Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1999, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1999, Side 27
MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ1999 39 Sviðsljós Madonna í stríð við son Milosevics Marko Milosevic, sonur Slobodans Milosevics Júgóslavíuforseta, á nú yfir höfði sér nýtt stríð þegar stríð- inu við Nato er lokið. „Við skulum vona hans vegna að hann hafi góðan lögmann," segir talskona söngstjöm- unnar Madonnu, Liz Rosenberg. Marko Milosevic hefur nefnilega opnað diskótek í Belgrad sem hann hefur gefíð nafnið Madonna í höf- uðið á uppáhaldsstjörnrmni sinni. Söngkonan er sögð vera allt annað en hrifin og íhugar nú að höfða mál til þess að losna við að vera bendluð við diskótekið. Sá sem Madonna er hrifln af þessa dagana er breski leik- arinn Rupert Everett sem hún lék á móti í kvikmyndinni The Next Best Thing. íveislu að lokinni frumsýn- ingunni á annarri mynd krækti Madonna í hönd Ruperts hvenær sem tækifæri gafst. Ljósahlífar á flestar tegundir bifreiða I nausí; Sími 535 9000 • Fax 535 9040 • www.bilanaust.is Japanska rokkgrúppan Johnny hefur lýst andstöðu við þyngdaraflið. Þess vegna kjósa hljómsveitarmeðlimir að spila á hvolfi eða þannig. Þéir eru hengdir upp á fótunum og spila jafnan samfleytt í 30 til 40 mínútur en þá taka þeir hvíld. Símamynd Reuter Emma slegin út af laginu Emma Thompson segist alger- lega slegin út af laginu þegar kemur að því að finna ófæddu barni hennar nafn. Tíminn er langt frá því að vera á þrotum því Emma á ekki von á sér fyrr en í októ- ber. „Ef mér detta einhver nöfn í hug er Greg alltaf fljótur að kveða mig í kút- inn,“ sagði Emma þegar hún lýsti vandræðum sínum við breska fjölmiðla á dögunum. Ekki fylgdi sögunni hvort sam- býlismaðurinn, Greg Wise, hefði einhverjar óskir í þessu sam- bandi en helst mun Emma hallast áð nöfnum Churchill hjónanna; þ.e. Winston og Clementine. Hrakfalladag- ur hjá Sophiu Lánið lék svo sannar- lega ekki við ítölsku þokkagyðjuna Sophiu Loren fyrr í vikunni þegar hún stýrði hátíð- arhöldum i versluninni Harrods í London.. Sophia var ekki fyrr komin á svæðið en að páfagaukur slapp úr gæludýradeild verslun- arinnar og fór að láta illa í kringum leikkon- una. Svo virtist sem fuglinum væri í nöp við Sophiu og réðist hann hvað eftir annað að henni. Sophia varð eins og von er afar skelkuð en til allrar hamingju tókst starfs- fólki Harrods að hand- sama fuglinn. Ekki var allt búið enn hjá aumingja Sophiu því þegar fuglinn var á braut hugðist hún stiga upp á sviðið til þess að setja há- tíðina. Þá vildi ekki bet- ur en svo til en henni skrikaði fótur og féll hún kylliflöt á gólfið. „Svei mér þá, þetta er verra en að leika í kvikmynd," varð leikkonunni að orði sem greinilega vildi gera grín að öllu saman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.