Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Síða 15
J MIÐVIKUDAGUR 21. JULI 1999 15 Fjarkennsla á fleygiferð I DV laugardaginn 17. júlí kemst Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Akur- eyrar, þannig að orði, að eina raunhæfa byggðaaðgerðin mörg undanfarin ár hafi ver- ið að stofna Háskólann á Akureyri. Meira í sama dúr þurfi að ger- ast. í haust eru 12 ár lið- in frá því að Háskól- inn á Akureyri tók til starfa. Með stofnun hans var stigið mikil- vægt skref til að treysta forsendur byggðar á Akureyri, auk þess sem stjórnendur skólans hafa, einkum hin síðari ár, beint athygli sinni og annarra að kost- um þess að bjóða háskólanám með fjarkennslu víðs vegar um landið. Áður hafði Kennaraháskóli ís- lands hafið fjarkennslu, sem nýtur sívaxandi vinsælda. Háskóli ís- lands er einnig að stíga sín fyrstu Kjallarinn Björn Bjarnason menntamálaráðherra „I öllum kjördæmum landsins starfa nú samtök eða miðstöðvar til að efla símenntun og endur- menntun, þar sem bæði er boðið nám á framhaldsskóla- og há- s kólastigi. Styrkur þessarar starfsemi felst meðal annars í kostum fjarkennslunnar. “ skref á þessari braut og sömu sögu er að segja um Samvinnuháskól- ann í Bifröst og Viðskiptaháskól- ann í Reykjavík. Verkmenntaskólanum á Akur- eyri var á sínum tíma falið að verða tilraunaskóli við fjarkennslu á framhaldsskólastigi. Stunda margir nem- endur fjamám við skólann. Fleiri fram- haldsskólar vilja fá tækifæri til að láta að sér kveða á þessu sviði. í öllum kjördæm- um landsins starfa nú samtök eða mið- stöðvar til að efla sí- menntun og endur- menntun, þar sem bæði er boðið nám á framhaldsskóla- og háskólastigi. Styrk- ““““““ ur þessarar starf- semi felst meðal annars í kostum íjarkennslunnar. Úr grasrótinni Við íslendingar höfum góða reynslu af því að nýjungar við nýt- ingu tölvutækninnar til skóla- starfs spretti úr grasrótinni. Pétur Þorsteinsson, þáverandi skóla- stjóri á Kópaskeri, varð fyrstur til að vekja áhuga skólamanna á Netinu og kostum þess. Brautryðj- endastarf hans á þessu sviði verður seint fullþakkað. Ekki þarf leng- ur að reka neinn áróður fyrir því, að menn nýti sér upplýsingatækni eða Netið í skóla- starfi. Öllum eru kostirnir ljósir. Spurningin er frekar, hve hratt við getum farið án þess að missa sjónar á markmiði okkar og falla frá þeim gæðakröfum, sem nauð- synlegt er að gera. „í nýjum námskrám fyrir grunnskóla og framhaldsskóla er byggt á því að upplýsingatæknin verði nýtt í ölium námsgreinum og enginn fari úr grunnskóla án þess að kunna á lyklaborðið." í nýjum námskrám fyrir grunn- skóla og framhaldsskóla er byggt á því, að upplýsingatæknin verði nýtt í öflum námsgreinum og eng- inn fari úr grunnskóla án þess að kunna á lyklaborðið. Fróðleikur, framleiðni og fæmi er við fingur- gómana í orðsins fyllstu merk- ingu, þegar litið er til tölvunnar. Ný úrræði Fjarkennsla og aukin áhersla á hana skapar ný úrræði í mennta- og byggðamálum. Menntamálaráðu- neytið hefur haft forystu um að öll- um fjarnemum verði skapað sama starfsumhverfi með því að leita til- boða í fjarkennsluforrit. Er ástæða til að vænta þess, að allir, sem bjóða fjamám í landinu, taki þátt i samstarfi um sameiginlegt forrit. í þessu skólastarfi eins og endranær eiga hagsmunir nem- enda að vera í fyrirrúmi, skólar era ekki til án nemenda. Taka verður mið af nýjum kennsluhátt- um í kjarasamningum við kenn- ara og hefur verið lagður gmnnur að því. Hlutverk kennara breytist vegna tækninnar og samskipti þeirra við nemendur verða önnur en áður. Skilgreina þarf samstarf um fjarkennslu, símenntun og endur- menntun. Ríkisstjórnin hefur ákveðið, að yfirstjórn símenntun- ar sé í höndum menntamálaráðu- neytisins. Ráðuneytið vill stuðla að frumkvöðlastarfi á þessu sviði menntamála um leið og hugað er að samráði og samstarfi um nauð- synlega grunnþætti. Hafi Háskólinn á Akm-eyri sannað á 12 árum, að stjómvöld hafi fátt skynsamlegra gert i byggðamálum, höfum við ekki minni tækifæri nú en þá til að styrkja byggðir með aukinni menntun. Björn Bjarnason Ódýrir fataleppar - umhverfi og fólki fórnað Líkt og fyrirboði efnahagshruns lá þykkur mökkur yfir stórum hluta Asiu sumarið 1997. Nýlega mældu visindamenn mengun yfir Indlandshafi sem slær öll fyrri met og undirstrikar enn einu sinni hættuna sem fylgir því að flytja framleiðsluna til landa sem hika ekki við að eitra umhverfið ef það skilar þeim gróða í augna- blikinu. Mökkurinn yfir Indlands- National Labor Committee (NLC) í Bandaríkjunum sýna að Kínverj- ar seldu 1.000.000.000 (þúsund milljónir) flíkur til landsins á fyrstu 10 mánuðum 1997 eða íjórar á hvern íbúa. Kínverskar fata- verksmiðjur minna meira á fang- elsi en vinnustað. Þær eru í ómerktu húsnæði, faldar á bak við stálgrindur og vinnuaflið er undir smásjá allan sólarhringinn. Sautján ára virðast nær eignast böm. aldrei „Vinnandi fólk á Vesturlöndum getur ekki keppt við þræla sem hægt er að kasta út eftir nokkur ár og því ríkir víða varanlegt at- vinnuleysi. Færri borga tekju- skatta á Vesturlöndum og stjórn- völd bjarga sér i horn með þrálát- um niðurskurði til skóla• og heil- brigðismála hafi er á stærð við Bandaríkin (hundrað sinnum stærri en ísland) og rís í tíu þúsund fet. Hann á upp- tök sín i Kína og nágrenni. Mestallt frá Asíu Það skiptir litlu máli hvar mað- ur verslar nú á dögum, flestir hlutir virðast koma frá Asíu og þá sérstaklega Kína. Tölur frá stúlkur era ráðnar í sauma- skapinn og rekn- ar þegar þær ná 26 ára aldri. Hvemig geta 26 ára stúlkur ver- ið of gamlar eftir aðeins 9 ára starf við að sauma gallabux- ur og annan tískufatnað á Vesturlandabúa? Þessar réttlausu konur vinna 7 daga vikunnar, oft til miðnættis, fyrir að meðaltali um 15 kr. á tímann, sofa 15 saman í herbergi og borða þunnan hrís- grjónavelling í flest mál. Verka- lýðsfélög era bönnuð og þær em tafarlaust reknar ef þær ræða um aðbúnaðinn við nokkum mann. Það er líka sláandi að verksmiðju- þrælar í Asíu, konur á besta aldri, Hrikaleg dæmi NLC (netsíðan: www.nlcnet.org) bendir líka á önnur hrikaleg dæmi. Kon- ur í Kína, sem vinna 70 tíma á viku við að sauma Kathie Lee handtöskur, fá um 1000 kr. 1 mánaðar- laun. Niu til tólf ára böm í Bangladesh fá innan við fjórar kr. á tímann við að sauma skyrtur fyrir risafyr- irtækið Wal-Mart og era barin þegar þau ““ gera mistök. Konur á Haiti fá 4 kr. fyrir hverja flík sem draumafram- leiðandinn Disney selur fyrir 1500 kr. í E1 Salvador fá ungar stúlkur 10 kr. fyrir hverjar gallabuxur sem þær sauma fyrir GAP-keðj- una. Allir tapa. Þegar öllu er á botninn hvolft er þetta ekkert annað en kapphlaup um að ná botninum sem fyrst. Stórfyrirtækin bjóða út verkefni á stöðum þar sem fólki er misboðið og umhverfið eyðilagt. Vinnandi fólk á Vesturlöndum getur ekki keppt við þræla sem hægt er að kasta út eftir nokkur ár og því rík- ir víða varanlegt atvinnuleysi. Kjallarinn Jóhannes Björn rithöfundur Færri borga tekju- skatta á Vesturlönd- um og stjórnvöld bjarga sér i hom með þrálátum niðurskurði til skóla- og heilbrigð- ismála. Hjáipinni stolið Næst er talað um að skeröa laun fólks og frítíma. Allt gerist þetta á sama tíma og aukin tækni ætti að hafa stórbætt kjör al- mennings. Velferð einstaklingsins og verndun náttúrunnar eru aldrei á dagskrá þegar valdaklíkan í Kína eða verksmiðjueigendur víð- ast í Asíu taka ákvarðanir. Þegar Yangtze-stíflan í Kína rís þá fara heimili 1,3 milljóna einstaklinga sem stunda landbúnað undir vatn og algjör örbirgð blasir við þessu fólki. Takmarkaðri hjálp frá hinu op- inbera hefur hingað til verið stolið af embættismönnum á svæðinu en margir þeirra keyptu valdastöður gagngert til þess að geta grætt á þeim persónulega. Er ekki mál að taumlausri fríverslun við þessa óvini vinnandi fólks og náttúru heimsins linni? Jóhannes Björn Me5 og á móti Lögmæti fjöldauppsagna opinberra starfsmanna Uppsagnir kennara á höfuðborgarsvæðinu hafa valdið deilum í þjóðféiaginu og sitt sýnist hverjum um lögmæti þeirra. Kennar- ar segja að ekki sé um hópuppsagnir að ræða heldur sé hverjum og einum frjálst að segja upp sýnist honum svo, á meðan aðrir segja uppsagnirnar hreinar og klárar hópuppsagnir. Réttur til uppsagna er ótvíræður „Hópuppsagnir í þeim tilgangi að knýja vinnuveitanda til að breyta kjarasamningi eru ólölegar þótt það sé reyndar hvergi sagt berum orð- um í lögum um kjarasamninga opin- berra starfsmanna. í lögunum er sagt að stéttarfé- lög beri ábyrgð á samningsrofum félagsmanna ef það á sjálft sök þeim. Það er aflt og sumt. Það er á hreinu að hverj- um og einum op- inberum starfs- manni er sam- kvæmt lögum heimilt að segja Eiríkur Brynjólfs- son kennari. Hefur sagt stööu sinni lausri. stöðu sinni lausri með þriggja mán- aða fyrirvara. Og þótt einhver fjöldi manna fái þá flugu í höfuðið að segja upp á sama tíma þá verður það ekki þar með skipulögð hópupp- sögn. Ástand á vinnustað getur ver- ið svo hræðilegt að menn beinlínis flýi. Til þess að uppsagnir flokkist sem samningsrof þurfa þær að vera skipulagðar fyrir fram í þeim til- gangi að fá viösemjandann til aö breyta kjarasamningi. Þær uppsagn- ir sem mest hafa verið ræddar að undanfórnu eru alls ekki fyrir fram skipulagðar og þess vegna á engan hátt samningsrof. Niðurstaða mín er alveg skýr. Hverjum og einum er frjálst að segja starfi sínu lausu hvenær sem hann kýs. Þessu verður ekki breytt nema með því að skerða persónurétt launamanna. Ef vinnu- veitandi dregur lögmæti þeirra í efa þá hlýtur hann að leita til dómstóla. Þá þarf hann reyndar að finna ein- hvern sem hefur staðið fyrir upp- sögnunum og unnt er draga til ábyrgðar. En auövitað ætti vinnu- veitandinn frekar að velta fyrir sér ástæðum uppsagnanna.“ Ömurlegt að geta ekki treyst á að samningar haldi „Orð skulu standa, svo maður tali nú ekki um undirritaða og formlega frágengna kjarasamninga sem unnir hafa verið eftir lögformlegum leið- um. Leiðum sem báðum aðilum eru kunnar og hvorugur hefur mótmælt eða gert tillögu um að breyta. Hópuppsagnir starfsstétta sem þegar hafa geng- ist undir kjara- samninga hljóta að vera ólöglegar vegna þess að fólk hefur um þær samráð og þær eru gerðar í þeim tilgangi að knýja fram kjarabætur. Ef hópupp- sagnir fá að ganga yfir vinnumark- aðinn án þess aö reynt sé að spyrna við fótum leiöir þaö til algerrar upp- lausnar. Það er ömurlegt að geta ekki lengur treyst þvi að gerðir samningar standí eða að samnings- umboð stéttarfélaganna haldi. Sum- ir forystumenn stéttarfélaga hafa haft smekk fyrir að réttlæta þessar aðferðir, sú réttlæting er í meira lagi vafasöm þar sem þeir aðilar bera ábyrgð umfram aðra á gildandi kjarasamningum og ber lögum sam- kvæmt að hafa önnur og betri vinnubrögð í heiðri. Ég hef af því áhyggjur að fyrirbærið hópuppsagn- ir eigi eftir að éta stéttarfélögin inn- an frá.“ -HK Ingunn Guömunds- dóttir, formaöur bæjarráös Árborg-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.