Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999
33
Myndasögur
Veiðivon
Jóhanna Jónasdóttir með lax sem veiddist á maðk í Setbergsá fyrir fáum
dögum.
Vatnasvæði Hvítár:
staða
gott eftir að hlaupið byijaði í Haga-
vatni og ekki virðist það í rénun eins
og staðan er núna. Þeir einu sem virð-
ast veiða laxa er netaveiðimennimir.
Setbergsá: 5 laxar
komnir á land
„Það hafa veiðst 6 laxar en um helg-
ina fengust 3 laxar og einn í fyrradag,
áður voru komnir 2 laxar,“ sagði Jón
A. Snæþjömsson, formaður Stanga-
veiðifélags Austur-Húnavatnssýslu, í
gærkvöld, en veiðimenn eru byrjaðir
að fá hann í Setbergsá. „Laxarnir hafa
allir veiðst á maðkinn og svo hefur
veiðst eitthvað af hleikju líka. Ég held
að næstu dagar ættu að gefa vel, vatn-
ið er gott í ánni og það er stærstur
straumur í dag,“ sagði Jón. Það er
veitt á tvær stangir í Setbergsá.
Miðá: Efri-Þröskuldur
Við sögðum frá því í fyrradag að
stærsti laxinn í ánni hefði veiðst í
Pallinum en það rétta er að laxinn
veiddist í Efri-Þröskuldi. Eini pallur-
inn sem við vitum um er við veiðihús-
ið og þar hefur fiskurinn örugglega
ekki veiðst. Það var Leó Guðbrands-
son sem veiddi fiskinn og hann var 18
pund Fyrst við erum erum að tala um
Miðá er rétt að segja frá því að lax hef-
ur veiðst í Tunguá sem rennur i Miðá
en þessi veiddist í Svalbarðsfossi. Þar
hafa sést nokkir laxar.
Sportvörugerðin hf., Mávahlíð 41, s. 562 8383.
Slæm
„Það er lítið að frétta héðan eins og
staðan er núna, þetta er djöfuls dauði,
staðan er helvíti slæm. Á Pailinum í
Ölfusá hafa aðeins veiðst 17 laxar og
það er ekki mikið,“ sagði Ágúst Mor-
hens í Veiðisporti á Selfossi er við
spurðum um stöðuna á svæðinu. En
hlaupið í Hagavatni og núna síðast
aukið vatnsmagn í Tungufljóti hefur
spilað verulega inn í veiðiskapið á
svæðinu.
„Það hafa aðeins veiðst 2 eða 3 lax-
ar hérna fyrir neðan í Ölfusánni. En
Veiðivon
Gunnar Bender
það er mokveiði í netin, 30-40 fiskar á
dag í sumar lagnimar. Veiðin gengur
rólega í Soginu og Stóru-Laxá. Veiðin
gengur vel í Baugsstaðaósnum, Gísli
Karl var þar fyrir fáum dögum og
hann veiddi 10 og 9 punda sjóbirting.
Stefán Jón Hafsteinn veiddi 7 fiska og
voru þeir stærstu 7 pund. Þetta fékk
hann allt á flugu,“ sagði Ágúst að lok-
um.
Ástandið á svæðinu er alls ekki