Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999
Prins frá Úlfljótsvatni
1. v. stóðhestur
Glæsilegur klárhestur með tölti,
hreinræktaður af Kolkuósstofni,
verður í girðingu í nágrenni
Selfoss frá 23. júlí.
Upplýsingar í síma 482 2668
eða 854 2668.
Faxafeni 8
Dömupeysur
tvœr fyrir eina
Herrabolir
tveir fyrir einn
Opift.
Mán - Fi 10-18
: Fö 10-19
i Lau 10-18
' Su 12-17
NÝJAR VÖRUR
DAGLEGA
Á FRÁBÆRU
VERÐI
Útlönd
Khatami íransforseti:
Mótmælin ógna
öryggi landsins
Þúsundir írana, margir með
myndir af hinum látna trúarleiðtoga
Khomeini, gengu um götur Teheran
í íran í morgun og lýstu yfir stuðn-
ingi við íslömsku klerkastéttina.
Höfðu klerkamir hvatt til göngunn-
ar sem var sjónvarpað beint í ríkis-
sjónvarpinu í íran.
Khameini, æðsti trúarleiðtogi
írans, hvatti í gær samtök ungra
vopnfærra múslíma til að brjóta á
bak aftur óeirðimar sem brotist hafa
út í kjölfar mótmæla stúdenta undan-
farna sex daga. Stúdentarnir, sem
upphaflega efndu til mótmæla gegn
lokun frjálslynds dagbiaðs, sögðust í
gær ekki ætla að taka þátt í göngunni
í dag til stuðnings klerkaveldinu.
Mikil átök brutust út í íran í gær
er lögregla beitti kylfum til að stöðva
mótmæli námsmanna. Óbreyttir
borgarar komu til liðs við stúdenta
og tóku þátt í bardögunum við lög-
regluna í miöborg Teheran.
Átök brutust út á ný í Teheran í gær
milli námsmanna og lögreglu.
Forseti írans, sem í kosningabar-
áttu sinni lofaði ýmsum umbótum í
landinu, fordæmdi í gær mótmæli
stúdenta og sagði þau ógna öryggi
landsins.
Sagði hann mótmæli ekki gagna
umbótastefnu stjórnarinnar. Kvaðst
forsetinn viss um að tilgangur mót-
mælenda væri af illum toga. Hingað
til hafa stjómmálaskýrendur litið á
mótmælin sem pólitískan sigur fyrir
Khatami en í gærkvöld sá hann sig
neyddan til að fordæma þau. Svo
virtist sem mótmælin væru komin
úr böndunum.
Leiðtogar stúdenta, sem sumir eru
í nánu sambandi við forsetann, við-
urkenndu í gær að þeir hefðu ekki
lengur stjóm á mannfjöldanum í
Teheran.
„íran er orðið eins og Palestína.
Hvers vegna eigum við bara að sitja
og horfa á,“ hrópuðu mótmælendur í
gær.
Þrátt fyrir mikla fátækt og atvinnuleysi eru bæði fjárhættuspil og hanaat daglegir viðburðir í borginni Dili á Austur-
Tímor. Maðurinn á myndinni býr hana sinn undir að berjast. Símamynd Reuter
Odýri kvikmyndagerðarmaðurinn
Haukur M. Hrafnsson.
Vhjjjj 'ó 1-T h i
Hvalveiðimenn
skutu á gúmbát
grænfriðunga
Skotið var á gúmbát grænfrið-
unga úr norsku hvalskipi síðast-
liðinn mánudag. Trond Eide, lög-
reglumaður í Stavanger, sagði í
gær að allt benti til að skotið
hefði verið á gúmbátinn.
Norska strandgæslan gerði
skip grænfriðunga, Síríus, upp-
tækt síðastliðinn mánudag undan
suðurströnd Noregs. Grænfrið-
ungar höfðu reynt að koma í veg
fyrir hrefnuveiðar norska hval-
veiðiskipsins Katos.
Lögreglan á eftir að yfirheyra
áhöfn skipsins um skotárásina.
Ekki stendur til að yfirheyrslan
fari fram fyrr en skipið kemur til
hafnar að loknum veiðum, það er
i fyrsta lagi eftir um tvær vikur.
Skip grænfriðunga fær ekki að
sigla fyrr en hvalveiðitímabilinu
lýkur 1. ágúst næstkomandi.
Stuttar fréttir r>v
Eins og í Strandvörðum
Hillary Clinton, forsetafrú
Bandaríkjanna, heldur áfram
kosningabar-
áttu sinni í New
York og hélt á
strönd í gær til
að láta mynda
sig með strand-
gestum. „Mér
finnst eins og
ég sé í Strand-
vörðum," sagði
Hillary í gamni um leið og hún
stillti sér upp með sólbrúnum og
vöðvamiklum lífvörðum.
Aukefni í sígarettum
Komið hefur í ljós að tóbaksfyr-
irtæki hafa stundað það að setja
aukefni í sígarettur til að gera
þær meira ávanabindandi. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu frá
breskum krabbameinsrannsókn-
arsjóði og Massachusettsríki í
Bandaríkjunum.
Bjórflöskur drepa
Alls hafa 5 látist og 52 slasast í
Kína að undanfomu þegar bjór-
flöskur hafa sprungið framan í
fólk.
Eldar í Alaska
Miklir eldar geisa nú í Alaska í
kjölfar mikils hita og þurrka í
jörðu. Eldingaveður á mánudag
varð til þess að 16 nýir eldar
kviknuðu í miðhluta landsins en
fyrir loguðu eldar á 49 stöðum
víðs vegar um rikið.
Tekur ákvörðun í dag
Öll spjót standa nú á David
Trimble, leiðtoga Sambandssinna
á N-írlandi, en
hann verður að
ákveða í dag
hvort hann og
flokkur hans,
Ulster, sam-
þykki friðar-
drög þeirra
Blairs og
Aherns um myndun heimastjórn-
ar og afvopnun öfgahópa. Hart
hefur verið gengið á eftir Trimble
að samþykkja friðardrögin. Tony
Blair lagði í gær frumvarp fyrir
breska þingið sem á að tryggja að
Sinn Féin verði vikið úr heima-
stjórninni standi IRA ekki við
sinn hluta samningsins.
Nýr forsætisráðherra
Fyrram bankastjóri og kaup-
sýslumaður, sir Mekere Morauta,
tók formlega við embætti forsæt-
isráðherra á Papúu Nýju-Gíneu í
gær.
Meira skrifað um karla
Helmingi fleiri minningarorð
era skrifuð um karla en konur í
bandarískum dagblöðum. Þetta
kemur fram í rannsókn félags-
fræðingsins Robin Moremen sem
skoðaði 500 minningargreinar.
Skotið á írak
írakar halda því fram að vest-
rænar flugvélar hafi hæft skot-
mörk í norðurhluta landsins i
gær.
Lestarmorðingi í haldi
Mexíkóski flækingurinn Rafael
Ramirez, sem granaður er um að
hafa myrt að minnsta kosti átta
manns, gaf sig fram við lögreglu í
Texas í gær. Ramirez var á lista
FBI yfir tíu hættulegustu menn
heims.
Trump íhugar framboð
Viðskiptajöfurinn og milljarða-
mæringurinn Donald Tramp hef-
ur hug á að
bjóða sig fram
til forseta
Bandaríkjanna.
Þetta mun
Tramp hafa
sagt i viðtali
við vikuritið
Newsweek á
dögunum. Tramp er þekktur
kvennamaður og kvaðst í ljósi
mikilla umræðna um kvennamál
Clintons geta fullvissað fólk um
að sínar vinkonur væra miklu
sætari.