Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Síða 13
13
MIÐVTKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
dv Fréttir
Sundhöllin við Barónsstíg lagar sig að nútímanum.
Sundhöllinni lokað í mánuð:
Karla- og
kvennaskýli
sameinuð
- háar byggingar rjúfa friðhelgi
Sundhöllinni við Barónsstíg
verður lokað í mánuð í sumar vegna
viðgerða og ýmissa breytinga sem
taldar eru tlmabærar. Lokað verður
26. júlí og opnað aftur 23. ágúst.
„Það verður að gera við anddyrið.
Það er allt farið að leka og flísar
sprungnar. Þá þarf að laga flísar í
lauginni sjálfri," sagði Gisli Jens-
son, forstöðumaður Sundhallarinn-
ar, sem boðar byltingakenndar
breytingcu- á gömlum hefðum laug-
arinnar. „Það er kominn tími til að
sameina kvenna- og karlaskýli sem
notuð hafa verið til sólbaða því þau
eru ekki lengur fjölskylduvæn. Ef
fjölskyldan ætlar í sólbað þá verður
pabbi að vera öðrum megin og
mamma hinum megin með bömin.
Þá hafa háar byggingar í nágrenn-
inu gert það að verkum að ekki er
lengur hægt að baða sig nakinn í
sólinni eins og tíðkaðist hér áður
fyrr. Það sjá allir beint ofan í skýl-
in,“ sagði Gísli.
Þá er ráðgert að koma upp eim-
baði við heitu pottana í Sundhöll-
inni en allar leiðslur til þess verks
eru tilbúnar. Vonast Gísli eftir að
hægt verði að ráðast í verkið strax
á þessu ári. Sundhöllin er orðin 63
ára og þó hún sé orðin slitin þá hef-
ur hún staðist timans tönn betur en
margar aðrar byggingar að sögn
Gísla: „Ég hefði gaman af að sjá
blokkirnar í Breiðholtinu eftir 63
ár,“ sagði Gísli Jensson.
-EIR
Georg Guðmundsson, plastviðgerðarmaður á Patreksfirði, ieggur lokahönd
á breytingar á mb. Kristínu Þórunni ÍS frá Þingeyri.
DV-mynd Guðm. Sig.
Patreksfjöröur:
Plasttækni í salthúsi
Vatneyrarbræðra
DV, Patreksfiröi:
„Þetta er elsta starfandi plastverk-
smiðja á Vestfjörðum og það eru nóg
verkefni. Maður kemst ekki yfir allt
sem beðið er um. Ég er núna að leggja
lokahönd á að breyta bát frá Þingeyri
sem var verið að setja á síðustokka og
lunningar auk þess sem hann var
dekkaður. Verkefnin snúast um breyt-
ingar og viðgerðir á bátum þannig að
maður hefur ekki komist í að sinna
neinni nýsmíði. Það eru uppi á borð-
inu hugmyndir um nýsmíði en þær
verða að bíöa betri tírna," segir Georg
Guðmundsson, plastviðgerðarmaður á
Patreksfirði.
Plasttækni Georgs Guðmundssonar
er í gömlu og virðulegu húsi neðst á
eyrinni á Patreksfirði. Húsið var í
eigu hinna kunnu Vatneyrarbræðra
sem notuðu það fyrir salthús á vel-
mektardögum sínum á Patreksfirði.
Með mikilli fjölgun smábáta og þá
einkum plastbáta hefur plastiðnaður-
inn tekið nokkurn kipp samfara því
að hefðbundnar skipasmiðar úr tré
hafa nánast lagst af. Georg segir alla
breytingavinnu vera orðna útboðs-
verk og að hann vinni fyrir aðila um
allt land.
„Ef um er að ræða verk langt í
burtu fer ég á staðinn og vinn verkið
þar í stað þess að láta menn sigla bát-
um sínum jafnvel austan af fjörðum
en til þess þurfa þetta að vera sæmi-
leg verk. Ég var kominn með menn í
vinnu hjá mér á timabili en svo ákvað
ég að þróa þetta út í það að vera einn
og skaffa mér vinnu. Áður en ég fór í
þetta var ég smábátasjómaður þannig
að maður veit um hvað menn eru að
tala þegar þeir vilja láta breyta eða
laga hjá sér,“ segir Georg. -GS