Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
Fréttir
Starf forstjóra Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar:
Enn bið eftir forstjóra
Forstjóri Leifsstöðvar
-umsækjendur
Ómar Kristjánsson
Fæddur 1948.
Gagnfræöingur frá
Réttarholtsskóla 1964.
Atvinnuflugmannspróf 1968.
Tollvaröarpróf 1969.
Starf hjá SÍS til 1976.
Stofnaði Þýsk-íslenska 1976.
Dæmdur í 15 mánaða fangelsi og til
greiðslu 30 milljóna í ríkissjóö 1990.
Sigurður Jónsson
Fæddur 1938.
Viöskiptafræðingur frá HÍ1965.
Starfaði í hagdeild Loftleiða 1965-69.
Starfaöi hjá Sameinuöu þjóðunum
1969-74.
Forstjóri Heildar hf. 1974-76.
Forstjóri SKÝRR 1976-77.
Forstjóri UNIDO I Vín 1977-81.
Forstjóri Innkaupadeildar SÞ í New
Vork 1981-
Ýmis störf, m.a. fyrir Evrópubankann
1981-.__________
Sigurður Karlsson
Fæddur 1951
Viðskiptafræðingur frá HÍ1977.
Framhaldsnám við Handelshöjskolen
1984-86.
Starfaöi viö Apótek Austurbæjar með
og eftir nám.
Stofnaði Innréttingahúsiö 1978.
Framkvæmdastjóri þess til 1991.
Sjálfstætt starfandi, m.a. viö rekstur
fasteigna og kennslu 1991-.
Enn hefur ekki verið ráðið í
starf forstjóra Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar. Staða forstjóra var aug-
lýst 30. mars I vor og skv. auglýs-
ingunni hefði utanríkisráðherra
átt að skipa í stöðuna frá og með
15. mal sl. eða fyrir tveimur mán-
uðum. Ráðið er I stöðuna til fimm
ára en í auglýsingunni er m.a. gert
ráð fyrir háskólamenntun eða stað-
góðri menntun á sviði viðskipta.
Ekkert bólar hins vegar á ráðn-
ingu forstjóra en þrír sóttu um
stöðuna. Þeir eru: Ómar Kristjáns-
son, settur forstjóri, og viðskipta-
fræðingarnir Siguröur Jónsson og
Sigurður Karlsson.
Tveir með háskólapróf
Ómar Kristjánsson er eini um-
sækjandinn sem hefur ekki há-
skólamenntun en hann er oft
kenndur við fyrirtæki sitt, Þýsk-ís-
lenska. Hann var dæmdur i 15
mánaða fangelsi og að auki til
greiðslu tugmilljóna til ríkissjóðs
fyrir skattsvik og skjalafals árið
1990. Ómar starfaði áður hjá Sam-
bandi íslenskra samvinnufélaga,
m.a. í Hamborg til ársins 1976. Sig-
urður Jónsson útskrifaðist sem við-
skiptafræðingur frá Háskóla ís-
lands og hefur starfað sem forstjóri
Heildar hf. en undanfarin ár gegnt
starfi forstjóra innkaupadeildar
Sameinuðu þjóðanna. Sigurður
Karlsson útskrifaðist einnig sem
viðskiptafræðingur frá HÍ og stofn-
aði Inn-
réttinga-
húsið
árið 1978
og var
fram-
kvæmda-
stjóri
þess til
1991.
Þrátt fyr-
ir ítrek-
aðar til-
raunir
DV náðist
ekki sam-
band við
Benedikt
Ásgeirs-
son, skrif-
stofu-
stjóra í
utanríkis-
ráðuneyt-
inu,
vegna
þessa
máls. Hjá ráðuneytinu var sagt að
hann myndi hringja til baka en
ekkert símtal frá honum barst DV.
-hb
Mýrdalsjökull:
Nýjar sprungur
að myndast
DV.Vik:
„Við flugum yfir jökulinn til
að kanna sprungur í austan-
verðum jöklinum, Reynir
Ragnarsson í Vík benti á að
það væru nýjar sprungur að
myndast í sigkötlum á Kötlu-
svæðinu. Við könnuðum þetta
og það eru þama þrír sigkatlar
austan til sem em greinilega að síga.
Þetta em jarðhitakatlar sem em búnir
að vera þama lengi. Stafa þeir af jarð-
hitasvæðinu undir jöklinum og em á
þekktu svæði, þeir em að síga núna og
það er væntanlega það sem veldur
vatnavöxtunum í Múlakvísl," sagði Páll
Einarsson jarðeðlisfræðingur við DV.
Páll Einarsson.
DV-mynd Njörður
Ýmsir hafa haft orð á því að
lykt væri orðin af Markarfljóti
og í það væri komið hlaupvatn,
Páll sagði að það hefði verið
lykt af Markarfljóti um
nokkurn tíma.
„Ég fór þama yflr 9. júlí, þá
var lykt af Markarfljóti. Við
erum að leggja drög að því að
teknar verði radarmyndir úr
gervitunglum þegar færi gefst og safn-
að gögnum til að bera saman við upp-
lýsingar úr fyrri ferðum yfir svæðið.
Með þessum mælingum er hægt að
greina mjög litlar hreyfingar á yfir-
borðinu og hægt að ganga úr skugga
um hvaða sigkatlar era á hreyfmgu,"
sagði Páll. -NH
Tveir jeppar lentu í árekstri við Geitháls. Var áreksturinn nokkuð harkalegur
eins og sjá má og var ökumaður annars jeppans fluttur á slysadeild með
höfuð og bakmeiðsl en ekki alvarleg. Bílarnir eru mikið skemmdir og voru
dregnir í burtu með kranabíl. DV-mynd S
Smiðshögg á nýtingu Laugardalsins rekið:
Knattspyrnuhúsið í Grafarvog
Borgarráð Reykjavíkur hafði í
gær til meðferðar fjögur mál sem
snúa að skipulagi Laugardalsins og
uppbyggingu íþróttasvæðis í daln-
um. Skipulag Laugardals og fyrir-
hugaðar framkvæmdir voru kynnt-
ar á fundi borgarstjóra í gær. Til-
laga um byggingu fjölnota íþrótta-
og sýningarhúss við Laugardalshöll-
ina var lögð fram eftir að nefnd sem
skipuð var af borgarstjóra hafði gert
tillögur þar um. Gert er ráð fyrir að
slíkt hús verði fjármagnað og rekið
af Reykjavíkurborg, Samtökum iðn-
aðarins og íþróttabandalagi Reykja-
vikur. Þá var gerð tillaga um 50 fer-
metra innisundlaug við Laugardals-
laug auk heilsuræktarstöðvar. Lögð
var einnig fram tillaga um að knatt-
Borgarstjóri kynnir skipuiagið í Ráðhúsinu í gær. DV-mynd Hilmar Þór
spyrnuhúsi verði fundinn annar
staður en í Laugardalnum. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri sagði að gert væri ráð fyrir að
slíkt hús yrði byggt í Grafarvogi.
„Það sem er áhugavert við byggingu
slíks húss er að það er ekki ein-
göngu bundið við Reykjavík heldur
við hin sveitarfélögin líka. Þannig
getur hvaða lið sem er nýtt sér slíkt
hús,“ sagði Ingibjörg. Gert er ráð
fyrir að allar framkvæmdirnar
kosti tæpa 2 milljarða króna sem
skiptist hlutfallslega milli þeirra að-
ila sem að þeim koma. Ingibjörg
sagði að með þessum tillögum væri
nýting Laugardalsins fullmótuð og
hann frágenginn skipulagslega séð.
-hb
Líkur á að tík sem tekin var af eigendum í Þingholtunum verði aflífuð:
Scháfer-hundur beit tvo lögreglumenn
Schafer-tík var tekin af eigend-
um sínum við Grettisgötu í gær
eftir að tíkin hafði fyrir skömmu
bitið lögreglumann býsna illa.
Samkvæmt upplýsingum DV var
lögreglumaðurinn mjög marinn á
eftir og er talið að mun verr hefði
farið ef föt hans hefðu ekki hlíft
honum eins og raun bar vitni.
Samkvæmt heimildum DV beit
umræddur hundur annan lögreglu-
mann nokkru áður. Það mál var
hins vegar ekki kært eins og gert
var í síðara skiptið. Þá var verið að
leita að þýfi í húsnæði á Grettisgöt-
unni, þó ekki þar sem eigendur tík-
urinnar búa. Þeir hafa engu að sið-
ur margoft komið við sögu lögreglu.
Lögreglan sendi síðara bitmálið til
Reykjavíkurborgar, ekki síst í ljósi
þess að talið var að eigendur hunds-
ins skorti leyfi.
Jón Magnússon, hundaeftirlits-
maður Reykjavíkurborgar, sagði
við DV að dýralæknar muni á
næstu dögum taka um það ákvörð-
un hvort tíkin verði aflífuð. Hann
vildi ekkert um það segja hvernig
málið færi en benti á að reglugerðir
séu skýrar verði hundar uppvísir að
því að bíta fólk.
-Ótt
Stuttar fréttir i>v
Senda aðstoð
Ingibjörg
Pábnadóttir
heilbrigðisráð-
herra hefur
ákveðið að ís-
lenska ríkið
ábyrgist að
greiða sjúkra-
húskostnað 73
ára gamals manns sem liggur á
sjúkrahúsi í Taílandi. Trygginga-
stofnun ríkisins hafði neitað að
greiða fyrir læknishjálp og hefur
sjúklingurinn höfðað mál á hendur
Karli Steinari Guðnasyni, forsfjóra
Tryggingastofnunarinnar. Morgun-
blaðið greindi frá.
Norðurljós í nánd
Viðskiptablaðið greindi frá því
að allt stefndi í að íslenska útvarps-
félagið, Sýn og Skífan yrðu samein-
uð í eitt nýtt fyrirtæki, Norðurljós,
á allra næstu dögum. Auk þess
mundi um 35 prósenta eignarhlut-
ur í Tali fylgja.
Úrsögn úr vöktunarnefnd
Ólafur Magnús Magnússon hef-
ur ákveðið að segja sig frá störfum
í vöktunamefnd í Hvalfirði. Ólafur
er í Samtökunum óspillt land í
Hvalfirði og er óánægður með að
skýrsla um niðurstöður forrann-
sókna hefur ekki enn litið dagsins
ljós.
Deiliskipulag úr gildi
Deiliskipulag fyrir Hveravelli
sem samþykkt var af sveitarstjórn
Svínavatnshrepps hefur verið fellt
úr gildi af Úrskurðarnefnd
skipulags- og byggingarmála. Það
var Ferðafélag íslands sem kærði
deiliskipulagið til Úrskurðar-
nefndarinnar.
Formaður útvarpsráös
Menntamála-
ráðherra hefur
skipað Gunnlaug
Sævar Gunn-
laugsson fram-
kvæmdastjóra
formann út-
varpsráðs og
Gissur Péturs-
son framkvæmdastjóra varafor-
mann þess. Skipunin nær til kjör-
tímabilsins en sömu aðilar gegndu
störfunum á síðasta kjörtímabili.
Aldraðir aftur úr
Aldraðir hafa dregist verulega
aftur úr í tekjum og ekki náð að
halda í við tekjuþróunina í land-
inu. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu um hagi aldraðra sem Fé-
lagsvísindastofnun gerði. Aldraðir
hafa um 54 prósent af meðaltekjum
allra. Sjálfir gefa þeir sér háa ein-
kunn um hversu ánægðir þeir séu
með lífið. Meðaleinkunnin er 8,3
sem er hærra en á Norðurlöndum
almennt.
Ráðgjöf og eftirlit
Forsætisráðherra hefur skipað
nefnd um eftirlit og eftirlitsreglur
hins opinbera. Næstu mánuðina
verður unnið að því að móta
verksvið og verklag nefndarinnai-.
Formaður hennar er Orri
Hauksson, aðstoðarmaður forsætis-
ráðherra.
Einkavæðingarnefnd
Nefnd um
einkavæðingu
sem starfaði á
síðasta kjör-
tímabili mun
starfa áfram á
þessu. í henni
sitja Hreinn
Loftsson hrl.,
sem er formaður, Jón Sveinsson
hrl., Steingrímur Ari Arason hag-
fræðingur og Sævar Þór Sigur-
geirsson, löggiltur endurskoðandi.
Hagnaður hjá Flögu
Hagnaður Flögu varð um 12
milljónir króna á fyrstu sex mán-
uðum þessa árs en sölutekjur fyrir-
tækisins þrefólduðust á tímabilinu.
Um veruleg umskipti er að ræða
því félagið skilaði 11 milljóna
króna tapi á síðasta ári. Viðskipta-
blaðið greindi frá. -hb