Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
Fréttir
r>v
Ekið á stúlku á gangbraut:
Send heim í losti
- segir móðir stúlkunnar. Fóru í öllu eftir venjum, segir lögregluvarðstjóri
Ólöf Anna Halldórsdóttir, t.v., sem keyrt var á í Lækjargötu, ásamt Salóme Á. Halldórsdóttur, vinkonu sinni, sem var
með henni þegar slysið átti sér stað. DV-mynd Teitur
Ekið var á stúlku á unglingsaldri
á gangbraut í Lækjargötu við Mið-
bæjarskólann nýlega. Að sögn móð-
ur stúlkunnar voru málsatvik þau
að stúlkan var ásamt vinkonu sinni
að hjóla yfir gangbraut og var vin-
konan komin yfir. Stúlkan, Ólöf
Anna Hrafnsdóttir, fylgdi á eftir
þegar ökumaður um tvítugt hægði á
sér en gaf svo í og hugðist sveigja
fram hjá stúlkunni á gangbrautinni
sem er aðskilin frá umferð úr gagn-
stæðri átt. Ekki heppnaðist framúr-
aksturinn betur en svo að ökumað-
urinn ók utan í reiðhjól stúlkunnar
þannig að hún varð fyrir nokkrum
meiðslum. „Ökumaðurinn ók á hjól
dóttur minnar með þeim afleiðing-
um að það blæddi inn á hné hennar,
hún tognaði í mjöðm og er öll
skrámuð og bólgin í andliti og
hægri öxl, auk þess að hún var í
losti eftir atvikið. Sem betur fer
lenti höggið á fótstigi reiðhjólsins
og eins féll dóttir mín með höfuðið á
handlegginn en ef það hefði ekki
gerst vil ég ekki segja hvað hefði
orðið,“ segir Sigurlaug Ragnarsdótt-
ir, móðir stúlkunnar.
Ekki ánægð með vinnu-
brögð
Lögregla var kölluð til og er Sig-
urlaug ekki ánaégð með vinnubrögð
hennar. „Það komu tveir lögreglu-
bílar og mátti ekki miklu muna að
maðurinn styngi af því hann var
sestur inn í bíl þegar lögreglan kom.
Maðurinn var tekinn í yfirheyrslu í
öðrum bílnum sem var kallaður
burt og tók hinn þá við. Tók þetta
nokkra stund og voru vitni á svæð-
inu sem sáu sér ekki fært að bíða
allan þennan tíma. Eftir yfirheyrsl-
una var manninum sleppt en úti í
Svíþjóð, þar sem ég bjó um hríð,
hefði hann verið látinn blása í
blöðru og jafnvel verið sviptur öku-
réttindum á staðnum. Lögreglan
spurði svo dóttur mina, sem var
slösuð og í losti, hvort hún vildi fá
far heim. Þeir segjast hafa hringt
heim til mín og einhver fullorðinn
hafi svarað en tíu ára sonur minn
var einn heima og segir að enginn
hafi hringt. Hann hefði að sjálf-
sögðu gefið upp farsímanúmer mitt
ef einhver hefði hringt. Erlendis
hefði dóttir mín verið keyrð beint
upp á spítala en ekki send gangandi
heim. Ég vil endilega biðja vitni að
gefa sig fram og styðja frásögn okk-
ar. Meðal annars var þama rauð-
hærð kona í brúnum jakka sem
sagðist hafa séð hvemig ökumaður-
inn gaf í og vildi gjarnan bera vitni.
Hún þurfti bara að flýta sér og gat
ekki beðið allan þennan tíma eftir
lögreglu. Eins var þarna læknir sem
hlúði að stúlkunni. Vil ég endilega
biðja þessi vitni og önnur að gefa
sig fram,“ segir Sigurlaug.
Reyndir menn gerðu rétt
Samkvæmt upplýsingum frá
Hauki Ásmundssyni, aðalvarðstjóra
hjá lögreglunni í Reykjavík, komu
tveir reyndir slysarannsóknarlög-
reglumenn á vettvang og fóra þeir í
öllu eftir venjum í svona málum.
Var það bókað í lögregluskýrslu að
stúlkan vildi ekki, þrátt fyrir til-
mæli lögreglumannanna, vera flutt
á slysadeild og er það ekki venja að
flytja fólk nauðugt á sjúkrahús.
Eins segir Haukur að vitni, sem lög-
regla ræddi við, hafi staðið í stappi
við að halda stelpunum á slysstað
meðan beðið var eftir lögreglu því
þær sáu enga ástæðu til að bíða.
Hvað varðar það að hafa ekki látið
foreldra vita sagði Haukur að þeir
hefðu farið beint á annan slysstað
en hefðu ítrekað við stúlkumar að
hringja í foreldra. Þegar þeir svo
höfðu lokið störfum á hinum slys-
staðnum hringdu þeir heim til
stúlkunnar en þá sagði faðir hennar
að móðirin hefði þegar farið með
stúlkuna upp á sjúkrahús.
-hdm
Erótíkinni úthýst
. - ■ ~-<
Það gengur á ýmsu í
Grjótaþorpinu þessa
dagana. Einkum
stafar það af því að
Grjótaþorpið er í ná-
lægð við miðbæinn í
Reykjavík, ef ekki 1
miðbænum sjálfum.
Þetta hefur komið
ýmsum íbúum hverf-
isins á óvart. Þeir
hafa greinilega ekki
vitað hvar Grjótaþorp-
ið er eða þá hvar mið-
bærinn er, eða þá
hvorugt. í það
minnsta rekur fólkið í
rogastans, sem býr í
Grjótaþorpinu, þegar 1
ljós kemur að í Grjóta-
þorpinu er hávaða-
mengun úr miðbæn-
um og fyrir kemur
meira að segja að fólk
sem er á gangi í mið-
bænum leggi leið sína í Grjótaþorpið. Þessu
vilja íbúar Grjótaþorpsins mótmæla og er það
auðvitað rökrétt og eðlileg afleiðing af þeirri
staðreynd að íbúarnir í hverfinu fluttu í hverf-
ið án þess að gera sér grein fyrir því hvar
hverfið er staðsett. Verst er þó af öllu, að rekn-
ir eru skemmtistaðir í Grjótaþorpinu og þar á
meðal erótískur nektardansstaður og sagt er að
gestir staðarins valdi ónæði, hávaða og umferð
um þorpið, sem íbúarnir kunna alls ekki við.
Þeir kunna ekki við erótíkina sem fylgir þess-
um stað, enda mun hún berast út um götur
Grjótaþorpsins, eins og erótíkarinnar er siður,
þegar boðið er upp á erótík á annað borð. Nú
vilja íbúar Grjótaþorpsins útrýma þessari eró-
tík úr Grjótaþorpinu og segja að erótík sé ekki
liðin á þeim bæ. Það er svo sem allt í lagi þótt
íbúar Grjótaþorpins séu ekki erótískir en
merkilegt má það heita að heilt hverfi saman-
standi af fólki sem afneitar erótík og vill flæma
hana burt með opinberum boðum og bönnum.
Veslings borgaryfirvöldin hafa þurft að glíma
við þetta sérkennilega vandamál, sem felst í því
að nokkrir íbúar í borginni hafa sest að í mið-
borginni og vilja útrýma öllu því úr miðborg-
inni, sem tilheyrir miðborg. Niðurstaðan er sú
að borgarráð hefur samþykkt að ekki megi
vekja upp erótík í húsinu nr. fjögur við Aðal-
stræti, það er að segja í bakhúsinu, sem þýðir
væntanlega að í því húsi sé verri og meiri eró-
tik en í húsunum í kring. Skynsamlegast væri
auðvitað fyrir borgaryfirvöld að banna erótík
með öllu í þeim húsum sem f Grjótaþorpinu
standa, enda búa þar eingöngu karlar og konur,
sem vilja úthýsa erótík úr öllu sínu næsta ná-
grenni og þurfa ekki á svoleiðis tíkum að
halda. Næsta skrefið er svo að leita uppi fólk
sem er á breimerí eða hefur kynhvatir yfirleitt
og banna því að ganga um Grjótaþorpið, ef ske
kynni að það truflaði skírlífið í Grjótaþorpinu.
Og svo er auðvitað einfaldast að flytja miðbæ-
inn burt frá Grjótaþorpinu, svo þetta fólk hafi
frið fyrir því nágrenni sem það hefur valið sér
sjálft. Annars væri það ekki búsett í Grjóta-
þorpinu.
Dagfari
Frændgarður
Formaður Þjóðvaka, Jóhanna
Sigurðardóttir, hefur nú augun
opin fyrir nýjum stuðningsmönn-
um en allt eins líklegt þykir að
stuðningshundur hennar til
margra ára, Óskar
Guðmundsson, yfir-
gefi hana á næstu
dögum og vikum.
Ástæðan er skyndi-
leg hrifning Óskars
af fyrrum stjórnar-
formanni Lindar
hf., Halldóri Guð-
bjarnarsyni, en
Óskar skrifaði eftirminnilega lof-
grein um Halldór í blöðin á dögun-
um þar sem hann mælir með því
að Halldór setjist í stól seðlabanka-
stjóra eftir að hafa afrekað 900
milljóna króna tap Lindar hf. Auð-
vitað er það tilviljun að eiginkona
Óskars, Kristín Ólafsdóttir, og
Halldór Guðbjarnarson eru
systkinabörn...
Min Tanka
í Vef-Þjóðviljanum segir frá því
að með lokun skemmtistaðarins
Club Clinton í Gijótaþorpinu verði
ekkert úr heimsókn Hillary Clint-
on þangað, þegar hún kemur til
landsins í október.
Vef-Þjóðviljinn rifj-
ar enn fremur upp
að lokunin sé
stefnubreyting hjá
vinstrimönnum í
Reykjavík því fyr-
ir um 20 árum
þegar þeir vom
við völd var feng-
inn til landsins japanskur
listamaður, Min Tanka, „sem
skók sig nakinn fyrir allra augum
á miðju Lækjartorgi. Þá var dans-
að fyrir augum barna og fullorð-
inna hvort sem þeir höfðu beðið
um slíkt eða ekki,“ segir í Vef-Þjoð-
viljanum. Ærið verkefni fyrir
Skúla Helgason, framkvæmda-
stjóra Reykjavíkur - menninga-
borgar árið 2000, að fá Min Tanka
aftur til landsins þar sem Club
Clinton verður lokað...
Ásmundur flytur
Á sínum tíma vakti það nokkra
athygli þegar Ásmundur Stefáns-
son, hagfræðingur og þá talsmaður
verkalýðshreyfingarinnar, söðlaði
framkvæmdastjóri
Islandsbanka. Margir
líktu því við að Ás-
mundur hafi viljað
lækka vexti fyrir
, eða þegar
hann var talsmað-
ur verkalýðshreyf-
ingarinnar en
hækka þá eftir há-
degi, eða þegar
hann varð framkvæmdastjóri
bankans. Ásmundur situr sem fast-
ast í stóli framkvæmdastjóra við
Kirkjusand og hefur nú keypt sér
einbýlishús í auðmannshverfi
landsins, Arnamesinu, þar sem
áður bjó Davíð Scheving Thor-
steinsson...
Gera það gott
Ungir hægri menn á íslandi hafa
hlotið hverja viðurkenninguna á
fætur annarri síðustu misseri. Fyr-
ir nokkru var Sigmundur Sigur-
geirsson, formaður utanríkismáia-
nefndar Sambands
ungra sjálfstæðis-
manna, kjörinn 1.
varaformaður
European Young
Conservatives með
öllum greiddum
atkvæðum aðild-
arþjóðanna. Þyk-
ir slíkt einsdæmi í samtökun
um. Og um helgina gerðist það ai
Sigurjón Pálsson byggingarverk
fræðingur var kjörinn formaðu:
Noröurlandasamtaka hœgr
manna. Er víst að engin önnur ung
liðahreyfing á landinu geti státað a
jafn öflugum fulltrúum og SUS...
Umsjón: Hjálmar Blöndal
Netfang: sandkom @ff. is