Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999
27
Sviðsljós
Nú á að græða
á litla syninum
Tímaritið OK! ætlar að birta myndir
af komungum syni Kryddpíunnar
Victoriu Adams óg Davids Beckhams á
forsíðu sinni. Tímaritið hafði keypt
einkarétt á birtingu mynda úr
brúðkaupsveislu Victoriu og Davids
fyrir um 130 milljónir íslenskra króna
en bresku kvöldblöðin urðu á undan
að birta myndimar. Þess vegna á nú að
reyna að hala inn fé með því að lokka
kaupendur með myndum af syninum
litla sem heitir Brooklyn. Verða það
fyrstu opinbem myndirnar af
Beckhamhjónunum með litla krúttinu
sínu.
Victoria í stuði. Símamynd Reuter
Hin nýgiftu hafa fundið fleiri leiðir
til þess að græða peninga. Ef marka
má frásagnir erlendra blaða hafa þau
selt margar af ræðunum sem fluttar
voru í brúðkaupsveislu þeirra. Blaðið
Sunday People birti um helgina
margar ræður, þar á meðal ræðuna
sem David hélt Victoriu. „t fyrsta sinn
sem ég sá þessa stúlku vissi ég að ég
myndi kvænast henni og elska hana
það sem eftir væri ævinnar," sagði
David meðal annars. Þetta þóttu að
vonum fógur orð. Vonandi hættir
David Beckham aldrei að elska
Victoriu sína.
Kata Moss með
glas í hendi á ný
Ofurfyrirsætan Kate Moss dvaldi
á meðferðarstofnun utan við
London i nóvember á síðasta ári.
Eftir meðferðina
virtist eins og
fyrirsætan hefði
dregið úr drykkj-
unni. En nú sést
hún á nýjan leik
með glas í hendi
í veislum fina
fólksins á tísku-
stöðum i heimsborginni. Það virðist
því sem Kate Moss sé komin i sama
gamla farið aftur. Hún sést ekki
nema með glas í hendi. Umboðs-
maður ofúrfyrirsætunnar vill ekki
tjá sig um ástand hennar. Það vakti
á sínum tíma mikla athygli þegar
Kate greindi frá því að meðferðinni
lokinni að hún hefði alltaf verið
undir áhrifúm áfengis eða annan-a
fikniefna á tískusýningum.
Tvískiptur sumarkjóll suðurkóreska hönnuðarins Moon Goon er einkar
glæsilegur. Undanfarna daga hafa 300 hönnuðir sýnt sumartískuna fyrir árið
2000 í Hong Kong. Símamynd Reuter
Nicole og Tom þurftu ekki kynlífsráðgjafa:
Höfða skaðabóta-
mál gegn Star
Nicole Kidman og Tom Cruise hófu
í gær skaðabótamál gegn bandaríska
blaðinu Star. Þau segja blaðið hafa
farið með ósannindi þegar greint var
frá því i vetur að Stanley heitinn
Kubrick hefði þurft að ráða kynlífs-
ráðgjafa vegna myndarinnar Eyes
Wide Shut. Ástæðan hefði verið fá-
kunnátta þeirra hjóna í ástarleikjum.
PhO Bunton, ritstjóri Star, segir
frétt blaðsins sanna en í henni var
vitnað til kynlífsráðgjafanna Tony og
Wendy Dufiield sem kváðust hafa ver-
ið ráðin til að kenna hjónunum sitt-
hvað um hvílubrögð.
Óvíst er að þetta dugi Bunton rit-
stjóra því Dufiíeldparið hefur gefið eið-
svarinn vitnisburð þess efnis að þau
hafi aldrei kennt þeim Nicole Kidman
og Tom Cruise nokkum skapaðan hlut.
Nicole og Tom á góðri stundu.
Hagkvæmasta
leiðin úr landi
uda
Sérblað DV
Sérteia® DV
©étHbO®© DV
Miðvikudaginn 21. júlí nk. mun veglegt sérblað um ferðir ínnanlands fylgja DV.
Ferðir innanlands hafa komið út í tæpa tvo áratugi og er löngu búið að festa síg í sessi hjá
lesendum DV sem margir hverjir geyma blaðið sér til upplýsingar þegar leggja á land undir fét.
Umsjón efnis er í höndum Jóns Birgis Péturssonar, blaðam.
DV, í síma 550 5000
Auglýsendum er bent á að hafa samband sem fyrst við
Sigurð Hannesson, auglýsingadeild DV,
í síma 550 5728, netfang: sh@ff.is,
eða Þórð Vagnsson í síma550 5722, netfang: toti@ff.is
Auglýsendur,
athugið að auglýsingum
þarf að skíla til DV fyrir
föstudagínn 16. júlí.