Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Síða 2
2
MIÐVKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999
Fréttir
Pólsk oröa fyrir störf í þágu áfengissjúkra:
Póllandsforseti
heiðraði íslending
- Stefán Jóhannsson byggöi upp áfengismeöferö og þjálfaöi pólskt fagfólk
Stefán Jóhannsson áfengisráð-
gjafi var í síðustu viku heiðraður
af Aleksander Kwasniewski , for-
seta Póllands, fyrir uppbyggingar-
starf sitt i þágu áfengismeðferðar í
Póllandi. Stefán veitti orðu sem
nefnd er „Order of merit“ eða
þakklætisorðan viðtöku í forseta-
höllinni nú á dögunum. Mikið hef-
ur verið fjallað um orðuveitinguna
í pólskum fjölmiðlum, bæði í sjón-
varpi og 1 dagblöðum. Einnig hefur
verið gefin út bók í Póllandi með
viðtölum við Stefán um áfengissýk-
ina. Bókin, sem skrifuð er af pólsk-
um lagaprófessor, Wiktor Osi-
atynski, nefnist „Alcoholism, sin
or disease?" og hefur hún einnig
verið gefin út í Bandaríkjunum.
„Þetta byrjaði allt fyrir um tólf
árum þegar ég bjó í Bandaríkjun-
um og var fenginn til að fara til
Póllands til að meta þarfir á með-
ferð fyrir alkóhólista og skipulagn-
ingu AA-samtakanna í Póllandi.
Stefán Jóhannsson áfengisráðgjafi hlaut mikla
athygli fjölmiðla í Póllandi á dögunum er hann
var heiðraður af forseta Póllands, Aleksander
Kwasniewski, fyrlr uppbyggingu áfengismeð-
ferðar þar í landi. DV-mynd ÞÖK
Ég fór svo nokkrar
ferðir þangað næstu
árin til að þjálfa fag-
fólk í áfengismeðferð
og koma þessu öllu af
stað.“
Stefán segir þörfina
fyrir nútímalega áfeng-
ismeðferð hafa verið
mikla á þessum tima
því meðferðarúrræði
hafi verið frumstæð og
alkóhólistar einfald-
lega taldir geðveikir.
Sterk tengsl
landanna
„Það tók um tvö ár
að koma þessu öllu i
gang en síðan hefur
þetta verið í fullum
gangi og gengið framar
öllum vonum síðastlið-
in tíu ár. Nú eru kom-
in meðferðarúrræði í fangelsum og
komin sérstök meðferðarheimili
sem áður voru ekki til staðar."
Stefán segir Pólverja finna sig
mjög nálægt íslendingum og þeir
hafi munað vel eftir heimsókn
Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta
íslands, til Póllands síðastliðinn
vetur. „Ég hélt fyrirlestra m.a. í
Varsjá, Kraká og Gdansk og mér
fannst mjög merkilegt að pólsk-ís-
lenska vináttufélagið í Varsjá var
mjög spennt fyrir þessu öllu. Pól-
verjunum fannst líka mjög merki-
legt að íslendingur skyldi vera
sóttur til Bandaríkjanna til þess-
ara starfa í stað einhvers Banda-
ríkjamanns. En ástæðan fyrir því
var auðvitað meðal annars sú að
það var mun auðveldara fyrir mig
að komast inn í Pólland á þessum
tíma heldur en einhvem Banda-
ríkjamann."
-GLM
Gífurleg stemning á Landsmóti skáta ‘99:
Mjög góð þátttaka í mótinu
nýjustu frétt-
ir og slúður.
Þá er einnig
mótsútvarp
til staðar
sem verður
væntanlega
með beinar
útsendingar
af hinum og
þessum leikj-
um. Þema
mótsins er
„Leiktu þitt
lag“ og skín
tónlist því í
gegnum flest
allt á því. Á
Leiktu þitt lag
Dagskráin er
uppfull af alls
kyns leikjum og
ævintýrum. Á
svæðinu er starf-
rækt mótsblað
sem kemur út á
hverjum degi með
DV Úlfljótsvatni.
í gærkvöldi fór fram mótssetning á
Landsmóti skáta á Úlfljótsvatni.
Stemningin í hópnum sem sat fyrir
framan hátíðarsviðið var ískrandi
góð og bros á hverjum munni. Setn-
ingarathöfnin byrjaði á þvi að Gaui
litli stórskáti barði bongótrommur af
krafti við mikinn fögnuð áhorfenda.
Gaui sá einmitt um skreytingu hátíð-
arsviðsins. Þá sungu skátarnir
söngva af fullri raust og fulltrúar
aUra þjóða sem saman eru komnar á
Úlfljótsvatni köstuðu kveðju á hina.
Mótið stendur í viku, nánar tiltekið
13.-20. júlí, og er nóg að gerast. Skáta-
félögin voru búin að koma upp búð-
unum sínum í
gærkvöldi en í dag
verður haldið
áfram við smíðar
hliðanna sem ein-
kenna tjaldsvæði
hvers félags.
Mikill fjöldi skáta frá mörgum löndum
Myndin er frá setningu mótsins.
er nú saman kominn viö Úlfljótsvatn.
DV-myndir Teitur
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, og Jónas B.
Jónsson f.v. skátahöfðingi voru meðal heiðursgesta.
hverjum degi er sérstök tónlistar-
stund og aUir læra einnig hina og
þessa dansa. Þá fær hver og einn
þátttakandi sérstaka mótsflautu og
er honum gert að læra táknmál sem
henni fylgir. Þátttakan á mótinu er
með eindæmum góð, þetta er stærsta
Landsmót skáta sem hefur verið
haldið. Rúmlega 3000 eru á mótinu
sjálfu og gert er ráð fyrir að þar bæt-
ist ofaná 2000 manns sem verða
þama að hluta til og líti inn. -hvs
Landsmót skáta ‘99:
Alþjóða samhugur
Þeir félagar Erik, Alexander og
Martin em fæddir og uppaldir í Svía-
ríki, nánar tUtekið í Stocksund. Þeim
var alveg sama þó veðurguðimir væm
ekki ennþá komnir í gott skap þrátt
fyrir að vera nýkomnir úr 30 stiga hita.
Þegar þeir vora spurðir að því hvað
það væri sem þá hlakkaði mest tU að
gera á Landsmótinu var ekki langt í
svarið: Að kynnast öðm fólki, eignast
nýja vini aUs staðar að úr heiminum.
Ekki skemmdu stelpumar þá fyrir. Á
Landsmótinu em skátar frá yfir tutt-
ugu löndum, öUum heimsálfum. Fólk
flykkist hvaðanæva að; 150 manna hóp-
ur frá Hong Kong ferðaðist yfir hálfan
hnöttinn tU þess að geta verið í vinnu-
búðum á mótinu, hjálpað tU; tvær kon-
ur frá Egyptalandi mættu á svæðið og
hvöttu alla tU að koma á skátamót tU
sín; stór hópur frá Japan brosti sínu
breiðasta; skátar frá Nepal, Grikklandi,
Puerto Rico og svona mætti lengi telja.
AUir koma þeir með sama hugarfari,
að skemmta sér og kynnast nýju fólki
og siðum. -hvs
Erik Persson, Alexander Hammerland og Martin Svenselius hlökkuðu mest
til að kynnast nýju fólki. DV-mynd Teitur
Stuttar fréttir i>v
Fyrsti einkaskólinn
Nuddskóli
Guðmundar
Rafns Geirdal
hefur fengið við-
urkenningu
menntamála-
ráðuneytisins
sem einkaskóli.
Skólinn, sem er
á framhaldsskólastigi, er fyrsti skól-
inn sem fær slíka viðurkenningu á
því stigi. 50 nemendur em við skól-
ann og 86 hafa útskrifast sem nudd-
fræðingar.
Ástand vatnsbúskapar
Landsvirkjun hefur sent fyrir-
tækjum í orkufrekum iðnaði bréf
þar sem bent er á að veðurfar það
sem af er sumri hafi ekki verið
vatnsbúskap fyrirtækisins hagstæð-
ur. Sökum þess getur komið til verð-
hækkana og skerðingar á ótryggðu
rafmagni og afgangsorku.
Fylgst með
Borgarráð beindi í gær þeim til-
mælum til Lögreglunnar í Reykja-
vík og Heilbrigðiseftirlits Reykjavík-
ur að fylgjast grannt með gangi máli
í Grjótaþorpinu en íbúar þar hafa
kvartað mikið vegna skemmtana-
halds i hverfinu.
Gengur vel
Sophia Han-
sen sagði í við-
tali við Morgun-
blaðið í morgxm
að dætrum sin-
um, þeim Dag-
björtu og Rúnu,
vegnaði vel í
skólanum að eig-
in sögn. Ekki væri þó ömggt að þær
fengju inngöngu í háskóla þar sem
neitað væri að taka við nemendum i
kuflum með andlitsblæjur. Sophia
mun hitta dætur sínar aftur í dag.
Tengsl við glæpasamtök
Lögreglan í Keflavík rannsakar
nú hvort tveir menn, sem handtekn-
ir vora vegna gruns um flkniefha-
brot i Grindavík um siðustu helgi,
tengist mótorhjólasamtökunum
Hell’s Angels. Ummerki þess efnis
fúndust við húsleit þar sem m.a. var
lagt hald á um 20 grömm af hassi og
7 grömm af efni sem líklegt þykir að
sé LSD.
Olía hækkar
Bylgjan sagði frá þvi í morgun að
talið er að olíuhækkanir erlendis
muni hafa slæm áhrif á útgerðina
hér heima. Líklegt þykir að styttast
fari í það að olía verði hækkuð. í
gær var hráolíutunnan á Rotterdam-
markaði hækkuð úr 10 í 19 dollara.
Skógaskóli hættir
Framhalds-
skólinn að Skóg-
um hættir eftir
50 ára starfsemi
eftir því sem
fram kemur í
Morgunblaðinu í
dag. Þar segir
Drífa Hjartar-
dóttir, formaður skólanefndar skól-
ans, að ákveðið hafi verið að starf-
rækja skólann ekki á næsta ári þar
sem of fáar umsóknir bárust. Aðeins
sóttu 18 nemendur um skólavist og
11 staðfestu skólavist sína
Ríkisstjórn
Tvö mál vora á dagskrá á ríkis-
stjómarfundi í gær. Utanríkisráð-
herra ræddi breytingar á viðaukum
og bókunum við EES-samninginn og
menntamálaráðherra áherslur
OECD-ríkja í rannsóknum og vísind-
um.
Dró úr skjálftum
Mjög dró úr jarðskjálftum við
Kleifarvatn í fyrrinótt. Upp úr kl. 7
og til 7.30 mældust nokkrir litlir
skjálftar með upptök í Holtum, n.t.t.
um 11 km norður af Hellu eða 2-3
km norður af Marteinstungu.
Stærstu skjálftamir urðu kl. 7.03,2.1
á Richter, og 7.18, sem var 2,6 að
stærð.
Eimskip í ferjurekstur?
Eimskip hefur í hyggju aö hefia
ferjurekstur milli Færeyja, íslands,
Danmerkur og Aberdeen í Skotlandi
næsta sumar. Þegar hefur færeyska
fyrirtækið Smyril Line rekstur á
þessum siglingarleiðum. -hb