Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Side 16
MIÐVIKUDAGUR 14. JULI 1999
MIÐVIKUDAGUR 14. JULI 1999
Sport
Milan Zivad-
inovic var í gær
vikið úr starfi
Werder Bremen tryggði
sér í gærkvöld sæti í úr-
slitum þýska deildarbik-
arsins í knattspyrnu. Bre-
men sigraði Bayer Lev-
erkusen í borginni Aue og
var það Marco Bode sem
skoraði sigurmarkið.
Hinn undanúrslitaleikur-
inn verður í kvöld á milli
Dortmund og Bayern og
eftir hann kemur í ljós
hveijir mæta Bremen í úr-
slitaleik á laugardaginn.
landsliðsþjálf-
ara Júgóslavíu. Knatt-
spyrnusambandið brást
þannig við þegar í Ijós
kom að Zivadinovic hafði
gert samning við félagslið
í Sádi-Arabíu. Eftirmaður
hans verður líklega
Raddy Antic sem rekinn
var frá Atletico Madrid
fyrir skemmstu.
Sindri sigraði Ægi, 3-0, í
2. deild karla í knatt-
spyrnu í gærkvöld. Ejub
Purisevic, Stefán Arn-
alds og Haukur Ingi
Einarsson skoruðu fyrir
Sindra sem þar með er í
öðru sæti og eina tap-
lausa lið deildarinnar.
Magni frá Grenivík
vann Nökkva, 4-0, á Ak-
ureyri í C-riðli 3. deildar.
Björn Jakobsson KR-
ingur byrjaði ekki vel
með sínu nýja liði í
Noregi, Raufoss, því hann
rotaðist í æfingaleik í
vikunni. Björn gat þó
haldið leiknum áfram
eftir nokkurt hlé og hann
spilar væntanlega sinn
fyrsta leik með Raufoss í
norsku B-deildinni á
sunnudaginn.
Sverrir Sverrisson,
landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, var. mættur til
Eyja í gærkvöld til að
fylgjast meö sínum gömlu
félögum i ÍBV leika við
SKTirana. Sverrir er i
stuttu fríi hér á landi en
hann hefur ekkert getað
leikið með Malmö FF I
Svíþjóð undanfarið vegna
þrálátra nárameiðsla.
Eyjamenn og önnur ís-
lensk liö sem taka þátt í
Evrópumótunum í knatt-
spyrnu í sumar fá nú
meiri hagnað af þátttök-
unni en áður. Heimaliðin
þurfa ekki lengur að
standa straum af ferða-
kostnaði og upphaldi
dómara og eftirlitsmanns
því UEFAhefur tekið að
sér þann þátt.
Zoran Miljkovic og Gor-
an Aleksic, Júgóslavam-
ir i liði ÍBV, hafa verið
mjög uggandi vegna
seinni leiks Eyjamanna
gegn SKTirana í Alban-
íu. Þeir óttast hefndarað-
gerðir Albana í þeirra
garð vegna þess hve
skammt er síðan Kos-
ovostríðinu lauk.
Aö sögn forráðamanna
ÍBV er þó öraggt að þeir
fari með liðinu til Alban-
íu. Hefðu Eyjamenn unn-
ið stórsigur i gærkvöld er
hins vegar nokkuð víst að
tvímenningarnir hefðu
verið látnir sleppa síðari
leiknum. -JKS/VS
________Sport
Rútur ekki
Bjarni Jóhannsson:
Unnum og
héldum hreinu
„Þetta er miklu sterkara lið en
það sem
Skaginn var
að spila við
um daginn.
Við ætluðum
að byrja af
krafti og
gerðum það en
gátum ekki nýtt okkur það með
því að skora,“ sagði Bjarni
Jóhannsson, þjálfari ÍBV, við DV
eftir leikinn við SK Tirana.
„Við þurftum að bíða lengi eftir
markinu og í seinni hálfleik
náðum við aldrei að klófesta þá
almennilega. Þeir spiluðu agaða
vöm og við þurftum bara að vona
að þessi vörn þeirra komi framar
á völlinn í leiknum ytra. Við erum
með þetta i hendi okkar, héldum
hreinu og unnum leikinn og þetta
tvennt skiptir mestu máli þegar
við fórum í útileikinn. Það var
kannski eitthvert vanmat í gangi
hjá okkur fyrir þennan leik en það
verður ekki til staðar úti,“ sagði
Bjarni Jóhannsson. -VS
Bland i poka
Breska hótel- og fjölmiölakeöjan
Granada keypti í gær 9,9% hlut 1
enska úrvalsdeildarliðinu Liverpool
fyrir 22 milljónir punda eða rúma 2,6
milljaröa íslenskra króna. Stærsti
hluti kaupverðsins fer í leikmanna-
kaup en þessi samningur er hluti af
átaki í að rífa gamla stórveldið í
enska boltanum upp á ný.
Gerard Houllier, stjóri Liverpool,
fær 20 milljónir punda til leikmanna-
kaupa en Granada mun auk þess sjá
um andlit félagsins út á við, útgáfu-
mál, sjónvarps- og útvarpsréttindi
auk sölu minningagripa, búninga og
annars efnis sem tengist félaginu.
Þjóðverjinn Thomas Helmer skrifaði
í gær undir tveggja ára samning við
úrvalsdeildarliðið Sunderland. Hel-
mer kemur á
frjálsri sölu frá
Bayem Munchen
og þessi samning-
ur hefur verið í
burðarliðnum
lengi en staðfest-
ist loksins i dag.
Aöalfundi HK,
sem halda átti
annað kvöld, hef-
ur verið frestað til miövikudags-
kvöldsins 11. ágúst kl. 20.00 í Hákoni
digra.
Forráðamenn Formúlu eitt hafa gef-
ið út að Michael Schumcaher hafi
verið á minni hraöa en áður var
talið þegar hann klessti á vegg á Sil-
verstone í Bretlandi á sunnudaginn.
Útreikningar þeirra sýna að
Schumacher hafi lent á veggnum á
107 kilómetra hraða eða tæplega 100
kilómetrum hægar en áður var talið.
Schumacher bremsaöi fyrst á 306
kílómetra hraða, á 240 kílómetra
hraða læstust framhjólin og viðnám
utan brautar ætti
að hafa náð honum
niður 1 107 kíló-
metra hraða þegar
hann klessti á
vegginn.
8 liða úrslit í bikarkeppni kvenna:
KR og Blikar með
flugeldasýningu
%
Schumacher var
útskrifaður af spít-
alanum í gærmorg-
un og flogiö með
hann til Sviss en
talið er að þaö taki
hann 2 til 3 mánuði að ná sér.
Forráóamenn Ferrari hafa beðið
Finnann Mika Salo um að prófa
kappakstursbíl liðsins til að veröa
hugsanlegur ökumaður fyrir hinn
fjarverandi Michael Schumacher sem
fótbrotnaði í keppni á sunnudag.
Salo, sem er 32 ára, hefur ekið í for-
múla eitt fyrir Lotus, Tyrrell, Arrows
og BAR og fór hann til Ítalíu í gær
til að reynsluaka Ferrari-bílnum.
Ferrari-menn töluðu fyrst við Frakk-
ann Jean Alesi en hann aíþakkaði,
sagðist vilja snúa aftur til liðsins sem
hann ók fyrir 1991 til 1995 en ekki þó
undir núverandi kringumstæðum.
Það yrði þá að vera við hlið Þjóðverj-
ans Michaels Schumachers.
Serbneski herforinginn og stríðs-
glæpamaðurinn Zeljko Raznatovic,
betur þekktur sem Arkan, hefur
ákveðið aö slíta öll tengsl við
júgóslavnesku meistarana Obilicfrá
Belgrad. Liðiö fær því væntanlega
aftur að keppa á Evrópumótum fé-
lagsliða á næsta ári eftir bann frá
keppninni í ár.
Obilic komst mik-
ið í fréttir hér á
landi í fyrra þegar
þeir mættu IBV i
Evrópukeppni fé-
lagsliða og svo aft-
ur i vor þegar
UEFA bannaði lið-
inu þátttöku í Evr-
ópukeppnunum í
vetureftiraö Ark-
an var ákærður af
Sameinuðu þjóðunum fyrir striös-
glæpi í átökunum á Balkanskaga.
Corey Maggette, 19 ára strákur úr
Duke háskóla, var ekki valinn fyrstur
í NBA-nýliðavalinu í ár en hann var
þó fyrstur til aö skrifa undir samning
við lið. Orlando Magic valdi hann
13. í röðinni og gerði þriggja ára
samning við Maggette sem mun gefa
honum 230 milljónir í aðra hönd.
Seattle valdi Maggette en hann var
ekki lengi á Vesturströndinni þar
sem Seattle skipti honum ásamt
þremur gamalreyndum köppum,
þeim Dale Ellis, Don MacLean og
Billy Owens, til Orlando Magic fyrir
framherjann Horace Grant og val-
rétt í annarri umferð bæði árin 2000
og 2001.
-ÓÓJ
KR-stúlkur settu á svið flugeldasýningu
er þær gjörsigruðu stjömuna, 10-0, í bik-
arkepninni í gærkvöldi á Stjömuvellin-
um. KR-ingar vom með alla yfirburði á
vellinum og voru mjög skapandi í sóknar-
aðgerðum sínum og því röðuðu þær inn
mörkunum. Stjaman
saknaði greinilega
mikið Auðar Skúla-
dóttur sem var ekki
með sökum meiðsla
og Justine Lorton
sem var í leikbanni.
Ásthildur Helgadótt-
ir skoraði þrjú
marka KR, Guðrún
Jóna Kristjánsdóttir,
Helena Ólafsdóttir og
Olga Færseth tvö
mörk hver og Guð-
laug Jónsdóttir skor-
aði eitt.
„Það var barátta
og vilji i liðinu. Þetta
er bikar sem við ætl-
um að vinna, höfum
aldrei unnið hann.
Við ætluðum hér að
sýna yflrburði okkar
í þessari deild og ég
tel að við höfum sýnt
það. Boltinn gekk vel
á milli manna og við
fundum hver aðra,
það er engin marka-
gráðug í liðinu. Við
vorum ákveðnar í að
vinna og það skipti
engu fyrir okkur
hvort Auður og Justine væm með,“ sagði
Guðlaug sem átti þátt í helmingi marka
KR en hún lagði upp fjögur og skoraði eitt
sjálf.
Yfirburðir Biika í Keflavík
Breiðablik átti náðugan dag er þær
sigraðu RKV, sameiginlegt lið Suður-
nesja, 8-0, í bragðlitlum leik í Keflavík.
Lið RKV sem er í öðru sæti síns riðils í 1.
deild átti ekki færi í leiknum og á ekkert
. erindi í Úrvalsdeild ef það leikur svona í
framtíðinni. Blikastúlkur voru mjög
ISllÉÍ
sprækar og Rakel Ögmundsdóttir gaf tón-
inn með marki strax á fjórðu mínútu
leiksins og þá var ekki aftur snúið. Blika-
stúlkur léku á als oddi og voru ungu
stúlkumar i liðinu sérlega atkvæðamikl-
ar. Rakel skoraði fjögur mörk, Erna Sig-
urðardóttir tvö, Mar-
grét Ólafsdóttir og
Eva Guðbjörnsdóttir
eitt mark hvor.
Grindavík áfram
Á Akureyri léku
sameiginlegt lið
Þórs/KA á móti
Grindavík og sigraði
Grindavík, 2-0. Leik-
urinn var nokkuð
jafn og oft mátti ekki
á milli sjá hvort liðið
léki í efstu deild. Ak-
ureyringar áttu með-
al annars skot í stöng
í fyrri hálfleik í
nokkuð fjörugum
leik. Grindavík má
vel við una að hafa
náð sigrinum í þess-
Real Madrid fær
aöhlaupa í
spænska bikarnum
Spænska knattspyrnudeildin
samþykkti í gær að hleypa Real
Madrid áfram inn í 16 liða úrslit
spænska bikarsins til að létta á
liðinu í kringum heimsmeistara-
keppni félagsliða í Brasilíu í jan-
úar. Manchester þurfti eins og
kunnugt er að hætta við þátt-
töku sína í enska bikamum sök-
um álags í kringum fyrstu tvær
umferðir hans.
Real Madrid kemur nú inn í
16 liða úrslit og þarf liðiö því að-
eins að slá út þrjú lið til að
hampa spænska bikarnum. Að
öllu jöfnu hefði Real Madrid
byrjað í fjóröu umferð í bikarn-
um sem fer fram í byrjun janúar
eða á sama tima og heimsmeist-
arakeppni félagsliða.
Búast má við viðbrögöum frá
enskum yfirvöldum í sambandi
við þessa ákvörðun Spánverj-
anna en Martin Edwards, stjórn-
arformaður félagsins, hefur stað-
ið fast á fyrri ákvörðun sinni og
stjómarinnar að keppa ekki í
enska bikarnum í ár og það þrátt
fyrir að leikmenn eins og David
Beckham hafa óskað eftir því að
liðið myndi verja titlana þrjár
frá því á síðasta vetri.
-ÓÓJ
Helena Ólafsdóttir skoraði tvö mörk
fyrir KR-inga í stórsigri á Stjörnunni í
Garðabæ.
um leik á móti
skemmtilegu liði
Akureyringa.
Síðasti leikurinn
í 8-liða úrslitunum
veröur í kvöld þeg-
ar ÍBV og Valur
leika í Eyjum.
Dregið verður
hins vegar til und-
anúrslita í hádeg-
inu í dag.
-ÍBE/ih/JJ
Atli gagnrýndur fyrir skiptingarnar:
„Urslitin skiptu
ekki neinu máli“
Talsvert hefur borið á gagnrýni á hendur Atla Eðvalds-
syni, þjálfara KR, fyrir að skipta níu leikmönnum inn á í
seinni hálfleiknum gegn Watford á sunnudagskvöldið. KR
var 2-1 yfir í hálfleik og margir telja að með sitt sterkasta
lið allan tímann hefðu vesturbæingar lagt enska úrvals-
deildarliðið að velli, í stað þess að tapa, 2-3.
„Þetta var afmælisleikur, hátíðarleikur hjá KR, og allir
leikmenn hlökkuðu til að taka þátt í honum. Ég gat ekki
leyft mér að koma í veg fyrir það, allir spiluðu og vom mjög
ánægðir eftir leikinn. Það sást á frábæmm fyrri hálfleik að
með okkar sterkasta lið höfðum við í fullu tré við Watford.
En hvað hefði það gagnað okkur að keyra á sterkasta liðinu,
vinna 4-1 og vera síðan með menn þreytta eða meidda í leik
sem skiptir meira máli, gegn Keflavík í deildinni á fimmtu-
dag? Þá er ég hræddur um að gagnrýnin hefði verið á hinn
veginn. Úrslitin sem slík skiptu ekki neinu máli gegn
Watford, en þau skipta máli gegn Keflavík," sagði Atli við
DV í gær.
Steffi Graf aö hætta
Eftir aö hafa tilkynnt að hún hafi verið að spila á sínu
síðasta opna franska tennismóti og sínu síðasta
Wimbledonmóti, staðfesti þýska tennisdrottningin Steffi
Graf í gær að hún myndi hætta eftir þetta tímabil eftir
glæstan feril. Hin 30 ára Steffi Graf hefur unnið 22 mót í
einliðaleik á ferlinum og mun spila á 54. og siöasta mótinu
sínu er hún keppir á því opna bandaríska í haust.
Steffi Graf hefur unnið alla fjóra stóru titlana (opna
franska (6), Wimbledon (7), opna ástralska (4), opna banda-
ríska(5)) að minnsta kosti fjórum sinnum hvem, sú eina í
sögunni til að gera það og árið 1988 vann hún alla fjóra titl-
anna sama árið sem er einstakur árangur og kom henni í
hóp merkustu tennisleikara aldarinnar. -ÓÓJ
Steffi Graf hefur fagnað mörgu titlum á sínum ferii sem
er nú á enda runninn. Símamynd-Reuter
KR-ingurinn Egill Atlason:
Aftur til Tottenham
Egill Atlason, KR-ingurinn efnilegi, er á förum til enska
knattspyrnufélagsins Tottenham í annað skipti. Hann fer
með unglingaliði Tottenham í 10 daga æfingaferð til ír-
lands þann 25. júlí.
Egill, sem er 17 ára og á að baki einn leik með KR í úr-
valsdeildinni, hefur dvalið við æfingar bæði hjá Totten-
ham og Sunderland. Tottenham vildi fá hann aftur strax í
júlíbyrjun og hafa hann í að minnsta kosti mánuð en Egill
var ekki tilbúinn i svo langa dvöl í bili. -VS
ÍBV1 (lj - SK Tirana 0
Suður-Ameríkukeppnin í nótt:
Urugvæ áfram
Urugvæ komst í nótt áfram í
úrslitaleik Suður-Ameríkubik-
arsins er liðið vann Chile 5-3 f
vítakeppni, eftir að staðan hafi
verið 1-1 eftir 90 mínútur.
Alejandro Lembo kom Urug-
væ yfir með skalia eftir hom á
23. mínútu en Ivan Zamorano
jafnaði á 63. mínútu einnig með
skalla eftir aukaspyrnu. I milli-
tíðinni hafði Marelo Salas hjá
Chile klikkað á víti líkt og farið
hefur með 7 af 11 vítum mótsins.
Urugvæ nýtti öll sín 5 víti í
vítakeppninni og markvörður
liðsins, Fabian Carrini, varði frá
Mauricio Aros í vítakeppninni
og tryggði sinni þjóð farseðillinn
í úrslitin. Urugvæ hefur aðeins
unnið einn leik i keppninni inn-
an hinna venjulegu 90 mínútna,
hina tvo í vítakeppni. Brasilía
og Mexíkó spila seinni undan-
úrslitaleikinn í nótt. -ÓÓJ
Birkir Kristinsson - ívar Bjarklind, Hlynur Stef-
_____ ánsson, Zoran Miljkovic, Kjartan Antonsson - Guðni
Rúnar Helgason (Jóhann G. Möller 79.), Baldur Bragason, ívar Ingi-
marsson - Allan Mörköre (Goran Aleksic (62.), Steingrímur Jóhannes-
son, Ingi Sigurðsson.
Gult spjald: Baldur B.
SKTirana:
Blendi Nallbani - Nikolin Co(clli (Nordik Ruhi 72.),
Nevil Dede, Krenar Alimehm^ti, Sajmir Malko, Elvis
Sina - Sokol Bulku, Ardian Mena, Alban Tafaj - Sokol Ishka (Ervin
Bulku 78.), Sokol Prenga.
Gul spjöld: Coclli, Dede.
ÍBV- SK Tirana lA-SK Tirana
Markskot: 19 7 Völlur: Frábær. Gola, þurrt.
Horn: 6 3 Dómari: Richard O’Hanlon
Áhorfendur: 790. frá írlandi, mjög öruggur.
Maður leiksins: Krenar Alimehmeti, SK Tirana.
Stjómaði varnarleik Albana af geysilegu öryggi.
Þjálfari SK Tirana:
Mjög ánægju-
leg úrslit
„Þetta eru mjög ánægjuleg úr-
slit fyrir okkur og betri útkoma
en við áttum von á. Liö ÍBV er
gott en ég bjóst við því að það
yrði sókndjarfara en raun bai’
vitni,“ sagði Shkelqim Muca,
þjálfari SKTirana, við DV eftir
leikinn í Eyjum.
„Ég er mjög ánægður með
vömina sem var sterk í kvöld.
Þessi úrslit gefa okkur vonir fyr-
ir seinni leikinn í Tirana því þar
munu áhorfendur styðja vel við
bakið á okkur. En helsta vanda-
mál okkar þar verður að sækja
og skora því við erum með
sterka vörn en ekki nógu skæða
sóknarmenn.
Við verðum síðan að gæta
okkur vel vegna þess að ÍBV er
með fljóta sóknarmenn sem geta
gert okkur skráveifu í skyndi-
sóknum. Númer 11 (Steingrím-
ur) er mjög hættulegur og ég var
lika hrifinn af númer 3 (ívar
Bjarklind) og 19 (Aleksic). Þetta
voru bestu leikmenn ÍBV í
kvöld,“ sagði Shkelqim Muca.
-VS
meira meö
Rútur Snorrason hefur ákveðið
að leika ekki
meira með ís-
lands- og bikar-
meisturum
ÍBV í knatt-
spyrnu í sum-
ar. Rútur, sem
hefur aðeins
verið með í
einum af þrem-
ur síðustu deildaleikjum Eyja-
manna, mun vera ósáttur við sinn
hlut og ákvað þvi að taka sér frí út
sumarið. -VS
Leikið á
Akureyri
Heimaleikur Leifturs við
Anderlecht frá Belgíu í
UEFA-bikarnum i knatt-
spyrnu verður leikinn á
Akureyrarvelli þann 26.
september. Þetta var ákveð-
ið í gær en aðstaða fyrir
áhorfendur í Ólafsfirði er
ekki nógu góð. Fyrri leikur-
inn verður í Belgíu þann
12. ágúst. -VS
Þóra farin
í Stjörnuna
Þóra B. Helgadóttir, hand-
knattleikskonan efnilega úr
Val, er gengin til liðs við
Stjörnuna. Þóra, sem ver
mark Breiðabliks í knatt-
spyrnunni, hefur verið einn
burðarásanna í efnilegu liði
Valsara og er í 21-árs lands-
liðinu sem fer til Kína síðar á
árinu. -ih/VS
var Bjarklind var einna frískastur Eyjamanna gegn SK Tirana í gærkvöld og sækir hér að marki Albana en til varnar er bakvöröurinn Elvis Sina. Á minni myndinni fagna Eyjamenn sigurmarki
Steingríms Jóhannessonar. DV-myndir ÓG
Naum forysta
- hjá ÍBV gegn SK Tirana eftir aðeins 1-0 sigur í fyrri leiknum
DV, Eyjum:
Eyjamenn geta ekki verið ánægð-
ir með frammistöðu sína gegn SK
Tirana frá Albaníu í fyrri leik lið-
anna sem fram fór í Eyjum í gær-
kvöld. Sigur ÍBV, 1-0, er lítið for-
skot fyrir seinni leikinn i suðupott-
inum í Tirana í næstu viku þar sem
búast má við albönsku meisturun-
um grimmari og sókndjarfari en
þeir voru í Eyjum.
Eyjamenn byrjuðu af krafti og
leikur þeirra fyrstu 10 mínúturnar
lofaði góðu. Tvö góð færi og Nall-
bani, markvörður Tirana, bjargaði
þá mjög vel frá Steingrími Jóhann-
essyni af markteig. Góð fyrirheit
um það sem koma skyldi - en þetta
reyndist eina virkilega dauðafæri
ÍBV í leiknum ef undan er skilið
fallegt mark Steingríms sem hann
gerði með síðustu spymunni í fyrri
hálfleik. ÍBV átti reyndar talsvert
af skotum utan eða við vítateiginn
en ýmist hittu þeir ekki rammann
eða Nallbani varði auöveldlega.
Albanirnir áttu síst minna í
leiknum í fyrri hálfleik og sköpuðu
sér nokkur efnileg sóknarfæri en
vantaði broddinn til að nýta þau.
Þeir léku hins vegar agaðan og ör-
uggan vamcirleik sem hugmynda-
snauðir Eyjamenn náðu sjaldan að
brjóta á bak aftur.
í seinni hálfleik vora Eyjamenn
með undirtökin en sem fýrr var
ógnunin of lítil. Steingrím vantaði
tilfinnanlega aðstoð í framlínunni,
þcir var hann lengst af að berjast
vonlítilli baráttu, einn gegn tveim-
Q./j\ Steingrímur Jóhannesson
v v (45.)meðviðstöðulaususkoti
á lofti úr þröngri stöðu á hægra mark-
teigshorni eftir aukaspymu Hlyns
Stefánssonar frá miðju og skalla vam-
armanns SK Tirana.
ur til þremur vamarmönnum.
Hann vantar tilfinnanlega kröft-
ugan sóknarmann við hlið sér.
Miðjumenn ÍBV bmgðust vamar-
skyldum sínum hvað eftir annað í
leiknum en það kom ekki að sök
því veikasti hlekkurinn hjá Tirana
var sóknarleikurinn og Albanir
áttu aðeins eitt markskot allan
seinni hálfleikinn þrátt fyrir nokkr-
ar efnilegar skyndisóknir. Goran
Aleksic hressti nokkuð upp á leik
ÍBV á lokasprettinum en ekki nóg
til að annað mark væri inni í
myndinni.
í heildina léku flestallir Eyja-
menn talsvert undir getu i gær-
kvöld. Þeir gerðu sig seka um alltof
mörg grundvallarmistök, einfaldar
sendingar rötuðu ekki á milli
manna og gáfu Albönum oft færi á
skyndisóknum sem beittari mót-
herjar hefðu nýtt sér betur.
„Þetta lið var mun sterkara en
við bjuggumst viö og okkur vantaði
herslumun til að skapa okkur betri
færi. En 1-0 er samt gott og nú er
að standa sig úti og ná að skora eitt
mark,“ sagði Steingrímur Jóhann-
esson við DV.
1-0 verður að duga
„Við hefðum óskað eftir fleiri
mörkum til að eiga náðugri dag úti.
En 1-0 verður að duga, við verðum
að verjast í Tirana og það gefur
okkur ákveðna möguleika. Þeir
verða að sækja, þeir verða að skora
og það hentar okkur að vissu leyti
vel. Ég er þokkalega bjartsýnn á að
þetta takist," sagði Hlynur
Stefánsson, fyrirliði Eyjamanna,
við DV.
-vs