Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Page 18
26 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 Sport DV Hinn stórglæsilegi hópur íslendinga sem keppti á Norræna barna- og unglingamótinu sem haldið var í Finnlandi fyrir stuttu. Hópurinn skemmti sér vel og matgir bættu persónuleg met sfn. Norrænt barna- og unglingamót fatlaðra haldið í Finnlandi fyrir stuttu: Alvöruhetiur lol Irn lrorvr\AV» rln i v» olr ovrv w\ 4-t -i nAv» ttoI - íslensku keppendurnir skemmtu sér vel Fimmtán keppendur frá ís- landi kepptu á norrænu ung- linga- og bamamóti fatlaðra sem haldið var í Espoo í Finnlandi dagana 14.-20. júni. Keppendurnir komu frá Reykjavík, Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Siglufirði, Akranesi og Selfossi. Einn ófatlaður einstaklingur tók að auki þátt í mótinu en það er í annað skiptið sem leyft er að senda ófatlaða unglinga á þetta mót. Gullhafar framtíðar? Á norrænu mótunun sem haldin hafa verið undanfarin ár hefur margt af okkar þekktasta íþróttafólki stigið sín fyrstu skref. Til að mynda tóku Sigrún Huld Hrafnsdótt- ir, Ólafur Eiríksson og Hauk- ur Gunnarsson sín fyrstu skref á þessu móti þannig að aldrei er að vita nema ein- hverjir af keppendunum á þessu móti sjáist á verð- launapöllum á stórmótum í framtíðinni. Mikilvægi félagsskapar Á Norrænu barna- og ung- lingamótunum er ekki ein- göngu keppnin sem skiptir máli heldur fá þessir einstak- lingar að kynnast fótluðum jafnöldrum annars staðar af Norðurlöndunum og einnig að kynnast getu sinni þannig að félagslegi þátturinn er ekki síðri en keppnin sjálf. Hetjur í hita fslensku keppendurnir voru sannkallaðar hetjur og tóku þátt í frjálsum íþróttum og sundi. Árangur þeirra var góður en þrátt fyrir 30 stiga hita alla vikuna náðu nokkr- ir keppendur að bæta per- sónuleg met og það er einmitt aðalmarkmið svona móts. Samhliða mótinu hittist ungt fatlað fólk í verk- efni sem kallað er „Leið- togar framtíðarinnar" og var starf þeirra að undir- búa og skipuleggja dag- skrá fyrir þátttakend- urna á kvöldin. Til dæm- is var farið í útileiki og í siglingu út á eyju þar sem boðið var upp á góð- an grillmat. Tveir ís- lenskir þátttakendur voru i þessu verkefni. Mótið tókst því í alla staði mjög vel en frá þessu var sagt í fréttatil- kynningu frá íþróttasam- bandi fatlaðra. Valsstúlkur Reykjavíkurmeistarar í 5. flokki: Baráttusigur Vals Knattspyrnuskóli KB í Belgíu: Framtíðar- atvinnumenn? Knattspyrnuskóli Krist- jáns Bemburg var haldinn í tíunda sinn í Lokeren í Belgíu í lok maí. Skólinn hefur nú þegar gefið af sér einn atvinnumann, Arnar Þór Viðarsson, Lokeren, en hann fór tvisvar í skólann áður en hann varð atvinnumaður. í ár mættu 18 íslenskir Umsjón Íris B. Eysteinsdóttir leikmenn frá átta félögum í skólann. Þar kynntust þeir knattspyrnuæfingum er- lendis við góðar aðstæður og fengu smjörþefinn af at- vinnumennsku. Skólinn fór mjög vel fram i ár í sól og blíðu og var áhugi strákanna eins og best verður á kosið. Arnar kom og heilsaði upp á strákana og gaf þeim trefla frá Lokeren. Besti leikmaður skólans að þessu sinni var valinn Eyjólfur Héðinsson úr ÍR. helr ílska sem róa... helr ílska sem róa... helr ílska sem róa... helr Valsstúlkur unnu baráttusigur á Reykavíkurmótinu í knattspyrnu sem fram fór á Valsvelli 19.-20. júní. Valur og KR kepptu til úrslita og eftir venjulegan leiktíma var staðan 1-1. Því þurfti vítakeppni til að skera út um mótið og Valur vann, 4-3. íkeppni B-liða sigraði Fylkir Val, 1-0, í hörkuspennandi leik. wwwvisiris FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.