Breiðdalsvík:
Breytt í björg-
unarsveitarbíl
DV, Breiðdalsvík:
Björgunarsveitin Eining á Breið-
dalsvík hefur fengið öflugan björgun-
arsveitarbíl - nýjan Landrover, sem
hefur verið breytt og hækkaður af for-
manni deildarinnar, Ingólfi Finns-
syni. Það gerði hann á Bifreiða- og
vélaverkstæði Sigursteins Melsted.
Bíllinn er eins vel tækjum búinn og
kostur er, með flestum fáanlegum
tækjum sem að gangi geta komið. Þá
má geta þess að Rauða kross deildin á
Breiðdalsvík fékk nýjan sjúkrabíl i
vetur sem er vel búinn tækjum. Þar á
meðal hjartastuðtæki sem var gjöf frá
einstaklingum.
-HI
cs
TIIEKKINCFOX
HbSJLLJior
'síml: 587 9699
fyuýlvdlM. 1W»
Allt að 50%afsláttur
af reiðhjólum
Wways DlfNK wllh Dorítot D|pS!
Doritos
Leigan í þínu hverfi