Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 Útlönd Albright sendir sáttasemjara til Kína og Taívans Madeleine Albright, utanríkis- ráöherra Bandaríkjanna, til- kynnti í gær aö Bandaríkjastjóm ætlaöi aö senda háttsetta stjómar- erindreka til Kína og Taívans til þess að reyna að miðla málum. Spennan milli ríkjanna jókst enn frekar í gær þegar Lee Teng- hui, forseti Taívans, lýsti því yfir aö eitt Kína væri aðeins mögulegt með lýðræöislegri sameiningu við meginlandið. Lee ítrekaði að þangað til bæri að líta á löndin sem tvö aðskilin ríki. Kinversk yfirvöld birtu í gær mynd frá heræfingu á óþekktum stað í suðurhluta Kína. Er litið á myndbirtinguna sem lið í tauga- stríðinu gegn Taívan. Ekki er talið útilokað að Kínverjar geri árás á eina af minnstu eyjum Taívans í því skyni að senda yfirvöldum í Taipei skýr skilaboö. UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum veröur háö á þeim sjálf- um sem hér segir: Búðareyri 15, 1. hæð (n.h.), Reyðarfirði, þingl. eig. Trévangur ehf., gerðarbeiðend- ur Fjarðabyggð, Fjárfestingarbanki at- vinnul. hf., Kaupfélag Eyfirðinga og Sæplast hf., föstudaginn 23. júlí 1999, kl. 13.00. Búðareyri 15, 2. hæð (e.h.), Reyðarfirði, þingl. eig. Trévangur ehf., gerðatbeiðend- ur Fjarðabyggð og Sæplast hf., föstudag- inn 23. júlí 1999, kl. 13.20. Heiðarvegur 23C, Reyðarfirði, þingl. eig. Anna Ardís Helgadóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Húsbréfa- deild Húsnæðisstofnunar, föstudaginn 23. júh' 1999, kl. 13.45. Steinar 9, Djúpavogi, þingl. eig. Hjörtur Asgeirsson, gerðarbeiðendur Sveinn Skúlason og sýslumaðurinn á Eskifirði, föstudaginn 23. júh' 1999, kl. 16.00. SÝSLUMAÐURINN Á ESKIFIRÐI John F. Kennedy fundinn grafreitur í Arlingtonkirkjugarðinum: Leitin einangruð við eitt svæði Flugvélar Kennedyhjónanna, sem fórst undan strönd Martha's Viney- ard á fóstudagskvöld, er enn leitað. Leitin mun hafa borið nokkum ár- angur í gær og snemma í morgun bámst fréttir af því að leitarmenn væm búnir aö einangra rúmlega 200 fermetra svæði sem þeir hyggj- ast einbeita sér að í dag. „Við erum nokkuð vissir um hvar vélin hrapaði í sjóinn. Radar- mælingar benda til ákveðins svæðis og kafarar sem fóru niður í gær em vongóðir um að við séum á réttum slóðum,“ sagði Richard Larrabee, yfirmaður bandarisku strandgæsl- unnar. Orsakir flugslyssins verða ekki ljósar fyrr en flakið finnst. Að sögn Öryggisnefndar flugmála hallast flestir að því að Kennedy hafi misst stjóm á vélinni. Á ratsjám má sjá að hún tók margar krappar beygjur undir það síðasta, hækkaði og lækk- aði flug á víxl. „Mælamir kunna aö hafa bilað en lokaniðurstaðan verð- Flugvél Johns F. Kennedy yngra er enn ófundin. Símamynd Reuter ur að mínu mati sú að Kennedy missti stjóm á vélinni. Á einu stigi er ljóst að vélin hrapaði 1500 metra á mínútu," sagði Robert Pearce, sem rannsakar flugslysið. Undirbúningur í Arlington í Arlingtonkirkjugarðinum í Was- hington hófu starfsmenn í gær, að eigin fmmkvæði, að mæla út hugs- anlegt leiði Johns F. Kennedys yngra. „Það hefur ekki borist ósk frá fjölskyldunni um að John F. verði jarðaður hér en við viljum vera við öllu búin,“ sagði David Theall, talsmaður í Arlington. Gert er ráð fyrir að hinsta hvíla Johns F. yngra verði í Kennedygraf- reitnum. Þar era jörðuð, John F. Kennedy forseti, Jackie Bouvier Kennedy, sem lést 1994, Patrick Kennedy, sem lést 2 daga gamall ár- ið 1963 og óskírt bama Kennedyhjón- anna sem fæddist andvana árið 1956. Hvorki Kennedyfjölskyldan né Bessettefjölskyldan hafa gefið út yf- irlýsingu um með hvaða hætti þremenninganna verður minnst. Ungur piltur leggur blómvönd við heimili Kennedy-hjónanna í Tribecahverfinu í New York. Mikill fjöldi fólks hefur lagt leið sína að húsinu og kvatt John F. Kennedy, eiginkonu hans og mágkonu hinstu kveðju með blómum, teikningum, bréfum og kertum. Símamynd Reuter Okumaður talaði í tvo far- síma undir stýri Ökumenn í fsrael em alræmdir fyrir glannalegan akstrn-. Umferð- arlögreglan þar í landi taldi sig því hafa séð allt þar til hún greip mann sem ók bifreið sinni með farsíma á báðum höndum. Maöurinn var svo upptekinn við að tala í báða símana er hann ók um götur borgarinnar Netanya að hann stýrði bifreið sinni með olnbogumnn, að því er segir í frétt ísraelska dagblaðsins Haar- etz. Lögreglumaður stöðvaði ferð ökumannsins er hann sá gráa Mitsubishibifreið hans rása til hliðanna. í ísrael er bannað að tala í síma við akstur. Þeir sem brjóta bann- ið fá venjulega háar sektir en geta siðan haldið áfram að keyra. Fyrrgreint mál var sent til umferðarlagadómstólsins. Stuttar fréttir dv Óttast hryðjuverk Alsírskir múslímar hafa hótað hryðjuverkum víða um Belgíu 1 dag þegar landsmenn halda upp á þjóðhátíðardag sinn. Samtök múslímanna heimta frelsi al- sírskra fanga í Belgíu. Efnavopnageymsla Rússnesk yfirvöld vísuðu í gær á bug fréttum að leynilega efna- vopnageymslu á Kólaskaga. Áfram mótmæli Mótmælendur söfnuðust saman í fjórum borgum Serbíu í gær og kröfðust afsagn- ar Slobodans Milosevics Júgóslavíufor- seta. Mestur var mannfjöldinn í Kragujevac þar sem þúsundir tóku þátt i mót- mælunum. Mótmælendur kröfð- ust þess jafnframt að allir sem handteknir hefðu verið i friðsam- legum mótmælagöngum yrðu látnir lausir. Dómar ógiltir Hæstiréttur á Spáni ógilti í gær 7 ára fangelsisdóma yfir 23 fyrr- verandi leiðtogum stjórnmála- arms aðskilnaöarhreyfingar Baska, ETA. Dómarnir voru álitn- ir alltof þungir. Viagra fyrir jurtir Lítill skammtur af rislyfmu Vi- agra kemur í veg fyrir að blóm visni. Lyfið eykur einnig geymsluþol ávaxta og grænmetis, að sögn vísindamanna. Pantaði morð Vitni í morðmáli Orderudfjöl- skyldunnar í Noregi segir að nekt- arfyrirsætan Kristin Kirkemo, sem er hálfsystir mágkonu Anne Orderud Paust, hafi beðið sig um að leigja morðingja fyrir um 7 milljónir íslenskra króna. Eitraður vindill Kúbverski ofurstinn José Perez Fernandez greindi fyrir rétti í Havanna frá því að gerðar hefðu verið 637 til- raunir til að ráða Fidel Castro Kúbufor- seta af dögum, allar ,að undir- lagi Bandaríkj- anna. Tilraunir vora gerðar til að gefa forsetanum eitraðan vindil, banvænar bakteríur voru settar í kafarabúning hans og vopn voru falin í myndbandsupptökuvélum. Kúba krefst 181 milljarðs dollara í skaðabætur vegna dauða og slysa á Kúbverjum síðustu 40 árin. Löggur hnupla Tveir rússneskir lögreglumenn vom gripnir í vöruhúsi í Stokk- hólmi fyrir að stinga á sig sjampói, kertum og fleira. Suharto á batavegi Líðan Suhartos Indónesíuforseta, sem fluttur var á sjúkrahús í gær með hjartaáfall, var betri í morgun. Bjartsýnir á frið Bretar og N-írar afhentu í gær bandaríska þingmanninum Geor- ge Mitchell gögn um stöðu mála í friðar- umleitunum og kváðust bjart- sýnir á að geta bjargað friöar- samningunum. Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, sagði Mitchell myndu ræða við alla flokka N-írlands í þessari viku. Hnerraði í gröfinni Sextugur íraki hræddi liftór- una úr sínum nánustu þegar hann hnerraði í gröf sinni. írak- inn sagðist hafa séð þrjár verur sem ætluðu aö fara með hann til paradísar. Veramar sögðu hins vegar að hann væri ekki sá sem þær ætluðu að sækja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.